23.1.2015 | 08:53
Er Íslendingum alls varnað?
þegar kemur að Islam?
Það er eins og Íslendingum sé fyrirmunað að skilja að Islam er ekki trúarbrögð í venjulegum skilningi. Islam er annað og miklu meira.
Valdimar H. Jóhannesson hefur kynnt sér Islam betur en margir aðrir. Hann ritar svo í Morgunblaðið í dag:
"Margir líkja moskum við tilbeiðsluhús kristinna manna, gyðinga, hindúa eða búddista án þess að skilja, að moska þjónar ekki aðeins tilbeiðsluþörf múslíma heldur er hún stjórnstöð fyrir allt veraldlegt og andlegt líf múslíma. Íslam gerir ekki greinarmun á veraldlegum og trúarlegum þáttum lífsins. Samkvæmt íslam er lífið sjálft aðeins hluti trúarlífsins en önnur trúarbrögð líta svo á að trúin sé hluti lífsins. Frelsi einstaklings er víðsfjarri eðli íslams. Reglur íslams ráða yfir öllu lífi og hegðun manna. Skyldan til undirgefni við Allah er skilyrðislaus.
Moskan er skóli, dómstóll, æfingastöð, samkomuhús en ekki eingöngu tilbeiðslustaður. Allar moskur heimsins eru að fyrirmynd fyrstu moskunnar, mosku Múhameðs í Medína. Þar kvað Múhameð upp dóma, hverja skyldi lífláta, hvernig haga skyldi árásum og stríði. Moskan var geymslustaður vopna, æfingastöð fyrir stríðsmenn Múhameðs og bardagasveitirnir voru sendar þaðan til að ræna, rupla, drepa og hneppa í þrældóm, kúga heiminn undir Allah og Múhameð, - undir yfirráð íslams.
Allar moskur gegna sama hlutverki sem moska Múhameðs í Medína. Verkefni moskunnar er oft hulið almennum múslímum. Alkunna er þó að ýmislegt fer fram innan moskanna sem brýtur gróflega gegn þeim samfélögum sem hafa leyft starfsemi þeirra. Vopn hafa iðulega fundist í moskum. Þar eru lögð á ráðin til að kúga löndin undir alræðið og kannanir sýna að í 80% af moskum í Vesturlöndum er boðað jihad, hatur, dauði og tortíming manna af öðrum trúarbrögðum eins og boðað er í helstu trúarritum múslíma, kóraninum, hadíðum og sirah.
Engum kom á óvart að sprengjuverksmiðja Hamas fannst í mosku á Gaza. Hins vegar vakti meiri athygli þegar vopn fundust í moskunni í Finnsburys Park í London. Imaminn þar, Abu Hamza, þjálfaði hermdarverkamenn og geymdi vopn í moskunni. Hann sá ekkert athugavert við þessa hegðan enda í samræmi við handbækur íslams. Aðrir imamar styðjast við sömu bækur, sama stýriverk.
Moska er merki um yfirráð íslams jafnvel í landi þar sem múslímar eru í minnihluta og ákall til þeirra að endurheimta landið undir yfirráð Allah og sharíalög. Múhameð sagði Gabríel erkiengil hafa fært honum þau skilaboð Allah að allur heimurinn væri ein allsherjar moska. Þeir sem neita þessu hafi brotið af sér gegn Allah. Múslímum er ætlað að endurvekja yfirráð Allah yfir svæðum sem hafi verið tekið frá Allah með rangindum. Þeir sem verjast þessari »göfugu« ætlun séu því í raun árásaraðilar gegn Allah og því er jihad ekki árás múslima á »kuffar (skammaryrði múslima fyrir alla þá sem ekki eru múslimar) heldur varnaraðgerðir gegn rangindum sem kuffar hafa í frammi gegn Allah og Múhameð (sem nú hefur legið dauður í ómerktri gröf í 1383 ár).
Hér er ástæða til að rifja upp orð, sem Erdogan, forseti Tyrklands gerði að sínum:. »Moskurnar eru herskálar okkar, hvelfingarnar hjálmar okkar, bænaturnarnir byssustingir og hinir trúræknu hermenn okkar.« Það eru því ekki mín orð að moska sé vígi óvinarins í landi okkar heldur orð íslamistans.
Einn helsti tilgangur með mosku er að vinna að »hijra« einstaklinga og með því að íslamísera samfélagið þar til íslam er ráðandi og getur kúgað samfélagið undir sína stjórn og þá auðvitað sérsaklega »kuffar« en ekki síður konur og börn. Hijra hét flutningur Múhameðs frá Mekka til Medína þegar staða hans breyttist frá því að vera heldur illa þokkaður götuprédikari í voldugan og grimman herkonung. Það felst í hijra að taka upp múslimska háttu t.d. fyrir konur að klæðast í slæður yfir hár og jafnvel fyrir andlit og láta hvergi sjást í hold nema kannski á höndum og á andliti. Sérstaklega jafngildir þetta að flytjast frá »jahiliyyah« (fáfræði fyrir daga íslams) til fullrar íslamiseringar, þar með talin innleiðing sharíalaga.
Trúfrelsisákvæði stjónarskrárinnar eiga ekki við um íslam vegna þess að íslam stenst ekki skilyrðin sem stjórnarskráin setur fyrir iðkun hennar hérlendis. Hér er vísað í 63. grein stjórnarskráinnar: »Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu.«
Þeir, sem þekkja íslam, vita að íslam samræmist ekki góðu siðferði eða allsherjarreglu. Flestir sem ekki þekkja íslam ættu að hafa hugboð um þetta sama.
Hvaða boðar íslam sem ekki samræmist allsherjarreglu? Hér koma nokkur atriði: Misrétti milli karlmanna og kvenna. Misrétti milli múslíma og annarra trúarhópa. Dauðarefsingar fyrir að ganga af íslamstrú. Dauðarefsingar fyrir samkynhneigð. Limlestingar fyrir t.d. þjófnað. Dauðarefsingar fyrir að hallmæla íslam eða Múhameð. Bann á tjáningarfrelsi um íslam. Karlmönnum er leyft að eiga fjórar konur. Margt fleira ljótt má tína til.
Fari svo að moskan í Sogamýri rísi fyrir peninga frá arabískum salafistum, sem hafa verið að styrkja ISIS og Al Kaída, ber lögreglunni að stöðva boðun íslams í húsinu. Sama á við um starfsemi beggja félaga múslíma á Íslandi, nema þessi félög lýsi yfir andstöðu við þau ákvæði í trúarritum sínum sem stríða gegn allsherjarreglu (þ.e. öll íslensk lög) og góðu siðferði eins og við skilgreinum það."
Það er útilokað að leyfa hér starfsemi safnaða Islam öðruvísi en undir lögregulueftirliti svipað og haft er með starfsemi Vítisengla og svipaðra samtaka.Svo gersamlega er þessi hreyfing á skjön við það sem Íslendingar vilja hald í heiðri.
Furðulegt er að konur skuli ekki beita sér gegn Islam þar sem þessi hreyfing stefnir grímulaust að afnámi lýðréttinda kvenna.
Islam getur aldrei samrýmst íslenskri lýðræðishefð. Menn geta verið trúaðir samkvæmt Islam en það er af og frá að hingað megi flytja inn Imama og Múlla öðruvísi en fylgst sé með því hvað þeir eru að kenna af forðdæðuskap í samkunduhúsum múslíma hérlendis. Starfsemi Islamista er alltof tengd óhæfuverkum til þess að þetta sé látið afskiptalaust vegna 63. grein Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands.
Það er löngum háttur Íslendinga að fljóta sofandi að feigðraósi. Þeir sem vara við váboðum eru yfirleitt gargaðir niður af vinstra fólkinu og Nomenklatúrunni.
Valdimar H. Jóhannesson á þakkir skildar við að reyna að vekja þá sem virðist alls varnað í sofandahætti sínum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
HEYR HEYR !
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 23.1.2015 kl. 20:15
Ýmsir múslemar, þar á meðal sá sem oftast er tekið viðtal við á öldum ljósvakans, vita í raun ekki t.d. af hverju múslemar mega eiga eiga margar konur. Sem sagt, ýmsir múslemar eru ekki vel lesnir í kórarnum. Ég gæti að aðstoðað þá við það. Ég ég á góða kunningja sem eru Múslimar og hafa rétt að mér kórarninum til lesningar. Það er fróðleg lesning. En sem sagt, margir múslimar eru illa leesnir í sinni "Biblíu" þ.e. kóraninum.
Ég er alveg til í að hafa kóraninn í rassvasanum og vitna í hann þegar á þarf á að halda: þegar gamlir íslenskir karlar koma inn í búðir og úthúða Múslemum og þegar Múslemar þurfa á rækilegri uppflettingu að halda í sinni "biblíu.+2
Ingibjörg Magnúsdóttir, 26.1.2015 kl. 23:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.