19.8.2017 | 12:04
Að hugsa sér?
að maður sem svona skrifar sé þingmaður á Alþingi Íslendinga:
"
200 daga vinátta Guðlaugs Þórs og Trumps
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra má eiga það, hann passar upp á vini sína. En hvort hann vandi valið á þeim, það er önnur spurning. Ég óttast að vanvilji Guðlaugs Þórs til að fordæma Donald Trump Bandaríkjaforseta á grundvelli þess sem hefur átt sér stað undanfarna 200 daga byggist á einhverskonar kjánalegri trú um að hægt sé að vera vinur svona manna. Hversu lengi þessi vinátta endist er önnur spurning. Þjóðernisofstæki mun seint vera launað yfir landamæri, og eftir því sem ofstækið eykst eru birtingarmyndir þess líklegari til að valda öllum skaða, hvort sem það er í formi gælna við nýnasista, niðurbrots dómskerfisins, misbeitingar á valdi, eða tortímingu á viðskiptasamböndum á grundvelli einangrunarhyggju.
Mikið hefur verið rætt um það undanfarna daga að Trump virðist furðu tregur til að lýsa andstyggð sinni á nýnasistum og öðrum sem bera hugmyndafræði sem gengur gegn góðu siðferði og nútíma mannréttindum.
Fantur og hrotti
Í Helgarútgáfunni á Rás 2 sl. sunnudag hélt Guðlaugur Þór því fram að ekki væri hægt, eftir aðeins 200 daga forsetatíð Donalds Trump í Bandaríkjunum, að meta það hverskonar forseti hann yrði.Á sínum 200 dögum sem forseti hefur Donald Trump margsinnis reynt að svipta tugum milljóna manna heilbrigðistryggingu, ítrekað hótað kjarnorkustyrjöld á Kóreuskaga, sett diplómatísk- og viðskiptaleg sambönd Bandaríkjanna við fjölmargar aðrar þjóðir í uppnám, hvatt til ofbeldisglæpa að hálfu lögreglu og haldið skjólshendi yfir KKK, nýnasista og ýmsa aðra öfgahópa. Á meðan hefur starfsmannahald Hvíta Hússins verið í stöðugum sviptingum og sífellt fleiri vísbendingar koma í ljós um ólöglegt athæfi forsetans og nánustu fylgismanna hans í aðdraganda kosninganna.
Það er algjörlega augljóst hverskonar forseti Donald Trump er. Hann er fantur, hann er hrotti og hrokagikkur. Hann er allskostar vanhæfur í starfi, enda virðist hann hafa afar takmarkaðan skilning á því hvað starfið raunverulega er. Ekkert af þessu er einstakt: ýmsir sem hafa fengið stór embætti í gegnum tiðina hafa verið kjaftstórir vanvitar með lítt duldar fasískar hneigðir.
Vinur er sá er til vamms segir
En við þurfum samt sem áður að meta stöðuna út frá því að hér er um að ræða forseta vinaþjóðar okkar, sem er kjarnorkuveldi og efnahagslegt stórveldi; land sem hefur gríðarleg áhrif á heimsbyggðina. Það er ótrúlega mikilvægt fyrir Ísland að halda góðum samskiptum við Bandaríkin, en það gengur einnig beinlínis gegn hagsmunum Íslands að láta eins og hegðun Trumps sé í góðu lagi, og það er skammarlegt að hafa utanríkisráðherra sem skilur þetta ekki. Vinur er sá er til vamms segir.Rétt er að athuga að ríkisstjórn Íslands hefur verið við völd skemur en Trump. Ef ekki er hægt að dæma Trump út frá þessum 200 dögum, eins og Guðlaugur Þór heldur fram, þá er sömuleiðis ekki hægt dæma ríkisstjórn Íslands. Út frá þessum rökum vænti ég að Guðlaugur Þór hyggist ekki hreykja sér af neinu sem ríkisstjórn Íslands gerir fyrr en hann hefur gefið til kynna hverskonar forseti hann telji Trump vera. En ríkisstjórn Íslands hefur nú svo lítið til að hreykja sér af hingað til, að þetta er kannski ágæt leið fyrir Guðlaug Þór að kaupa sér tíma.
Hann hefur nefnilega lítið gert. Í ræðu og riti hefur hann lýst meiri áhyggjum af hagsmunum Bretlands en Íslands í sambandi við Brexit og þannig grafið undan samningsstöðu okkar gagnvart Bretlandi. Það hlýtur að þykja skrýtið að á meðan öll Evrópa er að reyna að vinna saman úr þeim skaða sem Brexit mun valda sé utanríkisráðherra Íslands einn valsandi um algjörlega sannfærður um að þetta sé einhverskonar tækifæri. Þetta lýsir einhverskonar trygglyndi fyrrum varaformanns Evrópusamtaka íhaldsmanna og umbótasinna (ACRE) við Breska Íhaldsflokkinn, sem verður seint launað.
Niðurbrot mannréttinda
Það er hugsanlegt að Guðlaugur Þór þjáist sjálfur af ákveðinni tregðu til að lýsa andstyggð sinni á þeim hugmyndafræðilegum félögum sínum í ACRE hvers hugmyndir engu skárri en hugmyndir nýnasistanna sem Trump heldur verndarhendi yfir. Meðan Guðlaugur Þór vitnaði ítrekað í viðtalinu í Norður-Kóreiska flóttamanninn Park Yeon-mi til vitnisburðar um hrikalegar aðstæður í Norður Kóreu, þar sem fólk er fangelsað af handahófi fyrir minnstu mótlæti gegn ríkisvaldinu og fólk drepið fyrir minniháttar glæpi, þá hefur hann sem utanríkisráðherra ekkert sagt við því að Recep Tayyip Erdogan, leiðtogi AKP, systurflokks Sjálfstæðisflokksins í Tyrklandi, hafi staðið fyrir fjöldafangelsun tugþúsunda manna án dóms og laga, gríðarlegum mannhvörfum og almennu niðurbroti á mannréttindum innan Tyrklands undanfarin ár.Hann hefur heldur ekkert sagt við niðurbroti mannréttinda innan Evrópu, þrátt fyrir að vera mikill andstæðingur Evrópusambandsins sem vissulega liggur vel við höggi um þessar mundir. Það kann að vera vegna þess að það eru einkum systurflokkar Sjálfstæðisflokksins í ACRE sem standa fyrir slíku niðurbroti. PIS í Póllandi hefur til að mynda gengið hart fram við að grafa undan trúverðugleika dómskerfisins í Póllandi undanfarna mánuði, með raunar nánast sömu aðferðum og Sjálfstæðismenn notuðu til að eignast Landsrétt í vor. Obbosí.
NIÐURBROT mannréttinda á heimsvísu er staðreynd í dag og við þurfum að taka afstöðu.. Ísland þarf utanríkisráðherra sem er tilbúinn til að standa gegn þessum hneigðum, frekar en að humma þær fram af sér meðan alþjóð horfir gapandi á.
Höfundur er þingmaður Pírata"
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:15 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Yfir hverju er síðueigandi eiginlega að hneykslast? Er hann að hneyklast á því að fanturinn, hrottinn og geðsjúklingurinn Donald Trump sé af Smára kallaður það sem hann er? Eða er hann svona móðgaður fyrir hönd Guðlaugs? Hvað er málið?
Karvel (IP-tala skráð) 19.8.2017 kl. 14:46
Hvað á þessi pírati við með þeirri aðdróttun að Trump hafi "haldið skjólshendi yfir KKK, nýnasista og ýmsa aðra öfgahópa"? Ruglari er þetta!
Jón Valur Jensson, 19.8.2017 kl. 16:28
Farvel Karvel, þú ert jafnvel enn gáfaðri en Smári.
Jón Valur, það er ekki hægt að ætlast til þess að heilbrigt fólk skilji svona lið.
Halldór Jónsson, 19.8.2017 kl. 18:13
Eitt athuga þessir gáfuðu kommatittir þegar þeir spá í Trump:
Donald Trump fékk 45 prósent atkvæða og vann með þeim 41 fylki. Sá næsti, Ted Cruz, fékk 25 prósent atkvæðanna og vann með þeim 11 fylki.
Ted Cruz mælti svo með Trump er hann dró sig til baka. Restin dreifðist á fimm aðra frambjóðendur flokksins sem unnu samanlagt með henni þrjú fylki og þrír þeirra mæltu með Trump.
Enginn frambjóðandi lýðveldisflokksins frá því að prófkjör hófust, hefur tærnar þar sem Trump hefur hælana í almennum stuðningi til forsetaframboðs á vegum lýðveldisflokksins. Enginn!
Hvernig stendur á því að íslenskir píratar ná ekki í gegn þarna vestanhafs í því að afhjúpa mistök kjósenda í USA? Svona gáfað fólk er þess umkomið að hafa vit fyrir milljón sinnum fleira fólki.
Halldór Jónsson, 19.8.2017 kl. 20:39
Mjög gott innlegg og upplýsingar, Halldór!
Jón Valur Jensson, 20.8.2017 kl. 09:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.