15.8.2019 | 10:13
Óli Björn
er í fremstu röð þeirra hugsjónamanna sem enn finnast í Sjálfstæðisflokknum. Hann er eiginlega eini trúboðinn sem starfar að útbreiðslu hugsjónanna frá 1929 þegar hún afasystir mín ,Ingibjörg H., tók þátt í að stofna Sjálfstæðisflokkinn flokkinn með honum Jóni Þorlákssyni. Ekki hefur þurft að breyta einum staf í því sem þau lögðu þá niður sem grunnheimspeki flokksins.
Hvað sem um aðra forystumenn flokksins síðar verður sagt um trúfesti við grunnstefin þá verður Óli Björn aldrei vændur um slíkan tryggðarskort.
Óli Björn skrifar tímabæra grein í Morgnablaðið í gær.
Þar fer hann yfir það sem þó hefur náðst fram í lífskjarabót meðan Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft áhrif í stjórn ríkisins.
Menn geta haft ólíkar skoðanir á einstaka fólki í forystusveit Sjálfstæðisflokksins og ekki eru allir á eitt sáttir um valið á því fólki sem sumum finnst ekki skora ekki hátt í stjórnmálareynslu eða baráttuaðferðum fyrir áhrifastöðum.
Ég hefði viljað sjá Óla Björn ofar í virðingarembættum Sjálfstæðisflokksins og tel að slíkt myndi leiða til meiri velfarnaðar og flokkseiningar en núverandi forystu hefur tekist að ná fram upp á síðkastið.
En Óli Björn skrifar svo:
Ég vona að sálarangist stjórnarandstöðunnar sé að baki. Hrakspár um alvarlegan efnahagssamdrátt hafa að minnsta kosti ekki gengið eftir. Brúnin á þingmönnum ætti því að vera nokkuð léttari þegar þing kemur stuttlega saman í lok mánaðarins en hún var undir lok þinghalds í vor.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar voru fremur þungir í lund mestan hluta síðasta vetrar. Og ekki léttist geð þeirra þegar ákveðið var í ljósi breyttra aðstæðna í efnahagsmálum að endurskoða fjármálastefnuna. Í gegnum þoku svartsýni var mörgum lífsins ómögulegt að viðurkenna að skynsamlegt væri, vegna verri aðstæðna í efnahagslífinu, að auka svigrúm hins opinbera og létta þar með undir með heimilum og fyrirtækjum. Engu var líkara en að stefna ríkisstjórnarinnar að ýta undir hagkerfið, í stað þess að kreppa að því með óbreyttri fjármálastefnu, tætti sundur viðkvæmt sálarlíf sumra stjórnarandstæðinga.
Flestum var ljóst í upphafi árs að umskipti væru fram undan í efnahagslífinu. Í stað mikils hagvaxtar yrði tímabundinn samdráttur. Orsök samdráttar er ekki að finna í ákvörðunum sem teknar hafa verið á vettvangi opinberra fjármála. Gjaldþrot WOW vó þar þyngst en loðnubrestur var ekki til að létta róðurinn. Við þessum breyttu aðstæðum var brugðist með breytingum á fjármálastefnu.
Samhengi skatta og ráðstöfunartekna
Aðilar vinnumarkaðarins báru gæfu til að taka höndum saman með nýjum kjarasamningum og þar lagði ríkisstjórnin þung lóð á vogaskálarnar. Fyrir hægrimenn var það sérstakt gleðiefni að skynja hverju þung áhersla var lögð á lækkun skatta, ekki síst á þá sem lægstu tekjurnar hafa.
Stuðningur við stefnu Sjálfstæðisflokksins um að hófsemdar skuli gætt í skattheimtu opinberra aðila hefur aukist og skilningur á samhengi skattheimtu og ráðstöfunartekna launafólks náð að festa rætur. Sterkur hagvöxtur á undanförnum árum hefur byggt undir hærri laun og gefið færi á að lækka opinberar álögur. Almenn vörugjöld voru felld niður (áralöng barátta Sjálfstæðisflokksins skilaði árangri), milliþrep í tekjuskatti var fellt niður og tryggingagjald lækkað í nokkrum skrefum. Hækkun launa, lækkun skatta og stöðugleiki hafa skilað launafólki bættum lífskjörum. Ráðstöfunartekjur allra aldurshópa hafa hækkað á undanförnum árum mest hjá eldri borgurum en þeir yngstu hafa einnig notið verulegra bættra kjara, eins og sést á meðfylgjandi súluritum.
Á liðnu ári hækkuðu meðal atvinnutekjur um 5,5%. Kaupmáttur launa í júní síðastliðnum var liðlega 32% meiri en að meðaltali árið 2013. Þrátt fyrir mikinn og góðan hagvöxt og verulega hækkun launa hefur tekist að tryggja ágætan stöðugleika frá árinu 2013. Ólíkt því sem oft hefur gerst hefur verðbólgan ekki étið upp launahækkanir og skattmann ekki rifið til sín allar launahækkanir. Að meðaltali var verðbólga um 2,3% á ári á sex árum til 2018. Á mælikvarða neysluverðs var verðhjöðnun í júlí síðastliðnum en verðbólga síðustu 12 mánuði er 3,1%. Miðað við hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði er verðbólgan hins vegar rétt um 1,6%. Verðstöðugleiki hefur ekki aðeins tryggt að launafólk hafi notið launahækkana heldur einnig búið til jarðveg fyrir lægri vexti. Fátt kemur heimilum og fyrirtækjum betur en lækkun vaxta.
Séreignastefnan styrkist
Árangursrík efnahagsstjórn, ekki síst festa í ríkisfjármálum, birtist með ýmsum hætti ekki aðeins í hækkun ráðstöfunartekna allra aldurshópa. Styrkari stoðum hefur verið skotið undir séreignastefnuna. Nýjar tölur Íbúðalánasjóðs sýna þetta svart á hvítu. Árið 2009 voru fyrstu íbúðakaup um 7,5% allra íbúðakaupa en á öðrum ársfjórðungi þessa árs var hlutfallið komið í tæp 28%, og hefur aldrei verið hærra frá því að mælingar hófust árið 2008. Í nýrri skýrslu sjóðsins um fasteignamarkaðinn kemur fram að vaxandi hlutfall fyrstu íbúðakaupenda á meðan fjöldi kaupsamninga hefur lítið breyst gefi til kynna að auðveldara sé að safna fyrir íbúð en áður. Bent er á að svo virðist sem kaupmáttaraukning, lækkun vaxta og aðgerðir ríkisins til stuðnings fyrstu kaupendum hafi vegið þyngra en mikil hækkun fasteignaverðs.
Þessi ályktun sérfræðinga Íbúðalánasjóðs er örugglega rétt. Árið 2014 beitti Bjarni Benediktsson sér fyrir því sem fjármálaráðherra að heimila launafólki að nýta séreignasparnað skattfrjálst til íbúðarkaupa og greiðslu íbúðaskulda. Alls hafa um 56 milljarðar króna runnið til öflunar húsnæðis með samþættingu skattalækkunar og séreignarstefnu. Um 23 þúsund einstaklingar hafa að jafnaði nýtt sér þessa heimild í hverjum mánuði. Kjarninn í stefnu Sjálfstæðisflokksins er að stuðla að eignamyndun launafólks, ekki síst í íbúðarhúsnæði.
Það er ekki aðeins að sífellt fleiri geti keypt sína fyrstu íbúð heldur hefur íslenskum heimilum tekist að umbylta eigin efnahagsreikningi á síðustu árum. Þau eru betur í stakk búin til að takast á við efnahagsleg áföll. Eigið fé, að frátöldum lífeyrisréttindum, er um 157% af landsframleiðslu. Staðan er miklu sterkari en í öðrum Norðurlandaríkjum. Skuldir heimila sem hlutfall af landsframleiðslu eru 75% hér en um 105% að meðaltali annars staðar á Norðurlöndunum. Sem hlutfall af ráðstöfunartekjum eru skuldirnar einnig lægri hér, eða tæplega 150% á móti liðlega 200%.
Sama á við um fyrirtækin og heimilin. Þeim hefur tekist að styrkja efnahag sinn.
... engin stórkostleg krísa
Efnahagsleg velgengni okkar Íslendinga á síðustu árum, eftir miklar hremmingar í kjölfar falls fjármálakerfisins, er ekki tilviljun. Auðvitað hefur margt lagst með okkur en mestu hefur skipt að við höfum náð að nýta tækifærin með skynsamlegum hætti. Styrk stjórn ríkisfjármála og algjör umskipti er varðar skuldir ríkisins hafa lagt grunninn. (Þannig er vaxtakostnaður ríkisins sem hlutfall af landsframleiðslu um 1% en var fimm sinnum hærri fyrir áratug.) Erlend staða þjóðarbúsins hefur aldrei verið betri.
Ásdís Kristjánsdóttir, hagfræðingur Samtaka atvinnulífsins, benti á í samtali við Morgunblaðið síðasta laugardag að þótt hagkerfið væri að sigla í gegnum lægð er ljóst að það er engin stórkostleg krísa fram undan, sem betur fer: Það var dregin upp mjög dökk mynd á fyrstu mánuðum ársins þegar fyrstu merki komu fram þess efnis að uppsveiflunni væri lokið og niðursveifla fram undan samfara falli WOW air. Sú mynd virðist ekki vera að raungerast. Ólíkt því sem við erum að sjá í Evrópu, þar sem stýrivextir eru neikvæðir og skuldir hins opinbera hjá mörgum ríkjum hærri í dag en fyrir síðustu efnahagskreppu 2008, þá hefur Seðlabanki Íslands og íslensk stjórnvöld talsvert svigrúm til að bregðast við og styðja við hagkerfið þannig að niðursveiflan verði mildari en ella.
Staða þjóðarbúsins heimilanna, fyrirtækjanna og hins opinbera er í flestu sterk og það er vel undir það búið að takast á við tímabundinn samdrátt. En það mun reyna á Seðlabankann og það mun reyna á ríkissjóð. Krónan er stöðug og verðbólguvæntingar í takt við markmið Seðlabankans. Það gefur bankanum tækifæri til að halda áfram að lækka vexti. Staða ríkissjóðs er sterk, sem gefur ekki aðeins mögulegt að hrinda í framkvæmd þeim skattalækkunum sem þegar hefur verið lofað, heldur stíga stærri skref. Þrýstingur á sveitarfélögin að endurskoða skatta- og gjaldastefnu sína mun síðan aukast, ekki aðeins útsvar heldur ekki síður fasteignagjöld.
Helsta ógn sem blasir við er staða efnahagsmála í öðrum löndum. Evrópusambandið berst við erfiðleika efnahagslega og pólitíska. Brexit er áskorun fyrir okkur Íslendinga en þar hefur Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra þegar unnið heimavinnuna. Viðskiptadeilur Kína og Bandaríkjanna geta valdið okkur eins og öðrum þjóðum erfiðleikum.
Á stundum, ekki síst þegar vel árar, gleymist hve við Íslendingar erum háðir öðrum þjóðum. Greiður aðgangur að erlendum mörkuðum er okkur lífsnauðsynlegur er forsenda einhverra bestu lífskjara í heiminum. Einmitt þess vegna eigum við að sameinast um að fjölga tækifærum með opnum samskiptum og viðskiptum við aðrar þjóðir, en ekki fækka þeim. Í alþjóðlegum samskiptum skiptir mestu að vera sjálfum sér samkvæmur. Um það verður kannski lítillega rætt þegar þing kemur saman í nokkra daga í lok mánaðarins. "
Í öllu því moldviðri sem gengur yfir vegna þriðja orkupakkans sem margir eru sannfærðir um að forystuna hafi borið af leið í sambandi sínu við grasrót flokksins er þýðingarmikið að menn beri ekki af leið í trúnni runni á grunngildi Sjálfstæðisflokksins. Þau hafa ekkert breyst og hreinsikerfi flokksins mun sjá til þess í fyllingu tímans að nauðsynleg endurnýjun muni eiga sér stað.
Ég vona að menn beri gæfu til þess að láta ekki villa sér sýn. Menn eins og Óli Björn Kárason eru Sjálfstæðisflokknum ómetanlegir til þess að menn tapi ekki sýn á því sem vel hefur þó til tekist fyrir atbeina flokksins og hvað séu þau framtíðarverkefni sem flokkurinn muni fyrirsjáanlega styðja til heilla fyrir land og lýð en láti ekki stöku ágreining alhæfa um kosti og lesti Sjálfstæðisflokksins sem eru öllum ljósir sem vilja skilja.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:16 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Hver ætli sé afstaða Óla Björns til orkupakkans margumtalaða, veistu það Halldór???????
Tómas Ibsen Halldórsson, 15.8.2019 kl. 13:56
Seinast þegar ég vissi var þessi klári hugsjónamaður með O3 eins og forustan en ekki fólkið í flokknum!!
Sigurður I B Guðmundsson, 15.8.2019 kl. 14:58
Nú veit ég ekki hvernig flokksaganu er háttað.
Halldór Jónsson, 15.8.2019 kl. 19:25
Óli Björn getur skrifað hvern meterinn á eftir öðrum, en hver er hans staða sem Sjálfstæðismanns?
Með forystufyglunum, eða sönnum Sjálfstæðismönnum? Í skrifum hans sér þar hvergi flöt. Pr eða sannur Sjálfstæðismaður?
Að sigla milli skers og báru er ekki öllum gefið í pólitík, en samt sem áður auðveldasta leiðin í pólitík, þeirri aumu tík, ef villa villt um fyrir öðrum.
Gef ekkert í Óla Björn, fyrr en ljóst er hvort spilað er grand eða nóló og hver er í forhönd.
Sögnin er Óla Björns. Fram að þessu hefur hann einungis sagt pass. Það geta allir.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 16.8.2019 kl. 03:13
Óli samþykkir víst orkupakkann var ég að heyra
Halldór Jónsson, 17.8.2019 kl. 14:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.