Leita í fréttum mbl.is

Bréf frá Gísla

hef ég enn fengið. Það er að vanda snarpt og snöfurmannlegt.

Ég held að viðhorf Gísla Holgeirssonar það spegli samt viðhorf margra eldri þjóðernissinnaðra Íslendinga á þessari öld tískuumræðunnar og síbylju um jafnrétti kynjanna og vandamál kynbundins ofbeldis sem er farin að yfirskyggja margt annað.

Gefum Gísla orðið:

"Á  ALÞINGI eru þingmenn, sem vinna með hjörð aðstoðarmanna, sem lifa við ofur launahækkanir, sem Kjararáð gaf af skattfé almennings.  

ÍSLAND KALLAR eftir ÞJÓÐERNISSINNUÐUM LEIÐTOGUM, sem berjast fyrir fámenni ÍSLENDINGA.  Þrjúhundruð þúsund ÍSLENDINGAR sækjast EKKI eftir óskum og SKIPUNUM ESB landa varðandi innflutning á erlendu fólki. 

Það er búið að gerbreyta Kristinni Evrópu með stjórnleysi ESB landa.  Höldum þjóðarkosningu á ÍSLANDI um reglufargan ESB, EES og SCHENGEN, sem hefur illa BREITT Landinu OKKAR og kostað okkur miljarða.

Kynnum ÍSLAND að nýju fyrir HEIMINUM, viðskiptavinum okkar: ÓMENGAÐ ÍSLAND og ÓMENGAÐ Blávatnið.  ÓMENGAÐAR afurðir BÆNDA og GRÓÐURHÚSA innan og utandyra ásamt öllu frá SJÁVARÚTVEGI. Landið okkar er vissulega einstakt og Hafið allt um kring. Við eigum sjálfir að KYNNA og SELJA afurðir okkar með úrvals fólki frá okkar einstaka ómengaða Landi hér Norður í höfum.

Kynnum okkur Íslendinga, sem Sæfara, Landnámsmenn, Víkinga og Rithöfunda.  Við eigum að kynna okkur sjálfir fyrir heiminum sem þjóð með „hæstan“ lífaldur, sterkustu menn og konur. 

ÍSLAND er heilagt, hið helga Land, eins og Dr.Adam Rutherford orðaði það í bók sinni um ÍSLAND 1937.  Svipað sagði Dufferin lágvarður fyrir um 160 árum síðan.  Við eigum fullveldi og lýðveldi, sem ber að verja. Ræðum ÖRYGGI, sem við enn eigum og Gestrisni ÍSLENDINGA.

Ræðum styrk 300 þúsund ÍSLENDINGA og gamla tíð.   Glimmer og regnbogalitaðar götur og sífelld þvæla um ÁSTINA og frelsið á öllu sem GALIÐ er - er EKKI það, sem ÍSLAND þarfnast í auglýsingum erlendis.   

Gísli Holgersson."

Það er greinilegt að Gísla líkar ekki allt í samtímanum. Eru einhverjir ekki sammála honum?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gísli Holgersson er drengur góður og vill landi sínu vel, ólíkt vinstri flokkunum og sér í lagi hinum anarkísku, óþjóðlegu pírötum.

Jón Valur Jensson, 2.11.2018 kl. 07:09

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Jón Valur og takk fyrir greinina í Mogga um Kawanough í dag. Vel og drengilega mælt.

Halldór Jónsson, 2.11.2018 kl. 10:17

3 Smámynd: Íslenska þjóðfylkingin

Takk, ágæti Halldór.

Íslenska þjóðfylkingin, 2.11.2018 kl. 11:07

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Obbs, þetta átti að vera í mínu nafni skrifað! (Var enn óútskráður á Þjoðf.bloggi.)

Jón Valur Jensson, 2.11.2018 kl. 11:10

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón Valur þarf ekki önnur flögg en eigið.

Halldór Jónsson, 2.11.2018 kl. 14:04

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

laughing

Jón Valur Jensson, 2.11.2018 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband