Leita í fréttum mbl.is

Óttast ríkisstjórnin endurreisn Klofajökuls?

 

Ef hlýnun lofthjúpsins er vandamál, hvert var vandamálið vegna lofthitans á Íslandi til forna?

Vatnajökull var þá tveir jöklar og hét Klofajökull. Er hætta á að hann klofni aftur vegna hlýnunar andrúmsloftsins?

Óttast ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur endurreisn Klofajökuls og áhrif þess á vegakerfið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Segðu Halldór minn, í versta falli fáum við þennan fína veg

um Klofa. En spurt skal nú einungis um klofin sem ríða röftum

og fyrir hvað skal gjalda klofum og röftum skattana og gjöldin.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.11.2018 kl. 21:36

2 identicon

Sæll Halldór.

Upplýsingar þínar um Klofajökul eru réttar
samkvæmt helstu upplýsingaveitum.

Vatnajökull var langtum minni á 14. öld en hann er nú
og mig grunar að árið 874 hljóti Klofajökull að hafa
verið a.m.k. fjórskiptur en þó öllu heldur margskiptur
og auðveldlega hafi menn gengið þar í milli.

Loftslagsþvoglið rennur vonandi af mönnum fyrr en síðar.

Húsari. (IP-tala skráð) 3.11.2018 kl. 09:27

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég hef enga trú á að Vatnajökull hafa verið tví- eða jafnvel fjórskiptur þrátt fyrir Klofajökulsnafnið, enda skýrir enginn tvo jökla einu nafni. Engar athuganir styðja skiptan jökul um landnám þótt vissulega hafi hann verið minni. Hinsvegar er vitað að það var nánast enginn jökull fyrstu árþúsundin eftir ísöld en síðan fór hann að myndast og var stækkandi frá fyrstu tíð Íslandsbyggðar þar til fyrir aldamótin 1900.

Emil Hannes Valgeirsson, 3.11.2018 kl. 10:56

4 identicon

Sæll Halldór.

Nei, ekki átti ég nú von á að
athuganir styddu eitt né neitt í þessu efni!

Ljóst er af heimildum sem fyrir liggja að
loftslag er allt annað á Íslandi en síðar hefur
orðið og því er margskiptur jökullinn ekki
ólíklegt að hafi verið reyndin.

En hefjum þessa umræðu á hærra plan og með vísan
til heiti þessa pistils má ég til með að vekja
athygli á mynd allra tíma í Fréttablaðinu í dag
frá afhendingu verðlauna til hönnuða.

Húsari. (IP-tala skráð) 3.11.2018 kl. 11:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3420741

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband