2.10.2017 | 22:34
Aðeins góður gæji
með byssu getur stöðvað vondan gæja með byssu. Sýndi sig í Las Vegas og víðar. Morðingar með ásetning finna sér alltaf leiðir til drepa saklaust fólk.
Hysterískar vinstri kellingar komu veg fyrir það í gæsku sinni að íslensk lögregla mætti þiggja hundrað góðar hríðskotabyssur að gjöf. Þeirra aðstaða er þar með verri fyrir bragðið ef til stykkisins kemur.Og þessar kellingar hafa hugsunarlaust stefnt þessum góðu gæjum okkar í stórhættu með sínu atferli.
Fíflarí þessa fólks er með endemum og sorglegt að horfa á hvernig þetta gat gerst. Getur sett okkar fólk í stórhættu vegna vanbúnaðar. Vonandi eru Thompsonarnir frá Agnars-tímanum ennþá smurðir og tilbúnir.
Þetta góða fólk byrjar alltaf að bulla um að taka byssur af heiðarlegu fólki þegar svona hræðilegir atburðir gerast.
Sjáið gengin í Kaupmannahöfn? Eru þau kannski með byssuleyfi þegar þau skjóta vikulega á hvert annað? Eða hælisleitendurnir í Malmö? Maður var myrtur með sporjárni hundrað metra frá þeim stað þar sem ég svaf á mitt græna.Á kannski að innkalla öll sporjárn? Fleiri en einn maður hafa verið drepnir með skærum og jafnvel endurtekið af sama drápara hér á Íslandi. Hnífar eru úti um allt. Illskan ríður ekki við einteyming hvar sem er í veröldinni.Hún beinist alltaf að þeim saklausu en ekki illmennunum sem eru svo yfirleitt meðhöndlaðir með silkihönskum og félagslegum skilningi.
Almenningur er yfirleitt varnarlaus. Því miður. Vopn er yfirleitt auðvelt fyrir brjálæðinga að útvega. Hversu vondur er vondi gæjinn og hvað er góði gæjinn langt undan þegar ógæfan dynur yfir?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:36 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Þakka þér pistilinn, hressilega orðaðan og ekki að ósekju.
Réttnefni finnurðu á þetta vitlausa, raga vinstra lið sem kom í veg fyrir að LHG og lögreglan fengju að þiggja vopnagjöf Norðmanna. Svei þessum vitleysingum sem tefla öryggi okkar lagavarða í hættu og saklausum um leið.
En um meðferð byssumála tel ég lágmark, að Bandaríkin taki upp samhæfða allsherjarskráningu skotvopnaeignar sem sjálfkrafa hringi viðvörunarbjöllum þegar einhver eignast of mörg vopn og sérstaklega hin mikilvirku hágæðavopn sem geta grandað tugum manna á hálfri mínútu. Bezt væri að vopnasala hjá skráðum seljendum gæti einfaldlega ekki átt sér stað í slíkum tilvikum. En auðvitað er alltaf hægt að fara fram hjá reglum og láta aðra annast vopnakaupin. Þá er líka til sú leið að banna sölu hættulegustu og mikilvirkustu drápsvopna til almennings, þótt notuð séu í styrjöldum.
Jón Valur Jensson, 2.10.2017 kl. 23:44
Lögreglan kemur alltaf eftir korter. Eins og kaninn segir: "when seconds count, the police are only minutes away."
Annars myndi engu máli skifta þó hægt væri með göldrum að fjarlægja öll skotvopn af yfirborði jarðar, eins og dæmi sýna:
https://4.bp.blogspot.com/-0XLK974Yhmk/V4qWRKX-KaI/AAAAAAAALuw/Eg631f0K_mc9jy0xrXLl5xf2wQX1Cqi6wCLcB/s1600/Nicetruck.png
Ásgrímur Hartmannsson, 3.10.2017 kl. 00:04
Þvílíkt rugl. Löggan fann manninn ekki fyrr en eftir 70 mínútur, þegar hann var búinn að gera sitt.
Snæbjörn Björnsson Birnir (IP-tala skráð) 3.10.2017 kl. 00:08
Tölurnar tala sínu máli: Ástralíumenn, Kanadamenn og Bandaríkjamenn eru allar landnemaþjóðir, en byssueign Bandaríkjamanna og byssumorð eru miklu meiri en Kanadamanna og Ástralíumanna.
Ómar Ragnarsson, 3.10.2017 kl. 00:22
Margar ástæður fyrir því Ómar, hærra hlutfall svartra og minni félagsleg aðstoð eimstæðra mæðra en fjöldi þeirra er meiri meðal þeirra til dæmis. Byssueign held ég að sé neiri neðal Kanadamanna, Noregi og gott ef ekki Íslandi en í USA.
Halldór Jónsson, 3.10.2017 kl. 07:56
Flestir svona fjöldamorðingjar mundu flokkast sem "góður gæji". Þeir eru ekki á sakaskrá og hafa enga ofbeldissögu. Auk þess sem flest dauðsföll af völdum skotvopna verða vegna voðaskota þegar "góðir gæjar" skjóta óvart vini og vandamenn. Í Bandaríkjunum eru vopn í höndum glæpamanna minna vandamál en vopn í höndum alls almennings.
Gústi (IP-tala skráð) 3.10.2017 kl. 08:46
Dellan í þér....
Samkvæmt fréttum þá var morðinginn sjálfur álitinn góði gæjinn alveg þar til að hann byrjaði að drepa saklaust fólk.
Og ENGIN af þeim sem hann skaut hefði getað drepið hann eða varið sig þó það hefði verið vopnað.
Snorri (IP-tala skráð) 3.10.2017 kl. 09:00
Halldór,
hefðu sem sé tónleikagestir átt að mæta vonpaðir á tónleikana? Ertu að mælast til almennt að Bandaríkjamenn vopnist enn frekar, og beri vopn sín með sér alla daga?
Og átti svo einhver að reyna að skjóta á byssumanninn sem stóð upp á svölum á 32. hæð?
Skeggi Skaftason, 3.10.2017 kl. 09:54
Sæll Halldór
Það er engan veginn sannfærandi orðræða að gera vandamálið að lausninni.
Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 3.10.2017 kl. 14:00
Góðir gæjar með byssu hafa aldrei komið í veg fyrir fjöldamorð. Þeir hafa aldrei stöðvað fjöldamorð fyrr en allt of seint. Það eina sem dugir er að það verði sett algert bann við árásarriflum og hálf sjálfvirkum vopnum í BNA.
Gissur Örn, 3.10.2017 kl. 15:18
Verður meiri vandi fyrir þá drápssjúku að útvega sér "byssu" heldur en þá dópsjúku.Það myndast þá sölumenn og svart/kapítal,ó mamma!
Helga Kristjánsdóttir, 3.10.2017 kl. 17:12
"Góðir gæjar með byssu hafa aldrei komið í veg fyrir fjöldamorð. Þeir hafa aldrei stöðvað fjöldamorð fyrr en allt of seint."
Jú víst - þegar þeir stöðva það þá heitir það bara ekki fjöldamorð. Vegna þess að *þeir stöðva það.*
"Tölurnar tala sínu máli: Ástralíumenn, Kanadamenn og Bandaríkjamenn eru allar landnemaþjóðir, en byssueign Bandaríkjamanna og byssumorð eru miklu meiri en Kanadamanna og Ástralíumanna. "
Þetta þarf að fara yfir: hér er því haldið fram að Kanadamenn, Ástralir og Bandaríkjamenn eigi að vera eins byggt á því að þeir séu "landnemar."
Þýðir það að menningin eigi að vera eins hjá þeim?
Nú eru allar þjóðir Ameríku, bæði norður og suður (og mið) landnemaþjóðir.
Ætti ástandi í Brazlíu þá ekki að vera sambærilegt USA? Eða Kanada og Ástarlíu?
Hugsið með heilnaum, fólk. Ekki einhverjum innyflum.
Ásgrímur Hartmannsson, 3.10.2017 kl. 20:08
Er sauðþrá þó getgátur taki á sig einfaldar myndir,læt ég það flakka. BNA er "höfðinginn" í heiminum og nutu þess lengi að vera fyrirmyndar,þjóð í öllu. Bestir í vísindum, íþróttum,kvikmyndagerð,tónlist og sterkastir í geimskotum með könnunarhnetti,hvernig var máltækið?;Þegar BNA hnerrar hrekkur Evrópa við (skáldað).Gleymdist lífsleiknin í skólunum þar sem ofbeldi hafa verið tíð og vinum fækkaði í heiminum WHY?
Helga Kristjánsdóttir, 3.10.2017 kl. 21:59
Byssueign er síst minni en í USA í Noregi, jafnvel Íslandi, eða Noregi. Það er meiri s´+osíall í Kanda en USA. Ég hef ekkert garatí fyrir því að þú verðir ekki vitlaus Ásgrímur og farir að skjóta frekaer en þessi kall í Vegas. Það er ekkert gefið.
Vomndi gæinn skaut sig ekki fyrr en hringurinn a'ð honum var að lokast.Hann vissi að hann yrði ekki settur á.
Svona atburtðit munu alltaf gerst. það er ekki hægt að setja þær reglur að vitleysingar komist ekki yfir vopn. Þessi gæi hefði allstaðar fengi byssuleyfi. Það vissi bara enginn að hann væri að verða vitlaus. Og það veit enginn hver verður vitlaus næst.
Halldór Jónsson, 3.10.2017 kl. 22:01
Svona atburtðit munu alltaf gerst. það er ekki hægt að setja þær reglur að vitleysingar komist ekki yfir vopn. Þessi gæi hefði allstaðar fengi byssuleyfi. Það vissi bara enginn að hann væri að verða vitlaus. Og það veit enginn hver verður vitlaus næst.
En þegar þú verður vitlaus Halldór Jónsson og ákveður að fara út og drepa fólk, þá er andskoti erfitt fyrir þig Halldór hér á Íslandi að koma þér upp vopnabúri með fullkomnum og öflugum langdrægum hríðskotabyssum.
Skeggi Skaftason, 3.10.2017 kl. 22:20
Bandarískir vopnaframleiðendur skila ávallt hagnaði. Ef ekki í styrjöldum, þá í drápum á samborgurum sínum. Rockefellarnir græða ávallt, hver svo sem heldur á byssunni.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 4.10.2017 kl. 03:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.