Leita í fréttum mbl.is

Einhvern tímann ekki núna?

Er maður ekki orðin leiður á þessu eilífa fjasi um einhverja framtíðarsýn?

Framtíðarsýn fyrir Norðurland

Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra og þingmaður Norðausturkjördæmis, skrifar: Allt of oft snúast stjórnmálin um dægurmál.

Hvað er að því að hafa það gott núna? Af hverju er lífið bara seinna? Ekki núna?

Af hverju má ekki reyna að gera núið bærilegt?

Við fengum að kynnast framtíðarsýn þessa Benedikts Jóhannessonar sem ætlaði að verða framtíðarleiðtogi landsins okkar af því að núverandi voru víst ekki nógu góðir? Stofnaði heilan stjórnmalaflokk sem fékk marga .þingmenn. Hvað svo? Einhverjir settu hann bara af og hann er horfinn úr pólitík. Aumingja kallinn. Maður bara vorkennir honum.

Sama gildir um trommarann góða Óttar Proppé. Hann varð að hafa sig á braut af því að framtíðin lagði a flótta frá honum og hann réði ekki við núið frekar en Benedikt.

Hvað er að núinu eiginlega? á morgun verður maður dauður og hvað gagnar manni þá? Af hverju ekki núna?

Af hverju segja menn alltaf að fjórflokkurinn gamli sé nógúdd? Hvað hefur samt dugað þjóðinni lengst? Hvað hefur dugað lengur en nýju flokkarnir ef ekki gamli skipulagði fjórflokkurinn? Hann hefur þó að minnsta kosti safnað reynslu sem ekki virðist of mikið af meðal þeirra nýju?

Er maður ekki orðinn leiður á einhvern timann seinna? Vill maður bara ekki fá eitthvað núna strax?

 Er nokkuð víst að framtíðin komi til okkar?

Hvað er að því að gera eitthvað akkúrat  NÚNA?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Takk fyrir að túlka þessa sýn eigingirni, græðgi og ábyrgðarleysis gagnvart afkomendum okkar. Þá veit maður það. 

Ómar Ragnarsson, 14.10.2017 kl. 19:58

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Jáhá Ómar

Youll get pie in the sky when you die

Halldór Jónsson, 14.10.2017 kl. 21:04

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Sumir vilja heldur köku núna heldur en á himnum

Halldór Jónsson, 14.10.2017 kl. 21:05

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Hvað er athugavert við það að njóta nútímans; er það hvort sem er ekki slagorð æskunnar?  Af hverju ættum við gamlingjar að hafa vit fyrir henni, væri ekki nær að taka fordæminu? 
Eða eins og kona nokkur skrifaði í pistli fyrir skömmu; forðum var fólki lofuð umbun drottins í "eftirlífinu" og nú er því lofuð umbun kerfisins - hefur nokkuð breyst? 

Kolbrún Hilmars, 14.10.2017 kl. 21:29

5 Smámynd: Réttsýni

Halldór, þú ert að borða þá köku núna sem aðrir bjuggu til í fortíðinni. Í staðinn er það skylda þín að reyna að búa til enn betri köku fyrir þá sem ganga lífsveginn á eftir þér. Ef þú borðar þá köku sjálfur líka þá ertu að gera líf afkomenda þinna verra en það var á þinni lífsgöngu. Það kallast eigingirni. Auk þess fitnarðu bara enn meira á öllu þessu kökuáti og endar eins og svínin í sögunni eftir Orwell. En kannski er það einmitt hugmyndin hjá þér? Þú ert jú í Sjálfstæðisflokknum.

Réttsýni, 14.10.2017 kl. 21:34

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Er,ða nú stéttrýni!

Helga Kristjánsdóttir, 15.10.2017 kl. 02:18

7 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

"Einhvern tímann aftur, 

liggur leið mín um veginn með þér"

 Núna er ekki núið.

 Gleymum ekki börnunum okar, nafni.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 15.10.2017 kl. 05:48

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Nafni minn að sunnan, það vill enginn skilja það að ef við höfum það sem best núna þá þýðir það ekkert endillega að við séum að ganga á höfuðstólinn heldur að við séum að gera allt sem best núnaþ Ekkert að borga auðlegðarskatt svo Steingrímur geti gert einhver góðverk fyrir sérvalin atkvæði sín eins í krimg um Gunnarsttaði eða keypt Feneyjatvíæringa, borgað fyrir lífdísilblöndun í eldsneytið sem gerir erfiðara fyrir einstæðar mæður að keyra börnin sín á  leikskóla eða hvað þessum vinstri vitleysingum dettur ekki í hug.

Halldór Jónsson, 15.10.2017 kl. 10:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband