Leita í fréttum mbl.is

Svæðisstjóri Reykjavíkurborgar tengist Valsmönnum

 

- Dró úr söluverðmæti lóðarinnar um helming m.a.v. mat fasteignasala

 8. september 2016

|Frétt skrifuð kl. 08:07

 
 

Deilan um aðkomu borgarinnar að Reykjavíkurflugvelli og sölu á landi í Vatnsmýrinni til Valsmanna hf. hefur verið einn umdeildasti hlutinn í flugvallarmálinu en um er að ræða hagsmunamál sem varðar alla þjóðina að sögn flugmanna og þingmanna auk fleiri aðila í samfélaginu.

Flugmenn og aðilar í fluginu hafa bent ítrekað á alvarlega aðför að flugöryggi þar sem ákvarðanartökur hafi verið gerðar eftir hentisemi í þeim tilgangi að uppfylla vilja og óskir fjárfesta þar sem alþjóðareglur um flugöryggi hafa verið virtar að vettugi.

Reykjavíkurborg hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa verið með óhreint mjöl í pokahorninu hvað varðar sölu á landi í Vatnsmýrinni sem hefur átt sinn hlut í lokun neyðarbrautarinnar en meðal þeirra sem gagnrýna starfshætti Reykjavíkurborgar er m.a. stjórnmálamenn og þar á meðal Ögmundur Jónasson, þingmaður, auk fleiri þingmanna á Alþingi.

Fljótlega eftir útkomu greiningar Isavia á nothæfisstuðli Reykjavíkurflugvalla, sem unnin var af Eflu verkfræðistofu, vöknuðu efasemdir flugmanna og flugvallarvina um áreiðanleika niðurstöðu skýrslunnar.

Skýrslan varð fyrir enn meiri gagnrýni á meðal flugmanna og flugfólks þegar í ljós kom að Guðmundur Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri EFLU, væri einn hluthafa í Valsmönnum hf., sem er framkvæmdaraðili Hlíðarendasvæðisins, og að hann hafi árið 2002 verið einn meðlima þarfagreiningarnefndar Valsmanna sem vann að skipulagningu Hlíðarendasvæðisins en framkvæmdir á svæðinu eru nú þegar hafnar.

Frá Fluggörðum við Reykjavíkurflugvöll

 

Á dögunum var birt grein þar sem í ljós kom að verkfræðistofan EFLA, sem var fengin til þess að reikna nýtingarstuðul flugvallarins, á lóð í Vatnsmýrinni sem bendir til þess að verkfræðistofan hafi ekki verið hlutlaus aðili er kemur að því að leggja mat á lokun flugbrautar sem rennir stoðum undir þá kenningu að verkfræðistofan átti mikilla hagsmuna að gæta.

Öryggisnefnd félags íslenskra atvinnuflugmanna hefur gagnrýnt skýrslu EFLU og hefur verið bent á ýmsa vankanta í innihaldi hennar sem er ekki í samræmi við skýrslu NLR (Netherlands Aerospace Center), sem út kom út árið 2006, þar sem gefið var til kynna að ekki væri ráðlegt reka flugvöllinn í Vatnsmýrinni með tveimur brautum án verulegrar skerðingar á flugöryggi.

Deildarstjóri Reykjavíkurborgar, sem hefur tengst Val sterkum böndum til margra ára, kom að samþykkt á sölu byggingarreit við neyðarbrautina

Þá hefur einnig komið í ljós að að aðili sem tengist íþróttafélaginu Val, Hrólfur Jónsson, gengdi eitt sinn starfi formanns badminton-deildarinnar í nokkur ár, var þjálfari yfir deildinni, sat í þarfagreiningarnefnd Vals og var þar áður í byggingarnefnd félagsins.

Hrólfur, sem er fyrrverandi slökkviliðsstjóri, starfar í dag sem skrifstofustjóri hjá atvinnu- og eignarþróunarsviði Reykjavíkurborg en sá hinn sami lét meta verðmæti lóðar í Vatnsmýrinni, við enda neyðarbrautarinnar, mun lægra þegar til stóð að selja byggingarlandið til eignarhaldsfélagsins S8 ehf. sem gerði ráð fyrir að reisa eitt stærsta hótel landsins á svæðinu.

Hrólfur Jónsson, skrifstofustjóri hjá atvinnu- og eignarþróunarsviði
Reykjavíkurborg

 

Hrólfur Jónsson, skrifstofustjóri eigna- og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar, starfaði með Guðmundi Þorbjörnsyni, framkvæmdastjóra EFLU, í þarfagreiningarnefnd Valsmanna árið 2002 en aðrir meðlimir voru Sigurður Lárus Hólm, Torfi Magnússon, Úlfar Másson og Kristján Ásgeirsson, en hann starfar sem arkitekt hjá Alark arkitektum og teiknaði hann útlit byggðarinnar við Hlíðarendaskipulagið.

