Leita í fréttum mbl.is

Aldraðir og öryrkjar

eru Björgvin Guðmundssyni hugleiknir. Þessi óþreytandi baráttumaður segir svo á bloggsíðu sinni:

"Hilmar, yngsti sonur minn,las úr bók minni " Bætum lífi við árin" á bókarkynningu minni í gær.Hann las m.a. eftirfarandi:Hvaða leyfi hafa stjórnarherrarnir til þess að halda kjörum lífeyrisþega niðri? Fengu þeir eitthvað umboð til þess í síðustu kosningum að hlunnfara aldraða og öryrkja á sama tíma og allir aðrir í þjóðfélaginu fá miklar kjarabætur?Var það ekki þveröfugt.Sögðust þeir ekki ætla að stórbæta kjör lífeyrisþega? Ég man ekki betur.

Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2013 var eftirfarandi samþykkt:Ellilífeyrir verði  leiðréttur strax til samanburðar við þær hækkanir sem orðið hafa á lægstu launum frá 2009.Þarna er engin tæpitunga töluðu.Því er lofað að ellilífeyrir verði leiðréttur vegna launahækkana ekki seinna heldur strax.En núna 3 árum seinna er ekkert farið að gera í að efna þetta loforð.

Þetta loforð,sem sonur minn las upp á bókarkynningunni er stærsta loforðið,sem stjórnarflokkarnir gáfu öldruðum og öryrkjum.Til þess að efna það þarf að hækka lífeyri um a.m.k. 56 þúsund krónur á mánuði.Það er kosningaloforð og nú á morgun og I byrjun vikunnar er síðasti möguleiki að efna þetta loforð.Þar fyrir utan ber stjórnvöldum skylda til þess að hækka lífeyri svo mjög,að hann dugi örugglega til framfærslu.Það er ekki víst,að 56 þús króna hækkun dugi til þess,þar eð ríkið hrifsar drjúgan hluta lífeyrisins í skatta.Ég tel,að lífeyrir eigi að vera skattfrjáls.

Björgvin  Guðmundsson

Eru við í Sjálfstæðisflokknum að fara fram í kosningar út á þessa samþykkt okkar á landsfundi 2013? Getum við gert eitthvað annað en að lofa meiru? 

Er ekki verið að horfa á okkur af öldruðum og örsyrkjum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halldór

Það sárvantar allar tölur í þennan málflutning. Hverjar eru meðalráðstöfunartekjur aldraðra o.s.frv.? Það er líka vandasamt að hækka almennan ellilífeyri við íslenskar aðstæður þar sem aðeins tekur par mánuði að koma sér inn á allt velferðarkerfið. Það þarf frjóa hugsun til þess raunverulega að bæta kjör þeirra sem bjuggu velferðarkerfið til.

Einar S. Hálfdánarson (IP-tala skráð) 2.10.2016 kl. 16:36

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Einföld yfirlýsing ætti að vera sjálfsögð frá öllum stjórnarflokkunum; lægsti lífeyrir aldraðara og öryrkja skal aldre vera lægri en fátækramörkin eru plús 10%.

Lægsti lífeyrir aldraðara og öryrkja skal ekki vera skattlagður, það er upp að 100 þúsund krónum yfir fátækramörkunum.

Tala fátækramarksins skal vera reiknuð út á þriggja mánaða fresti.

Ef þetta væri gert þá mundi fátækt á Íslandi næstum því hverfa, þar af leiðandi ætti þetta að vera á stefnuskrá allra stjórnmálaflokkanna.

Kveðja fráHouston

Jóhann Kristinsson, 2.10.2016 kl. 17:40

3 Smámynd: Þórir Kjartansson

Einar S. Hálfdánarson segir að hér vanti allar tölur. Það verður seint hægt að reikna dæmið fyrir hvern og einn og gera alla jafna.  En ef við tökum allan þann stóra hóp sem greitt hefur í almennu lífeyrissjóðina er c.a.80 - 90% þeirra að fá útborgað á mánuði rétt um 200þús.kr. Þannig er málum fyrir komið af stjórnmálamönnunum og það virðist alveg sama þó allir flokkar sem hafa verið við völd undanfarið hafi lofað að leiðrétta þessa svívirðu, þá gerist ekki neitt. Lögbundinn lífeyrissparnaður þessa hóps er ekki hærri en það að hann er að lang mestu leyti gerður upptækur af ríkinu með skerðingunum illræmdu. Og annað sem undarlega sjaldan er minnst á eru skattleysismörkin. Það nær náttúrlega ekki nokkurri átt að skattleggja um einhverja tugi þúsunda á mánuði, bætur sem vitað er og viðurkennt að enginn getur lifað af.

Þórir Kjartansson, 2.10.2016 kl. 20:56

4 identicon

Já halldór minn það er ekkert annað á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins annað en að halda áfram að stela ríkisfyrirtækjum, því miður. En góðu fréttirnar eru að það er ekkert lögmál að kjósa þetta lið, eins og það virðist vera hjá mörgum. Bara einkavæðing Bankanna á sínum tíma ætti að vera skýr skilaboð til allra sæmilega hugsandi manna að kjósa þetta rusl ekki aftur. Og auðvitað bitnar þetta alltaf á einhverjum. Og aðallega bitnar það á þeim sem eiga erfitt með að verja sig. Börnum og gamalmennum og öryrkjum.

Ég er sannfærður um að við gætum öll haft það ljómandi gott í þessu landi ef við bara stoppuðum þá gráðugu. Hvaða vit er í því að þurfalingarnir í stjórnsýslunni og embættismannakerfnu sem aldrei hafa greitt í lífeyrissjóð, fái tíföld eftirlun þeirra sem hafa alla ævi skapað verðmætin í landinu. Bara þetta er óskiljanlegt, en samt er það svona.

Steindór Sigurðsson (IP-tala skráð) 3.10.2016 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband