7.1.2015 | 11:15
Staðreyndir úr bákninu
birtast í grein Óla Björns í Morgunblaðinu í dag:
Grípum niður í greininni:
"....Rekstrarkostnaður ríkisins (utan gjaldfærðra lífeyrisskuldbindinga) hækkaði að raunvirði um tæplega 113 þúsund milljónir króna frá árinu 2000 til 2013 eða um 58%. Hækkunin jafngildir tæplega 98% af tekjuskatti sem ríkissjóður lagði á einstaklinga árið 2013.(Allt á föstu verðlagi innskot bloggara)
Gangi fjárlög yfirstandandi árs eftir mun rekstrarkostnaður ríkisins (utan lífeyrisskuldbindinga) verða yfir 140 þúsund milljónum króna hærri á föstu verðlagi en á aldamótaárinu. Þetta er hækkun um tæplega 72%.
Skuldaaukning ríkisins og hærri fjármagnskostnaður í kjölfar hruns bankanna skýrir ekki nema að litlu leyti gríðarlega hækkun á rekstrarkostnaði. Raunhækkun kostnaðar án fjármagns var 42% árið 2013 og verður 55% á þessu ári miðað við fjárlög.
Á sama tíma og rekstrarkostnaður hefur hækkað gríðarlega hefur stöðugt minna verið gjaldfært vegna lífeyrisskuldbindinga. Árið 2000 voru 52,6 þúsund milljónir gjaldfærðar á meðalverðlagi 2014. Árið 2013 var þessi fjárhæð meira en fimm sinnum lægri og hið sama á við á þessu ári. Þannig hefur vandanum verið ýtt á undan sér allt frá árinu 2009.
Árið 2013 var launakostnaður tæplega 25 þúsund milljónum króna hærri (22%) á föstu verðlagi en aldamótaárið. Miðað við fjárlög yfirstandandi árs verður launakostnaðurinn nær 33 þúsund milljónum hærri en árið 2000. Þetta er hækkun um 29%.
Sértekjur stofnana ríkisins, sem skattgreiðendur standa undir, voru rúmlega 11 þúsund milljónum hærri árið 2013 en 2000...
...Árið 2013 voru skatttekjur ríkissjóðs nær 96 þúsund milljónum króna hærri að raunvirði en árið 2000. Tryggingagjald var 71% hærra eða tæplega 30 þúsund milljónum króna. Þannig var skattheimta á vinnu (störf) aukin gríðarlega. Um mitt ár 2000 var almenna tryggingagjaldið 4,34% og atvinnutryggingagjald 0,8%. Árið 2013 var almenna tryggingagjaldið komið upp í 5,29% og atvinnutryggingagjald var 2,05%.
Tekjuskattur sem einstaklingar greiddu til ríkisins var 31 þúsund milljónum króna hærri árið 2013 en á aldamótaárinu sem er hækkun um 36% að raunvirði. Og hvernig má annað vera: Árið 2000 var skatthlutfallið 26,41% auk 11,96% meðalútsvars. Árið 2013 var tekjuskattur ríkisins í þrepum frá 22,9% í 31,8% og meðalútsvar var 14,42%. Þannig er stórum hópi landsmanna gert að greiða tæplega helming viðbótartekna í skatta eða 46,22%.
Á sama tíma og einstaklingar greiddu 31 þúsund milljónum króna meira í tekjuskatt árið 2013 en 2000 urðu þeir að greiða sveitarfélögum liðlega 54 þúsund milljónum meira að raunvirði í útsvar.
Vinstri menn og aðrir talsmenn ríkisrekstrar þola illa að bent sé á ofangreindar staðreyndir. Hvað þá að spurt sé hvort almenningur - skattgreiðendur - fái betri þjónustu í samræmi við aukna skattheimtu og hærri rekstrarkostnað ríkisins. Rekstrarkostnaður ríkisins er ekki nema hluti af heildarútgjöldum sem hækkuðu um 120 þúsund milljarða á milli áranna 2000 og 2013 á mælikvarða vísitölu neysluverðs. Og ekki fóru aukin útgjöld í fjárfestingu og viðhald. Ríkissjóður dró saman seglin í þeim efnum um tæpar 12 þúsund milljónir.
Vinstrimenn og varðmenn ríkisrekstrar - kerfisins - bregðast alltaf hart við þegar einhver reynir að spyrna við fótum. Í baráttu sinni fyrir ríkisafskiptum og gegn hagræðingu í ríkisrekstri og lægri sköttum forðast þeir efnisatriði, velja fremur að fara í manninn en boltann, beita orðskrúði og jafnvel villurökum um að vegið sé að lýðræðinu.
Þegar formaður fjárlaganefndar heldur því fram að erfiðlega gangi að ná sparnaði í ríkisrekstri er engu líkara en að verið sé að ráðast á helg vé. Í samtali við Morgunblaðið 29. desember síðastliðinn hélt Vigdís Hauksdóttir því fram að »kerfið« gripi til varna:
»Það hefur reynst torvelt að fara í niðurskurð á ýmsum sviðum vegna þess að kerfið ver sig. Við höfum reynt að skera niður en reynslan hefur verið sú að undirstofnanir ríkisins verja sig með kjafti og klóm.«
Vigdís er á því að í vörninni notaði »kerfið« fjölmiðla óspart »til að mynda samúð með viðkomandi stofnun«. Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar, tók í sama streng en hann hefur lengi kallað eftir bandamönnum í baráttunni við að forgangsraða í ríkisrekstrinum.
Það bíður betri tíma að fjalla um hlut fjölmiðla þegar kemur að því að veita ríkinu og fjárveitingavaldinu aðhald. Því miður er það svo að meirihluti fjölmiðlunga er hallur undir ríkisrekstur, hærri ríkisútgjöld og þar með hærri skatta. Gagnrýni þeirra á meðferð almannafjár virðist einskorðast við ráðherrabíla og dagpeninga.
Verst er þegar fræðimenn taka villuljós sér í hönd og taka til máls. Þannig hélt prófessor í stjórnmálafræði því fram að fullyrðing Vigdísar Hauksdóttur um að kerfið væri að verja sig sé dæmi um umræðuna um að »opinberar stofnanir eigi að vera stjórnvöldum þægar«. Slíkt gangi »þvert á lýðræðishefð Vesturlanda og þar með líka Íslands,« skrifaði prófessorinn á fésbókarsíðu sína.
Mér er það hulin ráðgáta hvernig prófessor í stjórnmálafræði getur komist að þeirri niðurstöðu að kjörnir fulltrúar á Alþingi, sem fara með fjárveitingarvaldið, gangi gegn »lýðræðishefð« með því að reyna að koma böndum á útgjöld »kerfisins«. Samkvæmt röksemd fræðimannsins eru það stofnanir og stjórnendur þeirra - kerfið sjálft - sem taka eiga ákvarðanir um umsvif, rekstur og kostnað en ekki kjörnir fulltrúar.
Undir villuljósi prófessorsins er kerfið heilagt. Kjörnir fulltrúar á Alþingi skulu - líklega í samræmi við »lýðræðishefð« - fyrst og síðast þjóna hagsmunum kerfisins sem andlitslausir kerfiskarlar skilgreina á hverjum tíma. Skoðanabræður prófessorsins saka þá sem ekki gangast undir vilja kerfisins um óbilgjarna öfgamennsku.
Kerfið lifir því ágætu lífi eins og sést á hækkun rekstrarkostnaðar á síðustu 14 árum. Kerfinu tókst að éta upp allan tekjuskatt sem einstaklingar greiða í raunhækkun kostnaðar. Talsmenn ríkisrekstrar eru ánægðir. Allir hinir eiga bara að halda áfram að borga og hætta öllu öfgakenndu nöldri."
Hér grípur Óli Björn á mörgum atriðum. Og mörgum er enn ósvarað. Hver er launaþróun opinberra starfsmanna miðað við laun á almennum vinnumarkaði? Hvað hefur gerst sem hefur knúið sveitarfélögin til þessara risavöxnu hækkana á útsvari? Tilflutningur verkefna frá ríki til þeirra virðist ekki hafa létt neinum kostnaði af ríkinu.
Það er talið til tíðinda á Íslandi að bensínið sé farið undir 200 kall lítrinn. Vissulega góð tíðindi frá 250 krónum. En hvað kostar lítrinn núna í Bandaríkjunum? Einn deilt með pí. Mismunurinn eru mest vörugjöld og álögur ríkisins. Þarf ekki að halda þessu tl haga líka? Ekki bara bera saman bensínverð við ESB?
Óli Björn á miklar þakkir skilið fyrir að fara ofan í saumana í opinberum fjármálum. Það er miklivægt að fólk reyni að sjá heildamyndina heldur en að hlusta venjubundið á fjölmiðlaglamrið sem er í sífelldri vörn fyrir báknið og frænku þess Evrópusambandið.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:30 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.