Hrólfur hóf störf hjá Reykjavíkurborg árið 2004 og hefur verið áberandi í umræðunni um uppbyggingu Vatnsmýrarinnar og nauðsyn þess að loka þurfi flugvellinum í Vatnsmýrinni en árið 2013 var hann skipaður í fjögurra manna starfshóp á vegum innanríkisráðherra og borgarstjóra um endurbætur á aðstöðu fyrir farþega og þjónustuaðila á Reykjavíkurflugvelli en hluti af því samkomulagi var að neyðarbrautinni yrði lokað.

Þann 30. september birtist frétt á ruv.is þar sem greint var frá úthlutun Reykjavíkurborgar til eignahaldsfélagsins S8 sem hafði áform um að reisa 360 herbergja hótel í Vatnsmýrinni á mörkum Hlíðarendareitsins sem átti að vera samtals 18 þúsund fermetrar á stærð en fyrirtækið S8 ehf. er í eigu Jóhanns Halldórssonar, fjárfesti. Tvær fasteignasölur höfðu metið verðið á byggingarreitnum á Hlíðarendalóðinni út frá möguleikum til íbúabyggðar, atvinnuhúsnæðis eða fyrir hótelrekstur en annar fasteignasalinn taldi að hver byggingarfermetri væri metinn á 93.000 krónur á meðan önnur fasteignasala mat fermeterinn á 70.000 krónur.

Reykjavíkurborg seldi lóðina hinsvegar á 700 milljónir króna sem samsvarar aðeins 40.000 krónur á hvern fermeter sem er helmingi lægra en verðmatið frá fasteignasölunum tveimur.

Hrólfur Jónsson sagði í frétt ruv.is í september í fyrra að hann teldi að borgin hafi ekki séð ástæðu til þess að styðjast við verðmat lóðarinnar með tilliti til hótelsreksturs þrátt fyrir að vitað var að þarna væri gert ráð fyrir hóteli."

Þetta er af síðunni "Allt um flug".

Ég treysti mér eiginlega ekki til að hafa nein frekari orð um þetta eða kveða upp úr hvað manni finnst um þessa stjórnsýslu sem fer fram á vegum Dags B. Eggertssonar og meirihluta hans og Pírata í Reykjavík.

Finnst Reykvíkingum þetta bara allt í lagi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Hún er verulega dularfull þessi ofur áhersla sem Dagur leggur á að flugvöllurinn fari.

En það kemur smá ljósglampi þegar þú nefnir til sögunnar Hrólf Jónsson. 

Hvar er þá Finnur Ingólfsson? Skyldi Dagur bara fá úr fyrir verkið. 

Hrólfur Þ Hraundal, 8.9.2016 kl. 18:12

2 identicon

Nú fer að hitna í kolunum.

HANNA BIRNA SKAUT ÚR DREIFANUM.
Hanna birna skaut úr dreifaranum yfir vinnufélaga sína og var  því einnig dreift í útvarpi allra landsmanna. Ekki seinna vænna. Hvað stendur eftir hana er hún hverfur úr stjórnsýslu landsins.              Hluti Reykjavíkurflugvallar gerður ónothæfur.. Vandamál lögæslunnar hófust einnig  er hún, Hanna Birna ríkti í innanríkisráðuneytinu.

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 8.9.2016 kl. 19:49

3 identicon

Sé allt þetta rêtt, þà hefði êg haldið að svona vond stjórnsýsla  varðaði við lög. Það þarf að kanna það og fylgja fast eftir.

Eiður. Guðnason (IP-tala skráð) 8.9.2016 kl. 20:52

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Hanna Birna er búin að rýja sig svo öllu trausti að það getur eingin notað hanna nema undir mjög föstu eftirliti, en hver nennir að kosta svoleiðis.

Hrólfur Þ Hraundal, 9.9.2016 kl. 08:29

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek undir þetta með þér Eiður.  Í þessu flugvallar máli hafa stjórnvöld svo loppinn að grunur læðist að um hagsmuna tengsl.

Hrólfur Þ Hraundal, 9.9.2016 kl. 08:37

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Afsakið, það vantar ( verið ) þarna á milli Stjórnvöld og svo í athugasemd kl. 8.37

Hrólfur Þ Hraundal, 9.9.2016 kl. 09:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband