31.7.2015 | 11:09
Stefanía hefur orðið
í Morgunblaðinu í dag.(Stefanía Jónasdóttir á Sauðárkróki) Hún segir:
Jöfnuður, sama fólkið og sífellt talar um jöfnuð, er fólkið sem passar vel upp á að halda öðrum niðri, það er verkafólki og fleirum. Um leið og laun hækka hjá lágstéttinni koma hinir vel menntuðu, en ekki vitru BHM og fleiri menntað- ir og fara í verkfall þótt laun þeirra séu ágæt.
Vandamálið hjá þessu hrokafulla fólki er að verkafólkið sé komið of nálægt þeim í launum. Það er ekkert hugsað út í hvaðan féð á að koma, því það fækkar þeim höndunum sem skapa verðmæti, svo að þið sem menntuð eruð getið staðið blaðrandi á torgum og ráðstefnum, já þið eruð svo fjandi menntuð, ekkert er hugsað út í hvaða gagn þið gerið.
Úr þessum sama ranni kemur svo fólk, sem talar mikið um jöfnuð, samanber Samfylkingu og VG-fólk sem er langt frá því að vilja jafna. VG eru algjörir kommakapítalistar, það eru ekki allir skúrkar sem eiga fé, en VG vill rífa meira af þeim sem eitthvað eiga og þetta fólk sem hefur farið vel með fjármuni sína, má ekki fá leiðréttingu lána sinna, svo hvar er jafnréttið?
En að hinir vinstrisinnuðu láti sjálfir eitthvað af hendi, nei, aðrir skulu gera það,
því auðvelt er að eyða annarra manna fé og kalla það jöfnuð. Ögmundur Jónasson, sem ekki vildi borga sig inn á Geysissvæðið, er það satt sem mér var sagt að þú eigir sumarbústað og á skilti við veginn að bústaðnum sé skrifað Einkavegur? Já, hér er ég, um mig frá mér til mín, mjög sterkar tilfinningar hjá hinum vinstrisinnuðu.
Ekkert er hægt að framkvæma hjá ríki og sveitarfélögum, því að skattféð fer í að ala upp börn fyrir núverandi kynslóð og launin, jú í menningarmál og leiki. Gaman væri að fá sundurliðun á því hversu margir starfa við verðmætasköpun, og svo þeir er setjast á ríkislaun og heimta og heimta.
Allt er gert til þess að fólk mennti sig, veitt lán og byggt undir það, og þessu er tekið sem sjálfsögðum hlut, sem er bara rangt, því að ekkert er sjálfsagt í þessu lífi. Síðan komið þið út á vinnumarkað, eða heim eftir námið og beitið okkur hin ofbeldi og hótunum um brottför og að ekki skuli læknað eða hjúkrað. Gaman væri að rannsakað yrði hvernig þessar stéttir hinna menntuðu lifa og búa. Það þarf að setja skilyrði fyrir lánatöku til menntunar að fólk þurfi að skila minnst sjö árum til þjóðarinnar, annars getið þið sótt um lán í þeim löndum þar sem þið ætlið að starfa.
Svo grátið þið yfir að þurfa að borga lánin. Og hjúkrunarfræðingar, þið eruð ekki þeir einu sem eruð vel menntaðir í þessum heimi. Ekki sýna þennan hroka. Hvaðan á að taka fjármuni til þess að hækka laun ykkar? En þetta er jú týpískur grátur kvennastéttar. Fólk þarf að fara að taka sig á og fara að huga að samstöðu, ekki þetta sífellda rifrildi.
Ef þið vitið það ekki, þá er íslamska ríkið, það er ISIS, komið með þjálfunarbúðir í Bosníu, um eitthundrað kílómetra frá Sarajevo, þar sem þeir hóta fyrst Serbum, en síðan öllum fylkjum á Balkanskaga og þeir ætla að höfða til allra þeirra múslima, sem á skaganum búa um að taka berjast með þeim og einnig munu vera hryðjuverkamenn með frá Nígeríu.
Bara svo að þið gerið ykkur það ljóst að þar sem innviðir þjóðar eru rifrildi og ósætti, þá nýtir þriðji aðili sér þannig ástand, ef ekki með illsku þá með fé. En svona í lokin, þið, sama fólkið og mótmælir álverum, eruð einmitt ástæða þess að þörf er fyrir svona iðnað, því þið heimtið og heimtið, fáið aldrei nóg. Ég vil ekki álver, hvað þá Kínverja og skal ég því lifa við lítið, sem ég og geri, til þess að komast hjá því að land mitt verði ein verksmiðja. Hættið þessu innihaldslausa jöfnuðartali og unið glöð við það sem þið hafið, því það gæti breyst."
Hér er ekki töluð tæpitunga af konu sem hefur búið sjálf í múslímalandi.Hún veit ýmislegt sem okkur er hulið. Er ekki allt í lagi að hlusta á Stefaníu áður en maður talar sjálfur um hluti sem maður þekkir af afspurn einni?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.8.2015 kl. 18:35 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ögmundur hefur margoft komið því að, að lífeyrissjóðir eigi að taka þátt í hinu og þessu,sem fyrirsjáanlegt er að stendur ekki undir sér.Hann þarf engar áhyggjur að hafa þótt lífeyrissjóður hans eigi ekki fyrir greyðslu lífeyis honum til handa þegar þar að kemur,ríkið ábyrgist sjóð hans svo hann verður aldrei skertur,þótt fólk í almennu sjóðunum megi búa við stöðuga skerðingu.Ríkisaðallinn sér um sína,að grískum hætti.Nú skuldar ríkið ríkisaðlinum 500 milljarða, vegna framtíðar lífeyrisgreiðslna.Þar innandyra eru borgarstjórar, bæjarstjórar,ráðherrar,þingmenn,sendiherrar,ríkisforstjórar að ótöldum morgum fleirum.
Sigurgeir Jónsson, 31.7.2015 kl. 22:14
Sigurgeir
Nú skrifar þú svo mér líkar stórvel. Þetta er hinn napri sannleikur um þetta dót allt saman sem frýsar af heilagleika eins og þessi Ögmundur með Einkaveginn sinn, hann er búinn að skilja sig rækilega frá lýðnum sem hann leiðsagði einu sinni. Hann getur gefið frat í þetta láglaunapakk allt, hann er búinn að gulltryggja sig í bak og fyrir. Og Steingrímur J. þessi yfirlýsti alþýðuvinur og þiggjand dreifbýlisstyrkja til áratuga fer örugglega ekki á sólarstrendur með kjósendum sínum. Hann verður við SvartaHafið á Krímskaga þar sem Krúsjeff og Stalín áttu sín friðlönd. Hann hefur ráð á því.
Halldór Jónsson, 31.7.2015 kl. 23:00
Stefanía bendir þarna á sannindi, sem allt skynsamt fólk ætti að geta tekið heilshugar undir:
"Bara svo að þið gerið ykkur það ljóst að þar sem innviðir þjóðar eru rifrildi og ósætti, þá nýtir þriðji aðili sér þannig ástand, ef ekki með illsku – þá með fé."
Hver skyldi vera rót þessa ósættis. Einn rótaranginn er líklega gjaldþrot kosningarréttarins. Nú er mikið klifað á mikilvægi kosningarréttar vegna tímamóta i "lífi" þeirra réttinda.
Virkaði kosningarréttur almennings þegar t.d. innan við 200 atkvæði á sellufundi í NV kjördæmi, teppalögðu leið fv. formanns VG inn á Alþingi - og langleiðina í ráðherrastól - eða þegar niðurstöður úr prófkjörum ráða öllu um hvaða glansmyndir og/eða þekktu fjölmiðlatrýni fá nothæf sæti og eru þar með komin inn - nánast sama hvað hver kýs?
Þorkell Guðnason, 1.8.2015 kl. 18:53
Gott Keli, þetta er rétt hjá þér. Ömurlegt ti þess að vita hversu fá atkvæði þurfti til að fleyta þessum Steingrími Jóhanni til að stjórna fjármálum Íslendinga eins og einvaldur væri, gera hverja milljarða vitleysuna af annarri enda maðurinn nánast analfabet í fjármálum sbr. Icesav, SpKef, Íslands og Aríonbanka og skuldabréfa Landsbankan, Sjóvá, Saga Capital og VS. Þessi maður getur komið aftur og aftur eins og Marteinn Mosdal í skjóli þessa kosningakerfis sem þú nefnir sem fleytir honum inn.
Halldór Jónsson, 2.8.2015 kl. 17:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.