27.1.2016 | 20:13
Ólga í Sjálfstæðisflokknum
virðist mér vera vaxandi.
Málefni forystu flokksins eru mikið rædd meðal óbreyttra flokksmanna þar sem ég kem. Menn spyrja sig hvernig forystan sé að bregðast við þeim tölum sem berast úr skoðankönnunum? Fylgi flokksins fer stöðugt minnkandi.
Er forystan að grípa til varna?
Get ég eitthvað gert til að hjálpa til?
Eða er ég vandamálið?
Hvert stefnir með þennan flokk í næstu kosningum? Getur hann tekið á sínum málum þá ef hann gerir það ekki núna? Eða er hann að gera það og ég er bara ímyndunarveikur?
Mikið væri ég feginn ef ég væri einn um að skynja ólgu í Sjálfstæðisflokknum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 3419710
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !
Halldór !
Hann er orðinn langur: vegurinn frá Jóni Þorlákssyni, Verkfr. góður.
Hafðu mín ráð Halldór - og segðu þig nú þegar, frá þessu illa ryckti.
Þessi flokks ómynd: okkar samtíma, grefur leynt og ljóst undan okkur einyrkjunum, sem og öðrum þeim, sem sýnt hafa sjálfsbjargarviðleitni, í þjónustu við grunnþætti fram leiðzlu atvinnuveganna / hin seinni árin, og misserin.
Farið hefur fé betra - lognaðist þessi ófögnuður út af, sem allra fyrst.
Enginn sjónarmunur: á þessu apparati, fremur en hinna flokka nefnanna 5:: núsitjandi á alþingi ömurleikans, fornvinur góður !!!
Með beztu kveðjum - sem endranær, af Suðurlandi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.1.2016 kl. 20:43
Það duga vart minna en 20 armslengdir á milli fjármálaráðherrans og þeirra sem eiga hlutdeild að óeðlilegum viðskiptum við Landsbankann.
Öll grunsamleg tengsl á milli stjórnvalda og peningaafla eru sem eitur í beinum venjulegs fólks. Þeir sem ekki skilja það eru eitthvað sjóndaprir.
Hörður þormar (IP-tala skráð) 27.1.2016 kl. 20:53
Komið þið sælir - á ný !
Hörður Þormar !
Þess má einnig geta: að þessi flokks hörmung fer framarlega fyrir þeim öflum í þjóðfélaginu, sem vilja opna ALLAR GÁTTIR fyrir óheftu flæði Múhameðsku villimannanna, hingað til lands.
Vonum - að Halldór Verkfr. átti sig á þeirri staðreynd, þó ekki væri, nema einni og sér, sem ég held hann geri raunar, en virðist ekki kunna við, að trufla Bjarna Benediktsson og hirð hans, með einhverjum lítillætis aðfinnzlum, í þá áttina.
Burt séð: frá þrákelkni þeirra Valhallar manna (við Háa leitisbraut, þar syðra), að vera lítt dulbúnir attaníossar hinna flokkanna 5, í flestu:: sbr. óstjórnun Reykjavíkur, t.d. / auk fjölda annarra dæma, víðs vegar um landið.
Með þeim sömu kveðjum - sem fyrri /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.1.2016 kl. 21:54
......Og er ekkert óeðlilegt.Þeir sem eru að möndla við kjósendur,verða að tala við þá á öðrum tímum en í aðdraganda kosninga.-Halldór minn skil að flokkurinn þinn er eins og Breiðablik er mér.Við viljum vinna sem mest og umfram allt öðlast virðingu. Ég held að þegar illa gengur nái stjórnendur ekki að höfða til kjósenda sinna,en þeir sem eru innan arms eiga greiðari aðgang að hlustum þeirra.Meira get ég ekki dregið undan erminni,því nú plagar mig ritstífla og slen.Mb.Kv.
Helga Kristjánsdóttir, 27.1.2016 kl. 21:55
Þarna kom Óskar upp á milli okkar Hörður,en ég er honum hjartanlega sammála að Sj.st,flokkur vill opna allar gáttir osfrv. Þess vegna hef ég oft og mörgum sinnum hvatt aðra hægri til dáða og nú fer hver að verða síðastur.
Helga Kristjánsdóttir, 27.1.2016 kl. 21:59
Komið þið sæl - að nýju !
Nafna mín Kristjánsdóttir: (kl. 21:59) !
Það - þurfið þið öll, sem ennþá hafið einhverja tiltrú ennþá / en vonandi þó þverrandi, á þessu flokks skrípi, sem kennt er við Sjálfstæði (fullkomið öfugmæli: sbr. EFTA/NATÓ og EES þjónkunin), að Siðmenning Vesturlanda er að veði í dag - verði ekki risið upp, af FULLKOMINNI hörku, gagnvart Saúdí- Arabísku meinsemdinni, hið skjótazta, fornvinkona góð.
Þar: gætu Íslendingar, þótt ótrúlegt kunni að virðast, sýnt ákveðið frumkvæði, með því að stökkva þeim Múhameðsku af landi brott / sem hér eru fyrir:: nú þegar, og lokað fullkomlega fyrir frekara aðstreymi þessa lýðs, hingað.
Hvað - sem líður kjökri : Þjóðkirkju fígúranna / Þóris Guðmundssonar hjá Rauða Krossinum, eða Forseta nefnunni, suður á Bessastöðum á Álptanesi, nafna mín.
Auk annarra: hélendra spé- og snobb fugla, yfirleitt.
Sízt lakari kveðjur - en aðrar, og áður /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.1.2016 kl. 22:39
Íslenska heilbrigðiskerfið er eitt af því besta í heiminum í dag. Betra en það sænska og danska ( HCP og Fjeldsted ). Kári og læknar eiga hagsmuni að gæta og nota það óspart til að fá meira fé í heilbrigðiskerfið. Sjálfstæðisflokkurinn fær heldur ekki prik fyrir að afnema tolla á fötum og skóm. Kemur sér best við efnaminni og færir verslunina inn í landið.
Alfreð Guðmundsson reyndi að einfalda tollafgreiðslu en nú er allt komið í sama farið. Námsmaður sem finnur bók hjá Amozon á kr. 2500.- þarf að greiða helmingi hærri upphæð til Póstsins (Afkvæmi flokksins ) í gjöld. Hinir flokkarnir eru ekki líklegir til að afnema tolla og gjöld eins og Bjarni hefur gert og fáir lofsama.
Sigurður Antonsson, 28.1.2016 kl. 09:28
Sæll Halldór ! Það er hraustlega tekið til orða við blogginu þínu í dag. Það sem bloggvinir þínir segja við bloggi þínu í dag er lýsing á því af hverju Sjálfstæðisflokkurinn er að hverfa.Í fáum orðum sagt er Sjálfstæðisfokkurinn búinn að varpa frá sér öllum þeim gildum sem voru leiðarljós flokksstefnunnar. Ef litið er í baksýnisspegilinn má sjá gildin sem var líming flokksheildarinnar en nú eru horfinn. Ef horft er fram á við Þá er ferill flokksins oft á gráu svæði. Við opnum varla svo blað að ekki sé tæpað á grágjörningasvæði sem flokksforustan að að feta sig með. En hvar stendur flokkurinn sig vel.Gæti það verið varðandi alla spillinguna sem er búinn að vera með sjávarauðlindina okkar landsmanna. Tilraunir Sjálfstæðisflokksins til að selja gullegg þjóðar okkar s.s Landsbankann, Landsvirkjun og flr.. Nú er svo komið að Ingvi Hrafn á ÍNN fær ekki lengur Heimastjórnina til að mæta í þættina Hrafnaþing og þá er nú stutt eftir. Þeir geta sennilega ekki lengur haldið uppi vörnum fyrir allt gráagrensið flokkslínunnar. Flokkurinn á valkosti, það er að rifja upp gömlu gildin, eða halda áfram á núverandi vegferð sem leiðir til andláts Sjálfstæðisflokksins...
Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 28.1.2016 kl. 12:02
Allamall Eddi minn lögga: Ef Sjálfstæðisflokkurinn er í andarslitrunum, hvernig eigum við að borga veðskuldirnar á Valhöll ef við lifum bara tveir eftir?
Halldór Jónsson, 28.1.2016 kl. 13:16
Já Óskar Helgi
Nú berast aldeilis fréttir úr Svíaríki? Sossarnir ætla bara að reka áttatíuþúsund múhameðsmenn úr landi. Ef við reiknum þetta niður á fólksfjölda getum við Íslandsmenn rekið 2.752 múhameðsmenn úr landi áður en við verðum taldir eins vondir og Svíar. Hvernig líst þér á þessa liðveislu Óskar Helgi? Verðurðu ekki bara Svíþjóðarkrati við þessar fréttir?.
Halldór Jónsson, 28.1.2016 kl. 13:21
Er flokkurinn eitthvað að kynna hvað hefur gerst á hans vakt fjölmiðlarnir sjá um hvað hefur mistekist.
Bernhard Jóhannesson (IP-tala skráð) 28.1.2016 kl. 13:25
Allt þetta drasl sameinast um hernað og höft og skilur ekkert í því að það njóti ekki hylli. Sjálfstæðisflokkurinn getur hreiðrað um sig í Pírötum eða öfugt. Það breytir engu til eða frá.
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 28.1.2016 kl. 14:16
Komið þið sæl - sem áður !
Halldór !
Jú: hún er merkileg, þessi vakning Svía / fyrir veruleikanum.
En - seint munu Íslendingar ná þessum áfanga, sé litið til kæruleysislegra viðhorfa ýmissa, hér innanlnds, fornvinur góður.
Að ég verði Svíðþjóðarkrati: er aftur á móti harla ólíklegt Halldór minn, þó fagna megi þessu stóra skrefi Svíanna, til skynsamlegri leiðarinnar:: enda tilefnin ærin, sem kunnugt er.
Með beztu kveðjum - á ný /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.1.2016 kl. 17:31
Við hverju var að búast, Landsfundurinn síðasti lét litlu krakkana í flokknum með Unnur Brá í fararbroddi stjórna málefnaviðræðunum.
Til dæmis: Það er ekki mikill eða jafnvel enginn munur á flóttamanna og hælisleitendamálefnum landsins ef fólk lítur á stefnu Sjalfstæðisflokksins og annara þingflokka.
Sjálfstæðisflokkurinn hafði gott fylgi hér áður vegna þess að hann stóð vörð um þjóðarlýðræðið, svo plataði Jón Baldvin Dabba Odds að gerast aðili að EES, sem að margir ef ekki flestir Íslendingar voru ekkert hrifnir af.
Undanfarin misseri hefur Sjálfstæðisflokkurinn hætt að hlusta á grasrótina og fer eingöngu eftir því sem peningaelítan vill. Það er auðséð að flokksforingjar kunna ekki að telja. Það vill svo illa til (eða sem betur fer) þá er fjöldi grasrótarinnar mikið stærri en fjöldi peningaelítunnar.
Það er ekki bara Sjálfstæðisflokkurinn sem er með lélegar reiknivélar, allir fjórflokkarnir eru í sama bát, sem sýnir sig á fylgishruninu.
Málshátturinn góði lýsir stjórnmálaástandinu eins og það er í dag nokkuð vel "ljúga að mér einu sinni, skammastu þín. Ljúga að mér tvisvar þá skammast ég mín. Ljúga að mér þrisvar þá eigum við báðir að skammast okkar."
Svo kemur að því að annar málsháttur sannar ágæti sitt "það er hægt að plata allt fólk stundum og sumt fólk alltaf, en það er ekki hægt að plata allt fólk alltaf". Þennan málshátt er Sjálfstæðisflokkurinn og hinir flokkarnir að fá á sig í dag.
Vonandi fara sjórnmálamenn að skilja þetta fljótlega áður en allt fer til andskotans.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 28.1.2016 kl. 18:20
Eitt stærsta vandamál Sjálfstæðisflokksins er það, að innan forystu hans leynast alltof margir kratar og Evrópusambandsaðdáendur. Hugsjónir eru horfnar og við er tekin eltistefna við regluverk og skriffinskubrjálæði esb. Allur dugur horfinn og látið reka eftir veðri og vindum. Karlinn í brúnni kann ekki að hagræða seglum og hásetarnir eru meira og minna flestir sjóveikir, eða haldnir esb heilkenninu, hjá forystunni. Það gerist ekkert innan flokksins nema grasrótin taki sig saman í andlitinu og hefji upp raust sína. Stefna Sjálfstæðisflokksins er góð stefna, sem tekur tillit til allra stétta. Er ekki kominn tími til að grasrótin geri uppsteyt og láti heyra vel í sér? Það er hinsvegar hægara sagt en gert, þar sem kratisminn hefur grafið um sig í flokknum og gerir allt til að koma í veg fyrir umræður og gagnrýni, enda er það eðlislægur fjandi hjá þeim sem aðhyllast hann. Yngsta fólkið í framvarðarsveit Sjálfstæðisflokksins telst tæpast fundarfært, sökum skrílsláta, þá er ræða skal viðkvæm mál, svo varla er við miklu að búast þaðan á næstunni, til endurreisnar flokknum. Það er illt í efni hjá Sjálfstæðisflokknum, svo mikið er víst. Ég mun þó ávallt verða Sjálfstæðismaður.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 29.1.2016 kl. 03:53
Halldór Egill - tek undir með þér að flestu leiti - og ég er Sjálfstæðismaður en EKKISjálfstæðisflokksmaður lengur.Því miður náði hluti grasrótarinnar með ofbeldi að leggja undir sig ýmsa þætti innan flokksins og það nær alveg upp/niður í ráðherrastóla.Þetta er undir stjórn eins manns - kommaafkvæmis frá Siglufirði. Það verður ekkert lagað í flokknum. En ungliðahreyfingu ofbeldisins er illa við að "gamla liðið" sé eitthvað að bramboltast innan flokksins ég sagði mig úr flokknum eftir að hafa stutt hann í rétt tæp 50 ár. Það eina sem dugar er að SJÁLFSTÆÐISMENN SEM STYÐJA SJÁLFSTÆÐISSTEFNUNA TAKI SIG SAMAN Í ANDLITINU OG STOFNI ALVÖRU SJÁLFSTÆÐISFLOKK.
Ólafur Ingi Hrólfsson, 29.1.2016 kl. 04:49
Sammála Ólafi Inga. Það verður að stofna alvöru sjálfstæðisflokk. Þessi er búin að vera, enda hefur það sannað sig, að afkvæmin rústa því sem forfeður byggðu upp.
Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 29.1.2016 kl. 10:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.