31.12.2014 | 16:07
Fleiri hælisleitendur hingað?
má spyrja ef draga á alyktanir af þróun í kring um okkur?
Í Morgunblaðinu á mánudaginn er þessi frásögn:
"Nýrri hreyfingu gegn íslömskum áhrifum hefur vaxið fiskur um hrygg í Þýskalandi upp á síðkastið. Undanfarnar tíu vikur hafa farið fram mótmæli á hverjum mánudegi á vegum hreyfingarinnar og hefur þátttakendum fjölgað jafnt og þétt. 22. desember mótmæltu 17 þúsund í Dresden í austurhluta Þýskalands og var það mesta þátttakan frá upphafi.
Hreyfingin nefnist »Evrópskir föðurlandsvinir gegn íslamsvæðingu Vesturlanda« eða PEGIDA. Hún var stofnuð í október í Dresden, höfuðborg Saxlands. Hlutfall íbúa þar af erlendum uppruna er 2,2%. Þátttakan í mótmælum samtakanna hefur verið mun meiri í austurhluta landsins en vesturhlutanum, þar sem aðeins nokkur hundruð manns hafa tekið þátt í mótmælum.
Í stefnuskrá samtakanna, sem birt var fyrr í mánuðinum, segir að um sé að ræða grasrótarhreyfingu, sem hafði það markmið að vernda kristileg gildi. Hvatt er til umburðarlyndis gagnvart múslimum, sem hafi »aðlagast«, um leið og lýst er yfir andstöðu við »kvenhatur og ofbeldi í hugmyndafræði« íslamista. Þar er spjótum beint gegn »lygnum fjölmiðlum«, »pólitískum valdastéttum« og »fjölmenningarhyggju«.
Andstæðingar samtakanna segja að þau noti lítt dulbúinn málflutning nýnasista og gagnrýna þau fyrir að kynda undir andúð á útlendingum einmitt þegar hælisleitendur horfi vonaraugum til Þýskalands og landið sé komið í annað sæti á eftir Bandaríkjunum af þeim löndum, sem fólk helst vilja flytja til.
Aukin þátttaka í mótmælum Pegida hefur vakið sterk viðbrögð stjórnvalda. Joachim Gauck, forseti Þýskalands, sem var prestur í AusturÞýskalandi fyrir fall Berlínarmúrsins og studdi baráttuna fyrir lýðræði, notaði tækifærið í árlegu jólaávarpi sínu til að skora á fólk að sýna umhyggju og vera opið gagnvart hælisleitendum. »Að við bregðumst af samúð við neyðinni í kringum okkur, að flest okkar skuli ekki fylgja þeim, sem vilja loka Þýskalandi, það er sú reynsla frá þessu ári, sem er mér hvatning,« sagði Gauck.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, varaði Þjóðverja við því fyrr í mánuðinum að falla fyrir lýðskrumi útlendingahaturs.
Wolfgang Schäuble fjármálaráðherra sakaði hina pólitísku stétt á miðvikudag um að hafa brugðist og látið fólk fá á tilfinninguna að hagsmunir þess væru vanræktir. Um leið þyrftu stjórnmálamenn að verja gildi lýðveldisins, sem reis úr rústum seinni heimsstyrjaldar, þar á meðal með því að sýna hælisleitendum rausnarskap.
»Hvers konar fólk værum við ef við, með okkar velmegun, vísuðum flóttamönnum burt,« sagði hann í viðtali við dagblaðið <ská>Rheinische Post.
Pegida hefur einnig fengið hörð viðbrögð úr atvinnulífinu. Ulrich Grillo, forseti Samtaka iðnaðarins í Þýskalandi, sagði að samtökin græfu undan hagsmunum og gildum landsins.
»Við höfum lengi verið þjóð innflytjenda og verðum að vera það áfram,« sagði Grillo við þýsku fréttaþjónustuna DPA. »Sem velmegandi land og einnig af kristilegum náungakærleika ætti land okkar að taka á móti fleiri flóttamönnum.«"
Í Morgunblaðinu í gær stendur svo:
"Stjórnarflokkarnir tveir og mið- og hægriflokkarnir fjórir, sem voru við völd í Svíþjóð á síðasta kjörtímabili, hafa náð samkomulagi um samstarf á þingi landsins til að auðveldara verði fyrir minnihlutasjórn að halda völdunum. Samkomulagið felur ennfremur í sér að ekki verður efnt til aukaþingkosninga 22. mars eins og Stefan Löfven forsætisráðherra hafði boðað eftir að Svíþjóðardemókratarnir felldu fjárlagafrumvarp minnihlutastjórnar Jafnaðarmannaflokksins og Umhverfisflokksins fyrr í mánuðinum.
Meginmarkmiðið með samkomulaginu er að einangra frekar Svíþjóðardemókratana og draga úr áhrifum flokksins eftir að hann komst í oddastöðu á þinginu í kosningum í september. Hann varð þá þriðji stærsti flokkur landsins, með tæpra 13% fylgi, eftir að hafa lagt áherslu á andstöðu við stefnu sænskra stjórnvalda í innflytjendamálum. Skoðanakannanir benda til þess að fylgi flokksins myndi aukast um nokkur prósentustig til viðbótar ef kosið væri nú.
Camilla Sandström, lektor í stjórnmálafræði við Umeå-háskóla, segir að með samkomulaginu hafi flokkarnir sex komið í veg fyrir aukakosningar sem hefðu að miklu leyti snúist um innflytjendamálin. »Við hefðum talað mikið um innflytjendamálin út frá forsendum Svíþjóðardemókratanna ef boðað hefði verið til aukaþingkosninga,« segir Sandström. Hún telur þó að flokkarnir komist ekki hjá því að ræða innflytjendamálin þótt hætt hafi verið við aukakosningar.
Leiðtogar flokkanna kynntu samkomulagið á laugardaginn var og það á að gilda til ársins 2022. Á þeim tíma skuldbinda flokkarnir sig til að greiða ekki atkvæði gegn fjárlagafrumvörpum minnihlutastjórnarinnar, þannig að hún þurfi ekki að reiða sig á stuðning Svíþjóðardemókratanna. Þeir lofa því einnig að starfa saman í varnar-, lífeyris- og orkumálum.
»Það er svolítið undarlegt að innflytjendamálin skuli ekki vera hluti af samkomulaginu. Það er mjög brýnt að við ræðum þau mál,« hefur fréttaveitan <ská>AFP eftir Sandström.
Hælisumsóknum hefur fjölgað mjög í Svíþjóð á síðustu árum og fjölgunin er einkum rakin til þess að stjórn mið- og hægriflokkanna ákvað á síðasta kjörtímabili að veita öllum hælisleitendum frá Sýrlandi dvalarleyfi í Svíþjóð. Flestir umsækjendurnir eru flóttamenn frá Sýrlandi en hælisleitendum frá Erítreu hefur einnig fjölgað. Árið 2012 voru hælisumsóknirnar um 44.000, árið eftir 55.000 og í ár er gert ráð fyrir að þær verði 83.000. Talið er að umsóknunum fjölgi í rúm 100.000 á næsta ári.
Flestir Svíar eru stoltir af aðstoð þeirra við flóttafólk frá stríðshrjáðum löndum og Fredrik Reinfeldt, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtogi Hægriflokksins, hefur sagt að landið hafi alla burði til að taka við svo mörgum flóttamönnum. Margir hafa hins vegar kvartað yfir því að Svíar hafi ekki rætt nægilega hvernig taka eigi á afleiðingum þessarar miklu fjölgunar innflytjenda.
Elin Wihlborg, prófessor í stjórnmálafræði við Linköping-háskóla, spáir mikilli umræðu um innflytjendamálin fyrir næstu kosningar árið 2018, meðal annars vegna vandamála sveitarfélaga sem hafa kvartað yfir því að fjölgun innflytjenda hafi stuðlað að miklum húsnæðisskorti."
Það hefur yfirleitt ekki tekið isma og stefnur langan tíma til að komast yfir hafið frá Svíþjóð. Líklega 5 ára háskólanám Íslendings til BA prófs og svo 5 ár til að ná öllum völdum á Íslandi. Þannig kom Mengið og eyðilagði stærðfræðiþekkingu kynslóða Íslendinga. Svo blöndun í bekkina osfrv. Nú er spurning hver stefnan verður í fjölgun hælisleitenda þegar krataflokkarnir hinu megin hafsins hafa sett línurnar. En við ÍSlendingar erum þorskinum fremri sem bara gleypir krókinn en ekki bæði sökkuna og línuna.
Svo ef Svíþjóð ætlar að taka á móti 100.000 hælisleitendum frá Sýrlandi og Eritreu á nsta ári, þá megum við búast við að fá 3.5 % af þeirri tölu í okkar hlut eða 10 á dag. Er það þetta sem í boði verður?.
Ég hef ekki heyrt neinar skýringar á því hvað það er sem ákvarðar fjölda hælisleitenda. Hvort það sé einhver stöðluð þörf eða bara einstaklingsbundin framtakssemi. Við tökum engan þátt í að ákvarða töluna. Þegar borgarastyrjöld fer fram eins og í Sýrlandi og Bandaríkjunum, er það þá einstaklingsins að ákverða hvort hann tekur þátt í henni eða gerr eitthvað annað? Hver einstakur hælisleitandi tekur venjulega fram að hann sé ofsóttur í heimalandinu. Þýðir það að hann sé svo mikill andófsmaður, á borð við Che Guevara eða Ghandi að yfirvöldin vilji fyrir hver mun hafa hendur í hári hans? Hreinn afburða einstaklingur? Eða vilji bara fá meira að éta og helst frítt?
Það er fallegt að lesa hvað þeir eru góðir þarna í Þýskalandi og þykir vænt um hælisleitendur. Var ekki í fréttum að nokkur hundruð séu á reki í Miðjarðarhafinu og bíði eftir því að varðskipið Týr bjargi þeim? Framboðið er líklega nægt?
Hvernig ætlum við að taka á þessu? Má ég ekki hafa aðra skoðun en þær sem koma fram í fréttunum? Má ég ekki hafa skoðun sem segir núll hælisleitendur? Má ég ekki hafa þá skoðun að taka uppp vegabréfaskyldu inn í landið og öllum öðrum sé snúið við? Er ég þá umsvifalaust nasisti, rasisti og allsherjar fíbjakk?
Af hverju má ég ekki vera á móti fjölmenningu á Íslandi?
Má Pegida starfa á Íslandi eða Sveinbjörg í borgarstjórn? Ég hélt að ég mætti hafa skoðanir á fjölda hælisleitenda?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:23 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Íslendingar eru greinilega gott fólk og samúðarfullt þegar kemur að hælisleitendum.
Halldór Jónsson, 1.1.2015 kl. 16:21
Þú spyrð í blogginu "Af verju má ég ekki vera á móti fjölmenningu á Íslandi." Þú hefur sjálfur búið erlendis, og þá varst þú nýbúi og sjálfur hluti af fjölmenningunni í því landi.+
Ég hef sjálf verið nýbýi í erlendi landi og þá sjálf hluti af fjölmenningunni. Og mér var alls staðar vel tekið. Þess vegna tek ég alltaf vel á móti nýbúum á Íslandi.
Einn viðskiptavinur minn, eldri kona, hafði ekki komið lengi. Og þegar hún loksins lét sjá sig, og ég átti tal við hana, höfðu þau hjónin verið á Spáni, og sagðist alveg vera til í að flygja þangað.
En konan var samt, þótt undanlega hljómi, ekki sátt við að "allir þessir útlendingar væru að flytjast hingað til Íslands."
Mér blöskraði við að hlusta á þetta, en sagði ekki neitt. Varð að melta þetta aðeins.
Ingibjörg Magnúsdóttir, 2.1.2015 kl. 01:38
Ég var ekki nýbúi í Þýskalandi þar sem ég var af sipuðum menningaruppruna og skólabræðurnir, talaði málið og deildi kjörum með þeim.Mér fannst ég vera Þjóðverji meðal Þjóðverja þó ég væri auðvitað öðruvísi sem Íslendingur.Ég var ekki hluti af neinni fjölmenningu í þYskalandi. Það var litið öðrum augum á Skandínava en Tyrki og þeirra múslímsku fjölmenningu. Þeir féllu ekki inn í samfélagið eins og við gerðum.
Fjölmenning er bra hreinn rasismi og táknar bar að viðkomandi ætlar sér ekki að falla inn í þjóðfélagið. Múslímakonur með slæður eru ekki á leiðinni með að gerast Íslendingar rða sýnist þér það?
Ég held að þú miskiljir málið Ingibjörg
Halldór Jónsson, 2.1.2015 kl. 11:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.