Leita í fréttum mbl.is

Hversvegna NY Times hatar Trump

skýrist af Gunnari Rögnvaldssyni:

"Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

 

NYT NYSE Net Income

Mynd: nettó-árstekjur New York Times (merki: NYT á NYSE)

Þar sem að til dæmis ritstjórn Wall Street Journal skrifar í leiðara sínum að þeir myndu ekki birta svona eðlis efni nafnlaust, og svo þegar afkoma New York Times er skoðuð, þá má alveg eins gera ráð fyrir því að þessi svo kallaði leki sé uppspuni frá rótum. Tekjur New York Times blaðsins hrundu -84,92 prósent á milli síðustu ársuppgjöra og eru nánast engar í dag, eins og sést á grafinu.

Mexíkanskur milljarðamæringur er stærsti einstaki hluthafinn í New York Times. Hann á rúm 17 prósent af blaðinu og kýs stjórnarmeðlimi. Í ritstjórn blaðsins situr blaðamaður sem óskar þess að hvítt fólk hætti að eignast börn og deyi út.

Líklegt má telja að blaðið hafi hagnast á framboðsbaráttu Trumps sem hann tilkynnti um í júní 2015, en svo þegar fréttamennska blaðsins varð þeim lesendum sem ekki eru Trump-hatarar ljós, þá falla tekjurnar hrikalega þegar þeir segja áskriftinni upp. Og það er þá sem blaðið neyðist til að biðjast afsökunar á framferði sínu í kosningabaráttunni, eins og Trump bendir á í myndbandinu hér að ofan.

Gunnar Rögnvaldsson, 7.9.2018 kl. 12:51

Ekki furða þó sósíalistum sé illa við billjónara á forsetastóli  sem er sama um kaupið sitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af Wikipedia

On January 20, 2009, The New York Times reported that its parent company, The New York Times Company, had reached an agreement to borrow $250 million from Carlos Slim, a Mexican billionaire "to help the newspaper company finance its businesses".[28] The New York Times Company later repaid that loan ahead of schedule.[29] Since then, Slim has bought large quantities of the company's Class A shares, which are available for purchase by the public and offer less control over the company than Class B shares, which are privately held.[29] Slim's investments in the company included large purchases of Class A shares in 2011, when he increased his stake in the company to 8.1% of Class A shares,[30] and again in 2015, when he exercised stock options—acquired as part of a repayment plan on the 2009 loan—to purchase 15.9 million Class A shares, making him the largest shareholder.[29][31] As of March 7, 2016, Slim owned 17.4% of the company's Class A shares, according to annual filings submitted by the company.[32][33][34]

Although Slim is the largest shareholder in the company, his investment does not give him the ability to control the newspaper, as his stake allows him to vote only for Class A directors, who compose just a third of the company's board.[29] According to the company's 2016 annual filings, Slim did not own any of the company's Class B shares.[32]

Jón (IP-tala skráð) 7.9.2018 kl. 15:18

2 identicon

Trump er hættulegur bandarísku þjóðinni. Þetta er því allt mjög trúlegt sem kemur fram í þessari grein og bók Woodward.

Ritstjórar NYT vita hver höfundur greinarinnar er og telja hann mjög trúverðugan. Woodward nýtur einnig mjög mikils trausts en hann hefur skrifað bækur um marga Bandaríkjaforseta.

Það er alveg ljóst að ekki var hægt að birta þessa grein undir nafni vegna þess að höfundurinn hefði þá misst vinnuna. NYT nýtur mikils trausts svo að ég held að þetta skipti ekki máli fyrir flesta.

Ásmundur (IP-tala skráð) 7.9.2018 kl. 17:37

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Eru nýjustu niðrunarpistlar um Trump forseta á mbl.is skrifaðir af óvönum sumarafleysingamönnum?

Þora fjölmiðlamenn ekki að andæfa rógsherferð Rúv?

Jón Valur Jensson, 7.9.2018 kl. 17:45

4 identicon

Það er svolítið merkilegt að vinstimönnum á Íslandi skuli verða brátt í brók, þegar elítan í Bandaríkjunum missir völdin.

Hvað veldur?

Hilmar (IP-tala skráð) 7.9.2018 kl. 18:51

5 Smámynd: Örn Einar Hansen

Vandamálið er, að Dóni Trump og George Soros eru "two peas in a pod".  Ef ekki hefði verið fyrir svikferli, misferli og annað í Bandaríkjunum og Evrópu, hefðu þessir menn aldrei orðið ríkir. George Soros, varð ríkur, meðal annars á því að setja Svíþjóð á hausinn. Maðurinn er glæpamaður, og þarf enga spámensku þar til ... hann er sekur um fjárglæpi, svo því nái engin mörk. Dóni Trump, er ekkert ólíkur náungi.

Þó svo að Dóni Trump segi það sem rétt er, er hann maður sem aðeins hugsar um eigin hag, eins og George Soros.  Hvað sem hann hefur í höndum sér, á maður að efast um ... þvi það er af öllum líkindum eitrað.

Þessir tveir menn, eru á sitt hvorri hlið "spillingar" vesturlanda, en hvernig eigum við að berjast gegn þessari spillingu?

Örn Einar Hansen, 7.9.2018 kl. 20:28

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Í greininni 

Er Trump að skila sínu?

á Mbl.is 29. júlí sl. eftir Sigurð Má Jónsson viðskiptablaðamann (https://www.mbl.is/vidskipti/pistlar/sigurdurmar/2220741/) segir m.a.:

"Efna­hag­ur Banda­ríkj­anna óx um 4,1% á öðrum fjórðungi þessa árs, end­ur­reiknað miðað við árs­grund­völl, og hef­ur ekki vaxið hraðar síðan í þriðja ársfjórðungi 2014. Vöxt­ur­inn er knú­inn áfram af aukinni einka­neyslu, fjár­fest­ing­um í viðskipt­um og óvæntri aukn­ingu í út­flutn­ingi. Þetta er auðvitað til að gleðja Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta sem segir vöxt­inn hvorki meira né minna en stór­kost­leg­an og að hann sé til sönn­un­ar um að stefna rík­is­stjórn­ar­inn­ar sé að virka. Trump hafði lofað 4% hagvexti og getur nú sagst hafa staðið við það. Auðvitað er ástæða til að vara við oftúlkun á tölunum en þetta eru ánægjuleg tíðindi fyrir Bandaríkjamenn og ekki síður heimsbyggðina sem á yfirleitt mikið undir því hvernig gengur í þessari háborg kapítalismans.trump

Þrátt fyrir misjafna umfjöllun um Trump í heimspressunni þá er augljóslega margt í bandarísku efnahagslífi að þróast á jákvæðan máta. Atvinnuleysi er nú í lægsta gildi síðustu 18 ára en ekki skiptir síður máli að starfandi fjölgar hratt. Pantanir streyma inn til fyrirtækja og útflutningur eykst umtalsvert. Það hefur ekki verið meiri gangur á efnahagslífinu í 13 ár skrifa bandarískir fréttaskýrendur."

Svo talar hér einhver Ásmundur föðurlausi um að Trump sé "hættulegur bandarísku þjóðinni"!!!

Er ekki málið, að Trump er einfaldlega magapína vanhæfra vinstri manna í fréttamannastétt og á pólitískum vettvangi?

Trump fekk m.a. atkvæði margra vegna andstöðu sinnar við stríðsrekstur Obama og Hillary í Sýrlandi og Lýbíu. Trump er maður sem efnir sín kosningaloforð í meira mæli en þekkt er meðal vinstri manna -- jafnvel loforð um að standa með lífsrétti ófæddra barna, en það er siðlausum líberölum og vinstra pakki gersamlega fyrirmunað.

Engin furða að Boston Globe og NYT, Guardian og BBC og hermikrákan Fréttastofa Rúv eru á fullu í rógsherferð gegn manninum.

Jón Valur Jensson, 8.9.2018 kl. 01:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband