Leita í fréttum mbl.is

Opnum landamærin!

segir góða fólkið. 

Frændi minn Guðmundur Andri Thorsson skrifa í Fréttablaðið í dag um nauðsyn þess að opna landamæti Íslands fyrir neyð heimsins. Hann segir svo í niðurlagi greinar sinnar:

"... Fólk sem sér vegalaus börn sem hingað berast – og telur hugsanlega ógn sem kann að stafa frá einhverjum hugsanlegum óprúttnum aðilum eiga að ráða málsmeðferð okkar þegar kemur að vanda þessara barna – það lokar augunum fyrir því að við erum ekki að uppfylla þarfir þessara barna, eins og okkur ber.

Það lokar augunum fyrir því að þó að börn séu send eitthvað annað þá hætta þau ekki að vera til. Neyð þeirra hverfur ekki. En hún gæti minnkað nytu þessi börn skjóls hér á landi.

Börn á flótta eru í senn sérlega aðkallandi vandi og óþægilegur að horfast í augu við. Þau eru milljónum saman um allan heim á vergangi, ýmist með fjölskyldum sínum eða hafa orðið viðskila við þær. Þau hrekjast úr einum stað í annan og fá ekki það skjól sem þau þurfa og eiga heimtingu á, samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og samkvæmt því sem umönnunarhvötin býður okkur að veita. Mörg börn eru fædd í flóttamannabúðum og þar með ríkisfangslaus, réttindalaus, eins og það sé sérstaklega refsivert að fæðast í svo ömurlegum aðstæðum.

Stundum er talað um að við getum ekki bjargað heiminum, við hér. Á móti mætti spyrja: Hver annar ætti að gera það en við?"

Þá vitum við hver stefna Samfylkingarinnar er í málefnum Íslands. Þann flokk fyllir með Guðmundi Andra meðal annars Helga Vala Helgadóttir atvinnuhjálpari hælisleitenda hjá Rauða Krossinum sem er komin í framboð fyrir þann flokk.

Nógu mikla samúð. Nógu margar hælisleitendafjölskyldur með börn til Íslands er það sem þetta fólk vill fá til landsins þar sem íslenskir hjartasjúklingar liggja úti í tjöldum í görðum nágranna með sín börn. Er ekki Alþingi nýbuið að auglýsa eftir slíku um víða veröld? Hversu mikið verður nógu mikið?

Opnum landamærin er stefna Samfylkingarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er löngu hættur að lesa þessar greinar hans í Fréttablaðinu, því meðan ég las þetta rusl eftir hann blöskraði mér svo ruglið og kjaftæðið sem hann sendi frá sér.  Og eftir því sem þú skrifar, versnar það bara ef eitthvað er.

Jóhann Elíasson, 2.10.2017 kl. 11:47

2 identicon

Hér eru kristin og kærleiksrík viðhorf sjálfstæðismanna til barna í hávegum höfð. Eða þannig.

Karvel (IP-tala skráð) 2.10.2017 kl. 12:51

3 Smámynd: Íslenska þjóðfylkingin

Þakkir til þín, Halldór, að vekja athygli á þessu. En vanhugsandi og vegvilltir vinstri flokkar í framboði eru allir í þessari súpu sinni, eins og hér sést: Ótvíræðar upplýsingar um stefnu vinstri flokkanna í innflytjendamálum sýna hve óábyrg hún er!

B.kv. -JVJ.

Íslenska þjóðfylkingin, 2.10.2017 kl. 13:31

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég segi sama og Jóhann og aftur Kjósum ekki Flóttamanna flokkanna.

Valdimar Samúelsson, 2.10.2017 kl. 16:54

5 identicon

Mér finnst ég þurfa að sýna vegbréfið mitt margoft áður en ég kemst inn á hótelherbergi erlendis.

Hvernig fara þessi fylgdarlausu börn að því að kaupa flugmiða og komast hingað skilríkjalaus?

Borgari (IP-tala skráð) 2.10.2017 kl. 16:59

6 identicon

Stór hluti flóttabarna í evrópu eru reyndar karlmenn á þrítugsaldri.

Hér fyrir neðan birtist blaðagrein og myndir af nokkrum dæmigerðum flóttabörnum.

http://www.dailymail.co.uk/news/article-3854888/Charity-FALSELY-claims-38-year-old-child-asylum-seeker-actually-interpreter-one-migrant-Calais-confesses-course-majority-lie-age-UK.html

http://www.dailymail.co.uk/news/article-3422000/Just-old-think-migrant-children-Alarming-pictures-shed-light-growing-scandal-amid-asylum-crisis.html

sigurður (IP-tala skráð) 2.10.2017 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband