14.8.2017 | 08:56
Er þetta rasismi?
að skýra frá atburðum í Svíþjóð eins og Gústaf A. Skúlason gerir hér með þessu fréttum?
" 3. Ágúst
- Vöruhús IKEA í Kalmar útrýmt eftir slagsmál. Einn mannanna vara með þvílík læti að starfsmenn ákváðu að láta útrýma vöruhúsið. Lögreglan handtók manninn.
- A.m.k þrír sænskir hryðjuverkamenn hjá ISIS handteknir í Sýrlandi.
- Maður á tvítugsaldri skotinn með fleiri skotum í vestra Stokkhólmi á Helsingforsgatan i Husby Akalla. Ekki lífshættulega særður. (Daginn áður maður skotinn með fleiri skotum sem geiguðu í Husby. Hann hafði áður orðið fyrir barsmíðum og tennur eyðilagðar).
- Sjónvarpið sýnir myndir af marókkönskum ungum strákum sem drífa heimilslausir um götur Stokkhólmsborgar. Þeir ræna og rupla, nota hnífa við rán, eru niður í 9 ára gamlir og sniffa thinner. Þeir eru handteknir og afhendir félagsyfirvöldum sem sleppa þeim lausum jafnóðum aftur. Fara þá inn í miðbæ Stokkhólms og ræna enn fleiri.
- Grein i Fria Tider um að notkun handsprengja við glæpi hafi sjöfaldast í Svíþjóð.
- Kristur sýndur sem kynskiptingur á Gleðivikunni í Stokkhólmi. Elisabeth Ohlson Wallin listakonan á bak við kynskiptan Jesús segist aldrei munu sýna Múhammed á sama hátt.
- Gróft rán í S-Stokkhólmi Huddinge matvörubúð rænd af grímuklæddum manni vopnuðum byssu. Tók með sér peninga og hvarf í stolnum bíl.
- Fyrir helgina hefur lögreglan í Stokkhólmi sent út bréf til starfsmanna í sumarleyfum og sagt að lögreglan geti ekki gegnt skyldum sínu og það bráðvanti menn í þjónustu. Vilja yfirmenn að starfsmenn hætti í sumarfríum og komi til starfa svo lögreglan þurfi ekki að beita þvingandi skylduákvæði sem neyðir menn til að koma á vaktina.
- Götubörn frá Marókkó hafi farið frá Gautaborg og herja núna í Stokkhólmi.
- Kveikt í iðnaðarbyggingu í Mölndal sem m.a. inniheldur lager fyrir lögregluna.
- Þrír bílar brunnu í Landskrona.
- Bíll sprengdur í Söderkulla Malmö.
- 18 ára drengur hnífstunginn í slagsmálum milli tveggja unglingahópa.
- Konu nauðgað á götu úti í Malmö. Henni var misþyrmt og rænt og síðan nauðgað.
4 ágúst
- Malmö tveir starfsmenn særðir eftir hádegið er ráðist var á líbanska matvöruverslun í Malmö. Voru mennirnir skotnir við vopnað rán og er annar mannanna alvarlega særður.
- Lík tveggja manna fundust í íbúð í Alby s-Stokkhólmi í morgun. Lögreglan verst allra frétta á meðan verið er að rannsaka málið en segir að um morð sé að ræða.
- Kona á sextugsaldri rænd í húsi sínu í Norrköping. Tveir grímuklæddir menn á ferð.
- Lögreglan handtók mann vegna skotárásar á 16 ára pilt á unglingaheimili Tyresjö (suður fyrir Stokkhólm) s.l. laugardag. Var pilturinn skotinn fleiri skotum og gert að sárum hans um nóttina og hann lifði af árásina. Lögreglan telur að hún hafi náð í skotmanninn.
- Ég hef sprengju í pokanum. Í dag munum við öll deyja. Þessa hótun hrópaði karlmaður um borð í lestinni milli Borlänge og Gävle. Hótaði að sprengja lestina og farþegana í loft upp. Lenal-Mie Bernkert ein farþeganna tókst að senda sms til dótturinnar sem hringdi á lögregluna sem kom um borð í Sandviken. Lögreglan fann enga sprengju á manninum og sögðu honum að vera rólegur. Síðan fór lögreglan af lestinni á næstu stöð. Núna hefur lögreglan verið kærð fyrir að hafa ekki handtekið manninn.
- Skógarbirni tókst að komast út fyrir girðingu á Rándýragarðinum í Orsa. Réðst á 18 ára starfsmann Róbert og beit hann til bana. Fjölskylda með börn urðu vitni að atburðinum og voru í áfalli. Björninn var drepinn samdægurs. Talið er að Róbert hafi komið í veg fyrir að björninn réðst á fjölskylduna en galt fyrir það með lífi sínu. Björninn hafði grafið holu undir sterka girðingu og þannig komist inn á svæði áhorfenda.
5. ágúst
- Blóðugur hnífstunginn maður fannst i Hegersten í suður Stokkhólmi
- Dæmt í grófu nauðgunarmáli tveggja drengja sem hótuðu að rota 16 stúlku með járnröri á meðan þeir nauðguðu henni. Hótuðu að drepa hana ef hún segði lögreglunni frá athæfinu. Voru dæmdir í 8 og 10 mánaða lokaða gæslu á unglingahæli og 165 þúsund sek sekt.
- Búist við að 32 þúsund flóttamönnum sem neitað hefur verið um landvistarleyfi í Svíþjóð kæri ákvörðunina.
- Þegar lögreglan reyndi að stöðva hnífabardaga 4-5 manns í Skarpneck i S-Stokkhólmi mynduðu 20 manns hring í kringum lögregluna. Lögreglan kallaði þá eftir liðsauka og kom deild með sérþjálfaða hunda gegn uppþotum á staðinn. Einhverjir handteknir.
- 8 af 10 stúlkum á menntaskólaaldri - 80% - finnst þær vera ótryggar utandyra í Uppsala skv nýrri rannsókn. Uppsala Nya Tidning greinir frá þessu. Daniel Larsson hjá lögreglunni í Uppsala segist hafa bannað táningadætrum sínum að vera úti á kvöldin og segir að dætur hans hafi lent í hópum innflytjendastráka. Þeir eru mjög ágengir í samskiptum við stúlkur, glápa á þær, flauta á þær og dætur mínar hafa hringt og spurt hvað þær geti gert þegar þær hafa verið eltar. Sten Wikmark á þrjár dætur og hann segir að dætur hans séu eltar af strákahópum og í eitt sinn elti einn hópurinn eina dóttir mína og strákarnir reyndu að halda henni fastri en henni tókst að flýja inn á veitingahús á staðnum. Árið 2013 sögðust 45% stúlkna á menntaskólaaldri í Uppsala að þeim fyndist þær vera tryggar í Uppsala en fimm árum síðar eru aðeins 19% tryggar.
- Æskulýðsdeild nazista Nordisk Ungdom réðust á gleðigöngu hinsegins fólks í Stokkhólmi laugardaginn 5. ágúst. Kom til átaka við lögreglu sem beitti ofbeldi til að verja gleðigönguna. Nazistarnir héldu borða með textanum björgum börnunum og hrópuðu Verndum börnin frá úrkynjunarhátíðinni. Lögreglan handtók nokkra þeirra.
- Maður rændur á strætóstöð í Staffanstorp. Þrír menn réðust á hann og stálu af honum bílasíma og misþyrmdu honum. Lögreglan hefur ekki handtekið neinn. Eina lýsing ræningjanna er að þeir eru svarthærðir.
- Kona fannst myrt á bóndabýli fyrir utan Enköping. Lögreglan hefur handtekið mann grunaðan um morðið. Morðið hefur vakið óhug og hræðslu á svæðinu.
- Maður á tvítugsaldri skotinn í Jordbro fyrir sunnan Stokkhólm. Alvarlega særður og er á sjúkrahúsi. Skotárásin utandyra í íbúðarhverfi. Vitni segir manninn hafa verið skotinn mörgum skotum í maga, hendur og fætur. Enginn handtekinn. Lögreglan segist ekkert geta gert.
6. ágúst
- 83 lögreglustöðvar í Svíþjóð eru lokaðar í sumar. Lögreglan svarar varla lengur köllum vegna búðarþjófnaðis, jafnvel þótt búðareigandinn haldi þjófnum. Magnus Jansson eigandi íþróttavöruverslunar í Seffle hefur gefist upp á því að tilkynna þjófnaði til lögreglunnar. Hann gafst upp þegar að einn þjófurinn skallaði hann í andlitið og braut á honum nefið og enga lögregluvernd var að fá.
- Maður fannst myrtur í íbúð í Hudiksvall.
- Þriðja hver kona sem myrt er í Svíþjóð er heiðursmorð skv. opinberum upplýsingum. En vandamálið er stórt og ekki kemst upp um öll heiðursmorð. Talið er að nokkur hundruð þúsund manns í Svíþjóð lifi í s.k. heiðursmenningu. Yfirvöld eru gagnrýnd fyrir að rannsaka ekki og halda upplýsingum til haga um morð tengd innflytjendum. Í fyrra voru 18 konur myrtar í Svíþjóð og a.m.k. sex morðanna tengjast heiðursmorðum.
- Konu nauðgað á opinni götu kl 03.00 í Helsingjaborg. Lögreglan veðjar til vegfarenda að gefa sig fram ef þeir hafa séð eitthvað.
- Nokkur hundruð s.k. fylgdarlausra barna fóru í setumótmæli í Stokkhólmi sunnudag og kröfðust að engum yrði vísað úr landi til Afghanistan en mörgum þeirra hefur verið neitað um landvistarleyfi. Mikið grín á félagsmiðlum um aldur barnanna - m.a. birti sænska útvarpið mynd á heimasíðu sinni og segir að hún sýni börn á aldrinum 13-17 ára. Flestum sýnist þó um fullorðið fólk að ræða á bilinu 25-40 ára, margir skeggjaðir karlmenn og hrukkótt andlit á myndinni. Heilbrigðisyfirvöld Svíþjóðar hafa lýst því yfir að a.m.k. 80 % s.k. fylgdaralausra "barna" eru í reynd fullorðnir eftir að lífrænn aldur þeirra var rannsakaður.
- Innanríkisráðherra Svíþjóðar Morgan Johansson segir í viðtali við Sænska dagblaðið að ríkisstjórnin vilji ekki gera menn ríkislausa. Er þetta svar hans við tillögu lögreglustjórans Erik Nord í Gautaborg, um að afturkalla sænskt ríkisfang hryðjuverkamanna sem snúa aftur heim frá Sýrlandi. Sænska leynilögreglan veit um 3000 hryðjuverkamenn í Svíþjóð og telur 2000 þeirra vera sérlega hættulega.
7. ágúst
- 15 ára drengur rændur af þremur vopnuðum mönnum
- Auðkennum (nafnnúmer m.fl.) allt að 200 þúsund Svía stolið skv. nýrri SIFO könnun. af 4300 sem spurðir voru sögðu 2,8% að auðkennum þeirra hafi verið stolið sem er aukning frá 2,3% ár 2016.
- Jonas Serneholt pólitískur ritari Umhverfisflokksins í Järfälla hættir störfum eftir að hafa kallað Sómali krabbamein eftir hópnauðgun Sómala í Järfälla á konu á fertugsaldri í júlí sl. Hann hafur beðist velvirðingar á ummælunum og hætt öllum stjórnmálastörfum.
8. ágúst
- Manni misþyrmt í Partille. Fluttur alvarlega særður á sjúkrahús.
- Lögreglan handtekur hnífamann í Gautaborg.
- Maður á níræðisaldri rændur við strætóstöð í Gautaborg um miðjan dag.
- Kona rænd við Liseberg.
- Maður hnífstunginn og færður á sjúkrahús ásamt árásarmanni í Bagarmossen, Stokkhólmi.
9. ágúst
- 50 bílar skemmdir af reyk eftir íkveikju í bílahúsi í Gautaborg.
- Réttarhöld hefjast yfir fjórum fjölskyldumeðlimum í Vestur Svíþjóð sem reyndu að ræna og gifta burtu 17 ára dóttir í Söderhamn í byrjun júlí. Stúlkan hélt að hún væri að fara að hitta vin, þegar setið ver fyrir henni og henni rænt.
- Kona rænd í Sofielund Malmö. Ráðist var að henni bakífrá og hún tekin hálstaki.
- Ráðist á hóp sitjandi fylgdarlausra barna í setuverkfalli í Stokkhólmi í gær.
- 18 ára drengur handtekinn fyrir morðtilræði og rán i Malmö fyrir fimm dögum síðan.
- Tveir menn handteknir Malmö fyrir að bera byssur á veitingastað.
- Slagsmál unglingahópa við neðanjarðarlestarstöð í S-Stokkhólmi
- Fimm grímuklæddir menn rændu heimili í Kristinehamn
10. ágúst
- Ráðist á stúlku á táningaaldri og henni nauðgað eftir að hún fór af strætó í Linköping um hálf tíuleytið um kvöldið.
- Særður maður fluttur á spítala í Stokkhólmi.
- Kveikt í bíl í bílahúsi í Malmö. Einn bíll gjörónýtur, 15 bílar reykskemmdir.
- Ráðist á mann og hann rændur í Luleå
- Manni misþyrmt í Kristinehamn
11. ágúst
- Hnífstunginn maður kemur særður í búð í Kalmar og biður um hjálp. Fluttur á sjúkrahús.
- Tvö 11 ára börn rænd hjólum, úrum og veski í Haninge S-Stokkhólmi.
- Manni sem reyndi að stöðva tvo menn sem krotuðu á bíla misþyrmt.
- Rán á vörum flutningabíls, ræninginn hélt bílstjóranum á meðan þrír aðrir tæmdu bílinn.
- Fjórar konur ráðast á þá fimmtu, misþyrma með spörkum og barsmíðum, þar sem hún liggur á jörðinni. Konunni tókst að komast sjálf á nærliggjandi veitingastað.
12. ágúst
- 15 ára stúlku nauðgað í Norrköping. Er í áfalli.
- 40 fótboltabullur handteknar vegna uppþots í Norrköping.
- Hnífaárás i Kiruna og einn særður.
- Margir menn reyndu að ræna mann á hjóli í Lund.
- Mönnum misþyrmt Ystad og Gautaborg.
- Kona særð í hnífaárás Stokkhólmi. Er á sjúkrahúsi.
- Maður í eiturlyfjaástandi sveiflaði sverði við neðanjarðarlestarstöð í Fittja (S-Stokkhólmi)
13. ágúst
- Maður særður í hnífaárás í íbúð í Stokkhólmi.
- Tveir menn í lífshættu á sjúkrahúsi í Malmö eftir skotárás á samkomusal í Malmö. A.m.k. einn til særður. Vinti segja að öngþveiti hafi brotist út þegar fólk flúði úr salnum og út á götu. 70-100 manns á staðnum.
- Maður alvarlega særður á sjúkrahúsi í Uppsala eftir hnífaárás.
- Setumótmæli gegn útvísun flóttamanna til Afghanistan dreifast til annarra borga í Svíþjóð, Malmö.
- Skotinn maður fluttur særður á sjúkrahúsi í Halland, S-Svíþjóð
- Manni misþyrmt í Kalmar, er á sjúkrahúsi.
- Vopnað rán í Stokkhólmi. Sími og veski tekið af manni undir hnífshótun.
Eftir þennan lestur má gleðjast yfir því, að Svíþjóð er enn Svíþjóð þótt myndin hafi breyst. Og þar sem enn er eftir af helginni, þá er sem sagt enn sá möguleiki að listinn geti jafnvel orðið lengri og þá er hægt að gleðjast yfir því að hann varð nú samt ekki lengri en raun ber vitni.
Þeir sem telja runann ofan vera ímyndaðan skáldskap er bent á heimasíðu sænsku lögreglunnar."
Þeir okkar eru til sem vilja halda því fram að þessi óöld tengist ekki fjölda innflytjenda í Svíþjóð. Þeir okkar sem muna gömlu Svíþjóð raðar og reglu geta haldið öðru fram. Þeir okkar eru til sem halda því fram að vaxandi fjöldi innflytjenda til Íslands frá 3. heiminum muni ekki hafa viðlíka tíðindi í för með sér hérlendis.
Er það tilraunarinnar virði að fjölga hælisleitendum á Íslandi sem allra mest? Er það rasismi að vara við mögulegum afleiðingum?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:57 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Hvort það er rasismi, fáfræði eða einstaklega lélegt minni að skrifa eins og skúrkarnir í Línu Langsokk hafi verið einir um glæpi í Svíþjóð fyrir daga innflytjenda og Emil einn um óknytti læt ég ósagt. Næst segir þú okkur væntanlega hvernig ekki rigndi dropa fyrsta áratug ævi þinnar og ætíð hafi verið nægur og góður snjór til snjókallagerðar.
Espolin (IP-tala skráð) 14.8.2017 kl. 13:47
Og núna ætlar Espolin væntanlega að sýna okkur öllum nákvæmnlega hvar Halldór Jónsson hélt því fram að engir glæpir hafi verið framdir fyrir daga innflytjenda - ellegar að viðurkenna að hann sé að snúa út úr með því að leggja mönnum orð í munn.
Það er þó gott að vita að hann er ekki einn af þeim sem halda því fram að Svíþóð hafi alltaf verið "diverse" eins og sumir gera.
Egill Vondi (IP-tala skráð) 14.8.2017 kl. 17:37
"...vilja halda því fram að þessi óöld tengist ekki fjölda innflytjenda í Svíþjóð. Þeir okkar sem muna gömlu Svíþjóð raðar og reglu geta haldið öðru fram..."
Espolin (IP-tala skráð) 14.8.2017 kl. 18:24
Gleymdi þessu um stund. En jæja, vonandi sést þetta þótt ég svari tveim dögum síðar.
Það að óöldin tengist innflytjendum merkir ekki að engir glæpir hafi verið framdir fyrir daga innflytjenda. Þetta er einföld málkunnátta.
Egill Vondi (IP-tala skráð) 16.8.2017 kl. 19:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.