Leita í fréttum mbl.is

"Dauðans alvara"

er útblásturinn af CO2 segja þau á málþingi ASÍ um loftslagsmálin.

Hvað ætlar umhverfisráðherrann sem enginn kaus, Drífa Snædal og Katrín Jakobsdóttir að gera í því að stoppa 20,000 tonnin af CO2 sem streyma upp úr Kötlu á hverjum degi, 365 daga á ári?

7.3 megatonn alls á ári eða jafnmikið og allt iðnvædda Ísland blæs út á ári fyrir utan flugið á ráðstefnurnar í útlöndum.

Og þá er Eyjafjallajökull,Eldfellið í Vestmannaeyjum, Holuhraunið,Hekla og Askja og Norðuratlandshafshryggurinn allur eftir? Og svo eru öll hin eldfjöllin í heiminum?

Þarf ekki að reka einhverskonar Parísartappa í þessi göt öllsömun?

 

Moka ofan í Flóaáveituna þegar þau eru búin að moka ofan í skurðina á Bessastöðum? 

Er þetta bara dauðans alvara hjá þessu fólki?!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Veit ekki hvort maður eigi að hlæja eða gráta!!

Sigurður I B Guðmundsson, 4.10.2019 kl. 09:45

2 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Sem sagt greinarhöfundur áttar sig engan vegin á því að um er að ræða mengun af mannavöldum, ja nema hann vilji afvegaleiða umræðuna, það væri alls ekki neitt nýtt. 

Jónas Ómar Snorrason, 4.10.2019 kl. 11:42

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

"Grát ástkæra fósturmold"  Við synir þínir og dætur ætlum ekki að líða þetta! það er alvara á ferðum,hvenær höfum við brugðist þér?     ALDREI!

Helga Kristjánsdóttir, 4.10.2019 kl. 12:28

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Halldór. Við erum komin í ..Catch 21.. Það er fyrir hendi partur að hamfara kynslóð sem viðheldur hamfara kerfinu með því að ota öllum skólum landsins um alla veröld og þar með erum við komnir með kjósendur sem munu kjósa flokka hvað sem þeir heita sem lofa sem mestum aðgerðum vegna loftslagsmála hvað þá hamförum helst þá heimsenda. Þessir öfga hópar eru margfalt verri en sjálfir ISIS sem hægt er þó að útrýma á ýmsan hátt með góðri samvisku en það getum á engan hátt með hamfaraliðið sem eru ruglað fólk ásamt börnum sem þau beita fyrir sér. Eru það ekki einmitt aðferðir ISIS sem nota skóla og spítala. ?  

Valdimar Samúelsson, 4.10.2019 kl. 14:25

5 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Jónas,

Ég er að hugsa um að fá mér svona CO2- generator í fína gróðurhúsið hjá mér, já sem að framleiðir CO2 fyrir plönturnar mínar, þú?

  Myndaniðurstaða fyrir co2 generator for plants

If carbon dioxide is so bad for the planet, why do greenhouse growers buy CO2 generators to double plant growth?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 4.10.2019 kl. 22:03

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

CO2 sem slíkt er ekki mengandi efni, Jónas Óskar! Þvert á móti er það efni sem lífríkið þrífst á.

CO2-aukning í andrúmslofti af völdum bílaumferðar er nánast engin miðað við það sem kemur frá eldfjöllum okkar. 

Erlend farþegaskip og flugvélar spýja líka út langtum meira CO2 en allur bílaflotinn.

Meira að segja Dagur B. notar bíl, sem gengur fyrir olíu, ekki rafmagni! En hræsnin fer honum einkar vel í þessu sem öðru.

Mestu mengunarvaldar í röðum pólitíkusa eru í VG: Katrín Jakobsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon með sína kolakyntu verksmiðju á Bakka! En þetta samþykkja líka Bakkabræður þeirra, Kolbeinn Proppé, Ari Trausti Guðmundsson, jafnvel Bakka-systurnar Rósa Björk og fósturvígakonan Svandís. Merkilegt lið og hafa líka Guðmund umhverfis sér til fulltingis, þann sem mælti ekki orð gegn náttúruspillandi þriðja orkupakkanum!

Jón Valur Jensson, 5.10.2019 kl. 03:05

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar Geirsson, (er hann ekki  gamall kommi að austan?),  hefur þetta að segja um loftslagsvisku fyrrum flokksbræðara sinna:

"á er niðurstaðan þessi;

"Hún seg­ir að lok­um, að nú hafi þing­menn Sam­fylk­ing­ar og VG kom­ist að þeirri niður­stöðu að „lög hreinu vinstri stjórn­ar­inn­ar um end­ur­nýj­an­legt eldsneyti sem áttu að draga úr los­un gróður­húsaloft­teg­unda hafi þvert á móti aukið los­un­ina, valdið stór­kost­legri loft­meng­un í Asíu, auk þess að stuðla að eyðingu regn­skóga, ógna líf­fræðilegri fjöl­breytni og ýta und­ir vinnuþrælk­un og illa meðferð á kon­um og börn­um.“."

 

Hvaða fávita datt í hug að nota mat sem eldsneyti??

Og hver er ábyrgð hinna heimsku sem tóku undir og lögleiddu??

 

Þó Íslendingar keyptu elstu díselbíla í heimi, og það 5 á hverja fjölskyldu, þá næði sú mengun ekki prómilli af þeirri mengun sem þessi heimska löggjöf leiddi af sér.

Að ekki sé minnst á atlöguna af tilvist mannsins þegar regnskógarnir eru gegndarlaus eyddir til að framleiða matvælaeldsneyti.

Og núna þykjast fíflin koma ofan af fjöllum, ekkert vita, ekkert skilja, nema jú eitt, að finna nýja fíflsku til að slá um sig til umhverfisriddara.

 

Kolefnaskattur á landsbyggðina, kolefnaskattur á fátækt fólk, þá getur það réttlætt sína eigin bílnotkun eða sínar eigin utanlandsferðir.

Og svona í leiðinni að innleiða evrópskt regluverk sem hækkar raforkuna til matvælaframleiðanda í dreifbýlinu. 

Svona að það sé öruggt að maturinn komi sem lengst af.

Helst undir formerkjum matvælaeldsneytisins; " valdið stór­kost­legri loft­meng­un .... ógna líf­fræðilegri fjöl­breytni og ýta und­ir vinnuþrælk­un og illa meðferð á kon­um og börn­um.".

Ódýr matur verksmiðjubúanna er nefnilega aldrei án kostnaðar.

 

Og ef ekki er nóg að gert til að menga, skemma og eyða, þá skal reynt til ýtrasta að hægja á umferð og auka umferðarteppur, svo öruggt er að tugþúsundir bíla gangi hægaganginn á höfuðborgarsvæðinu.

Þá fyrst geta riddarar heimskunnar, loftslagsriddararnir barið sér á brjóst og þóst vera virkilega umhverfisvænir, virkilega góðir fulltrúar góða fólksins.

Bankað svo á dyrnar hjá auðnum og innheimt aurinn sem það fær fyrir að markaðsvæða orkuna, og eyðileggja innlenda framleiðslu svo landið falli í heljargreipar innflutningsgreifa.

 

Því þessir riddarar eru kannski ekki svo mjög heimskir.

Jú vissulega heimskir þannig séð, en samt ekki eins og þeir virðast.

Þeir vita nefnilega sínu viti.

 

Þeir vita hverjir borga.

Þeir vita hverjum þarf að þjóna.

 

Auðnum og hinum Örfáu.

Hinum ofsaríku sem eiga næstum því allan auð heimsins.

En finnst það litla sem við hin eigum of mikið.

 

Það er bissness í heimskunni.

Kveðja að austan."

Halldór Jónsson, 5.10.2019 kl. 07:54

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Svei mér þá ef ég er ekki sammála þessu flestu sem Ómar skrifar?

Halldór Jónsson, 5.10.2019 kl. 07:56

9 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Elizabeth Yore sannar hér hve innvinkaður Soros er og eftir að hann um c.1997 ákvað New World Order og ekkert gekk þá fór hann á stúfanna með sína menn og náði Vatíkaninu á sitt band og svo UN og í dag er Hamfara spáin partur að fækkun mannkynsins. Yore segir að sá sem kontrolerar CO2 sem er eins og jón Valur segir eitt af grunn efni fyrir lífi á þessari jörðu. þessi mynd lætur hárið rísa. virkar fyrts sem trúar samkoma en heldur betur ekki nema síðustu mínúturnar þegar hún segir. Ef við töpum þá er trúin sem er eins vopnið sem við eigum eftir.  https://youtu.be/TS1GC2kX9HY 

Valdimar Samúelsson, 5.10.2019 kl. 10:58

10 identicon

 Á hvaða hátt í veröldinni valdimar sannar þetta myndband þátt Soros?

Helgi (IP-tala skráð) 6.10.2019 kl. 02:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband