Leita í fréttum mbl.is

Gerum lönd okkar mikil aftur!

Endalok kratismans eru augljós. Fólkið hefur ekki húmor fyrir því sem þetta fólk segir.

terror

Hver vill eyða ævinni undir regluverki þessa fólks sem það flytur inn frá krataveröld Evrópusambandsins.Húmorlaust, dapurt og dofið.Án fyrirheita um fegri veröld.

Megum við heldur biðja um Trump og endurreisn hinna gömlu gilda. Trú á vinnu og framtak einstaklinganna. Endir aumingjadýrkunarinnar,styrkja og millifærslna.

Gerum lönd okkar mikil aftur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vantar bara spámannskúluna í hendurnar á Helga. Eitthvað virðist sessunauturinn vantrúaður á hæfileika og getu spámannsins.  

Sigurður Antonsson (IP-tala skráð) 4.2.2017 kl. 20:53

2 identicon

Já, megum við heldur biðja um Trump og endurreisn hinna gömlu gilda. Trú á vinnu almúgans og vald atvinnurekenda og framtak einstaklinganna án aðkomu verkalýðsfélaga. Endir aumingjadýrkunarinnar,styrkja og millifærslna. Sjómenn strax til vinnu á kjörum sem útgerðin ákveður og fatlaðir, sjúkir og gamlir bjargi sér sjálfir án aumingjabóta, gjafameðferðar og styrkja frá ríkinu. Allt var svo miklu betra þegar hver sá um sig og ekki þurfti að hugsa um aðra.

Gerum lönd okkar mikil aftur!

Espolin (IP-tala skráð) 4.2.2017 kl. 21:53

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

"Trú á vinnu!" já, gamalkunnug og sígild upphrópun hljómar á ný um að "gömlu, góðu gildin verði endurreist!", "arbeit macht frei!", "gerum lönd okkar mikil aftur!" Bandaríkin 2017, Þýskaland 1933, "megum við heldur biðja um þá sem hefja þá sem vilja enda "aumingjadýrkjunina". "Sterkan foringja,- það er klassi yfir þessu! 

Ómar Ragnarsson, 4.2.2017 kl. 23:35

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Arbeit macht frei Ómar. Vinnan göfgar manninn. Idle hands are the tools of the Devil. Hver kannast ekki við böl iðjuleysisins? Líklega þekkir þú tilfinninguna um að hafa ekkert fyrir stafni.

Hefur ekkert endilega með Foringjahugsunina að gera. Bara sálarlífið hjá hverjum einum.

Halldór Jónsson, 4.2.2017 kl. 23:45

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Að þetta þarna á myndinni skuli hafa orðið forsætisráðherra og stafprik sjálfstæðra íslendinga, er þvílík þjóðarskömm að yfir fennir aldrei.

Hrólfur Þ Hraundal, 5.2.2017 kl. 00:35

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Hrólfur, ekki voru það hamingjutímar. Við þurfum að reya að skilja hugsunina hjá Trump. Hann vill að fólk reisi sig upp,fólk finni sig sjálft og fái trú á sjálft sig og þjóð sína.Öfugt við það sem þetta fólk á myndinni stendur fyrir og Ómar virðist trúa  að sé það sem máli skiptir, annað sé nasismi og fasismi vegna þess að engu megi breyta, ekkert megi segja öðruvísi,

Halldór Jónsson, 5.2.2017 kl. 08:53

7 identicon

Sæll Halldór.

Bandaríkin eru orðin voldug á ný eftir
niðursveifluna á seinustu árum.

Þau munu svo sannarlega hrinda þeirri
hryðjuverkaógn sem stafar af þeim
Demókrötum sem sætta sig ekki við
þau úrslit sem liggja fyrir.

Tilgangurinn virðist helga meðalið hjá Demókrötum, -
kosti það sem það kosta vill, - á kannski
að endutaka leikinn frá því 1861 ?

Húsari. (IP-tala skráð) 5.2.2017 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 3420698

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband