Leita í fréttum mbl.is

Laxérum Framsókn !

Nú er Framsókn kominn frá kjötkötlunum fitug eyrna á milli. Óli bróđir segir ađ ţeir hafi veriđ ađ rađa sínum mönnum á síđustu árum í allskonar nefndir og ráđ. Hann nefnir Pál Magnússon til dćmis í formennsku Landsvirkjunar, Alfređ Ţorsteinsson í bygginganefnd Háskólasjúkrahúss, Hjálmar Árnason og Runólf kennara í ráđstöfun kanaeignanna á Keflavíkurflugvelli  og fleira og fleira. Hann spyr af hverju viđ rekum ekki ţessa framsóknarmenn alla strax og setjum okkar stjórnarfólk inn. Hann býđst til ađ verđa sjálfur stjórnarformađur Landsvirkjunar í stađ Palla Magg. Viđskiptafrćđingur fyrir guđfrćđing og sjálfstćđismađur fyrir Framsóknarmann. Og til ţess ađ gera ţetta attraktívt ţá býđur hann sig fram á helmingi lćgra kaupi en Páll er ađ fá.

 

Og af ţví ađ  Páll  er í vinnu hjá mér og öđrum skattgreiđendum í Kópavogi sem bćjarritari,  ţá finnst mér bara ágćtt ađ hann  sé bara í jobbinu sínu ţar og sé ekki ađ sitja á fundum međ Friđriki  uppi í Landsvirkjun. Og verđi  Alfređ rekinn og ég settur í hans jobb, ţá  býđ ég ţađ sama og Óli bróđir, helming  af ţví sem Alfređ tekur. Einhvernveginn held ég ađ ég sé minna en helmingi vitlausari en Alfređ ţannig ađ ţađ sé ekkert sjálfsgefiđ ađ ţjóđin tapi á skiptunum. En ţetta getur veriđ ofmat á sjálfum mér auđvitađ. En ţó ađ ég sé bara vesćll byggingaverkfrćđingur á móti verđleikum Alfređs og stjórnunareynslu,  ţá er ţađ spurning hver heildarútkoman verđur fyrir skattgreiđendur.  Og ef ţetta er ekki hćgt , ţá get ég líka tekiđ ađ mér ađ sitja í  Öryggisráđi  Sameinuđu ţjóđanna fyrir hálft kaup framsóknarmanns, tel mig alveg kunna  nóg í útlenzku til ţess.

 

Af hverju eru framsóknarmenn ađ stofna nýjan Háskóla suđur í Keflavík međan á sama tíma á ađ fara ađ eyđileggja Reykjavíkurflugvöll međ ţví ađ fara ađ byggja yfir Háskólann í Reykjavík niđur í Vatnsmýri. Af hverju má ekki hafa ţann Háskóla ţarna suđurfrá ? Ţar er allt tilbúiđ fyrir hann, stúdentagarđar hvađ ţá meira..Nei ţađ skal byggt fyrir milljarđa ofaní sprungiđ umferđarkerfiđ á Miklubraut.

 

Ţađ er sama hvar boriđ er níđur, ţađ blasir viđa viđ manni ađ  framsóknarmenn eru ađ spređa út opinberu fé í sig og sína.  Byggja sendiráđ og Guđ veit ekki hvađ. Óli bróđir heimtar stopp á ţetta allt ekki seinna en strax. Nú geti nýjir stjórnarflokkar tekiđ viđ og skipađ sína menn í nefndir og ráđ.

 

Og svei mér ţá,  ég held ađ viđ Óli  bróđir getum  alveg sparađ ríkinu  mikla peninga og jafnvel grćtt sjálfir  á ţví líka. Hann er bara ríkisstarfsmađur á of lágum launum auđvitađ ađ honum sjálfsagt finnst og ég er eiginlega án fastrar atvinnu og lífeyrisţegi í ţokkabót.. Er ţađ ekki taliđ gott núna ađ láta ţá dúlla viđ eitthvađ međan ţeir geta. Ţví ekki ađ láta ţá leysa eitthvađ af  Framsóknarmönnum af ?

 

Er ekki kominn tími til ţess ađ laxéra Framsókn almennt ?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guđrún Hulda

Orđ í tíma töluđ! Upp fyrir ţér! Komin tími á ađ fólk međ ţekkingu og reynslu haldi utan um framkvćmdir og fjármál almennings...ekki hreppapólítikusar.

Guđrún Hulda, 3.6.2007 kl. 11:41

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband