Leita í fréttum mbl.is

Litla Hryllingsbúðin

blasir við á Alþingi ef skoðanakönnun Fréttablaðsins um fylgi flokkanna gengur eftir.

Ekki verður hægt að mynda nema fjölflokka ríkisstjórn til vinstri ef það þá tekst. Talsverð líkindi eru til þess að Forsetinn verði að skipa utanþingsstjórn þegar engin stjórn hefur séð dagsins ljós á þessu ári.

Menn sjái fyrir sér stjórnlausar endalausar ræður í efsta stigi lýsingarorða um allt og ekkert. Allt vont er síðustu ríkisstjórn að kenna. Nýr þingforseti kemur úr röðum nýrra þingmanna nema ef þeir kjósa Steingrím J. . BladidiBlaBla.

Næsta Alþingi reynslulítils fólks verður hugsanlega kallað litla Hryllingsbúðin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sú hryllingsbúð, sem gæti blasað við 3ftir kosningar, er alls ekki lítil frá mínum bæjardyrum séð.....

Jóhann Elíasson, 12.10.2016 kl. 09:51

2 identicon

Nema það fari að myndast hefð fyrir minnihlutastjórnir hér eins og í Danmörku, ef framhaldið verður eftir þessu. Bjarni stóð sig glæsilega í ríkissjónvarpinu í gær, og mér litist vel á, ef við eignuðumst annan forsætisráðherra, sem ber þetta nafn, Bjarni Benediktsson. Við skulum þá líka segja, að margt sé líkt með skyldum. Spurningin er bara, hvort Bjarni yrði ekki að mynda minnihlutastjórn með Framsókn, nema að samkomulag náist um, að þeir kippi frænda hans með sinn flokk í rútuna, ef þeir fá það mikið fylgi, að þeir komist inn á þing. Að öðru leyti líst mér ekki á stöðuna, þótt ég marki lítið þessar heimatilbúnu skoðanakannanir, sem 365 og Rúv eru að gera til þess að gera fólk enn ruglaðra í ríminu, en það er þegar. Samfó selur ekki lengur, og Kata Jakobs vinnur mest á persónulegu fylgi sínu, eins og Steingrímur J., þá virðist a.m.k. Rúv finnast Píratarnir vera næstbesti kosturinn, þótt þeir hjá Rúv séu einir um þá skoðun. Skoðanakannanir eru ekki kosningar, og ég er ekki viss um, að þetta verði endilega útkoman úr kosningunum sjálfum, en fólk mætti launa ríkisstjórninni betur hin góðu verk hennar, en raunin virðist ætla að verða á. Það er eiginlega ómögulegt að skilja íslenska kjósendur lengur, og ekki tekur betra við, þegar áróðursmiðlar vinstri hreyfingarinnar með Sovétfréttastofu Rúv í fararbroddi eru að rugla kjósendur. Ég vona bara, að kjósendur láti skynsemina ráða í kjörklefanum og ansi ekki þessu áróðursrugli í Rúv eða 365 eða taki marg á því.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 12.10.2016 kl. 15:24

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei satt segirðu, J'ohann, þetta er gapandi helvíti frekar en krummaskuð.

Guðbjörg Snót, því miður er lítið að marka það sem RÚV heldur fram.

Halldór Jónsson, 12.10.2016 kl. 21:09

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Jóhann ætlaði ég að skrifa

Halldór Jónsson, 12.10.2016 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 3420648

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband