Leita í fréttum mbl.is

5 % þröskuldurinn er of lágur

til þess að komast inn á Alþingi.

það yrði allt annað yfirbragð á Alþingi Íslendinga ef þröskuldurinn inn á þingið yrði 7 % en ekki 5 %.

Það myndi fækka í larfahópnum sem dregur þingsvipinn niður og stuðlar á menningarlausri framkomu  innanhúss. Bara það að þingmenn væru vel klæddir eins og menn myndi hjálpa úr lágmenningunni sem þar ríkir. Og fækka í hópi þeirra lélegustu  sem þar ríða húsum og eru oftar afurðir litlu flokkanna. Sem voru til sýnis í síðustu ríkisstjórn.

Einmenningskjördæmi væru líka leið til að hafa meira af vitibornu fólki á Alþingi.En það er líklega ekki stemning fyrir því hér á landi.

Ríkisframfærsla stjórnmálaflokkanna er annað slys. Alvöru flokkum  er ekki vorkunn að lifa eða deyja á eigin aflafé og frjálsum framlögum.  Það var slys að Sjálfstæðisflokkurinn skyldi gangast inn á það með litlu ljótu klíkuflokkunum að ríkisvæða reksturinn.Ef þeir væru á eigin vegum myndi óþarfa framboðunum fækka og spillingin minnka.

En 5 %  þröskuldurinn inn á Alþingi er líka of lágur og hækkun hans í 7 % myndi laga ástandið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég hlustaði á formann Alþýðufylkingar viðkunnanlegur hann Þorvaldur og laus við skrum. kannski verður hann með okkur og Miðflokknum,jú hann vill gera hlutina vel,er að sofna bíð góða nótt.

Helga Kristjánsdóttir, 4.10.2017 kl. 01:34

2 identicon

Þú hefur lög að mæla sem oftar Halldór.  Það er greiniglegt að hugur þinn leitar til fyrri tíðar, þegar þingmenn voru snyritlegir í klæðaburði og höfðu yfirbragð virðuleika, virðuleika sem að sjálfsögðu færðist yfir alþingi í heild.Ef smáflokkaþingnennirnir settir á vog kæmi í ljós að vægi þeirra væru létt.  Vonandi er  Helga vel vöknuð og getur farið að líta yfir stjórnmálaferilinn.

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 4.10.2017 kl. 13:31

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Alveg rétt Eddi, það veltur allt á mér!

Helga Kristjánsdóttir, 4.10.2017 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 3420880

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband