Leita í fréttum mbl.is

Starfsemi lífeyrissjóðanna

gengur ekki upp.

Það er ljóst eftir samtal Jóns Geralds Sullenbergers kaupmanns í Kosti í dag ´við Pétur Gunnlaugsson á Útvarpi Sögu.

Þar lýsir Jón Gerald því hvernig lífeyrissjóðir eiga stóran hlut í Högum og hljóta að hafa hag þess fyrirtækis ofar en hag Kosts. Jón Gerald verður að greiða til lífeyrissjóðanna stóran hluta ofan á öll laun í fyrirtækinu. Þetta fé nota lífeyrissjóðirnir til að keppa við Jón Gerald og reyna að klekkja á honum.

Jón Gerald er bara lítið dæmi um þetta svínarí og mismunun. Tökum Flugleiði og flugfélagið Erni til dæmis.Eða Fasteignafélögin? Eða hvað sem er?

Sjá ekki allir að það gengur ekki upp að Lífeyrissjóðir geti átt beina eignaraðild að félögum í atvinnurekstri á samkeppnismarkaði? Þetta gengur bara alls ekki upp. Að lífeyrisjóðafurstar skuli sitja í stjórnum atvinnufyrirtækja og vinna á móti þeim sem eru að borga fyrir þetta?

Lífeyrissjóðir geta aðeins keypt skuldabréf af fyrirtækjum og mega engin afskipti hafa af rekstri þeirra. Allt annað er bara hreint svínarí og óalandi og óferjandi starfsemi Lífeyrissjóða.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Þessi ólöglega launþega/fyrirtækja-lífeyrissjóða-þvingunarsparnaðar-ránskúgun, er réttilega kallað skipulögð glæpastarfsemi, á hreinni íslensku.

Það er kolólöglegt að þvinga nokkurn einasta einstakling til að borga af launakjaraumsömdum brúttólaunum í félagsgjalda-sjóð á Íslandi.

Ef ég hef skilið allt rétt þá er það líka algjört brot á EES samningnum að þvinga launafólk til að borga gríðarlegar upphæðir af okurskattrændum brúttókjarasamningslaunum í svona þvingaða lífeyrisglæpasjóði!

Svo eru brúttólaunin fyrir lífeyrissjóðarán höfð sem viðmið um laun verkafólks á Íslandi? Svo hefur skattaokrið að sjálfsögðu líka verið tekið af þessum brúttó-launakjaravísitölu-rányrkju-"jafnaðar-hálaunum" á Íslandi!

Útkoma reiknimeistara andskotans er sú að á Íslandi séu um það bil hæstu laun á byggðu bóli jarðar?

Þrátt fyrir að það sem eftir er af þessum gífurlega háu brúttólaunum á Íslandi sé ekki eftir ein einasta króna fyrir opinberlega skattaniðurgreiddri og lögskattagriðslu-skylduðu þjónustu launþeganna?

Það hljóta allir að skilja, að ekkert stenst af því sem svokallaðar herteknar ríkisstjórnir á Íslandi hafa verið valdaránspíndar til að segja og gera í gegnum árin, og jafnvel áratugina.

Skattpíndir til dauða af skattpíningardeildum Frímúrara-aftökusveitum heimsveldisstefnendanna hryðjuverka-árásargjörnu og Bildenburgstjórna-snarbrjáluðu!

Guðsorkan allt um lykjandi og alvitra blessi þessa helsvikastjórnendanna glæpaljónagryfju andskotans á jörðu þarna í Vatíkansins miðstjórnar Bildenburgaríinu.

Ég kann ekki aðrar né betri bænir fyrir friði og velferð á jörðu í augnablikinu, en að biðja góðu friðarkærleiksorkuna um að stýra stjórnsýslunni hér á jörðu til friðar.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.6.2017 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 3419725

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband