6.8.2016 | 10:51
Frábær Styrmir
í Mogganum í dag.
Hann stingur upp á að hætta aðskilnaðarstefnunni sem hér ríkir í málefnum öryrkja og aldraðra.
Hann segir:
"Orðið aðskilnaðarstefna var jafnan notað um þá stefnu hvítra manna í Suður-Afríku að skilja fólk að eftir hörundslit. Þeir sem voru hvítir á hörund voru öðrum æðri.
Nelson Mandela braut þá aðskilnaðarstefnu á bak aftur. Þegar ég var námsmaður við Háskóla Íslands fyrir hálfri öld var hann talinn einn af hættulegustu hryðjuverkamönnum sem þá voru á ferð. Áður en hann dó, háaldraður, var hann við- urkenndur sem einn af mestu stjórnmálaleiðtogum 20. aldarinnar.
Þetta orð var yfirleitt ekki notað, þegar lokabarátta blökkumanna stóð yfir í Bandaríkjunum snemma á sjötta áratug síðustu aldar. Morðið á John F. Kennedy varð til þess að eftirmanni hans, Lyndon B. Johnson, tókst að koma í gegn tímamótalöggjöf á Bandaríkjaþingi um réttindi þeirra sem eru svartir á hörund en ekki hvítir. Það var aðskilnaðarstefna, sem ríkti í raun, sérstaklega í suðurríkjum Bandaríkjanna fram yfir miðja síðustu öld.
Það má líka velta því fyrir sér hvort þetta orð megi ekki nota yfir það viðhorf að fólk sem hefur önnur trúarbrögð en almennt gerist á Vesturlöndum sé hættulegra en annað fólk og óæðra í einhverjum skilningi. Kannski á einhver Nelson Mandela eftir að rísa upp í röðum múslíma til að sýna okkar á Vesturlöndum fram á að það fer hvorki eftir hörundslit né trú hverjir eru hættulegir og hverjir ekki.
Það væri alltof langt gengið að halda því fram að hér á Íslandi hefði ríkt á okkar tímum aðskilnaðarstefna í þeirri alvarlegu mynd sem hér hefur verið vísað til en það má velta því fyrir sér hvort hér sé samt sem áður til í einhverri örmynd vísir að þeim hugsunarhætti sem leiðir til þess að fólki sé skipt upp í hópa eftir einhverri skilgreiningu, m.ö.o. að hér sé til aðskilnaðarstefna innan gæsalappa. Er ekki slíkur hugsunarháttur á ferð, þegar við tölum um að hann eða hún sé öryrki?
Getur verið að orðið sjálft lýsi viðhorfi liðins tíma? Af hverju gefum við hópi þjóðfélagsþegna sem þurfa á aðstoð að halda svona samheiti? Er ekki í því fólgin ákveðin aðskilnaðarstefna? Er einhver sérstök þörf á því að skilja þá frá öðrum þegnum samfélags okkar með slíku samheiti?
Reyndar er annar hópur fólks gjarnan settur í sama flokk og öryrkjar í umræðum á opinberum vettvangi. Það eru hinir öldruðu. Í opinberum umræðum er gjarnan talað um aldraða og öryrkja, sem njóta saman ýmiss konar sérréttinda. Af hverju er fólk skilgreint eftir aldri?
Og af hverju eru þau aldursmörk dregin við 67 ára aldur eða 70 ára aldur? Eru þær rauðu línur ekki löngu úreltar? Má ekki færa sterk rök fyrir því að nú á tímum sé áttrætt það sem sjötugt var fyrir nokkrum áratugum, einfaldlega vegna þess að fólk lifir lengur og er við betri heilsu?
Felst ekki í þessum rauðu línum viss tegund af aðskilnaðarstefnu? Þessar vangaveltur eru settar fram vegna þess að það er mikið rætt um málefni aldraðra og öryrkja á opinberum vettvangi og sennilega verða fjárhagsleg hagsmunamál þessara þjóðfélagshópa á dagskrá kosningabaráttunnar á næstu vikum.
En það má færa rök að því að það sé tímabært að færa þessar umræður yfir á nýtt stig. Það eru ekki bara efnisleg rök fyrir því með tilvísun í betri heilsu og langlífi heldur líka bein fjárhagsleg rök út frá heildarhagsmunum samfélagsins að afnema þessa aðskilnaðarstefnu sem byggist á aldri eða skertri vinnugetu.
Eftir svo sem tvo áratugi verða um 18% íslenzku þjóðarinnar 65 ára og eldri. Það er ekkert vit í því að setja þessa aldurshópa með lagaboði eða ákvæðum kjarasamninga út af vinnumarkaði og ætlast til að þeir sem yngri eru vinni fyrir þeim.
Kannski má segja að Vesturlandaþjóðir hafi haft efni á slíkum lúxus fram að þessu en flest bendir til að sá tími í lífi þessara þjóða sé að renna sitt skeið á enda. Fjárhagslegir yfirburðir þjóða í okkar heimshluta byggðust að verulegu leyti á því að þessar þjóðir komu sér í þá aðstöðu í skjóli vopnavalds að geta látið greipar sópa um auðlindir annarra þjóða (eins og Bretar gerðu á fiskimiðunum hér við land).
Það má jafnvel líkja flóttamannastraumnum frá Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku við það að fátæka fólkið í heiminum sé að storma inn um borgarhlið hinna ríku eins og Parísarbúar gerðu fyrir bráðum 230 árum.
Það er kominn tími til að hin aldna sveit Íslendinga rísi upp og segi: Við viljum ekki að það sé ódýrara fyrir okkur í strætó og sundlaug. Við viljum jafnrétti. Við viljum vera fullgildir þjóðfélagsþegnar þar til yfir lýkur. Við viljum taka fullan þátt í þjóðfélaginu ekki síður en aðrir.
Það getur meira að segja verið að hinir öldruðu geti sagt með nokkrum sanni: Við erum betur til þess fallin en þið að stjórna þessu landi af því að við búum yfir þroska, sem hinir yngri hafa enn ekki öðlast. Og vísa til þess að Konrad Adenauer var 73 ára gamall, þegar hann varð kanslari Vestur-Þýzkalands og 87 ára þegar hann lét af því starfi. Að Winston Churchill var 66 ára, þegar hann tók að sér að leiða Breta í heimsstyrjöldinni síðari og 81 árs, þegar hann lét af því embætti á síðari valdatíma sínum. Að De Gaulle var 69 ára, þegar hann tók við forystu Frakka á ný og nær áttræður, þegar hann lét af embætti. Og þannig mætti lengi telja nær okkur í tíma. Er ekki kominn tími til að ræða þessi mál á nýjum nótum? "
Þetta finnst mér frábær hugsun hjá ritstjóranum. Koma okkur út úr þessum eilífa kassa og þrasi sem hefur ekki skilað neinu nema framfærslufóðri fyrir allt of marga krata í bákninu.
Allir heilbrigðir á almennum markaði sem ná 70 ára aldri skulu eftir það hafa tryggð mánaðarlaun frá ríkinu eins og þeir höfðu sem þau framtalin vinnulaun, sem gjöld voru borguð af sem meðaltal síðustu 10 ára. Raunveruleg laun sem menn afla sjálfir dragast frá ríkispeningunum. Enginn rekinn heim fyrr en 70 ára. Allir greiða óbreytta skatta og gjöld af brúttóinu. Lífeyrissjóðirnir borga ríkisframlagið meðan þeir endast.
Þeir sem lifðu á eignatekjum síðustu 10 árin gera það áfram séu þeir ekki verr komnir 70 ára en meðaltalið segir.Deilan um gamla fólkið og skerðingarnar er þar með afgreidd.
Opinberir starfsmenn fara bara á sín réttindi 70 ára og fá ekkert umfram það. Sú deila og samanburður afgreidd og óréttlætið líka.
Langtíma öryrkjar fara á einhvern launaflokk og taka laun eftir því. Ríkið borgar. Deilan um öryrkjana afgreidd.
Allt kommerí landsins afgreitt. VG, Samfó og allt þetta vinstra bull afgreitt því þeir eiga enga hugsjón eftir þar sem þeir eru búnir að missa glæpinn. Kratarnir á Tryggingastofnun missa einhverjir vinnuna því þeir hafa engin verkefni eftir þetta.Líka þeir sem vinna við útreikninga bóta á skattstofunum. Engar framfærslubætur verða greiddar framar. Allt óréttlæti búið.
Ég held að Styrmir hafi þarna komið fram með merkustu tillögu í þjóðmálum sem fram hefur komið lengi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.2.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 3420372
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
fiski
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
jvj
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Athugasemdir
Vandamálið er ekki orðið "öryrki" né að orðið valdi aðskilnaði (þá myndu orðin "smiður" og "gangbrautavörður" gera það líka og ekki getum við afnumið öll starfsheiti) heldur það að stærsti hluti þeirra sem þykjast vera öryrkjar eru það bara alls ekki heldur bara húðlatir auðnulaysingjar og aumingjar sem nenna ekki að vinna fyrir sér heldur vilja að aðrir borgi svo þeir geti horft á sjónvarpið og vælt á netinu um hvað þeir hafi það skítt, síbetlandi meiri peninga úr ríkiskassanum, dag eftir dag, mánuð eftir mánuð.
Þetta lið skemmir líka algjörlega fyrir þeim sem eru raunverulegir öryrkjar og ættu að sjálfsögðu að fá meira en þeir eru að fá í dag. Hinir, aumingjarnir sem eru a.m.k. 80% af þessu öryrkjageri öllu, eiga auðvitað ekki að fá krónu frá ríkinu, enda ekki nokkur skapaður hlutur að þeim nema leti. Í raun eru þessir falsöryrkjar jafn mikil plága á samfélaginu eða meiri en útlendingaplágan núverandi sem og sú stóra innflytjendaplága sem er væntanleg um næstu áramót.
Þess vegana skil ég ekki stefnu Íslensku þjóðfylkingarinnar sem vill berjast gegn annarri plágunni (innflytjendaplágunni) en stórauka hina (öryrkjapláguna) með því að ausa fleiri hundruðum þúsunda á mánuði í auðnuleysingja landsins, sem mun ekki gera neitt nema stækka þann hóp verulega á næstu árum og gera innflytjendapláguna að smámáli í samanburði við öryrkjapláguna. Það er ekkert skrítið að sá ræfilshópur sem telst til falsöryrkja, og þeir skipta þúsundum, fylki sér um þennan flokk. Aðrir ættu að að kjósa Fullveldisflokkinn. Lesið stefnuskrána hér: http://fullveldisflokkurinn.net/
Bjartmann (IP-tala skráð) 6.8.2016 kl. 11:49
Þú skilur ekki hvað er verið að fara. kerfisuppskurður í ststærstu málum þjóðarinnar. Hugsaðu betur Bjartmann
Halldór Jónsson, 6.8.2016 kl. 13:48
Það getur meira að segja verið að hinir öldruðu geti sagt með nokkrum sanni: Við erum betur til þess fallin en þið að stjórna þessu landi af því að við búum yfir þroska, sem hinir yngri hafa enn ekki öðlast.
Þetta er auðvitað hárrétt frá Styrmi Gunnarssyni og langoftast þannig að hinir eldri eru reyndari og þroskaðri við stjórn. Þess vegna er það ráðgáta af hverju það líðst að þeim reyndari og þroskaðri með fulla vinnugetu er svo oft vikið til hliðar eða beinlínis úr vinnu. Það er oft eins og hið eld-eld-gamla fólk yfir 39 ára megi bara ekki vinna.
Elle_, 7.8.2016 kl. 11:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.