6.5.2019 | 17:56
CO2 dellan íslenska
ríður hér húsum. Við gáfum Skúla Mogensen til dæmis fríar losunarheimildir fyrir þotur WOW sem hann svo seldi fyrir hundruðir milljóna.
Hörður Kristjánsson birtir grein í Bændablaðinu sínu sem er ágætt að vanda.
Hann velur athygli á því að heimslosunin á CO2 jókst í 33.1 Gigatonn af CO2.
Hann er að vísu með líklega of lágar tölur sem eru líklega nær 40 Gigatonnum núna ef ekki meira.
En þegar Íslendingar eru að losa 0.004 Gigatonna eða einn tíunda úr prómille af þessu dýrindi, sem er byggingarefni lífsins á jörðinni og fæða alls gróðursins en ekki eitur, þá er það í besta falli fáránlegt að Íslendingar séu að skattleggja sína minnstu bræður vegna hugljómana olíuhlutabréfagreifans AlGore sem spýr út CO2 í háloftunum aftan úr einkaþotu sinni milli vakningarsamkundanna eins og ráðstefnu hinna fjörtíuþúsund fífla sem hann hélt í Póllandi og fíflaði þar á meðal ríkisstjórn Ísland auk annarra til að dansa eftir pípu fáránleika boðskaparins um hnattræna hlýnun af mannavöldum þar sem sólin er hlutlaus.
Megnið af heimslosuninni stafar af orkuvinnslu- eða orkunýtingarferlum sem eru að framleiða rafmagn úr olíu og gasi.
Draumóramenn heimta ráðstafanir til að gera rafmagnsvinnslu kolefnisfría. Það hefst aldrei með fjölgun vind- og sólarorkuvera einvörðungu sem framleiða nú minna en 10 % af heildarorkunni.Állri viðbótarorkuþörf er mætt með olíu og gasi. Merkel kaupir af Pútín gas um nýja leiðslu og hann kaupir Mercedes af henni. Olíu-og gasvinnsla eykt allstaðar hröðum skrefum nema á Íslandi trúum við engu um slíkt.
Gulli utanríkis neitar að selja Rússum Makrílinn okkar til að refsa þeim fyrir Sevastopol atkvæðagreiðsluna.En þar samþykktu íbúar yfirgnæfandi að verða Rússar en ekki þegnar hins nýja Jóns Gnarr-ígildis Úkraínuforsetans nýja.
Við refsum Rússum að kröfu ESB meðan Merkel gerir það ekki og Frakkar áreiðanlega ekki heldur. Þvílíkir snillingar eru okkar menn alltaf í viðskiptum við Evrópusambandið.
Kjarnorkan verður að koma til skjalanna í orkuvinnslu heimsins ef menn vilja minnka CO2 útblástur eitthvað sem um munar. Verið er að þróa Þóríum- kjarnorkuver með mun minna geislavirkum úrgangi og styttri helmingunartíma geislavirkni hans, sem að auki eru öruggari í rekstri en úraníum-kjarnorkuverin.
Rafbílavæðingin er blekking ein og áróður umhverfisfasistanna og hún skilur eftir sig stærra kolefnispor en bensín-og dísilbílar þegar allt er talið auk barnaþrælkunar í litliumnámunum.
Flöskuhálsar eru margir í framleiðsluferli rafmagnsbíla, og þess vegna verður fyrirsjáanlega að grípa til vetnisrafala í bílum í einhverjum mæli. Verið var að auglýsa einn slíkan rétt i þessu á Íslandi.
Í iðnaðinum stendur yfir mikil þróun til að losna við kolefni úr framleiðsluferlinu. Þar mun vetni gegna lykilhlutverki.
Annars myndast tiltölulega lítið af gróðurhúsalofttegundum við vinnslu áls í heiminum; aðeins um 300 MtCO2eq/ár eða 0,8 % allrar orkutengdrar losunar koltvíildis. En að nota ál í efnarafala í bíla sýnist nú heldur óskynsamlegt. Að breyta rafmagni í ál og svo sama álinu í rafmagn í efnarafala. En við eigum ekki að andskotast út í álverin okkar, þau er tiltölulega lítið mengnandi þó að Austurvallarbörnin haldi það ekki vera svo.
Á Norð-Austur Englandi er hinsvegar þróunarferli hafið, sem snýst um að leysa jarðgasið af hólmi með vetni.
Leeds-borg er sögð hafa forystu um þetta.
Þarna skyldi maður halda að væri markaðstækifæri fyrir Íslendinga, því að talið er, að árið 2020 muni verð vetnis verða minnst 2,50 USD/kg vegna aukinnar eftirspurnar og hærri framleiðslukostnaðar úr jarðgasi, m.a. vegna hækkandi kolefnisgjalda umhverfissinnanna.
Við þetta verð fást kannski 80 USD/MWh virði af rafmagni, en til samanburðar er listaverð Landsvirkjunar núna á forgangsorku einhverjir 50 USD/MWh- án þess að ég hafi allar tölur á hreinu þar sem þær eru á talsvert á reiki og ég ekki heldur sá glöggasti.
Talið er, að núverandi vetnisframleiðsla heimsins muni tífaldast hið minnsta á næstu árum. Hún fer hins vegar nú aðallega fram með vinnslu úr jarðgasi, en þarf auðvitað að verða sjálfbær með rafgreiningu með hreinu rafmagni eins og Íslendingar framleiða.Við gætum flaggað því í sölunni ef við verðum þá ekki búnir að skipta upprunavottorðunum öllum út fyrir kjarnorku og gas.
Heimsframleiðsla á vetni má þannig nema 600 Megatonnum/ár um 2050 án þess að offramleiðsla væri í spilunum.
Ef Íslendingar ákveða að leggja baráttunni við gróðurhúsaáhrifin á erlendri grundu lið með því að virkja t.d. 10 TWh/ár (helmingurinn af núverandi raforkuvinnslu, þriðjungurinn af orkugetu nýtingarflokks Rammaáætlunar) til að knýja vetnisframleiðslu hérlendis og flytja megnið utan samanþjappað á skipum eða bara í gegnn um rör á sjávarbotni með viðkomu í Færeyjum eða Rockall (sem Eykon sagði að við ættum Íslendingar), þá þarf til þess 65 kWh/kg, og hægt verður að framleiða hér 150 kílótonn/ár af H2 (vetni) á flutningstæku formi.
Þetta er ekki stórt brot af áætlaðri markaðsþörf fyrir vetni í Englandi, en ætla mætti að Englendingar myndu kaupa þetta af okkur.
Þetta gæfi kannski útflutningstekjur að upphæð 700 MUSD/ár eða 100 milljarða ISK/ár.
En þetta vill enginn heyra af því að stjórnvöld eru svo upptekin af sæstrengshugmyndinni sem kemur hjá Alþingi eftir O3 hvað sem þeir segja núna annaðmeð fyrirvarana. Og prófessor stefán heyrðistg mér alls ekki vera hættur að efast um að pakkinn fari í bága við Stjórnarskrárskriflið okkar sem er víst á eftir tímanum miðað við Danskinn sem er búinn að útrýma öllum vafa hjá sér.
CO2 dellan íslenska og sólarlausa ríður hinsvegar ekki við einteyming og fer dagversnandi hjá ráðamönnum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:08 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 3419716
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Tek undir þetta Halldór Virkilega góð grein.
Það er svo margt að koma í dagsljósin sem stjórnvöld hafa eki hugmynd um enda er sjálfala warmistar og þekkja ekkert annað en ímindaða vá í ollu. Þeir vita ekki að gróður húsin okkar krefjast minnst 900ppm inni í húsunum og þessu er öllu trukkað í húsin frá AGA. Hvaðan kemur það???. Já hvaðan kemur CO2 sem fer í Gróðurhúsin.???
Valdimar Samúelsson, 6.5.2019 kl. 22:28
Blessaður Halldór.
Við erum ekki alltaf sammála um allt sem viðkemur þessu blessaða koldíoxið sem Loftur heitinn Þorsteinsson kallaði lífsefnið, og áhrif þess á veðurfarið, en það er allt í góðu.
Við erum hins vegar sammála um mikilvægi skynseminnar í umræðunni og mér fannst þessi pistill þinn góður og skynsamur og ekki versnaði það þegar þú þurftir aðeins að skjóta á landsölufólkið.
Ég ætla að geyma þennan pistil, hafðu þökk fyrir hann.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 7.5.2019 kl. 09:28
Nýjasta hugmyndin um lausn á orkuvanda Evrópu er að "teppaleggja" Sahara eyðimörk með sólarsellum. "Teppi" þetta á að vera 500 km á kant eða talsvert stærra en tvöfalt Ísland!!!
Komist hugmynd þessi í framkvæmd, þá á kísilmálmverksmiðjan á Bakka við Húsavík nægilegt verkefni fyrir höndum.
En hvað með Helguvík?
Hörður Þormar, 7.5.2019 kl. 09:44
ps. Réttara væri að tala um að "flísaleggja" Sahara eyðimörk.
Hörður Þormar, 7.5.2019 kl. 10:41
Halldór Jónsson stórbloggari fyrir Landið OKKAR og Hörður Kristjánsson ritstjóri BÆNDABLAÐSINS hreyfa ætíð við BÆNDUM og Sauðfjárrækt,Gróðurhúsum inni og útiræktun á Ómenguðu ÍSLANDI, sem framleiðir og tryggir ÍSLENDINGUM og Alheim Ólyfjaðar og Ómengaða framleiðslu Bænda og alla útiræktun frá ennþá Ómenguðu ÍSLANDI. Þrátt fyrir að vera "bestir"þá erum við líka 56% DÝRARI en matvöruverslanir í Noregi?.
Vantar okkur MARKAÐSTORG BÆNDA, SJÁVARÚTVEGS óg GRÓÐURHÚSA. Við eigum "ORKUNA OKKAR" og Blávatnið sameiginlega (fyrir gróðurhúsin)og heimilin OKKAR.
Setjum fullt STOPP og tafarlaus LANDSLÖG um BANN á ALLA LANDS og JARÐASÖLU til auðkýfinga og ERLENDRA ÞJÓÐA. ÍSLENDINGAR hafa ALDREI efni á að KAUPA LANDIÐ AÐ NÝJU?.
HRINGVEGURINN hefur STYTTST og BREYST. LANDIÐ OKKAR er STJÓRNLAUST og ILLA REKIÐ Í ANDA ESB sinna sem er "ALELDA" og "GETULAUST" í Kristinni Evrópu.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 7.5.2019 kl. 14:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.