Leita í fréttum mbl.is

Hefur eitthvað breyst?

hjá Icelandair? Lækkuðu hlutabréf í Matadorspilinu í Kauphöllinni?  Í fjölmiðlafylleríi og fimbulfambi verða ekki allir fræðingar í flugrekstri?

Í mínum huga breyttist ekki neitt frá síðasta misseri. Engin flugvél farist, ekkert tapast. Aðeins endurmat á einhverjum framtíðarhagnaði ef engu væri breytt?

Lífeyrissjóðagreifarnir og bréfaguttarnir ákváðu allt í einu að lækka huglægt mat sitt á Icelandair.  Vitna í algildar lausnir einhverra nafmlausra sérfræðinga í fjölmiðlum. Þeir vilja kaupa Airbus en ekki Boeing og skipta út öllum varahlutalagernum og verkþekkingunni  hjá félaginu? Ef það klikkar þá erum við ekki ábyrgir því við erum nafnlausir og ábyrgðarlausir bak við Lífeyrissjóðsskiltið. Við erum bara sjálfskipuð séní. Og það verður bara hann Halldór Jónsson sem borgar með lækkun lífeyrisins síns ef til þess kemur að okkur skjátlast. 

Eru þetta nokkuð annað en einhverjir ókosnir nafnleysingjar sem eru að velta sér í sjóðnum mínum sér til valdaframdráttar í hinu pólitíska samkeppnislausa lögþvingaða lífeyrissjóðakerfi?  Kunna bara að heimta hækkuð iðgjöld af öllum almenningi svo þeir geti sukkað meira? Og lækkað svo bara lífeyrinn minn ef með þarf? Ábyrgðarlausir og ókosnir dilletantar?

Eru þeir einhver allsherjarséní í atvinnurekstri? Eru þeir nokkuð annað en lélegir og uppblásnir leikarar á sviði,  fullir af freti en hafa ekkert til að bera nema kunningsskapinn í gerspilltu valdatafli stéttarfélaganna meðan það endist og síðan ekki söguna meir? Hafa þeir einhverja sérþekkingu á öllu atvinnulífinu sem þeir eru farnir að ráða?  Menn sem þykjast vera allt en eru ekki neitt þegar upp er staðið? Pappírstígrísdýr í besta falli?

Töpuðu þeir ekki merira en þúsund milljörðum af peningunum mínum í síðustu útrás og enginn sagði neitt? Bar nokkur einhverja ábyrgð þá? Héldu þeir ekki öllu sínu? Var það ekki bara ég sem var látinn borga? Er þetta nokkuð annað en spillingardíki, sem er kallað lífeyrissjóðakerfi landsmanna, stjórnunarlega gegnumrotið, ókosið, óstjórnað, óupplýst og afétur þjóðfélagið eins og aðalsveldið gerði í Frakklandi fyrir fallöxina?

Er Lífeyrissjóðakerfið ekki hreinlega að ganga að efnahagslífi okkar dauðu? Mara á efnahagslífinu sem öllu ræður?  Er það ekki bara samvalin spillingarsamkunda sem situr yfir hvers manns diski? Stjórnar öllu lífi fólks, kýs um fjárhagslegt líf eða dauða flestra einstaklinga og fyrirtækja í krafti alls fjármagns landsmanna? Þvingar fjármuni frá arðsemi til ófara af því að hún er úr sambandi við fólkið í landinu eins og aðalsveldið var hjá Loðvík 14.? Hún sé sjálf frumorsökin fyrir lækkun hlutabréfanna í Icelandair?

Þarf ekki að hreinsa út út úr þessu furstakerfi lífeyrisssjóðanna? Verður ekki fólkið að fá yfirráð yfir eigum sínum úr höndum ókosinnar valdaklíku sem öll völd hefur yfir fjármagni fólksins vegna úrelts skipulags frá því í árdaga lífeyriskerfisins?

Hefur eitthvað breyst raunverulega hjá Icelandair þótt gengi á einhverjum bréfum lækki í mati einhverra auragreifa og bréfagutta?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Orð í tíma töluð.

Hafsteinn Reykjalin Jóhannesson (IP-tala skráð) 10.2.2017 kl. 10:17

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ástæða verðfallsins er að vísu versnandi afkoma félagsins, sem taka mun tíma að snúa við ef marka má ummæli forstjórans í gær. 

En þetta er sami forstjórinn sem ætlar að draga alla áfram á asnaeyrunum í flugvallarmálinu og láta vélar Icelandair fljúga aðflug niður í 500 fet að flugvallarstæði í Hvassahrauni "þegar veður leyfir". 

Það er nefnilega það. Aðalatriðið varðandi þennan flugvöll er einmitt hvenær "veður leyfir" flug að og frá vellinum. 

Mesta óróasvæðið í hvössum byljóttum vindi er á bilinu 70-500 fet, einmitt í þeirri hæð sem aldrei verður flogið í þessum reynsluflugferðum! 

Og ekki verður flogið nema í góðu veðri! 

Ómar Ragnarsson, 10.2.2017 kl. 12:01

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar, þú hefur nú flogið að fleiri eldgosum en nokkur annar. Er virkilega glóra í því að fara að byggja flugvöll fyrir hundraðmilljarða( að sögn Jóns Gunnarssonar ráðherra eftir athuganir) ofan á eldgíg? Á Reykjanesi eru 5 sjálstæð eldstöðvakerfi og öll virk. Það gaus þarna síðast í gær jarðsögulega séð. Rögnunefndin minntist ekki á það og Björgólfur virðist ekki gera mikið með það. Og myndir þú fara að leggja vinnutækin þín í þetta sem þú lýsir? 

Halldór Jónsson, 10.2.2017 kl. 12:20

4 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þegar Kaupþing var og hét á áunum 2006 (jafnvel fyrr) fram að hruni 2008 voru hlutabréf þess að hækka sí og æ og það ekki lítið, allir hluthafar voru að græða.  Menn, fyrirtæki, sparisjóðir og lífeyrissjóðir réðu sér ekki kæti, þeir voru alltaf að græða, en svo kom skellurinn, allt horfið á einu augabragði.  Þeir höfðu aldrei innleyst hagnaðinn.

Lögmál náttúrunnar kennir okkur það að allt sem fer upp kemur að lokum aftur niður, en það virðist gleymast hjá svo mörgum, einkum þeim sem eru að höndla með fé annarra eins og t.d. lífeyrissjóðirnir.  Eiga lífeyrissjóðirnir að selja núna í Icelandair??? Nei, alls ekki, en þeir eiga að innleysa "hagnaðinn" reglulega eftir að hlutafé fyrirtækja sem þeir hafa fjárfest í hafa hækkað nokkuð, nokkur prósent t.d., þegar sannanlegur ágóði er til staðar, ekki bara bíða eftir næstu niðursveiflu.

Tómas Ibsen Halldórsson, 10.2.2017 kl. 12:25

5 Smámynd: Kristmann Magnússon

Góð grein hjá þér Halldór - Er þetta ekki stuttbuxnaliðið sem hefur allt sitt vit úr bókum en hefur enga reynslu af rekstri ?

Kristmann Magnússon, 10.2.2017 kl. 13:05

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Góður pistill, nafni. Huglæg verðmæti, sem ekki hafa verið innleyst eru marklaus. Öll umræða um tap er fáránleg, þegar ekkert hefur verið selt. Aðkoma lífeyrissjóðanna er síðan kapítuli útaf fyrir sig. Andskotans rugl sem þeir eru orðnir. 

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 10.2.2017 kl. 13:57

7 identicon

Sl. miðvikudag, 8.feb., var Reykjavíkurflugvöllur lokaður vegna veðurs. Þá flaug vél frá Icelandair a.m.k. 3 aðflug úr mismunandi áttum að flugvallarstæði í Hvassahrauni. Ómar túlkar og skáldar frekar en að leita sér upplýsinga og fara með rétt mál.

Sama er að segja um Halldór, það voru ekki lífeyrissjóðirnir sem orsökuðu lækkun bréfa Icelandair. Það var ekki mat  auragreifa og bréfagutta sem orsakaði lækkun bréfanna. það voru aðrir hræddir Halldórar, Pétur og Páll sem seldu sín bréf sem orsakaði lækkun. Bréfin lækka aðeins ef einhver vill selja á lægra verði. Kaup og sala bréfanna er það eina sem stjórnar verði þeirra.

Lífeyrissjóðirnir töpuðu ekki krónu og allir þeir auragreifar og bréfaguttar sem keyptu af hræddu Halldórunum eiga nú bréf sem eru að hækka í verði og tvöfaldast jafnvel á næstu misserum.

Hvert verðið er þegar selt er ræður hver hagnaður eða hvaða tap verður. Sveiflur á verði dagana milli kaupdags og söludags skipta engu máli og hafa engin áhrif á efnahag eigendanna.

Hábeinn (IP-tala skráð) 11.2.2017 kl. 01:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband