22.1.2019 | 16:22
Oxfam
Frétt Guardian
"Auðæfi þeirra 26 ríkustu í heiminum eru svipuð því sem eignir 50% þeirra fátækustu í heiminum, segir í nýrri skýrslu bresku hjálparsamtakanna Oxfam. Samtökin hvetja til þess að lagður verði á 1% auðlegðarskattur og með því væri hægt að tryggja nægjanlegt fé fyrir skólagöngu allra barna sem ekki ganga í skóla í heiminum. Þetta kemur fram í frétt Guardian.
Þar segir að eignir 26 einstaklinga samsvari eignum 3,8 milljarða jarðarbúa. Oxfam gefur skýrsluna út ár hvert áður en heimsviðskiptaráðstefnan hefst í Davos í Sviss. Í skýrslunni nú kemur fram að þeir ríkustu hafi orðið ríkari og þeir fátæku fátækari.
Með því að leggja á 1% auðlegðarskatt væri hægt að safna 418 milljörðum Bandaríkjadala sem nægir til þess að tryggja skólagöngu allra barna í heiminum og heilsugæslu. Það gæti bjargað þremur milljónum frá dauða."
Ekkert væri vitlausara en að dreifa þessum eignum á jarðarbúa. Aðeins samþjöppuð skynsemi þessarra ríku gerir það að verkum að jarðarbúar njóta framfara og hagvaxtar.Ekkert yrði úr þeim ef tómir vitleysingar sem almenningur er upp til hópa fengju of mikið til að sukka með.
Stjórnmálasviptingr eru oft í raun góðar því þær gefa spilin upp á nýtt. New Deal sagði Rossewelt.
Það var gefin stjórnmálaleg skipun um að brjóta upp ESSO Rockefellers. Það var gert en innan fárra ára var hvert brotið orðið stærra en það upphaflega stóra. Þannig virkar kapítalisminn, fyrirtækin vaxa og blómgast.
Frjálshyggjan segir að þau eigi að fá að vaxa og líka það að best sé að sem flestir taki þátt í kapphlaupinu um auð og völd.
Hoover byggði stífluna og hún leiddi af sér vöxt í iðnaði.Roosewelt og Hitler byggðu þjóðvegina sem nýttust fólkinu og iðnaðnum. Alveg eins og Afl fyrir Austurland gerði öllum Austfirðingum gott og er því hvergi nærri lokið.Nýju hátækniverksmiðjurnar á Austfjörðum Eskja osfrv. eru afleiðingar almennra vaxtarskilyrða sem þá mynduðust.
Eitt sinn voru Síldarverksmiðjur Ríkisins helsta stóriðjan. Sveinn Ben lagði þá grunninn að veldi Engeyinganna sem enn varir. En hann var samt bara ríkisstarfsmaður sem stórefnaðist.Varð ríkur á þeirri aðstöðu í pilsfaldakapítalismanum eða þjóðarrekstri að sovéskum stíl.
Alli ríki og ýmsir aðrir stórútgerðarmenn eins og Einar Guðfinnsson voru öðruvísi og hófust af sjálfum sér. Langafabróðir minn Otto Wathne sagði alltaf:"Det kommer nu an på silla."Hann vissi að að það þurfti að afla áður en menn færu að eyða og þannig hugsuðu gömlu kallarnir.
Þetta sem vinstra liðið kallar núna Samfélagssátt er aldrei mikið annað en viðleitni til að draga alla, sem þeir kalla þá lægst launuðu, niður á lægsta plan þar sem allir hafa það jafnskítt. Kapítalisminn hefur hinsvegar séð um að lyfta planinu þannig að þeir verst settu í dag hafa það núna miklu betra en þeir höfðu það áður.
Tæknin og þekkingin og fjármagnið skapa velsældina.Allir mega ekki hafa jafnan aðgang að fjármagni og lágum vöxtum, þá fer allt í vitleysu. Það eru bara þeir sem hafa eitthvað vit í kollinum og framkvæmdavilja sem er treystandi fyrir lánsfé. Þess vegna eru bankastjórar en ekki sjálfsafgreiðslukassar fyrir lán í bönkunum.
Oxfam er á villigötum ef það heldur að almennt heimskir og fátækir jarðarbúar geti gert eitthvað við meiri peninga en sem duga fyrir nauðþurftum og gleymir því að 100x 1 % eru 100%.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:02 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Hoover stíflan var byggð í forsetatíð Roosevelts.
Hilmar Bjarnason (IP-tala skráð) 22.1.2019 kl. 16:59
Afsakið ... dreg þetta til baka. Framkvæmdir stóðu yfir í tíð tveggja forseta. My bad ... eins og unga fólkið segir.
Hilmar Bjarnason (IP-tala skráð) 22.1.2019 kl. 17:01
Ég gef aldrei í safnanir
Ríkisstjórnin sérum að taka mína peninga rúmlega 2 Miljarða á ári og senda þá í þessa spillingaarhít.
Þar að auki þá "gaf" Gulli einhverjar hundruðu miljóna til stríðsherrana í Jemen bara upp úr þurru
Borgari (IP-tala skráð) 22.1.2019 kl. 17:48
Hvers konar ómissandi burðarásar mannkynsins eru þeir, sem ekki þola 1% skatt?
Ómar Ragnarsson, 22.1.2019 kl. 19:25
Það allra skemmtilegasta við Oxfam er að samkvæmt þeim lenda þeir neðstir á listanu sem *skulda.* Skulda umfram eignir, höldum því til haga.
Ef þú átt ekkert, og ert slíkur öreigi að þú getur ekki fengið lán, ert semsagt að svelta nema einhver aumki sig yfir þig, þá ertu *ekki* meðal þeirra 10% fátækustu. Sennilega meðal þeirra 50% ríkustu, reyndar.
Smáa letrið, maður.
Sé ekki hvers vegna við eigum að veita þessum mestu skattborgurum heimsins sér athygli. (Ómar veit greinilega ekki að þeir borga miklu meira en 1% í skatt. Kannski ekki jafn hátt hlutfall og ég grieði, en ég bý líka á islandi. Hér er kerfið hvorki sanngjarnt né heilbrigt.)
Það hefur á hinn bóginn dregið talsvert mikið úr fátækt í heimunum. Sem er svosem ágætt.
Ásgrímur Hartmannsson, 22.1.2019 kl. 20:54
Eru ekki 10% islensku þjóðarinnar eigendur
af öllum hennar verðmætum..???
Þarf ekkert að fara út fyrir landsteinanna til
að sjá annað eins rugl.
Ein ætt ber þó helst á með þessi auðævi,
og foringi fyrir þá ætt, er foringin án flokks.
Sigurður Kristján Hjaltested, 22.1.2019 kl. 21:34
Eru þeir svona mikið skattpíndir nú þegar, þessir 26 einstalklingar. að þeir þoli ekki 1% í viðbót?
Ómar Ragnarsson, 22.1.2019 kl. 21:51
Rétt athugað Halldór,
Veldi Engeyinga byggði á pilsfaldakapítalisma
og gerir svo enn, að auðgast sem kommissarar
freðmýra kommanna og brussel hirðarinnar gera
og allir þingmenn forystunnar fylgja
sem rakkar, ósjálfstæðir og á ríkisframfæri.
Hvílík hryggðarmynd er á þá að líta,
beiningamennina sem þora ekkert að segja,
og hafa aldrei stundað sjálfstæðan rekstur,
nema bóndinn, sem gerist nú varaforseti
svo svala megi hefndarþorsta Steingríms J.
Svo vesæll er þessi flokkur orðinn,
að þingmenn hans eru ekki einungis allir á spena ríkisgyltunnar,
heldur þjónar hann nú allur Steingrími J.
Sjálfstæðisflokkurinn er genginn í VG,
kommagrænn, hlæjandi sem hýenu vesalingur.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.1.2019 kl. 14:16
Ég fékk eftirfarandi athugsaemd frá manni sem ég veit að hefur upplýsingasr um Svein Benediktsson sem ég hef ekki haft nægar þegar ég skrifaði þennan pistil. Sú vanþekking hefur líklega skekkt mat mitt á Sveini og uppruna auðæva hans og Engeyinganna og er það mér ekki til álitsauka. Ég kannaðist við Svein frá Rotaryfundum þar sem hann vakti athygli mína fyrir einarðan málflutning sem mér fannst oft einhliða. En auðvitað nægði það mér ekki til að þekkja mannin neitt eða han feril í æsar.Vissi bara að hann var orðinn stór í Sjóvá.
En þessi máur skrikfar:
"
Núna rak ég augun í eftirfarandi passus í pistli dagsins í dag, 22.01.2019
Halldór Jónsson, 23.1.2019 kl. 14:42
Í umboði hverra var SB stjórnarmaður
í Síldarverksmiðjum Ríkisins?
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.1.2019 kl. 15:27
Síðan segir að
Skálkar hafi stolið tryggingasjóði Sjóvár?
Hvað skálkar voru það?
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.1.2019 kl. 15:30
Svo segist þú þekkja til sögu sem tilskrifandinn yrði varla kátur að heyra, en þú veist að er sönn, því ekki sé hún falleg.
Mér virðist þú ekki þurfa að biðja afsökunar á neinu Halldór. Fremur að þú mættir segja meira, sem sjálfstæður maður sem þorir.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.1.2019 kl. 15:37
Nú veit ég ekki hvernig Oxfam reiknar þetta. En þegar þetta er skoðað hérlendis er ég hræddur um að það verði að taka með í reikninginn eignir lífeyrissjóðanna. Það dugar ekki að undanskilja þær. Lífeyrissjóðirnir eru í tiltölulega jafnri eigu allra launamanna í landinu. Og þeir eiga stóran hluta af fyrirtækjum í landinu.
Þorsteinn Siglaugsson, 23.1.2019 kl. 18:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.