Leita í fréttum mbl.is

Aðeins við einkaframkvæmdir

og nýframkvæmdir er hægt að innheimta vegatolla.

Það er líklega  ekki hægt að fela ríkinu að innheimta vegatolla í neinni mynd.

Ástæðan er sú að pólitíkusar stela öllu steini léttara. Ljúga og svíkja samviskulaust. Því miður, oftlega gersamlega óorðheldnir laupar sem enginn getur treyst neinu hjá. Alvega sama hvort aldraðir, öryrkjar eða aðrir vesalingar eiga í hlut. Aðeins í einhverri fíflsku fyrir kynvillinga, femínisma, hælisleitendur, flóttamenn,eða loftslagsvitleysu er hægt að treysta því að þeir vilji standa við eitthvað, sem kemur okkur þegnunum þá yfirleitt illa.

Sjáið nefskattinn til RÚV sem Þorgerður Katrín kom á? Stolið hægri og vinstri. Bensínskattar, bílatollar.Öllu stolið hægri- vinstri. Gjöldin í Hvalfjarðargöng? Fóru bara þangað sem þau áttu að fara af því að þau eru einkaframkvæmd.

Vegatollurinn á Keflavíkurveginn var eyðilagður af því að það var ríkið sem innheimti hann. Skýlið brennt og allt eyðilagt.

Það er bara því hægt að innheimta veggjöld af einkaframkvæmdum í nýframkvæmd vegna sviksamlegs  eðlis stjórnmálamanna. Þeir komast upp með að ljúga og svíkja í hvaða málum sem eru. Því miður er þetta fremur reglan  um íslenska stjórnmálamenn frekar  en undantekningin. Fólk treystir þeim illa vegna fenginnar reynslu. 

Þess vegna er aðeins hægt að innheimta veggjöld af einkaframkvæmdum í vegamálum.

Það er hinsvegar hægt að skattleggja þá bíla sérstaklega sem eyðileggja vegina núna. Trukka og rútur.

Það er það sem hægt er að gera strax Jón minn Gunnarsson því þeir eru einkaframkvæmd gróðapunga og eiga að borga fyrir skemmdirnar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sem oftast Halldór minn er ég ákaflega ánægður með mart sem þú setur fram í blogginu þínu.  Við gamlingjar höfum vítt samanburðarsjónsvið, og því miður sjáum við  að margt hafi  færst til verri vegar.  Nú var það nýjasta í hádegisfréttum RÚV að dregnir voru fram útlendingar á vegum ríkisstjórnarinnar. Einhverjir sem sagðir eru sérfræðingar og eru þeir fengnir til segja okkur þjóðinni, að raforkuverð til heimila sé og lágt.  Auðséð er að Þarna er þessi falska ríkisstjórn að ráðast að heimilinum með hugaðri hækkuðun á raforkuveriði, og í aumingjadóm sínum eru útlendingar kallaðir til og síðan eru þeir kynntir fyrir þjóðinni  og útlistaðir að um sérfræðinga sé um að ræða. 

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 7.3.2017 kl. 13:50

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Misnotaður og rændur ríkissjóður og almenningur/fyrirtæki í varnarlausri stöðu, er staðreyndin sem við verðum að horfast í augu við. Við getum ekki horft undan og lokað augunum fyrir raunveruleikanum.

Þetta alvarlega ástand breytist ekki, nema almenningur og embættismenn viðurkenni glæpamannanna verk. Og breyti spillingunni með mannanna verkum. Stöndum með þeim sem varnarlausir lenda í embættishótununum dómsstólavörðu. Þvert á flokka.

Ríkissjóður er samansafn okurskatta af öllu sem lifir og starfar hér á þessu embættisspillta eylandi norður á ískalda hjara veraldar.

Að búa í húsaskjóli fyrir afrakstur flestra starfa eftir skatta og lífeyrissjóðarán, er ekki einu sinni mögulegt hér á frostlandinu? Þarf maður virkilega að mæta hjá Rauða Kross Íslands, til að bjarga fólki frá að sofa undir berum himni í frostinu? Þú veist að ég er ekki að ýkja ástandið á Íslandi Halldór. Þú ert enginn kjáni.

Það á að nota okurskattana í það sem þeir eru innheimtir af tekjum til, og hætta þessu kjaftæði um aukaskatt í botnlausa og eftirlitslausa spillingarhítina: RÍKISSJÓÐ.

Spítalayfirstjórn sem er að drepa þessa þjóð með ábyrgðarlausum okur-forstjóralaunum og siðlausri lögmanna/dómsstóla-studdri lögleysu með tilheyrandi heilsuskaðandi banka/lífeyrissjóðsránum? Slíkri stofnun er ekki treystandi fyrir skattfé almennings, né mannslífum og heilsu landsmanna sem borga hæstu skatta/sjóðagjöld á byggðu bóli jarðar.

Aldrei eitt einasta píp frá yfirlæknahersveitunum vopnuðu á Landsspítalanum og Kára-greni, um hversu heilsuskaðleg bankarána og embættisspillingin er? Heilsuskaðleg og lífshættuleg fyrir skjólstæðinga spítala/heilbrigðiskerfis? Sjúklingana sjálfa?

Það þýðir ekkert að stilla blessuðum Jóni Gunnarssyni upp við vegg með sömu spillingar-kúgunum og venja hefur verið, í embættissoranum spillta á Íslandi.

Jón Gunnarsson ætlaði einmitt að gera heilmikið í samgöngumálum eftir að hann varð ráðherra. Svo virðist grenjandi spítala-gena-Káradeildin Ameríska hafa notað sömu gömlu dómaravörðu kúgunaraðferðina? Eða hvað ætli hafi annars gerst svona allt í einu?

Kára-deildin og dómsstólayfirvöld verða að standa frammi fyrir þeirri ábyrgð og afleiðingum sem fylgir svona baktjalda-kúgunum.

Hættum þessari glæpsamlegu þöggun og meðvirkni með áframhaldandi og enn stærri spillingarvanda, en nú er raunveruleikinn.

Hugsa sér að embættismenn í dómsstóla og siðmenntuðu lögríki skuli komast upp með það án afleiðinga, að hóta fólki mannorðsmorði, atvinnuleysi, eignamissi og þaðan af verri villimennsku-valdmisbeitingum á Íslandi? Leyfðar dómsstólavarðar pyntingar? Andlegar, félagslegar, líkamlegar pyntingar? Og fjölmiðlaeigenda-samþykktar?

Í "réttarríki"?

Eða í skepnumeðferðar-réttunum? Í boði og vari féhirðandi embættisforstjóranna kúgandi og rænandi?

Ef mannskepnu-þrælarnir á Íslandi hefðu siðað dýraverndunar-embættisábyrgðar-eftirlit, væri löngu búið að forða mannskepnu-þrælunum frá svo hættulegum glæpa-féhirðum.

Hvað hefði verið gert við sveltandi rollur, eftir svona meðferð? Er ekki ill meðferð á öllum skepnum alveg óverjandi?

Svari nú hver fyrir sig, og samkvæmt sinni eigin samvisku.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.3.2017 kl. 14:45

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já Anna Sigríður hættum þöggun og meðvirkni,sem eykur bara vandann sem við eigum við.  

Las annan stórgóðan pistil um samgöngumál eftir Sigurð Sigurðsson: "Stjórnarandstaðan gleymdi að fjármagna samgönguáætlun".

Helga Kristjánsdóttir, 8.3.2017 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband