Leita í fréttum mbl.is

Laxérum Framsókn !

Nú er Framsókn kominn frá kjötkötlunum fitug eyrna á milli. Óli bróðir segir að þeir hafi verið að raða sínum mönnum á síðustu árum í allskonar nefndir og ráð. Hann nefnir Pál Magnússon til dæmis í formennsku Landsvirkjunar, Alfreð Þorsteinsson í bygginganefnd Háskólasjúkrahúss, Hjálmar Árnason og Runólf kennara í ráðstöfun kanaeignanna á Keflavíkurflugvelli  og fleira og fleira. Hann spyr af hverju við rekum ekki þessa framsóknarmenn alla strax og setjum okkar stjórnarfólk inn. Hann býðst til að verða sjálfur stjórnarformaður Landsvirkjunar í stað Palla Magg. Viðskiptafræðingur fyrir guðfræðing og sjálfstæðismaður fyrir Framsóknarmann. Og til þess að gera þetta attraktívt þá býður hann sig fram á helmingi lægra kaupi en Páll er að fá.

 

Og af því að  Páll  er í vinnu hjá mér og öðrum skattgreiðendum í Kópavogi sem bæjarritari,  þá finnst mér bara ágætt að hann  sé bara í jobbinu sínu þar og sé ekki að sitja á fundum með Friðriki  uppi í Landsvirkjun. Og verði  Alfreð rekinn og ég settur í hans jobb, þá  býð ég það sama og Óli bróðir, helming  af því sem Alfreð tekur. Einhvernveginn held ég að ég sé minna en helmingi vitlausari en Alfreð þannig að það sé ekkert sjálfsgefið að þjóðin tapi á skiptunum. En þetta getur verið ofmat á sjálfum mér auðvitað. En þó að ég sé bara vesæll byggingaverkfræðingur á móti verðleikum Alfreðs og stjórnunareynslu,  þá er það spurning hver heildarútkoman verður fyrir skattgreiðendur.  Og ef þetta er ekki hægt , þá get ég líka tekið að mér að sitja í  Öryggisráði  Sameinuðu þjóðanna fyrir hálft kaup framsóknarmanns, tel mig alveg kunna  nóg í útlenzku til þess.

 

Af hverju eru framsóknarmenn að stofna nýjan Háskóla suður í Keflavík meðan á sama tíma á að fara að eyðileggja Reykjavíkurflugvöll með því að fara að byggja yfir Háskólann í Reykjavík niður í Vatnsmýri. Af hverju má ekki hafa þann Háskóla þarna suðurfrá ? Þar er allt tilbúið fyrir hann, stúdentagarðar hvað þá meira..Nei það skal byggt fyrir milljarða ofaní sprungið umferðarkerfið á Miklubraut.

 

Það er sama hvar borið er níður, það blasir viða við manni að  framsóknarmenn eru að spreða út opinberu fé í sig og sína.  Byggja sendiráð og Guð veit ekki hvað. Óli bróðir heimtar stopp á þetta allt ekki seinna en strax. Nú geti nýjir stjórnarflokkar tekið við og skipað sína menn í nefndir og ráð.

 

Og svei mér þá,  ég held að við Óli  bróðir getum  alveg sparað ríkinu  mikla peninga og jafnvel grætt sjálfir  á því líka. Hann er bara ríkisstarfsmaður á of lágum launum auðvitað að honum sjálfsagt finnst og ég er eiginlega án fastrar atvinnu og lífeyrisþegi í þokkabót.. Er það ekki talið gott núna að láta þá dúlla við eitthvað meðan þeir geta. Því ekki að láta þá leysa eitthvað af  Framsóknarmönnum af ?

 

Er ekki kominn tími til þess að laxéra Framsókn almennt ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Hulda

Orð í tíma töluð! Upp fyrir þér! Komin tími á að fólk með þekkingu og reynslu haldi utan um framkvæmdir og fjármál almennings...ekki hreppapólítikusar.

Guðrún Hulda, 3.6.2007 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband