28.3.2016 | 14:25
Hversvegna hata þau okkur svona mikið?
er fyrirsögn á grein Styrmis Gunnarssonar í Mbl. á laugardaginn var.
Styrmir veltir fyrirsögninni fyrir sér og mér finnst hann komast að þeirri niðurstöðu helst að við eigum að rétta fram hinn vangann þegar hryðjuverkamenn slá okkur. Við höfum verið svo vondir við þessi grey á árum aður að þeir eigi mikið inni hjá okkur.
En grein Styrmis er hér:
"Þýzkur þingmaður Græningja, Franziska Brantner að nafni, varpaði fram spurningu á Twitter í kjölfar hryðjuverkanna í Brussel og hún var svona: Hvers vegna hata þau okkur svona mikið?
Eitt svar við þeirri spurningu má finna í hinni athyglisverðu bók Gunnars Þórs Bjarnasonar sagnfræðings, Þegar siðmenningin fór fjandans til Íslendingar og stríðið mikla 1914-1918, sem út kom fyrir síðustu jól.
Þótt þar sé fjallað um samskipti Belga og Kongóbúa eiga þær lýsingar efnislega við um samskipti hinna kristnu evrópsku menningarþjóða við nýlendur sínar víða um heim og þá m.a. í Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum.
Gunnar Þór segir: Mannréttindi voru ekki Evrópubúum efst í huga í Afr- íku, þótt þeir hafi ekki átt í neinum vandræðum með að réttlæta nýlendustefnuna með göfugum markmiðum. Þau fólust í því að breiða út kristna trú, útrýma þrælahaldi og siðmennta Afríkubúa
Fyrst og fremst sóttust Evrópubúar þó eftir landi, auðlindum álfunnar, mörkuðum og vinnuafli innfæddra Átakanlegt dæmi um það hvernig Afríkubúar urðu fyrir barðinu á græðgi nýlenduherranna eru örlög innfæddra í Kongó.
Leópold annar Belgíukonungur hafði augastað á þessu feiknastóra landflæmi í suðurhluta Afríku, sem var töluvert stærra en Frakkland, Þýzkaland, Ítalía og Spánn til samans. Árið 1885 stofnaði hann fríríkið Kongó og tókst að fá stórveldin til að viðurkenna yfirráð sín. Kongó var um tveggja áratuga skeið í reynd persónuleg eign konungs en varð belgísk nýlenda árið 1908.
Leópold talaði hátíðlega um að mennta Kongóbúa og lyfta þeim á hærra menningarstig. Raunverulegur ásetningur hans var þó að kreista eins mikinn ágóða út úr þessari eign sinni og framast var unnt. Verzlun með fílabein var afar arðbær en eftir að farið var að nota loftfyllta gúmmíhjólbarða á reiðhjól og bifreiðar um 1890 varð fjandinn laus. Gúmmí varð mjög eftirsótt en það var á þessum árum eingöngu unnið úr kvoðu gúmmítrjáa
Ástandið í Kongó var skilgetið afkvæmi nýlendustefnunnar. Framferði Evrópumanna var hrottalegt, þeir svifust einskis í gróðafíkn sinni, líkast því sem þeir hafi vonast til að frumskógurinn skýldi þeim fyrir augum umheimsins. Konum og börnum var haldið gíslum þar til karlmennirnir höfðu reitt af hendi tilskilið magn af gúmmíkvoðu
Fólk var hýtt miskunnarlaust, limlest fyrir minnstu sakir og jafnvel myrt í hópum. Heilu þorpin voru brennd til grunna. Stundum var vopnuðum sveitum nýlenduherranna gert að skila inn afskornum útlim fyrir hverja byssukúlu, sem þær höfðu notað.
Og svo spyr þingmaður á þýzka þinginu nú: Hvers vegna hata þeir okkur svona mikið? Þetta er að vísu ekki lýsing á því, sem gerðist í Mið- Austurlöndum, en dettur einhverjum í hug að áþekkir atburðir hafi ekki gerzt annars staðar þar sem fulltrúar hinna evrópsku menningarþjóða fóru um fyrir rúmum hundrað árum?
Þar bjuggu þær gjarnan til ný lönd, sem tóku ekkert mið af stöðu mála á staðnum heldur hentuðu þeirra hagsmunum. Þannig urðu Írak, Sýrland og Líbanon til. Svona eins og Danir hefðu ákveðið að Vestfirðir skyldu tilheyra Grænlandi.
Þetta er ekki tilraun til að afsaka hryðjuverk. En þetta er tilraun til að skilja hvað veldur þeim ósköpum, sem eru að dembast yfir Evrópu og hafa m.a. þau áhrif að Íslendingar sem og aðrir hljóta að spyrja sig spurninga áður en þeir taka ákvörðun um að heimsækja helztu menningarborgir Evrópu.
Þótt ekki sé lengur krafizt afskorins útlims fyrir hverja byssukúlu (áttu refaskyttur hér ekki í eina tíð að skila refaskottum?) varð hugsunarháttur nýlenduherranna býsna lífseigur.
Sumarið 1956 lærði ég ensku á skóla í London og fylgdist því grannt með Súez-deilunni sem þá varð til. Sir Anthony Eden, forsætisráðherra Breta, talaði um það eins og sjálfsagðan hlut að Bretar og Frakkar ættu Súez-skurðinn, sem lá um land Egypta. Það var eins og ef Bandaríkjamenn hefðu kastað eign sinni á Miðnesheiði og talað eins og okkur kæmi ekki við hvað þar gerðist.
Þjóðverjar voru látnir borga svo þungar stríðsskaðabætur eftir heimsstyrjöldina fyrri að önnur heimsstyrjöld brauzt út. Það er hægt að færa rök fyrir því að Evrópuþjóðirnar, þ.e. þær sem hlut eiga að máli, eigi að borga fyrrverandi nýlendum sínum bætur fyrir meðferð- ina á fólkinu og stuld á auðlindum þessara þjóða.
Það er skollið á eins konar stríð í Evrópu og því mun ekki linna fyrr en nýlenduþjóðirnar horfast í augu við eigin sögu og afleiðingar hennar. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segir réttilega að í hryðjuverkunum í Evrópu felist atlaga að lýðræði okkar og siðmenningu, mannréttindum, jafnrétti og frálsri umræðu.
En á móti má spyrja: Í nafni hvaða siðmenningar voru útlimir skornir af í Kongó fyrir hverja byssukúlu fyrir rúmum hundrað árum? Hryðjuverkamennirnir sem vaxa upp á götum Parísar, Brussel, Lundúna og fleiri borga í Evrópu munu ekki hætta að drepa fólk fyrr en hinar siðuðu þjóðir Evrópu hætta að bregðast við aðsteðjandi vandamálum með gaddavírsgirðingum, táragasi og gúmmíkúlum og hótunum um að beita alvörubyssukúlum.
Það er kominn tími á að rétta fram höndina til fátæka fólksins í heiminum. Ella mun það storma um borgarhliðin í Evrópu, eins og það gerði í París fyrir rúmlega 200 árum."
Þarna finnst mér ritstjórinn fara út á hála gler í málflutningi sínum.
Eigum við að fara sýna ISIS vináttu af því að Bretar hafi verið svo vondir við þeirra fólk? Að þeir hafi bara verið að kvitta reikninginn í París eða Lahore? Eigum við að hleypa hér inn á okkar sósíal hverskyns múslímskum trantaralýð og efnahagsflóttamönnum af því að einhver Belgíukóngur hafi verið svo vondur við forfeður þeirra?
Hvert er maðurinn að fara?
Vesturlönd verða að vera reiðubúin að beita alvörubyssukúlum því "Það er skollið á eins konarstríð í Evrópu og því mun ekki linna fyrr en nýlenduþjóðirnar horfast í augu við eigin sögu og afleiðingar hennar."
Styrmir virðist vilja endurreisa friðkaupastefnu Chamberlains sem höfundur Reykjavíkurbréfsins í Sunndudagsblaðinu fer ágætlega í þá sömu helgi. Hvernig honum getur dottið í hug að styrjöldinni muni ljúka með því að við gefumst bara upp, iðrumst beisklega og réttum þeim aleiguna?
Efnahagsflóttamennirnir Sómölsku sem hafa flykkst til Svíþjóðar ætla sér ekki annað en að sækja þessar skaðabætur til Svía, láta þá borga eins og þeim þóknast. Þessi skríll ætlar ekki að gerast Svíar eða taka þátt í sænsku þjóðfélagi á nokkurn hátt nema til að hafa það til átu.
Mig varðar ekkert um það af hverju múslímar hata okkur svona mikið. Mér er alveg nóg að vita að þeir hata okkur nægilega mikið til að drepa 12 kristna menn á klukkutíma 24/7. Svo er RÚV að birta myndir af Páfanum heimta að við borgum bara meira til flóttamanna? Ekki gaf Páfagarmurinn mikið til að bjarga Gyðingum á sinni tíð þó Hitler byði honum það víst.
Af hverju megum við ekki reyna að hegða okkur í samræmi við það sem er staðreynd? Þeir hata okkur svona mikið.
Hvort eigum við að gera, kyssa á vönd þeirra eða taka upp lurka.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Þú kannast við gullnu regluna ekki satt?
Ef takmarkið þitt er ekki að drepa miljarð múslima þá er nokkuð mikilvægt að skilja hatur þeirra.
Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 28.3.2016 kl. 16:01
Styrmir játaði á sig þáttöku í samsæri gegn íslensku þjóðinni í kjölfar hrunsins. Hann var aktívur sem stjórnandi stærsta dagblaðisns í "ógeðslega samfélaginu". Kannski er þetta einhver leið hjá honum til friðþægingar fyrir það.
Íslam hatar allt sem ekki er íslamskt. Ekkert verður gert að gagni í baráttunni gegn því fyrr en vesturlandabúar skilja þessa einföldu staðreynd.
immalimm (IP-tala skráð) 28.3.2016 kl. 18:19
Það er ekki hægt að afsaka Íslam og aðgerðir sem hafa staðið yfir í 1400 ár. Það er ekki hægt að afsaka þegar lifandi verur eru brenndar í dag hvað þá hálshöggvið, konum hóp nauðgað þangað til lífið fjarar úr þeim. Ég vona að það fari ekki einhver hreyfing í ganga með skrif að þetta sé allt okkur kristnu að kenna.
Valdimar Samúelsson, 29.3.2016 kl. 10:16
HALLDÓR gengur hönd í hönd með ISIS - hann bregst við nákvæmlega eins og þeir vilja - þeir VILJA fá okkur til að HATA, ekki bara ISIS heldur ALLA múslima.
Halldór er nytsamur sakleysingi í blóðugum "leik" ISIS.
Og nú hvetur Halldór til að við "tökum upp lurka". Gegn hverjum? Flóttamönnum? ÖLLUM múslimum í heiminum?
Skeggi Skaftason, 29.3.2016 kl. 11:42
Ekkert nema harka dugir á glæpamenn ISIS og viðlíka hópa villimanna. Það þýðir ekki að bregðast verði af hörku við saklausum flóttamönnum og saklausum Islamstrúarmönnum. Það þýðir heldur ekki fjálst flæði manna inn í lönd, það væri galið og af hverju værum við þá með landamæri?
Villimenn Islam voru í blóðugu stríði við kristna menn í 1400 ár. Var það vegna nýlenduvelda kristinna manna eða hvað?: Why We Are Afraid, A 1400 Year Secret, by Dr Bill Warner
Það væri samt réttlátt og kannski nauðsynlegt að evrópsku drottnunarveldin (nýlenduveldin) endurgreiddu fólkinu sem þau níddust á og stálu frá, skaðann. Ætli ESB-sinnum og öðrum samfylkingarmönnum finnist það við hæfi?
Elle_, 29.3.2016 kl. 15:10
Ég tek undir með Elle og sem betur fer er stór hópur kvenna sem er með þessa skoðun. Kannski skilja þér betur þegar makar þeirra eru brenndir eða hálshöggnir og börn jafnvel tekin af þeim. Það er allt of margir sem skilja þetta ekki.
Valdimar Samúelsson, 29.3.2016 kl. 16:10
Góð tillaga á Útvarpi Sögu.
Við skulum taka fleiri flóttamenn.
En þeir skulu allir vera munaðarlaus börn sem hafa svo orðið úti í stríðsátökum.
Enga fullorðna múslíma með fordæðuakap sinn í farteskinu eða gamlar ISIS málabækur. Það eru bara ávísun á vandræði.
Íslendingar ættleiða þessi munaðarlausu börn og þau verða að Íslendingum í okkar siðum.
Bara börn úr hópi flóttamanna- Enga fullorðna, hvorki hælisleitendur né flóttamenn. Sama hversu heitt þeir hóta að drepa sig ef við ekki látum þá kújónera okkur.
Halldór Jónsson, 29.3.2016 kl. 21:47
Líka mætti Styrmir og ýmsir hafa í huga að það skiptir engu máli þó þessir vegvilltu morðingjar hafi alist upp í vestrænum löndum ef þeir voru aldir upp frá blautu barnsbeini í umhverfi og af þeim sem hata alla sem ekki eru Islamstrúar og hata vestræna menn, eins og gerist oft með afkomendur innflytjenda.
Elle_, 30.3.2016 kl. 15:11
Hættuleg vankunnátta á örlagatímum
Elle_, 3.4.2016 kl. 00:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.