Leita í fréttum mbl.is

Akbar Allah

Múslímar skulu hafa forgang þegar reisa skal tilbeiðsluhof í Reykjavík.

Hjálpræðisherinn á ekki að fá ókeypis lóð við hlðina á moskunni á Suðurlandsbraut. Herinn er líklega ekki nógu bænheitur síðan Jón Kadett leið. Hefur líklega aldrei gert neinum gott í Reykjavík eftir að kratisminn hélt þar innreið sína? Á því verður breyting þegar gullregnið fellur frá dáindsfólkinu í SádíArabíu, sem stútaði þeim óguðlegu svo um munaði í síðustu viku.

Í SaudíArabíu rigndi Blóði og Eldi sem skal metið að verðleikum í Borgarstjórn Reykjavíkur.

Mildileg ásjóna formanns Skipulagsráðs Reykjavíkurborgar frelsar Frelsisherinn frá sjálfum sér enda fullkomið óráð að fara að byggja kastala á fjárhagslegu kviksyndi við hlið þess trúfélags sem framtíðina á fyrir sér.

Akbar Allah.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Hjálpræðisherinn er með lóð. Þeir ætla að selja þá lóð og fá aðra frítt.

Sveinn R. Pálsson, 5.1.2016 kl. 09:37

2 identicon

"Hjálpræðisherinn er með lóð. Þeir ætla að selja þá lóð og fá aðra frítt."

Þetta eru nú fín rök. Söfnuður múslima á peninga sem þeir fengu frá Arabíu. Hjálpræðisherinn á lóð. Hvort tveggja eru eignir. Merkileg niðurstaða hjá Sveini Pálssyni; en þó ekki. Svona rökhugsa vinstrimenn nú bara.

Einar S. Hálfdánarson (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 12:02

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hinir hörðu málsvarar trúlausra vinna jafnan gegn kristnum málstað, það er ekkert nýtt, og það á jafnt við þegar þeir gera lítið úr áratuga starfi Hjálpræðishersins í þágu umkomulausra og bágstaddra eins og um ósanngjarna umfjöllun þessara sömu afbrýðisömu aðila um kirkjuna fyrr og síðar.

Þetta er tilefni til að endurbirta hér nýjasta pistil minn, með einni viðbót:

Mikill er heiður kristinna kirkna - en hvað verðskuldar 20 upphrópunarmerki?

Merkilegt, að STUNDIN er orðin málpípa fyrir andstæðinga kristinnar trúar, sem þó hefur átt meginþátt í að grundvalla bókmenningu á Íslandi, var megin-bakhjarl myndlistar og byggingarlistar á miðöldum og lengur, auk þess að halda uppi sjúkra- og fátækrahjálp öllum öðrum fremur, að ógleymdum áhrifum kristninnar til að afnema barnaútburð og hólmgöngur (einvígi) og gefa þjóðinni marga friðardaga; og við þetta má bæta uppfræðslu og skólahaldi kirkjunnar allt frá 11. öld, sem og áhrifum kirkjunnar á myndlist fyrr og síðar.

 

Og það var að frumkvæði lúthersks biskups frá Danmörku sem nánast allur æskulýður landsins lærði að lesa frá 18. öld og áfram.

 

En þetta vilja trúleysingjar helzt, að verði þaggað niður, eins og þeirra líkar hafi mest gert fyrir þjóðina! Og þetta verðskuldar 20 upphrópunarmerki fremur en tvö eða þrjú!

Jón Valur Jensson, 5.1.2016 kl. 13:09

4 identicon

 Já, þetta er vitið - eða hitt þó heldur. Ég hristi höfuðið, þegar ég las þetta í morgun. Þetta er eins og annað eftir þessu liði þarna á Ráðhúsinu. Ég er sammála þeim, sem segja, að það eigi ekki að láta nein trúfélög fá ókeypis lóðir, bæti þó við, að þjóðkirkjan eigi að eiga þar sérstöðu, þar sem hún er stjórnarskrárbundin, en þessir afglapar þarna í Ráðhúsinu eru sífellt í stríði við. Ég veit ekki, hvar þetta endar eiginlega, en held það sé meira en kominn tími til að fara að henda Degi og kompaníi út úr Ráðhúsi Reykjavíkur, þar sem þau eru orðin meira til ógagns heldur en gagns í borgarstjórninni, eins og framkoma þeirra öll er í garð okkar borgarbúa. Það er kominn tími til, að eitthvað viti borið fólk fari nú að koma að stjórn borgarinnar og vinda ofan af þessarri vitleysu og rugli, sem verið hefur þar til þessa, bæði hvað fjárhag borgarinnar og þjónustu við borgarbúana snertir. Betra er seint en aldrei.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 13:24

5 Smámynd: Baldinn

Það var ekki Reykjavíkurborg sem ákvað að trúfélög fái ókeypis lóðir.  Þetta vitið þið líklega en það er svo gott að hagræða aðeins sannleikanum þegar það hentar manni.

Hjálpræðisherinn fékk ókeypis lóð undir sitt hús sem nú á að selja.  Hluti af því söluverði er lóðin sem húsið stendur á. Á þá borgin að gefa þeim aðra lóð ?

Ég er reyndar á móti því að trúfélög fá ókeypis lóðir.

Baldinn, 5.1.2016 kl. 15:09

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Framtíð Íslendinga með gefins mosku á gefinni lóð, sem stolið var af þjóðinni sem á landið og miðinn, verður varla spennandi þegar handarhögg og hýðingar hafa náð að teljast til venjulegra búskapar hátta.

Hrólfur Þ Hraundal, 5.1.2016 kl. 16:57

7 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Baldinn og þið hin.

Þjóðkirkjan eitt allra trúfélaga á lögvarinn rétt til að fá lóðir undir kirkjur aínar og helgast af kirkjujarðasamkomulaginu frá 1907. Þá tók ríkið á leigu hátt í 17% af öllu jarðnæði á Íslandi og var í eigu þjóðkirkjunnar. Þar á meðal voru jarðir sem nánast öll kauptún á Íslandi standa á enn þann dag í dag. Hluti samkomulagsins var því að þjóðkirkjan fær lóðir undir kirkjurí raun á sínum eigin jörðum, sem ríkið leigði af þjóðkirkjunni.

Þar er komin ástæða fyrir því að jafnræðisregla stjórnarskrár og stjórnsýslulaga á bara ekkert við um þetta mál. Hvar eru jarðir annarra trúfélaga sem það lét á leigu til ríkisins eins og þjóðkirkjan gegn nánast gjafleigu? Um var að ræða hátt í 700 jarðir, þar á meðal stærsti hluti lögsagnarumdæmis Garðabæjar/Álftaness, Þingvellir allir og svo mætti lengi telja.

Leigusamningurinn frá 1907 breyttist 1997 í ígildi kaupleigusamnings vegna lögbrota stjórnmálamanna í 90 ár við að selja jarðir á slikk til vina sinna úr safninum, en allir vita að leigjandi má ekki selja eign sem hann er með á leigu.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 5.1.2016 kl. 17:33

8 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Ég tek undir afbragðs gott innlegg Jóns Vals ofar á síðunni.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 5.1.2016 kl. 17:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband