Leita í fréttum mbl.is

1984 Orwells í boði V.G., Pírata og Samfylkingar.

er í raun það sem þessir flokkar eru að bjóða okkur í kosningunum komandi.

Svo mælir Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar:

" „Samneyslan skapar flestum landsmönnum frelsi. Hún tryggir stærstum hluta almennings áhyggjulítið og innihaldsríkt líf. Við gætum þó með sanngjarnara skattkerfi gert enn betur. Hægt væri að tryggja öllum betri skólagöngu, ódýrari heilbrigðisþjónustu, áhyggjulaust ævikvöld og margvísleg önnur lífsgæði.

Skattgreiðslur eru skynsamlegasta fjárfesting langflestra Íslendinga á ævinni. Í samneyslunni birtist það fallegasta í mannlífinu; samkennd og samhjálp. […] Við þurfum líka fóður fyrir andann. Því verða stjórnvöld líka að hafa metnað fyrir hönd íþrótta, menningar og lista. Ekki líta á þær sem einhvern lúxusvarning eða afgangsstærð.“

Smári McCarthy líkir öllum eignum þjóðfélagsins við hlaðborð sem bara megi moka af. Allt sem þjóðin á eða eignast nokkru sinni er fyrir stjórnmálamenn að moka af í sín hugðarefni.Einstaklingurinn fær aðeins þær ruður sem af kunna að ganga. Það er ríkið sem á allt og allt sem af gengur eru bara ónýttir skattstofnar og tekjur sem ríkið afsalar sér.

Katrín Jakobsdóttir ætlar að taka 70 milljörðum meira til ríkisins en nú er gert. Enginn venjulegur gjaldandi á að borga. Hún svarar hinsvegar ekki spurningum Bjarna Benediktssonar um það hverjir eigi að borga ef allur tekjuskattur allra fyrirtækja landsins nemi nú þegar sömu upphæð. Hvaðan á tvöföldunin að koma?

Ríkið og stóri bróðir á allt. Einstaklingurinn á ekki neitt. Þannig hugsa þessir flokkar í grunninn.

Þetta er hið fyrirheitna ríki Vinstri Grænna,Samfylkingarinnar og Pírata.

1984 Orwells á leið til Íslands 2017.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Bjarni upplýsti ekki um það hve mikla skatta einstaklingarnir borga samanlagt. 

Katrín sundurliðaði heldur ekki sína skttamilljarða, hvaðan þeir ættu að koma. 

Enginn spyr um neitt sem þarf að svara og síðan halda menn áfram karpi án vitneskju. 

Ómar Ragnarsson, 14.10.2017 kl. 13:27

2 identicon

Nú er pólitíkst siðferði komið á algjörlega nýtt plan:

Þegar formaður samfylkingarinnar er farinn sð dreifa nektatmyndum af sjálfum sér um heimsbygðina, væntanlega sér og flokknum til framdráttar, í komsndi kostningum á Íslandi. Veit hreint ekki hvað á að kalla þetta, vanþroski, heimska, hálvitagangur, eða mikilmenskubrjálæði, læt öðrum um að fynna út úr því.  Hélt að formanninum og Samfylkingunni væri hollara að nota kraftana í eitthvað annað en þennan fíflagang, samfylkingin var á vaktinni þegar allt hrundi á íslandi, og brást algjörlega skyldum sínum gagnvart þjóðinni á þeirri vagt, tóku síðan við landstjórninni eftir HRUN ásamt Steigrími og co. og létu bera 9000 fjölskyldur út úr íbúðum sínum, margar hverjar vegna ólöglegra gengistryggðra lána, og fjölskyldurnar höfðu ekki fjárhag til að berjast, þegar þær voru búnar að missa atvinnuna. Miklu hefði mátt bjarga hjá þessum fjölskyldum ef vísitalan hefði verið tekin úr sambandi í 1-2 ár eða sett efri mörk á hana, en þessir kjánar gerðu það ekki, en í þess stað létu þau reisa skjaldborg um bankakerfið í þökk vogunarsjóða.   Síðan ætlar þjóðin að kjósa þessa kjána til að stjórna landinu næstu 4 árin.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 14.10.2017 kl. 14:18

3 identicon

Halldór þú setur þetta í gott samhengi.

Samfylkingin og Vintri Græn eru ávísun á kalt og hráslagslegt vor hérna út á Nesi. Ríkisbáknið hefur þanist út og hvergi á byggðu bóli eru fleiri starfsmenn í þjónustu hins opinbera miðað við höfðatölu en hér á Íslandinu góða.

Við sem stöndum í eigin rekstri og eigum í viðskiptum við hið opinbera þekkjum það hvernig sparnaður og ráðdeild skipta máli. Það er sorglegt að það talar engin flokkur í hagræðingu í rekstri hins opinbera til þess að spara fjármuni. Sérfræðingarnir á ríkisspenanum vinna margir hjá ríkinu á fyrri part dags og svo eftir hádegi eru þeir að sýsla með eignasöfn svona eins og í Lindarhvoli. 

Blaða- og fréttamenn ef svo má kalla láta formann VG komast upp með það að segja að laun upp á 25 milljónir skuli skattlögð sérstaklega. Þetta er náttúrulega grín og hefur litla þýðingu fyrir heildarmynd ríkissjóðs. Eðlilegra hefði verið að Katrín byrjaði að skattlegja tekjur eins og hennar upp á 12 til 15 milljónir með hærri sköttum og síðan má ekki gleyma óhóflegum lífeyrissjóðsgreislum til þingmanna. Maður fyllist reiði þegar að þingmenn geta eignast 300 milljónir í lífeyrissjóð eftir að hafa þjónað fólkinu í landinu. Þetta fólk talar ekki um eigin gæðinga né sínar eigin sporslur.

Mann brestur orð og getu til þess að tjá sig um þessi mál þegar að fréttamenn geta ekki gengið harðar fram og bent á augljósalega vankanta á lífeyri þingmanna og svo almennings í þessu landi. 

Svo geta menn náttúrulega bara gengið í hlaðborðið....maður fyllist viðurstyggð á slíkum ummælum. Hvorki Gvenur á Eyrinni né almenningur í þessu landi gat gengið í hlaðborð og veislurnar sem þetta fólk skammtar hinum. Stjórnmál er leikhús fáránleikans og maður þarf að borga fyrir þrátt fyrir það að vilja ekki fara á sýninguna eins og dæmið um RÚV sannar.

Lifðu heill Halldór...sannleikurinn er alltaf sagna bestur.

Guðmundur (IP-tala skráð) 14.10.2017 kl. 17:17

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Þegar formaður samfylkingarinnar er farinn sð dreifa nektatmyndum af sjálfum sér um heimsbygðina, væntanlega sér og flokknum til framdráttar, í komsndi kostningum á Íslandi. Veit hreint ekki hvað á að kalla þetta, vanþroski, heimska, hálvitagangur, eða mikilmenskubrjálæði, læt öðrum um að fynna út úr því.  Hélt að formanninum og Samfylkingunni væri hollara að nota kraftana í eitthvað annað en þennan fíflagang, 

Þetta er eitthvað sem ég þekki ekki. En Gvöð, ekki hafði ég komið auga á hvað sé svona sexí við ístruna á þessum Loga! Hvar getur maður séð þetta?

Halldór Jónsson, 14.10.2017 kl. 17:48

5 Smámynd: Halldór Jónsson

 Maður er bara hlaðborð sem ráðamenn geta lapið í sig . Mikilfengleg samlíking

Halldór Jónsson, 14.10.2017 kl. 17:50

6 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Hérna geturdu litid dýrdina augum..:)

http://www.visir.is/g/2017171019401/logi-birtir-nektarmynd-af-sjalfum-ser-ungum

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 15.10.2017 kl. 05:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband