4.9.2015 | 14:08
Bréf frá múslímakonu
er er á síðu Valdimars Jóhannessonar svohljóðandi:(Bloggarinn feitletrar)
"Viðvörun til Vesturlanda Rödd konu frá Egyptalandi Áríðandi lesning fyrir Íslendinga
Hér á eftir er ávarp frá egypskri konu sem ég (Valdimar Jóhanesson) þýddi og tel að eigi mikið erindi við okkur einmitt núna. Konan tilheyrir augljóslega kristnum egyptum, koptum, sem hafa mátt þola miklar hremmingar sem minnihlutahópur í Egyptalandi. Þeir hafa verið um 10% þjóðarinnar en fækkar óðum eins og öllu kristnu fólki í Mið-Austurlöndum. Orðið kopti þýddi upphaflega egypti sem voru allir kristnir áður en íslam hélt innreið sína í landið fyrir hartnær 14 öldum. Konan getur að sjálfsgðu ekki komið fram undir eigin nafni. Slíkt er lífshættulegt. Fyrir aftan þýðinguna er strengur á enska textann ef einhverjir kjósa frekar að lesa hann:
Ávarpið:
Íslamsfóbía, rasisti, ofstækismaður eru þau orð sem múslímum og hliðhöllum vinstri mönnum eru töm til þess að rægja, útata, ófrægja og bera þá ósönnum sökum sem leyfa sér að ræða um og gagnrýna íslam. Þeir nota þessi orð til þess að kæfa umræðuna og koma sínum sjónarmiðum betur á framfæri. Þessar röngu sakargiftir skelfa mig ekki. Þær munu heldur ekki þagga niður í mér því að ég er að segja sannleikann.
Ég er frá Egyptalandi og hef séð ættjörð mína breytast í hart og óvægið samfélag undanfarin 30 ár. Þessi breyting hefur valdið mér þungum bússifjum eins og svo mörgum öðrum. Íslam hefur rústað landi mínu og fylgismenn íslam eru nú að færa öðrum löndum sömu örlög, sérstaklega á Vesturlöndum.
Íslam er ekki eins og hver önnur trúarbrögð. Það er hugmyndafræði drottnunar, rasisma, alræðis, sharialaga, stjórnmála og þjóðfélagsmála dulbúið sem trúarbrögð. Það stefnir að drottnun yfir öllum öðrum lagakerfum og trúarbrögðum. Íslam er verra en nazismi. Fylgismenn íslam trúa því að þeir einir séu réttsýnir á jörðinni og þeir einu, sem hafi aðgang að æðri sannleika. Múslímar trúa því að íslam sé hin endanlegu og sönnu trúarbrögð.
Múslímar kalla þá sem ekki eru múslímar kaffír (ft. kufar, þýðandi) sem er mjög móðgangi og niðurlægjandi orð fyrir trúleysingja. Kóraninn og hadíðurnar (orð og athafnir Múhameðs) segja múslímum að þeir séu besta fólk sem hefur komið fram í heiminum. Til dæmis segir Allah við múslíma í súru 3.110 í kóraninum: Þannig höfum vér gert yður að bera vitni yfir öllu mannkyni og að Sendiboðinn (Múhameð) beri vitni yfir yður.
Múslímar reyna ekki að aðlagast menningu landa sem þeir leita inn í. Þeir reyna ekki að taka upp siði þeirra landa sem þeir kjósa sér að setjast að í. Þeir sættast heldur ekki á að vera jafnsettir öðrum í samfélögum með mörgum kynflokkum og mismunandi trúarbrögðum. Þeir vilja gína yfir og stjórna umræðunni og þeir krefjast sérréttinda umfram alla aðra. Þeir gera þetta með því að moskuvæða vinnusvæðin með kröfum um sérstakt mataræði og sérstaka möguleika til bænahalds Þeir láta eins og þeim sé misboðið til þess að ná fram kröfum sínum, takmarka með því tjáningu annarra og leyfa þar með enga gagnrýni á íslam.
Múslímar sem flytjast til annarra landa halda í sömu trú og hugmyndir sem mótuðu samfélög, þjóðir og lönd sem þeir eru að flýja frá. Þá skortir hyggjuvit til að skilja að það er stjórn- og trúarkerfið sem þeir aðhyllast sem gerði lífið þeim óbærilegt í ættjörð þeirra. Það er hinn pólitíski þáttur íslam sem veldur því að lönd þeirra eru stríðssvæði með endalausum átökum.
Múslímar eru ekki í löndum ykkar til að hjálpa ykkur við uppbyggingu eða til sóknar fyrir betri lífskjörum. Þeir eru afætur, sníklar hjá gestgjafaþjóðinni. Tölulegar upplýsingar styðja fullyrðingar um hegðan múslíma í samfélaginu sem leiða til þess að til eru stjórnmálamenn sem tala gegn hruni velferðarkerfisins vegna múslímskra karlmanna með margar konur og ótal börn.
Tryggð hins sanna múslíma er ekki og verður aldrei vegna þjóðríkis, aðeins gagnvart umma, -alheimsríki íslam.
Ekki misskilja mig. Ég segi ekki að allir múslímar séu slæmir en við höfum ekkert val annað en að vera varir um okkur á fólki sem aðhyllist kenningar íslam. Það trúir allt á Múhameð sem var illmenni á alla mælikvarða, á hvaða tíma í sögu mannkyns og í hvaða samhengi sem er. Allir múslímar styðja halal ( allt em er leyft innan íslam, þýðandi) og þeir greiða allir zakat (ölmusa sem er fyrst og fremst notuð í jihad, þýðandi). Þannig að þó að friðsamir múslímar séu ekki að henda í okkur sprengjum eru þeir sannarlega að fjármagna þá sem það gera.
Á svæðum snáka og höggorma geta fæstir gert greinamun á eitruðum og hættulausum snákum. Því er augljóst að flestir eiga ekkert val annað en að forðast alla snáka. Þar sem ekki hefur fundist tæki til að aðskilja trúaðan múslíma og múslíma, sem eru það aðeins að nafninu til, eða til að nema hverjir þeirra eru að mæla satt og hverjir eru að ástunda taqqiyah ( ljúga að vantrúuðum til gagns fyrir íslam) er ráðlegt að vera tortrygginn gagnvart öllum múslímum og að samþykkja þá ekki sem innflytjendur eða hælisleitendur. Hegðan þeirra núna og á fyrri tímum gefur okkur ekkert val annað en að útiloka þá alla vegna öryggis og farsældar innfæddra íbúa.
Íslamskar bækur og kennisetningar hafa komið múslímum í þennan vanda. Kóraninn og hatíðurnar hvetja múslíma til hryðjuverka. Það er einnig bannað að gagnrýna Múhameð og boðskap hans, sem gera siðbætur (reformasjón) ótrúlega erfiðar í framkvæmd. Samkvæmt múslímum er Múhameð hin fullkomna fyrirmynd. Hann er maðurinn sem laug, stal, hafði rangt við, afhausaði, nauðgaði, rændi og hafði mök við börn, svo fátt eitt sé nefnt.
Þar til múslímar axla ábyrgð á öllum ofbeldisboðum kóransins og þar til þeir leiða þessi boð hjá sér eða eyða þeim hafa þeir engan rétt til að krefjast virðingar. Þessi síbylja vélrænna endurtekninga um að íslam sé trúarbrögð friðar hafa engan trúverðugleika né byggjast þær á staðreyndum. Múslímar skyldu ekki vænta neinnar virðingar meðan þeir sýna ekki öðrum virðingu á móti. Þeir ganga svo langt að hunsa lög landa þar sem þeir búa, koma sínum eigin sharíadómstólum á legg, sem eru yfirleitt alltaf ólöglegir um leið og þeir reyna að neyða réttarkerfi sitt og lífsmáta upp á alla aðra.
Hugmyndaheimur íslam hefur verið óbreyttur frá upphafi í eyðimörkinni fyrir öllum þessu öldum síðan. Múslímar eru tvöfaldir í roðinu gagnvart öðrum. Þeir krefjast umburðarlyndis þegar þeir eru í minnihluta en þeir sýna ekki mikið umburðarlyndi gagnvart minnihlutum í löndum þar sem þeir eru í meirihluta. Þeir meina öðrum um trúfrelsi og þeir krefjast þungra skatta af þeim sem eru ekki múslímar fyrir þau forréttindi að fá að lífa meðal þeirra. Kristin samfélög í Pakistan eru byggð við útrennsli skólpræsanna. Múslímar krefjast þess að þörfum þeirra sé fullnægt en þeir sinna ekki um þarfir annarra. Þegar múslímar flytjast til vestrænna landa telja þeir þessum samfélögum skylt að samlagast íslölmskum hugsanahætti en ekki öfugt. Múslímar virðast ekki skilja að virðing fæst því aðeins að til hennar sé unnið, en hennar ekki bara krafist.
Íslam gerir líf múslíma og líf annarra að lifandi helvíti. Nú sjáum við mikinn fjölda múslíma flytjast frá vonlausum löndum og troðast inn í önnur lönd. Þeir gera hvað sem er til að komast til Evrópu, Ameríku og Ástralíu. Þeir eru reiðubúnir til að hætta lífinu á drekkhlöðnum bátum og ryðjast ólöglega í gegnum landamæri. Þúsundir múslíma standa á hverjum degi fyrir dyrum konsúlata í þeirri von að fá vegabréfsáritum til að komast frá löndum þeirra sem hafa brugðist í stjórnmálum, trúmálum og efnahagslífi. Þeir koma til framandi landa og reyna að endurtaka mistökin og spillingu ættlanda sinna, sem þeir neyddust til að yfirgefa. Þetta getuleysi í að breyta skynjun sinni og skilningi gæti verið afleiðing ólæsis. Rannsóknir sýna að mjög stórt hlutfall múslíma eru ólæsir í löndum þar sem múslímar eru í meirihluta.
Þar sem múslímskir innflytjendur hafa búið í margar kynslóðir er ljóst að önnur og þriðja kynslóðin er jafnvel ennþá einstrengingslegri og ofbeldisfyllri en upphaflegu innflytjendurnir. Seinni kynslóðum lærist að múslímum gagnast að garga hátt vegna þess að þeim er misboðið. Það hefur mikil áhrif á samsetningu þjóðfélagsins og lög sem veita þeim aukin forréttindi svo þeir halda áfram þeirri iðju að láta sér eilíft vera misboðið.
Fæðingarhlutfall hjá múslím er einnig afar hátt miðað við alla aðra og þetta er enn ein leið sem þeir nota í viðleitninni til að verða meirihlutahópur og staðfesta tök sín á samfélögum. Þetta mun óhjákvæmilega valda miklum breytingum í frelsi sem vestrænt fólk nýtur. Við sjáum að tjáningarfrelsið er skert og bann við gagnrýni á trúarbrögð og þó sérstaklega á þessum einu.Konum og stúlkum er nauðgað í stórum stíl í hverju landi þar sem íslam vex fiskur um hrygg. Þetta tengist menningunni, samfélagsgerð og leyfi Múhameðs sem heimilar múslímum að halda kynlífsþræla. Þessi nauðgunargengi samanstanda af skyldum körlum, frændum, feðrum, sonum, bræða- og systrasonum, sem sannar að samfélög múslíma sætta sig við þessa hegðun. Þegar svona munstur er í gangi er það sönnun þess að hér eru ekki tilviljanir á ferð. Þetta sannar að þessi hegðun og ómenning er viðurkennd af samfélaginu. Þetta mun leiða af sér hrikalegar afleiðingar vegna þess að frjálsir menn og vantrúaðir munu ekki sættast á að lifa við guðræði og eina niðurstaðan verður borgarastríð.
Hver og einn einstaklingur sem lítur á sig sem múslíma er ekki sérfræðingur í íslam né hefur hann lesið texta sem fylgir þessari hugmyndafræði. Sérhver múslími mun ekki taka sér illsku Múhameð til fyrirmyndar né haga lífi sínu í samræmi við boð hans. Sumir múslímar eins og kristnir eða gyðingar eru fæddir inn í sína trú en hafa lítinn áhuga á henni. Fyrir þá snýst þetta um helgisiðina og ekkert annað. Íslam hins vegar krefst dauðadóms yfir þeim sem yfirgefa trúna ólíkt öðrum trúarbrögðum. Þetta gerir múslímum afar erfitt fyrir að yfirgefa trúna. Ef þeir eru ekki drepnir þá munu þeir sannarlega fá að kenna á því með harðneskju frá vinum, fjölskyldu og samfélagi. Múslímar mynda hvarvetna gettó þar sem þeir setjast að. Það er afar erfitt fyrir þá trúlausu að komast frá þessu umhverfi.
Múslímar kynna sig gagnvart Vesturlandabúum sem mikla og sanna trúmenn. Af því að mörgum múslímum lætur vel að setja upp virðulegt fas telja margir sem ekki eru múslímar að þetta stafi af því að þeir tilheyra fallegri og friðsamri trú. En margir múslímar hafa lítið kafað ofan í textana í trúarritum sínum. Margir hafa aðeins mjög yfirborðskennda þekkingu á boðun íslam. Alltof oft hafa upptökur borist frá moskunum þar sem leiðtogar múslíma, klerkar og kennimenn eru að segja söfnuðinum að þeir sem ekki eru múslímar séu viðurstyggilegir og að múslímar séu öllum æðri. Nú er ljóst, að þessar moskur og skólar eru ekki eingöngu sótt af hörðum öfgamönnum. Þau eru einnig sótt af hófsömum og friðsömum múslímum, næstu nágrönnum ykkar ef til vill. Hvernig fer þessi vitneskja í ykkur um það hversu elskulegir, friðsamir og góðlegir þessir múslímar séu í raun? Múslímar geta verið hvort sem er afar vankunnandi um hvað trúin kennir eða afar útsmognir í því að vera ekki að fullu heiðarlegir um innihald kóransins og hadíðanna.
Mikill meirihluti múslíma er vaninn við að endursegja hina helgu texta án þess að skilja þá. Þeim er kennt að upphefja orðin en ekki að skilgreina þau, að lofa þau en ekki að gagnrýna þau. Þess vegna verða rökræður við múslíma yfirleitt vandræðaleg fyrir þá. Draumsýn þeirra hrynur þegar orðum er markaður rammi eða ritmálið er látið sæta gagnrýni og viðurkenndri túlkunarfræði er beitt á textana.
Múslíma er fyrirskipað að spyrja einskis um trú sína. Þetta kemur fram í kóraninum, súru 5.101: Ó þér sem trúið (múslímar), innið ekki um hluti hverjir , ef yður yrðu sýndir þeir, myndu valda yður hugarangri. Ef múslími efast um ummæli (í helgum ritum) er hann eða hún álitinn vera trúníðingur og það gæti leitt til þess að aðrir múslímar dræpu hann eða hann sætti heiðursdrápi af hálfu fjölskyldu sinnar. Ef fullyrðingar um friðsemd íslam væru sannar hversvegna ástunda svo margir múslímar ofbeldisverk og réttlæta þau með tilvísun í kóraninn. Ef íslam væri raunverulega trú friðar myndu óteljandi manns mótmæla slíkum túlkunum. Múslímar vita mætavel að það er ekkert í textunum eða trúarlegum réttarkerfum sem styðja yfirlýsingar um friðsemd. Þeir einfaldlega velja að segja ósannindi um íslam.
Múslímar vita að Vesturlandabúar eru ekki lengur ástfangnir af guðshugmyndinni. Vísindi og stjörnufræði hafa ýtt guði út af vettvangi almennings þar sem það reynist sífellt erfiðara að trúa á ósýnilega og yfirnáttúrulega guði. En vestrænn hugmyndaheimur er einnig umburðarlyndur og allt um lykjandi og múslímar notfæra sér það. Vesturlandabúar vanmeta óvini sína. Af því að þeir eru sjálfir að mestu leyti ónæmir fyrir trúarbrögðum trúa þeir ekki að til séu þeir sem vilja myrða aðra eða sprengja sjálfa sig í loft upp vegna hjátrúarlegra hugmynda.
Múslímar stóla á fáfræði ykkar til að koma ætlunarverki sínu áfram en þið þurfið að hafa í huga að þeim mun einlægari og ákafari sem múslími er í trú sinni þeim mun líklegri er hann til að verða hatursfullur og hættulegur gagnvart þeim sem ekki eru múslímar.
Múslímar á Vesturlöndum, undansláttarmenn, stjórnmálamenn og helstu fjölmiðlar endurtaka þrotlaust yfirlýsingar um að mikill meirihluti múslíma séu hófsamt og friðelskandi fólk og að aðeins örlítill minnihluti séu öfgamenn.
Ég bjó enn í Egyptalandi 11. september árið 2001, þegar 19 múslímar rændu flugvélum og drápu 3.000 saklausa borgara og ég get upplýst, að nær 80 milljónir egypta fögnuðu árásinni á amerískri grund og glötun á lífi saklausra manna. Allar almannasamgöngur voru gjaldfríar þann daginn í Egyptalandi og næstu þrjá daga buðu sumir matsölustaðir upp á ókeypis mat og desserta. Kvikmyndahús og skemmtigarðar buðu ókeypis aðgang og útvarpsrásir hættu ekki að útvarpa glöðum sigursöngvum. Þýðir þetta að aðeins flugræningjarnir 19 hafi verið öfgamenn en 80 milljónir múslíma í Egyptalandi hófsamt og friðelskandi fólk?
Ekki þarf að drepa neinn til þess að vera öfgafullur, róttækur eða hryðjuverkamaður. Það skilja Vesturlandabúar ekki. Það eru margar aðrar hliðar á jihad en dráp á blóðvellinum. Langflestir múslímar halda með hryðjuverkamönnum. Þeir trúa á sömu hugmyndafræðina og deila sömu markmiðum jafnvel þó þeir taki sér ekki vopn í hönd. Þess vegna eru langflestir þeirra þögulir og sýna ekki andstöðu við félaga meðal múslíma, sem myrða í nafni trúar þeirra.
Múslími getur yfirleitt aldrei orðið vinur kaffir (ekki múslíma) sem og helgir textar fyrirskipa. Kaffir er óhreinn í þeirra augum. Kóraninn segir þeim þetta. Þeir trúa að eldar helvítis bíði kaffírsins að lokum og eina ástæðan fyrir vináttu er til að snúa honum til íslam. Í íslam fyrirfinnst hugtaklið Dawah eða Daava en það er trúarleg skylda allra múslíma að reyna að snúa mönnum til íslam eða a.m.k. vera nógu slóttugur til þess að hindra ekki-múslíma frá því að verja sig og láta íslam ná markmiðum sínum. Þetta er til að gera einstakling, samfélag eða íbúahóp óvirkan. Eins og segir í súru 3,28 í kóraninum: Ekki skulu trúaðir gera vantrúaða að vinum eða hjálparmönnum umfram trúaða. Ef einhver gerir slíkt verður enga hjálpa að fá frá Allah nema gert sé í varúðarskyni að þú megir verjast fyrir þeim ...
Hræsnin er mikið notuðu og hvatt til hennar í samskiptum við kufar (ft. af kaffir, þýðandi). Það er kallað Taqqiyah og nota af múslímum í löndum þar sem íslam ríkir ekki.
Múslímar drepa hver annan á hroðalegan hátt í múslímskum löndum. Múslímskir feður og mæður geta drepið dætur sínar fyrir að nota ekki íslamskar slæður eða fyrir að vera of vestrænar. Ef þeir eru svona miskunnlausir hver við annan hvernig getið þið þá vænst þess að þeir séu vinalegir gagnvart þeim sem ekki eru múslímar eða að þeir geri kaffir að vini sínum? Ef þið svarið að ekki allir múslímar hagi sér þannig athugið þá og viðurkennið að slíkt gerist og það gerist á hverjum einasta degi og er einungis þolað í íslömsku samfélagi.
Eftir nær allar hryðjuverkaárásir þykjast múslímar á Vesturlöndum fordæma morð á saklausu fólki eða þeir segja okkur að íslam fordæmi dráp á saklausum. Það sem þeir skýra hins vegar ekki út er að viðhorfið að vera saklaus getur aldrei átt við þá sem ekki eru múslímar, því að samkvæmt réttarkerfum í íslam hafa þeir (þ.e. ekki múslímar) hafnað boðskap Allah og Múhameð og það leiðir því af sjálfu sér að þeir eru ekki taldir saklausir. Þannig að þegar múslími segir við vestræna fréttamiðla og við áheyrendahóp sem er ekki múslímskur að íslam fordæmi dráp á saklausum eru þeir ekki beinlínis að ljúga. Þeir eru einfaldlega ekki að segja allan sannleikann þ.e. að saklausra sé aðeins að finna meðal múslíma í samræmi við lög íslam.
Þetta er mikið notaða bragð, kallast Tawriya eða Kitman. Þetta er ómissandi þáttur í íslömskum fræðum um það hvernig eigi að meðhöndlað þá sem ekki eru múslímar. Þetta þýðir að múslimum leyfist að segja ykkur það sem þeim hentar en hafa í huga sér og hjarta ósagðan sannleikann. Þetta eru ekki taldar lygar í íslam.
Sama skilgreining gildir um orðin hryðjuverk og hryðjuverkamaður. Múslímar telja verknað sinn ekki vera hryðjuverk. Að þeirra mati eru verk þeirra aðeins mótstaða gegn vestrænni harðstjórn eða að þeir séu að verja íslam eða berjast við andstöðu, - þeir séu að taka þátt í jihad í þágu Allah. Þess vegna geta múslímar hæglega sagt að íslam fordæmi hryðjuverk eða að múslímar séu ekki hryðjuverkamenn því að í hjarta sínu trúa þeir að verknaður þeirra sé ekki hyrðjuverkastarfsemi og eins og fram kom hér að ofan séu þeir ekki að ljúga. Lokamarkmið íslam eru fyrst algjör yfirráð yfir landi ykkar og að lokum heimsins alls.
Munið orð múslímska terroristans Mohammad Atta þegar hann ávarpaði farþegana í flugi 11 áður en vélin skall á World Trade Centre 9/11. Hann sagði þeim í gegnum hátalakerfið: Við höfum nokkrar flugvélar. Verið bara róleg og allt mun ganga vel. Við erum að snúa við til flugvallarins. Sitjið kyrr. Allt verður O.K. Ef þið reynið að færa ykkur úr stað eruð þið að valda ykkur sjálfum og flugvélinni hættu. Verið aðeins róleg. Síðan endurtók hann fyrri yfirlýsingu, verið bara róleg. Við erum að snúa við til flugvallarins. Ekki reyna neitt kjánalegt. Vesalings fórnarlömbin trúðu honum og höfðu hægt um sig án þess að átta sig á því að dauðinn blasti við þeim.
Þetta er það sem múslímar vilja að þið gerið, - bíðið róleg, vankunnandi og án mótþróa. Að vera þögul og aðhafast ekkert jafngildir einfaldlega að þið eruð að grafa ykkar eigin gröf með ykkar eigin höndum meðan þið verðið vitni að og leggið því lið að menning ykkar deyr fyrir tilverknað íslam.
Ef það eru ein skilaboð sem ég get komið til ykkar látum þá þau verða þessi: Verið stolt af landi ykkar, verðmætamati, siðmenningu ykkar, arfleyfð, menningu og trúarbrögðum. Það er þarna sem styrkur ykkar og kraftur liggur. Þið hafið ekki ástæðu fyrir neinni skömm.
Gleymið ekki að forfeður ykkar skópu og þið hafið erft bestu siðmenningu sem mannkynið hefur nokkru sinni kynnst. Þetta er siðmenningin sem færði heiminum upplýsinguna. Þetta er ástæðan fyrir því að fólk frá öllum heiminum, þar með talið múslímar, vilja og reyna að fá búsetu í löndum ykkar. Jafnvel þó að múslímar reyni að vekja hjá ykkur sektarkennd vegna einhverra sögulegra harma sinna látið ekki blekkjast af lágkúrulegum brögðum þeirra. Verið sterk og stolt. Þeir hafa milljón ástæður til að skammast sín vegna menningar sinnar, sögu og trúarbragða. Þeir eru meðal úrkynjuðustu þjóðfélaga sögunnar og lönd þeirra eru villimannlegustu og lágkúrulegustu lönd heimsins. En þeir telja sjálfum sér trú um að þeir séu fullkomnir, - stoltir og að þeir séu í hlutverki hinna guðræknu.
Ef þið sýnið múslímum að ykkur skorti stolt vegna þess hvernig þið hafið mótast af menningu ykkar eða einhver merki um veika samfélagslega stöðu eða sjálfsásökun vegna sögunnar þá munu þeir nota það gegn ykkur og gera ykkur að bráð sinni. Munið að enginn getur sest upp á bak ykkar meðan þið standið upprétt.
Múslímar nota ykkar eigin lýðræðislegu lög gegn ykkur með góðum árangri meðan þið fljótið áfram sofandi eins og í djúpu meðvitundarleysi. Þetta gerir að vinstri menn bera nafngiftina með réttu, - nytsamir fávitar. Þeir eru sífelt haldnir skömm og sjálfshatri og verða fyrstu fórnarlömg íslam þegar það nær yfirhöndinni. Múslímar nota vinstri menn eins og kylfu til þess að lumbra á ykkur en ekki einu sinni þeir munu verða viðurkenndir sem vinir nema þeir kjósi að snúast til íslamtrúar eða samþykka að taka stöðu annars flokks borgara, - dhimmi-stöðu. Vinstri menn og aðrir undansláttumenn verða fyrstu fórnarlömb íslam. Að sættast við illskuna er gunguskapur.
Land ykkar er eins og hús ykkar. Þið ætlast til þess að gestir virði ykkar reglur, - ekki öfugt. Gestir verða að meta velvilja ykkar og gestrisni að taka við þeim yfir á ykkar yfirráðasvæði og reyna ekki að koma sínum reglum yfir á ykkur. Þetta er húsið ykkar. Þið eigið það og ykkur ber að annast það og verja. Ef gesti líkar ekki við reglur ykkar verður hann að fara. Enginn neyddi hann til þess að heimsækja ykkur og enginn mun hindra að hann fari. Eins og hann valdi sjálfur að koma í hús ykkar þá getur hann einnig sjálfur valið að fara. Það er einnig hægt að fjarlægja hann með valdi ef þess er þörf.
Í 1400 ár hefur íslam hefur verið varið fyrir gagnrýni. Enginn hefur dirfst að efast um þetta trúarkerfi til þess að verða ekki dæmdur til tortímingar. Íslam er umkringt háum múrum sem múslímum er ekki leyft að skyggnast yfir. Sú hugmynd að efast um íslam er óhugsandi fyrir múslíma þannig að þeir geta engan veginn sætt sig við að sumir aðrir eru farnir að brjóta steina úr múrunum til að hleypa ljósi í gegnum þá. Þeim er um megn að líða þá staðreynd að byrjað er að afhjúpa íslam eins og manneskju með því að fjarlægja hverja flíkina á fætur annarrar. Og þegar hvert lagið á fætur öðru er fjarlægt er fólk farið að sjá íslam eins og það raunverulega er og múslímar berjast ákafar en nokkru sinni til að hylja sannleikann.
Venjulegur múslími er ófær um að skilja á milli gagnrýni og móðgunar, milli analýsu og árásar. Þeir skilgreina alla gagnrýni á íslam sem árás og bregðast við með árás eða óvirðingu. Munið að hugtakið hatursumræða eða móðgun er annað í hugarheimi íslam en almennt í heiminum.
Íslam lítur á allt sem múslímum líkar ekki að heyra sem hatursumræðu, jafnvel þó að það sé sannleikanum samkvæmt. Eða eitthvað sem þeir vilja sjálfir ekki viðurkenna um trúarbrögð sín eða vilja ekki að öðrum sé kunnugt um. Þannig er afar móðgandi fyrir múslíma ef sagt er að sendiboði íslam hafi verið barnaníðingur, þrátt fyrir að opinberlega viðurkenndar hadíður staðfesti það. Aisha var 6 ára þegar hún var föstnuð Múhameð 54 ára að aldri. Múslímar munu segja ykkur að þetta hafi verið venjan á þessum tíma. Þeir segja ævinlega að þið séuð að taka málin úr samhengi. Hvaða samhengi sem er gerir orð og athafnir Múhameðs andstyggileg, ill og gjörsneydd allri virðingu og göfgi.
Ráðast verður beint á hindranir þess að gagnrýna íslam. Hver sem er ætti að geta gagnrýnt íslam án ótta eða hefndaraðgerða. Múslímar verða að læra að þeir eru ekki ofar gagnrýni eða öðru fólki æðra né trúarbrögð þeirra. Eins og öll önnur trúarbrögð ætti að hafa efasemdir um íslam, grandskoða það og gagnrýna.
Múslímar eru meistarar í blekkingum og hagræðingum. Þeir nota róg til að ógna þér og þagga niður í þér. Þeir vita sem er að fátt óttast Vesturlandabúar jafn mikið og að vera brugðið um kynþáttafordóma þannig að múslíma hika ekki við kalla alla þá rasista sem eru ekki sammála þeim eða neita að afhenda það sem þeir vilja fá. Þeir nota þessi orð þó að íslam sé ekki kynþáttur heldur trúarkerfi. Eins og ég sagði áður: ekki sýna múslímum nein veikleikamerki og leyfið þeim ekki að koma sínu verðmati yfir á ykkur. Þeir skilja aðeins mál valdsins. Segið einfaldlega nei við óendanlegum og óraunhæfum kröfum þeirra.
Munið að múslímum líkar best að koma fram sem fórnarlömb. Það er þeirra sterkasta vopn gegn Vesturlöndum. Staða fórnarlamba gerir þeim kleift að beita ofbeldi og gefur þeim ástæðu til að ráðast á ekki-múslíma um heim allan. Það fyllir þá hatri sem elur af sér aukið ofbeldi. Þar að auki gerir fórnarlambastaða þeim kleift að þagga niður í ykkur og stöðvar andstöðu ykkar við að þeir komi fram ætlunarverki sínu. Þess vegna er auðveldast fyrir þá að hengja merkimiða á þá sem gagnrýna íslam með orðunum rasisti, íslamfóbía eða ofstækismaður.
Einu þarf að lokum að taka vel eftir. Múslímar læða að því fráleita sálfræðilega bragði að eigna öðrum eigin hvatir. Þeir ásaka ykkur um að vera það sem þeir eru sjálfir. Þeir ásaka ykkur um að vera rasistar, sem þeir eru sjálfir. Íslam snýst algjörlega um rasisma. Þeir ásaka aðra um að vera hatursfulla en hata sjálfir skilmála- og takmarkalaust. Þeir ásaka ykkur um fordóma en haga sér eins og þeir séu öllum öðrum æðri.
Múslímar eru almennt haldnir sameiginlegu hópofsóknaræði. Þannig hefur það verið frá tímum spámannsins og þannig er það enn í dag. Þeir trúa því að þeir séu stöðugt ofsóttir, sæti mismunun og séu kúgaðir af þeim sem ekki eru múslímar. Þeir trúa því að gyðingar og kristnir séu með samsæri gegn þeim til að ná þeim yfir til kristni eða gyðingdóms. Sum vers kóransins magna þessa sjúku tilfinningu eins og súra 2.120 Og aldrei munu gyðingar eða kristnir viðurkenna yður fyrr en þér fylgið trú þeirra.
Múslímar sem búa á Vesturlöndum eru alltaf í vörn. Þeir telja allar kröfur um aga sérstaklega beint að múslímum eða telja það andmúslímska mismunun ef fráleitum trúarlegum kröfum þeirra er hafnað. Þar af leiðir að múslímar valda miklum vandræðum og óþarfa hausverk meðal gestgjafaþjóða og gagnvart fólkinu sem bauð þá velkomin til lands síns.
Af hverju? Stærstu mistökin eru að þjóðlönd líða heimsvaldastefnu íslamskrar menningar. Múslímar hafa notfært sér örlæti Vesturlanda gagnvart flóttamönnum og hælisleitendum. Þeir hafa notað brögðin sem eru kennd við trójuhestinn til innrásar og yfirtöku. Með þjóðflutningum sem nú eiga sér stað á vegum íslam til Vesturlanda ( Norður-Ameríku, Evrópu og Ástralíu) erum við vitni að endalokum Vesturlanda eins og við þekkjum þau og metum mikils. Íslamski innflutningurinn eru banvænustu mistök sem Vesturlönd hafa nokkru sinni gert. Enginn þekkir íslam og hugarfar múslíma betur en þeir sem hafa þurft að líða fyrir að íslam hefur verið hluti lífs þeirra.
Ef þið hlustið eftir ópum Koptana í Egytalandi, kristinna í Sýrlandi, Írak, Súdan, Pakistan og öllum öðrum múslímskum löndum munuð þið heyra kór sem mælir einum rómi um hrylling sem þeir hafa þurft að þola vegna íslam. Sjáið tárin og sársaukan hjá minnihlutahópum í hverju einasta íslömsku samfélagi. Þessi tár segja ykkur allt um hið sanna eðli íslam. Heyrið blóðið í fyrrverandi múslímum hamast. Það er blóð þeirra sem hrópar sérhverja sekúndu til hins hluta heimsins: Vaknið ! Í öllum bænum hlustið á mál mitt, grát minn. Í öllum bænum sjáið og skynjið tár mín. Hlustið á skilaboð míns dunandi blóðs. Ég er fórnarlamb íslam sem bjargaðist.
http://nocompulsion.com/a-warning-to-the-west-a-voice-from-egypt/
Maður fær nú víst ekki lof fyrir að útbreiða svona texta, sem elítan flokkar eftir sínu höfði. En ég tek undir alvarleika málsins.Fyrir mér er þessi setning:
"Með þjóðflutningum sem nú eiga sér stað á vegum íslam til Vesturlanda ( Norður-Ameríku, Evrópu og Ástralíu) erum við vitni að endalokum Vesturlanda eins og við þekkjum þau og metum mikils. Íslamski innflutningurinn eru banvænustu mistök sem Vesturlönd hafa nokkru sinni gert. Enginn þekkir íslam og hugarfar múslíma betur en þeir sem hafa þurft að líða fyrir að íslam hefur verið hluti lífs þeirra."
hinsvegar grafalvarleg.
Það eru öfl hér á kreiki sem er purkunnarlaust sama um þótt skipt sé um þjóð í landinu. Öfl sem virða einskis land, tungu, menningu eða þjóðerni.það á ekki að leyfa þeim að senda fé hingað til lands til að útbreiða Islam. Það er alltaf nóg af nytsömum sakleysingjum til að trúa án þess að spyrja.
Verum á varðbergi gagnvart Islam og innflutningi áhangenda þeirra kenninga.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:29 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Múslímar eru ekki í löndum ykkar til að hjálpa ykkur við uppbyggingu eða til sóknar fyrir betri lífskjörum. Þeir eru afætur, sníklar hjá gestgjafaþjóðinni.
Halldór.
Þetta eru ljótar lygar. Í Þýskalandi búa fleiri milljónir múslima og hefa gert í áratugi. Þeir eru bara langflestir vinnusamir og taka þátt í að halda hinu þýska hagkerfi gangandi. Hræddur er ég um að þýsku verksmiðjurnar myndu stöðvast, ef múslimar legðu niður vinnu sína.
Svona fullyrðingar og alhæfingar um "afætur" og "sníkla" er auðvitað ekkert annað en hreinn og ómengaður hatursáróður. Og þessu dreifið þið Valdimar. Sveiattan.
Einar Karl, 5.9.2015 kl. 12:36
Fyrsta málsgreinin átti að standa innan gæsalappa. Hún er bein tilvitnun í greinina sem Halldór dreifir hér og Valdimar þýddi.)
Einar Karl, 5.9.2015 kl. 12:45
Einar Karl
Hvert eigum við að leita til að fá tölfræðilegar sannanir á þvi sem þú ert að halda fram.Ertu ekki að bera fram áróður hreinan og ómengaðan.Hvað eru margir múslímar í Þýskalandi, hvað er atvinnuleysi meðal þeirra v.s hinna?
Þegar ég var við nám í Þýslandi fyrir meira en hálfri öld var innflutningutr Tyrkja vandamál. Þeir fóru ekki úr landinu aftur og hafa gerst Þjóðverjar margir með 2.og 3 kynslóð. Þeir vinna ekkert endilega í verksmiðjum, þier voru skólabræður mínir margir.
Þá fluttu Þjóðverjar inn Sikileyinga til að vinna á byggingastöðum og þeir bjuggu flestir gámum á lóðinni. Þjóðverjar eru orðnir talsvert blandaðir af alls kyns aðfluttu fólki en þó mun minna en ef ingað kæmu 50000 flóttamenn.Sumt er aðlagað, sumt ekki.
Kynntu þér tölur áður en þú byrjar slagorðasönginn þinn.
Halldór Jónsson, 5.9.2015 kl. 13:09
Það eru engin ný sannindi að þessi trúarbrögð eiga enga samleið, og hafa aldrei gert, og munu aldrei gera.Þess vegna verða stjórnvöld að vanda vel til verks, þegar þessir flóttamenn verða valdir, og ef veruleg breyting á að verða á innflutningi flóttamanna frá síðustu árum, á þjóðin skilyrðislaust að fá að kjósa um það. Kristið fólk er ofsótt af múslimum í þessum löndum og ekki lengra síðan en í apríl 2015, sem Ítalska lögreglan handtók 15 múlimska flóttamenn eftir áskanir um að þeir hefðu fleigt 12 kristnum flóttamönnum fyrir borð á flóttamannabáti, og eru þeir taldir af. þannig að kristin munaðarlaus bör og unglingar í flóttamannabúðum í Líbanon og víðar eru algjörlega varnarlaus gegn þessum viðbjóð, og réttast væri að flytja inn 25 kristin börn á þessu ári og 25 á því næsta, og veita þeim skjól frá þessum viðbjóð sem þau lifa við í þessum flóttamannabúðum og á götunni, og geta ekki varið sig , og framtíðin verður síðan síðan að skera úr um hvort þau fynni ætingja sína í framtíð, eða ílengist hér.
Gera verður þær kröfur til stjórnvalda að þau velji flóttamenn af túarbrögðum sem brjóta ekki gegn 63.gr og 65.gr Stjórnarskrárinnar. Túfrelsi er í samræmi við sannfæringu hvers og eins, þó má ekki kenna aða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði, eða alsherjarreglu, umskurður unglingsstúlkna, barna giftingar, og handarmissir fyrir þjófnað er ekki innan þess ramma sem Stjórnarskráin og önnur lög landsins, setur túfrelsinu. 65.gr er alveg skýr, konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna. Sum trúarbrögð banna hreinlega jafnrétti kynjanna.
Niðurstaða mín er sú að Íslendingum ber siðferðileg skylda að taka við 25 munaðlausum börnum og unglingum á þessu ári og 25 á því næsta, hægt verður að ráða samlanda barnanna sömu trúar til að annast kennslu þeirra fram á vorið.
Síðan ætti að nota þessa miljarða sem fara í þróunaraðstoð, til að sjóða niður eins mikið af markríl sem mögulegt er, og senda til flóttamannbúðanna, því makríll er hollur og góður matur, og prótinríkur mjög.
Jón Ólafur (IP-tala skráð) 5.9.2015 kl. 14:11
Það fylgir því áhætta að taka við fólki með aðra trú og gildi.
Loncexter, 5.9.2015 kl. 16:20
Halldór minn.
Er ég með slagorðasöng??
"Þeir eru afætur, sníklar hjá gestgjafaþjóðinni."
Þetta er orðréttur boðskapur úr greininni sem þú birtir. Þessi orð birtir þú. m.a. um þína gömlu skólafélaga.
Finnst þér þetta boðlegt?? Að kalla FÓLK afætur og sníkla? Þú veist hverjir notuðu slík orð. þeir voru í Þýskalandi, tveimur áratugum áður en þú varst þar í námi.
Einar Karl, 5.9.2015 kl. 19:23
Þetta eru tveir gjörólíkir menningarheimar sem eiga enga samleið og munu aldrei gera,og hafa aldrei getað búið í sátt og samlindi.
Því lýst mér vel á að taka við 25 munaðarlausum kristnum börnum og unglingum sem sækja ofsóknum vegna trúar sinnar,25 á þessu ári og 25 á því næsta. Og ráða kristna landa þeirra hér á landi til að annast kennslu þeirra fram á vorið, og nóg er nú um tóma héraðskóla út um allt land.
Og miljarðana sem fara í þróunarverkefni á að nota til að sjóða niður makrílinn, sem mest af honum og senda til þessara stríðsþjáðu landa sem reka flóttamannabúðir.
Og það er umhugsunarefni að Sameinuðu þjóðirnar skulu ekki reina að fá þessi ríki til að mynda Griðland fyrir þessa flóttamenn sem yrði varið af alþjóðlegum her.
Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 5.9.2015 kl. 22:54
Einar Karl,
ég skrifaði ekki greinina.
En skýrir frá því
að:"Sweden’s Muslims have unemployment rates 4 to 10 times higher than non-Muslims, depending on ethnicity. 2"
Á hvað bendir þetta? Að þeir séu að borga mikið til amfélagsins? Sjá þeir öðrum fyrir lifibrauði? Eða eru þeir þiggjendur? Afætur og sníklar öðruvísi orðað?.
Halldór Jónsson, 6.9.2015 kl. 14:04
Og ennfremur:
"Evidence from the Swedish Integration Board found that 67% of those surveyed felt that Islamic values are not compatible with those in Swedish society. Further, 46% of Swedes did not believe that Muslims were like Swedes, and 37% percent were opposed to the building of mosques in Sweden. "
Halldór Jónsson, 6.9.2015 kl. 14:09
Hvenær á að gefa íslensku þjóðinni kost á að tjá sig um afstöðu hennar til innflutnings múslíma? 'a bara að þegja?
Halldór Jónsson, 6.9.2015 kl. 14:10
Halldór Jónsson,
ég spurði þig ekki hvort þú skrifaðir þessa grein. ÉG spurði hvort þér finndist boðlegt ða kalla stóran hóp fólks - heilu þjóðirnar - AFÆTUR OG SNÍKLA ?
Með því að dreifa þessari grein ertu að leggja blessun þína yfir svona málflutning.
Einar Karl, 6.9.2015 kl. 23:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.