Leita í fréttum mbl.is

Dagskoma hjá RÚV

Borgin byggir ekki 300 stúdentaíbúðir

Fyrirsagnir geta oft verið mjög villandi sem er miður því margir lesa eingöngu fyrirsagnir og telja þær réttar.  Á ruv.is birtist frétt 12. janúar síðastliðinn með fyrirsögninni. „Borgin byggir 300 stúdentaíbúðir á næstu árum“. Á myndinni sem birtist með fréttinni mátti sjá borgarstjóra úti á túni sitjandi við borð um hávetur á snæviþakinni jörð skrifa undir viljayfirlýsingu við Byggingarfélag námsmanna.

Lóðunum úthlutað á 10 ára tímabili
Í fréttinni kom hvorki fram að borgin ætlar að úthluta Byggingarfélagi námsmanna þessum lóðum fyrir 300 stúdentaíbúðir á allt að 10 ára tímabili né að Byggingarfélag námsmanna ber bæði að greiða gatnagerðargjald og byggingarréttargjald fyrir lóðirnar. Í viljayfirlýsingunni segir að verð byggingarréttar fari „eftir mati á markaðsverði, sbr. lög um stofnframlög.“

Reykjavíkurborg hefur hingað til ekki innheimt byggingarréttargjald af lóðum fyrir stúdentaíbúðir heldur einungis gatnagerðargjald. Þessi nýja gjaldtaka kemur til vegna nýrra laga sem kveða á um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga.

Snúningurinn á stofnframlaginu
Samkvæmt lögunum sem bera heitið lög um almennar íbúðir, nr. 52/2016, er meginreglan sú að stofnframlag ríkisins skal nema 18% af stofnvirði almennrar íbúðar og stofnframlag sveitarfélags skal nema 12% af stofnvirði almennrar íbúðar. Samkvæmt lögunum getur stofnframlag sveitarfélaga falist í beinu framlagi, úthlutun lóðar eða lækkun eða niðurfellingu á gjöldum sem umsækjanda ber að standa skil á til sveitarfélagsins vegna íbúðanna.

Fyrir gildistöku laganna var lóðum úthlutað undir stúdentaíbúðir gegn greiðslu gatnagerðargjalds. Nú ætlar borgin hins vegar einnig að leggja byggingarréttargjald á lóðir fyrir stúdenta sem verður þá framlag borgarinnar á grundvelli laganna, þ.e. lagt verður á byggingarréttargjald og það fellt niður enda nemi það 12% af stofnvirði íbúðar."

Dagskoman felst í því að fyrst eru lögð á gjöld og síðan er slegið af. Það er framlag Dags og sólarupprásin fyrir námsmenn.

RÚV þarf að hafa séstakan Kastljósþátt með Degi til að fólk geti skilið snilldina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband