28.10.2015 | 08:49
"Góðafólkið"
á iðinn málsvara í Árna Matthíassyni á Morgunblaðinu.
Þar lýsir Árni þessi atburðum á Landsfundi, sem hann væntanlega sem vinstrimaður hefur ekki upplifað sjálfur heldur reiðir sig á frásagnir annarra.
"Svo gerðist það í vikunni að tveir dánumenn úr Sjálfstæðisflokknum tóku til máls undir lok landsfundar flokksins. Annar fékk gott hljóð, eins og hann lýsir því sjálfur (ég var ekki viðstaddur), en hinum var ekki eins vel tekið, því »lýðurinn« ærðist, stappaði í gólfið og baulaði að sögn ræðumannsins sem varð að hætta máli sínu vegna óánægju viðstaddra. Þetta kemur nokkuð á óvart í ljósi þess að hann var aðeins að bergmála Útvarp Sögu og því hefði ég búist við því að salurinn hefði sprungið af hlátri, hlegið viðkomandi uppistandara niður úr ræðupúltinu frekar en að baula."
Hann lýsir velþóknun sinni á atburðarásinni með setningunnni:
"Nú er það rétt hjá viðkomandi ræðumanni að hver á að hafa rétt til að taka til máls en þeir eiga ekki síður rétt til að tjá sig sem eru ósammála honum. Þeir mega líka segja skoðanir hans galnar og rasískar ef þeim sýnist svo - málfrelsi er fyrir alla. Svo á maður ekki að bera virðingu fyrir öllum skoðunum, sumar skoðanir eru nefnilega svo galnar að ekki er hægt annað en hafna þeim án umræðu."
Það var gegn svona skoðunum sem leiða til uppþota á frjálsum fundum sem Hitler stofnaði stormsveitirnar. Þá ferðaðist Hitler borg úr borg og barðist fyrir sínum skoðunum. Fyrst í miklum minnihluta hrakinn og hæddur. "Besserwisserarnir" þá, hugsanlega jafn víðsýnir eins og Árni þessi, töldu nefnilega réttlætanlegt að henda bjórköllum og grjóti í Hitler og hans fólk í stað þessa að rökræða. Eða með orðum Árna sjálfs:" Svo á maður ekki að bera virðingu fyrir öllum skoðunum, sumar skoðanir eru nefnilega svo galnar að ekki er hægt annað en hafna þeim án umræðu."
Akkúrat kjarni málsins. Stormsveitirnar voru upphaflega stofnaðar til þess að fleygja ólátabelgjunum út og koma skikk á fundina fyrir óeirðaseggjum sem hegðuðu sér í átt til þess sem um ræðir á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Reyndu að hleypa upp fundunum af því að þeir vildu ekki því að : " sumar skoðanir eru nefnilega svo galnar að ekki er hægt annað en hafna þeim án umræðu." að dómi Árna þessa. Stormsveitirnar voru upphaflega stofnaðar til að verja fundafrelsið svo fyndið sem það er nú í ljósi þess sem síðar varð.
Auðvitað var ástandið í Þýzkalandi á þeim tíma þannig að jaðraði við borgarastríð lengi vel. En þessir tímar geta komið aftur þegar stjórnmálamenn eins og Merkel ganga gersamlega gegn þjóðarvitundinni að mönnum er nóg boðið og reisa höfuð sín til varnar eins og hinn traðkaði aumasti ormur.
Ekkert er nýtt undir sólinni og mikil hitamál geta leitt til óeirða eins og við sáum í Gúttóslagnum og árás kommúnista á lýðræðið á Austurvelli 30 marz. Svo næst í búsáhaldabyltingunni sem æst var upp af kommúnistum innan úr Alþingishúsinu að hluta til. 30 marz varð að kalla út varalögreglu en í búsáhaldabyltingunni munaði hársbreidd þegar almennir borgarar gengu fram fyrir skjöldu að verja úttaugaðar hetjur okkar.
"Góðafólkið" eins og Árni þolir ekki rökræður.Það vill bara berja okkur "rasistana" til hlýðni fyrir að hafa skoðanir á innflutningi flóttamanna af því bara að þær séu "galnar"
Er það sjálft bara ekki með speldi fyrir augunum og neitar að ræða það hvort hópar innflytjenda hafi hugsanlega reynst í ætt við það sem Árni skrifar:" ..múslímar (sem= innskot mitt) séu upp til hópa blóðþyrstir villimenn - eigum við að viðurkenna það sem skoðun?"
Það eru býsna margir sem benda á múslímahverfin í Svíþjóð og spyrja hvað það sé sem fælir lögregluna frá því að fara inn í þessi hverfi. Styður það þá skoðun að innfluttir múslímar hafi reynst í því landi upp til hópa sérstakir dánumenn? Eru fjöldagöngur hvítserkja í London sem öskra "Breska lögreglan fari til helvítis" tákn um rangindi "rasista" sem "góðafólkið" verði að standa vörð um að nái ekki til innflytjenda?
"Góðafólkið" er að verða að vandamáli meðal almennings með upphlaupum sínum sem vonandi leiðir þá ekki til stormsveita á móti.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 3419710
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Þakka þér fyrir Halldór.
Ég var einmitt að enda við að æla vegna þessa umrædda pistils í Morgunblaðinu í dag. Ég þekki "Dictatorship of Relativism" þegar ég sé hann.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 28.10.2015 kl. 09:19
Einhvern tíma mælti vitur lýðræðissinnaður stjórnmálamaður eitthvað á þessa leið: Ég hef skömm á skoðunum þínum og er þeim algerlega andvígur en mun berjast fyrir því að þú fáir að setja þær fram.
Það má teljast klökkt að á landsfundum flokks, sem vill hafa ofangreint í heiðri skuli fundarmenn hrekja ræðumenn ítrekað úr ræðustóli.
Þetta var gert þegar Ólafur F. Magnússon var í ræðustóli í desember 2001 og aftur núna.
Ómar Ragnarsson, 28.10.2015 kl. 09:29
Ég tek undir með síðuhöfundi og eins Ómari. Sk0mm vr að þessu, sem og skrílslætin gegn Ólafi F. Magnússyni. Í því tilfelli stóð fundarstjkórinn sig ekki. Sama var bnú að tillagan umrædda var geymd þar til um 2/3 hlutar fundarmanna var farinn af fundi. Meðvituð ákvörðun stjórnenda fundarins sem og formanns nefndarinnar sem viðhafði orð úr ræðustóli sem ekki hæfir formennskunni.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 28.10.2015 kl. 10:15
Takk fyrir Gunnar, því miður fengu margir uppí kok.
Takk fyrir Omar, en því miður eru margir haldir óþoli þegar kemru að óviðurteknum skoðunum. Ég er viss um að þú kannast við það úr þinni baráttu.
Cachoetes, síðasta málsgrein þí er áminning til fundarmanna og fulltrúa á Landsfundum að láta ekki af varðstöðu sinni fyrr en málið er afgreitt. Þetta hvernig fundarstjórinn afgreiddi liðina á undan og eftir og geymdi sér þennan umdeilda lyktar langar leiðir eins og hákarlshjallur. Minnir á Egilesstaðasamþykktina forðum daga sem var gerð akkúrat með þessari aðferð.
Halldór Jónsson, 28.10.2015 kl. 12:53
Góða fólkið hefur verið að velta því fyrir sér undanfarinn sólarhring, hvernig hægt sé að þagga niður í Guðbergi Bergssyni, sem vann sér það til óhelgis að gera gys að tveim sjálfhverfum smámennum og smápennum af vinstri kantinum.
Þeim er aldeilis farið að fjölga, þessum óhelgu og óhreinu, sem bögga lýðræðislegt einræði góða fólksins.
Þar sem góða fólkið er einatt líka vinstra fólk, þá er það náttúrulega eðlilegt að það taki Svía sér til fyrirmyndar.
Svíar, þetta ofurgóða og frjálslynda fólk hefur umfram aðra, náð ótrúlega góðum árangri í að einangra óæskilegt fólk.
Árangurinn er sá, að Svíþjóð er nauðgunarhöfborg Evrópu, og næstbest í heimi, einungis Lesótó í Suður Afríku stendur sig betur.
Svíar tala ekki við Svíþjóðardemókrata. Þeir fá ekki umfjöllun í fjölmiðlum og stjórmálaelítan horfir framhjá þeim, eins og þeir séu ekki til. Afleiðingin er sú, að demókratarnir eru orðnir stærsti flokkur Svíþjóðar skv könnunum.
Öll þróun í Svíþjóð minnir óbærilega á það sem gerðist í Þýskalandi. Ógæfan verður svo fullkominn þegar stærsti hluti Svía eru komnir í hóp þeirra sem útskúfaðir eru af góða fólkinu.
Góða fólkið er náttúrulega svo innilega heimskt, að gera sér ekki grein fyrir því, að eftir því sem skoðanankúgunin stendur lengur yfir og verður svæsnari, því verri verða afleiðingarnar fyrir góða fólkið sjálft.
Fólk sem fagnar því ógurlega og feinislaust, að skemmdarverk séu unnin á útvarpi Sögu, efur greinilega ekki nokkra tilfinningu fyrir sögunni, að hún geti endurtekið sig.
You have been warned.
Hilmar (IP-tala skráð) 28.10.2015 kl. 14:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.