22.10.2016 | 05:36
Leggjum niður RÚV
er mín niðurstaða eftir að hlusta á Hrafnaþing á ÍNN nú í kvöld.
Það er ekki hægt að þola lengur framgöngu þessarar stofnunar RÚV eins og hún hefur verið rekin til margra ára. Hlutdrægni, pólitísk afskipti og ef ekki einskonar landráðastarfsemi með innflutningi erlendra afla til að ráðast gegn löglega kjörnum stjórnvöldum þessa lands er komin út fyrir allan þjófabálk.
Síðustu afrekin voru m.a. aðförin að Sigmundi Davíð þar sem erlendir aðilar í samsæri með íslenskum aðilum eru fluttir til landsins til að ginna forsætisráðherra landsins í viðtal á upplognum forsendum. Aðförin tókst og upphlaupslið og árásarsveitir kommúnista söfnuðust á Austurvöll og börðu Sigmund úr úr embætti sem kannski var búinn að vinna fyrir því að einhverju leyti.
Næst kostar Björk Guðmundsdóttir að sögn ferð Evu Joly til Íslands þar sem hún veður beint inn í þátt hjá RÚV til að blanda sér í íslensk innanríkismál rétt fyrir kosningar. Þar segir hún hreint út að okkar helstu ráðamenn séu helst ótíndir reyfarar sem skreyti í Panamaskjöl og þjóðin verði að kjósa frá í kosningunum eftir viku.
Svokallaðir fréttamenn RÚV gapa upp í þessa konu sem hefur ekki hingað komið í annan tíma nema til að raka saman fé fyrir sjálfa sig og sá fræjum haturs og grunsemda í þjóðarsálina. Þessi franski kommúnisti með óverulegt kjörfylgi í sínu fósturlandi situr upp á kaup fyrir franska alþýðu á Evrópuþinginu. Vinstri flokkarnir hérna ætla að keyra okkur í Evrópubandalagið með hjálp RÚV þar sem við munum fá 5 þingmenn alls af yfir 700 sem þá geta verið sessunautar Evu Joly.
Hatursmaður Sjálfstæðisflokksins er fenginn til að setja saman klámþátt á RÚV til að hneyksla hvern meðal Íslending. Hann fær svo að setja saman skemmtiþátt sem reynir að falsa myndir af formanni Sjálfstæðisflokksins með því að sýna þær hægt sem gefa í skyn að hann sé blindfullur að baka kökur í barnaafmæli. Enn eitt stykkið í kosningabaráttunni af hálfu þessa endemis apparats RÚV.
Það eru gerðar skoðanakannanir af þessari stofnun sem allar stefna til vinstri, annað hvort með ráðum eða dáðum. Andstyggilegheit fréttamanna og spyrla í garð allra sem eru ekki vinstrisinnar eru svo áberandi og alvanaleg að þetta fólk er hætt að reyna að leyna því. Og Hemir Már Pétursson úr Allaballanum gamla hefur sama stílinn á Stöð 2 þar sem Jón Ásgeir ræður ríkjum.
Öllum þunga þessara miðla er svo beint beint gegn Sjálfstæðisflokknum sem á sér formælendur fáa.
Allt þetta vinstra fólk kemur svo skælbrosandi fram í öðrum þáttum og þykist alhlutlausir venjulegir þulir og fréttamenn.
Ég hef verið stuðningsmaður Ríksútvarpsins frá dögum Jóns Múla og Gufunnar. Ég hef reynt að verja RÚV sjónvarpið lengst af og vonað að það myndi einhvern tímanna læknast af þeirri vinstri veiki sem þar er búíð að ríða húsum um árabil.Hún fer hinsvegar versnandi dag frá degi. Varla einn fréttamaður sem ég man í svipinn virðist vera hlutlaus á RÚV og heldur ekki á Stöð 2.
Nú er ég búinn að fá nóg.
Ég vil loka þessari stofnun RÚV og leggja hana niður. Ég verð andstæðingur hennar og allra sem þarna vinna og bið hana aldrei þrífast. Hvernig henni verður lokað má einu gilda, seld eða rifin, hirði ég ekki um. 365 er löngu gjaldþrota að réttum lögum og safna áfram skuldum eins og RÚV.Einhvern tímann hlýtur að koma að skuldadögum.
Ríkisútvarp sem hljóðvarp, sem segir sannar fréttir úr umheiminum getur verið til umræðu að hafa áfram svipað og það var í gamla daga. Kannski er það eitthvað öryggistæki. En Ríkissjónvarpið er óþarft með öllu og því á að loka. Það er pólitískt rauðlitað ,hlutdrægt og því óþolandi með öllu auk þess sem dagskráin er yfirleitt hundleiðinleg að margra dómi.
Burt með það og látum einkaframtakið sjá um sjónvarp til landsmanna. Það er búið að sýna það að tæknin er ekki til hindrunar á neinn hátt. Einkaframtakið getur rekið sjónvarp miklu betur en kommarnir á RÚV eru að gera fyrir okkar skattfé.Það má leigja afnot af dreifikerfinu sem er sjálfsagt ágætt. En þessi stofnun sem slík hefur sannað sig sjálf að vera er óþörf og beinlínis skaðleg fyrir skoðanamyndun í landinu.
Kínverjar reka hér sitt ríkissjónvarp. Þeim væri í lófa lagið að blanda sér í okkar mál.AlJazera líka og svo er um fleiri erlendar stöðvar sem hér nást. Máttur þesara miðla er mikill til að hafa áhrif á Íslendinga. Áróðursbylgjur utan úr heimi brotna hér í íslenskum brjóstum. Það er því óþarfi að reka hér aðra stjórnmálastöð fyrir íslenskt skattfé rekur einhliða áróður eins og RÚV gerir.
Því segi ég: Niður með RÚV, lokum því og leggjum það niður.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Tryggðin við apparatið lifði lengi,en það komu tímar sem ég opnaði ekki Rúv sjónvarp í hálfan mánuð og alls ekki fréttirnar,það var mér aldraðri ofraun.
Gott að sjá að kominn er barátthugur í mannskapinn.
Helga Kristjánsdóttir, 22.10.2016 kl. 07:44
Þetta er eiginlega orðið grátbroslegt, í fréttum í gær tókst fréttakonu að etja litlum börnum saman í slagsmál þegar hún tók viðtal við þau. Viðtalið snérist ekki um að fá fram hvað þeim fyndist heldur hvað þeim ætti að fynnast og benda á sökudólga.
Maður brosir svo sem út í annað þegar blessuð börnin eiga í hlut en assgoti var þetta nú samt táknrænt!
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 22.10.2016 kl. 08:42
Það er tímaskekkja að vera með ríkisstöðvar með skylduáskrift. Að sjálfsögðu á fólki að vera frjálst að kaupa sér aðgang að stöðvum/ eða ekki. En þau rök að leggja apparatið niður vegna þess að maður sjálfur er ekki sammála umfjöllun ganga ekki.
Jósef Smári Ásmundsson, 22.10.2016 kl. 10:37
Það þyrfti að byrja á því að aðskilja fréttatengt efni og
afþreyingu með einhverjum hætti.
Ég vil t.d. ekki að minar SKATT-KRÓNUR fari í að halda úti starfsfólki við að kvikmynda bolta sem að er hent/sparkað fram og til baka.
Jón Þórhallsson, 22.10.2016 kl. 11:40
Ég bjó nokkur ár í Argentínu, þar rak ríkið ekki útvarps- eða sjónvarpsstöð. Margar einkastöðvar voru í gangi og gátu yfirvöld farið inn í dagskrá þeirra allra ef koma þurfti á framfæri mikilvægum tilkynningum. Þá getur maður talað um öryggishlutverk en ekki þó að eitthvað komi fram í ríkisstöð sem fáir horfa eða hlusta á.
Þorvaldur Guðmundsson (IP-tala skráð) 22.10.2016 kl. 11:44
Auðvitað Þorvaldur
Sammála Jón Þórhallsson
Rétt Jósef
Sá þetta ekki Bjarni Gunnlaugur
Já Hlega, alltaf opna ég nú samt. Ég les líka alltaf Þorvald Gylfason þó ég viti að mér versnar við það.
Halldór Jónsson, 22.10.2016 kl. 12:07
Ég er 100% prósent sammála þér núna Halldór leggjum RÚV niður þó fyrr hefði verið.
En ég hélt samt að menntamálaráðherra væri sjálfstæðismaður og ég hélt að menntamálaráðherra væri yfirmaður RÚV. Þannig að það kominn daunillur vinstri fnykur af Sjálfstæðisflokknum, eða hvernig á að skilja þetta?
Steindór Sigurðsson, 22.10.2016 kl. 13:14
Satt segirðu, Halldór. Látum Samfó og VG eiga þetta útvarp, og látum ríkið stofna aðra útvarpsstöð, sem þeir geta rekið á þeim grundvelli, sem þetta svokallaða Ríkisútvarp var, þegar við vorum ung, með þingskipuðu útvarpsráði, og þar sem Jón Magnússon, Henrik Ottósson og Margrét Indriðadóttir réðu ríkjum á fréttastofunni og létu segja fréttir en ekki búa þær til, eins og gert er í dag, eins og Páll Vilhjálmsson benti réttilega á einhvern tíma í bloggi sínu. Þá losnaði maður líka við þessar kosningaauglýsingar á vegum Samfó, VG og BF og þeirra styrktaraðila. Hugsa sér t.d., að þátturinn, þar sem Sigmundi Davíð var veitt fyrirsát, skuli hafa verið verðlaunaður!!! Annað eins og þvílíkt! Það er líka sorglegt til þess að hugsa, að fólk skuli taka mið af og fara eftir þessum heimatilbúnu skoðanakönnunum Sovétfréttastofunnar, þar sem Píratar eru yfirleitt alltaf efstir, og að Samfó skuli vilja demba Reykjavíkurruglinu yfir okkur á landsvísu. Það held ég verði þá Alþingi, sem komi út úr því! Samfó virðist greinilega ekki vilja sjá né skilja, að Dagur og kompaní hefur gert það að verkum, að þeir tapa svona gífurlega, eins og raun ber vitni um í þessum skoðanakönnunum. Fólk gleymir því bara, því miður, að Reykjavíkurruglið er allt í boði Pírata. Með þessu áframhaldi verður sama sagan uppi á teningnum á Alþingi eins og í borgarstjórninni. Það virðast þeir hjá Rúv vilja eftir öllu að dæma. Þess vegna segi ég það sama og þú og raunar fleiri: Ríkið ætti að losa sig við þetta Samfó/VG-útvarp og leyfa þeim að reka það. Bæti svo við: Stofna svo aðra óháða útvarpsstöð, sem hlustandi er á og maður getur fengið frið fyrir pólitískum áróðri, og virðir það hlutleysi, sem Rúv er löngu hætt að gera. Mál er að linni.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 22.10.2016 kl. 13:19
"...Hugsa sér t.d., að þátturinn, þar sem Sigmundi Davíð var veitt fyrirsát, skuli hafa verið verðlaunaður!!! Annað eins og þvílíkt! Það er líka sorglegt til þess að hugsa, að fólk skuli taka mið af og fara eftir þessum heimatilbúnu skoðanakönnunum Sovétfréttastofunnar, þar sem Píratar eru yfirleitt alltaf efstir, og að Samfó skuli vilja demba Reykjavíkurruglinu yfir okkur á landsvísu. Það held ég verði þá Alþingi, sem komi út úr því! Samfó virðist greinilega ekki vilja sjá né skilja, að Dagur og kompaní hefur gert það að verkum, að þeir tapa svona gífurlega, eins og raun ber vitni um í þessum skoðanakönnunum..."
Bravó Guðbjörg Snót!
Halldór Jónsson, 22.10.2016 kl. 18:26
Guðbjörg, hvar og hvenær fékk þessi þáttur verðlaun?
Halldór Jónsson, 22.10.2016 kl. 18:27
Eins og þú veist, þá var þetta hluti af sænskum fréttaskýringaþáttum, sem að sögn Rúv fengu verðlaun, en þessi þáttur um Sigmund Davíð var sérstaklega nefndur til verðlauna í Berlín um leið og Ófærð fékk verðlaun þar sem besta sjónvarpsleikritið. Ég heyrði það a.m.k. sagt í fréttum í Rúv í dag, að þessi eini þáttur í þáttaröðinn hafi verið nefndur til verðlaunanna af öllum þeim, sem sænska sjónvarpið lét gera, og sýndi í þessarri fréttaþáttaröð sinni. Mér skildist, að þessi sænska þáttaröð væri eitthvað í ætt við Kastljósið okkar, þó að ég muni nú ekki nafnið á henni.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 22.10.2016 kl. 22:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.