12.2.2017 | 11:01
Að kjafta og ljúga.
Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins eru þessar línur:
..Á síðustu áratugum hefur aðbúnaður eldra fólks, sem þarf á aðstoð að halda, breyst mjög til batnaðar. En það breytir ekki því, að margir þurfa lengi að bíða og fá takmarkaða aðstoð á biðtímanum.Ellefu aldirnar þar á undan var aðbúnaður aldraðra (sem voru mun yngri þá) ekki bara erfiður heldur í flestum tilvikum vonlaus.
Á móti kom að lífið stóð stutt, eftir að halla fór undan fæti og sá sem »kominn var í kör beið sjaldnast lengi endanlegrar lausnar«. Kuldinn og »blessuð lungnabólgan« leysti málið. Það var fyrir daga penisilíns, upphitaðra húsa, aðgengis að hreinu vatni, fjölbreyttrar næringar og alls hins, sem við teljum sjálfsagða hluti í dag.
Fjöldi sjúkdóma er nú læknanlegur, allt frá botnlangabólgu upp í sumar tegundir krabbameina, einkum þeirra sem finnast í tíma. En þessi lukkulega þróun leiðir til þess að ellin er fjölmenn og það þarf úr mörgu að bæta af því sem óhjákvæmilega gefur sig við háan aldur.
En smám saman er að vakna skilningur á því að langlífið er ekki baggi á heildina. Ekki ef rétt er brugðist við. Þvert á móti. Þjóðfélagið þarf að nýta það afl sem býr í eldra fólki sem býr við bestu skilyrði.
Ekki síst í löndum þar sem endurnýjun »stofnsins« dregst saman, eins og er fylgikvilli margra velferðarríkja. Þess vegna þarf að breyta umgengni hins opinbera við sparnað fólks, blása burtu hindrunum við því, að nýta krafta þeirra sem vilja starfa áfram að fullu eða hluta og svo fram eftir götunum.
Sumir tala um skatta sem eign hins opinbera, sem sá, sem leitast við að nýta þá kosti sem lög leyfa til að halda eins miklu eftir og hann má, sé að ná með ólögmætum hætti. Auðvitað ekki lagalega í þessu tilviki heldur eftir einhverju siðalögmáli sem menn gefa sér að gildi, án þess að geta rökstutt það. Það er látið eins og sá sem leitast við með löglegum hætti að halda eftir hjá sér sem mestu af sjálfsaflafé sé að halda því frá hinu opinbera, sem fram að því hefur aldrei átt það og að lögum á það ekki enn.
Menn búa til ambögur, orð eins og »skattasniðgöngu« og tönglast svo á þeim í umræðunni allt þar til að »almenningur« gerir engan mun á skattasniðgöngu og því að svíkja undan skatti.
Að lögum er það þó þannig, að hægt er að innheimta skatt þannig að þeir sem leggja hann á og gefa innheimtumönnum fyrirmæli um að heimta hann inn með öllum þeim beittu úrræðum sem þeir ráða yfir, eru hinir raunverulegu lögbrjótar. Þeir eru »þjófarnir« en ekki skattgreiðandinn sem settur er í gapastokk þjófsins þegar hann er sakaður um skattasniðgöngu.
Þegar skattheimta eða jaðarskattar koma í veg fyrir að maður með afl og vilja til starfs geti látið til sín taka, er of langt gengið. Eins þegar skattlagning felur í sér beina eignaupptöku, sem dómstólar hafa verið of huglausir við að stemma stigu við.
Skattur verður ekki innheimtur nema með lögum. Ríkisvaldið getur ekki samtímis hagað löggjöf um skattlagningu með tilteknum hætti, sem það (löggjafarvaldið) ræður algjörlega, og haft svo uppi ásakanir gagnvart þeim sem ekkert hefur um skattalög að segja, umgangist hann löggjöfina þannig að hún skaði hann sem minnst.
Það er eðlilegt að skattheimtumenn vilji hafa löggjöf um skatta sem einfaldasta. En það er ekki sjálfsagt að stjórnmálaleiðtogar séu endilega sömu skoðunar.
Ef hægt er að greiða fyrir æskilegri þróun í þjóðfélaginu með því að hafa svigrúm í lagasetningu um álagningu skatta og annarra gjalda, þá á stjórnmálamaður, sem vill vera sannur leiðtogi, og um leið samferðamaður síns fólks, að huga að því, þótt embættismenn hans og búrókratar séu með aðrar meiningar.
Íslenskir ráðherrar koma einmana inn í sín ráðuneyti. Þeir fá að hafa örfáa menn með sér inn í »bæli úlfanna«. Þeir ættu hins vegar að stilla sig um að velja sér aðstoðarmenn um sinn, uns þeir átta sig á því hvers konar fólk kæmi þeim að mestu gagni. Það er mjög undarlegt að sjá ráðherra koma glaðbeitta inn í ráðuneyti og hafa börn með sér í farteskinu til að hjálpa sér. Það fer ekki alltaf illa en er oftast gagnslítið eða minna en það.
Í stjórnkerfinu eru ekki óvinir fólksins í landinu, fjarri því. En jafnvel þótt stór hluti þeirra sem þar vinna færist smám saman til vinstri í pólitíkinni vegna þess að svo margt »á markaðnum« snertir þá minna en þessa sem eru í hinu almenna umhverfi, þá hafa þeir nær allir þá tilfinningu að kerfið sé að gera sitt besta. Vinstri sinnaðir opinberir starfsmenn eru því iðulega mjög íhaldssamir í viðhorfum sínum til breytinga á kunnum veruleika.
Þremur vikum fyrir hverjar kosningar vottar aðeins fyrir því að nokkur munur sé á viðhorfum almennra stjórnmálaflokka. Þá er ekki verið að tala um flokka sem hafa »niðurhal« á sínum oddi eða flokka sem sagðir eru hafa aukið fylgi sitt um eitt eða tvö prósent af því að þeir sögðust vera á móti búvörusamningunum sem enginn frambjóðenda virtist þó hafa lesið.
Kjósendur hér á landi eru farnir að sjá í gegnum þetta skoðanaleysi stjórnmálamanna nútímans. Þess vegna fer þeim fækkandi sem mæta á kjörstað og álitlegur hópur þeirra sem þó mætir sér ekkert að því að láta niðurhal ráða afstöðu sinni, enda sennilega átt við niðurhal og daðurdrós í sálmi sr. Matthíasar .
Hér er fjallað um mikla meinsemd í okkar þjóðfélagi. Hún er sú að láta það hafa áhrif á greiðslu tryggingabóta og lífeyris hvort gamlingi vinnur sér inn aðrar tekjur. Nú vantar þúsund manns suður á keflavíkurflugvöll. Það fæst ekki starfsfólk innanlands.
Margir aldraðir gætu áreiðanlega leyst mörg af þessum störfum af hendi. En þeir nenna ekki að svipta sjálfa sig þeim litlu bótum sem þeir nú hafa jafnvel til lengri tíma vegna tímabundins starfa þó þjóðarnauðsyn beri til eins og nú.
Af hverju gerir enginn stjórnmálamaður neitt í þessum málum nema kjafta og ljúga kortéri fyrir kosningar?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:03 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ekki hægt að orða þetta betur.
Þessi refsigleði í skattheimtunni er óskiljanleg.
Laun þeirra sem komnir eru á besta aldur,
ættu að vera skattlaus.
Þá fyrst væri hægt að segja að fólk hlakkaði
til efri áranna.
Í dag er staðan sú að fólk kvíður fyrir
því að detta af vinnumarkaði og í framhaldi af því
að hafa varla í sig og á, á þessum skammarlegu
lúsarbótum.
M.b.kv.
Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 12.2.2017 kl. 12:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.