27.7.2017 | 09:00
Eitthvað annað
er ávallt krafa stórs hluta kjósenda sem er í stöðugri fýlu og heimtar sífellt að gert sé fyrir sig eitthvað annað en það sem stjórnvöld hverju sinni eru a reyna að gera. Þetta fólk lifir í mícrocosmos eigin bossa og hugsar ekkert um neitt annað en hvað þjóðfélagið, sem er í þeirra augum skattgreiðendur, geti gert til að láta því líða betur þar niðri.
Skoðanakannanauppgangur flokks fólksins hennar Ingu Sæland er nákvæmlega þetta. Hún talar fjálglega og með mikilli mælsku um að hún ætli að gera eitthvað annað. Nákvæmlega sömu klisjurnar og Björt Framtíð,Viðreisn,Píratar og hvað þeir hétu allir saman þessir óskipulögðu fjáröflunarflokkar með enga stjórnmálareynslu töluðu sem fjálglegast um.
Þegar þessir laustengdu hugsjónalausu flokkar koma svo til stykkisins fer eins fyrir þeim öllum. Þegar menn sjá framan í Benedikt Jóhannesson flokksformann sem ráðherra kemur fljótt í ljós að hann er ekkert eitthvað annað heldur bara verri endurtekning á einherju sem áður hefur verið og síðan stigmagnað af algeru reynslusleysi og skorti á stjórnmálalegri þekkingu. Hann fimbulfambar um aðild að ESB, bann á peningaseðlum fyrir léttara stórabróðurs-eftirlit, upptöku einhver óútskýrðs myntráðs sem annars forms á Evruupptöku, allt sýnir þetta þeim kjósendum sem héldu að þeir væru að kjósa eitthvað annað að þetta er aðeins stigbreytt verri útgáfa af einhverju gömlu sem er búið að margtyggja og því verra ef nokkuð er.
Óttar Proppé og Björt Ólafsdóttir sanna þetta líka með sínum athöfnum að þau eru ekkert eitthvað annað heldur bara endurtekning á gömlu ráðleysi. Um Þorgerði Katrínu ætla ég ekki að hafa mörg orð en hún er bara afturganga sem kveðin verður endanlega niður í næstu kosningum og finnast mér það dapurleg pólitísk örlög gamallar hæfileikaríkrar vinkonu.
Íslenska þjóðfylkingin er bara annað máttlaust apparat sem ekkert mun geta eða máli skipta. Jón Valur ætti að beina kröftum sínum fremur inná svið stjórnmála í sínum gamla flokki og hafa þar áhrif sem hann getur vegna hæfileika sinna.
Um Pírata þarf ekki að fjölyrða, sú skrípahreyfing er löngu búin að sanna sig í augum fólks í því að vera ekkert annað en flokkur fyrir sjálfa forystusauðina og þeirra bossa.
Bjarni Ben situr þarna í sínum gamla Sjálfstæðisflokki og heldur sjó sem rúmlega fjórðungs flokkur. Fátt virðist hann gera til að kveikja á pólitískum sjarma sínum til að afla fylgis sem hann þó býr yfir innst inni, Hann kemur hinsvegar helst ekki fram nema til að bera til baka að hann styðji bullið í Benedikti frænda. Þessi ólíkindastjórn hans virðist fáu muni koma fram og þeir eru líklega fáir sem búast við einhverju af henni. Hún er ekki eitthvað annað það sem af er. Hún verður hugsanlega grátin af fáum þegar hún fer ef þetta er allt og sumt sem við núna sjáum. Jón Gunnarsson hefur reynt að koma fram breytingum í fjármögnun samgöngumála sem eru hrikalegt viðfangsefni. En það er æst til andstöðu við hans hugmyndir á allskyns vígstöðvum svo ekki er vitað hvernig honum gengur. En víst er að verkefnin eru ærin í innviðum landsins. Guðlaugur Þór hefur fátt sjáanlegt gert í að reyna að vinda ofan af refsiaðgerðum á Rússland sem þjóðin er örugglega öll á móti að taka þátt í með ESB.
Framsókn er í sárum vegna innanflokksátaka og er það mjög óheppilegt fyrir allt stjórnmálalíf landsins þar sem flokkurinn var á góðri siglingu þar til að RÚV gerði drullusokksárásina á Sigmund Davíð með aðstoð erlendis frá. Betur væri að þar færi að finnast einhver lending þar innanhúss en það er hreint ekki í augsýn.
Sem betur fer gerir stór hluti kjósenda sér ljóst að aðeins hinum gömlu, skipulögðu og reyndu stjórnmálaflokkum, sem eru stundum var kallaður fjórflokkur, er treystandi til að fara með stjórn þjóðarinnar svo vel sé. Samfylkinguna er ekki hægt að telja lengur með þar sem hún er ekki flokkur heldur hræringur ósamstæðra skoðana þannig að það er eiginlega bara þríflokkur eftir og svo þessi ósamstæði bossahugsjónalýður sem er óánægður með allt sem það fær eða hefur.Bossaflokkarnir gæti verið tegundarheitið vegna sameiginlegs hugsunarháttar.
Inga Sæland virðist enn sem komið er vera bara endurtekning á gömlum klisjum kjósenda sem eru að leita að einhverju þægilegra undir sig. Sem er skaði því hún hefur marga eiginleika Demosþenesar og Kleons sútara sem þarf til að tala fallega. En hvort hún hefur eitthvað annað sem til þarf veit ekki ég. Þangað til er hún bara von um eitthvað annað sem þessi sami hluti kjósenda er til í að elta í von um eitthvað annað fyrir sig.
Eitthvað annað er bara ekki í augsýn í stjórnmálum um þessar mundir enda sumar og góðæri til sjávar og sveita.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:39 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 3419710
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Sæll Halldór
Sú var tíðin að Sjálfstæðisflokkurinn viðhafði slagorðið "stétt með stétt", en ekki lengur. Tvístígandaháttur forystu flokksins í ESB-málum veikir flokkinn og á Bjarni Ben. ekki hvað minnstan þátt í því. Icesave svik Bjarna hafa komið flokknum í koll, flokkurinn tapaði mikið á því að standa ekki í lappirnar á sínum tíma, hann hefur ekki enn borið þess bætur, en það var þá sem Framsókn stóð einn með fólkinu í landinu ásamt forseta vorum fyrrverandi.
Þú manst Halldór væntanlega eftir þeim tíma að Sjálfstæðisflokkurinn var 40+ prósenta flokkur, en það á ekki við í dag, af hverju ekki?
Mín skíring er sú að forusta flokksins er ótrúverðug, flokkurinn stendur ekki með lítilmagnanum í þjóðfélaginu, ellilífeyris- og örorkuþegum. Það eru þeir hópar sem hafa orðið útundan á meðan ráðherrar og aðrir stjórnmálamenn fengu launahækkanir sem námu mánaðartekjum þeirra sem minnst hafa milli handana, en Bjarni sagði að þeir væru búnir að fá nóg.
Það þarf ekki að koma okkur á óvart að Flokkur fólksins með Ingu Sæland skuli taka kipp upp á við í skoðanakönnunum, sá flokkur gæti enn átt mikið inni.
Vilji Sjálfstæðisflokkurinn ná vopnum sínum þarf að skipta um forustu. Setja inn fólk sem talar mannamál og lofar ekki öðru en því sem það er tilbúið að standa við. Segja það sem það meinar og meinar það sem það segir.
Ég fyrir mitt leiti gafst upp á Sjálfstæðisflokknum þegar Bjarni og co. samþykktu Icesave og hef ekki séð ástæðu til að snúa aftur.
Það kæmi mér ekki á óvart ef Flokkur fólksins ætti eftir að höggva skarð í Sjálfstæðisflokkinn.
Allt það sem þú, Halldór, segir um hina flokkana get ég tekið undir. Það er ekkert bit og lítið vit í þeim flokkum. Ráðherra Bjartrar framtíðar sýndi í vikunni hvers vegna hún er á þingi, það er til að sýna vald sitt, beita valdníðslu. Ekki jókst fylgi við þann flokk á þeim degi.
Tómas Ibsen Halldórsson, 27.7.2017 kl. 14:50
Sæll Halldór
Sú var tíðin að Sjálfstæðisflokkurinn viðhafði slagorðið "stétt með stétt", en ekki lengur. Tvístígandaháttur forystu flokksins í ESB-málum veikir flokkinn og á Bjarni Ben. ekki hvað minnstan þátt í því. Icesave svik Bjarna hafa komið flokknum í koll, flokkurinn tapaði mikið á því að standa ekki í lappirnar á sínum tíma, hann hefur ekki enn borið þess bætur, en það var þá sem Framsókn stóð einn með fólkinu í landinu ásamt forseta vorum fyrrverandi.
Þú manst Halldór væntanlega eftir þeim tíma að Sjálfstæðisflokkurinn var 40+ prósenta flokkur, en það á ekki við í dag, af hverju ekki?
Mín skíring er sú að forusta flokksins er ótrúverðug, flokkurinn stendur ekki með lítilmagnanum í þjóðfélaginu, ellilífeyris- og örorkuþegum. Það eru þeir hópar sem hafa orðið útundan á meðan ráðherrar og aðrir stjórnmálamenn fengu launahækkanir sem námu mánaðartekjum þeirra sem minnst hafa milli handana, en Bjarni sagði að þeir væru búnir að fá nóg.
Það þarf ekki að koma okkur á óvart að Flokkur fólksins með Ingu Sæland skuli taka kipp upp á við í skoðanakönnunum, sá flokkur gæti enn átt mikið inni.
Vilji Sjálfstæðisflokkurinn ná vopnum sínum þarf að skipta um forustu. Setja inn fólk sem talar mannamál og lofar ekki öðru en því sem það er tilbúið að standa við. Segja það sem það meinar og meinar það sem það segir.
Ég fyrir mitt leiti gafst upp á Sjálfstæðisflokknum þegar Bjarni og co. samþykktu Icesave og hef ekki séð ástæðu til að snúa aftur.
Það kæmi mér ekki á óvart ef Flokkur fólksins ætti eftir að höggva skarð í Sjálfstæðisflokkinn.
Allt það sem þú, Halldór, segir um hina flokkana get ég tekið undir. Það er ekkert bit og lítið vit í þeim flokkum. Ráðherra Bjartrar framtíðar sýndi í vikunni hvers vegna hún er á þingi, það er til að sýna vald sitt, beita valdníðslu. Ekki jókst fylgið við þann flokk á þeim degi.
Tómas Ibsen Halldórsson, 27.7.2017 kl. 14:51
Það sem þú ert að segja er áreiðanlega hluti af skýringunni á því af hverju flokkurinn spólar í hjólförunum fyrir neðan þriðjung en ofan fjórðungs og kemst hvorki afturábak né áfram. Frekja formannsins á aðalfundi Kjördæmisráðsins í SV þegar hann breytti prófkjörsniðurstöðunni fór illa í fólk sem líkar ekki svona vinnubrögð.Ef hann ætlar að sýna sama yfirgang á Lansdsfundinum til að berja Áslaugu Örnu inn sem varaformann þá munu einhverjir labba út. Eða berja niður umræður um innflytjendavandann eins og var gert á síðasta Landsfundi.
Halldór Jónsson, 27.7.2017 kl. 16:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.