Leita í fréttum mbl.is

Ömurlegar umræður

á Silfrinu sem við var að búast þegar handvaldir pólitískir sérvitringar eru kallaðir til af Agli til að ræða stjórnarskrármálið gamla frá Jóhönnustjórninni.

Ágúst Ólafur þvældi svipaða steypu og Þorvaldur Gylfason hrærir við öll möguleg tækifæri og Píratakonan Þórdís Eymarsdóttir tók undir. Þetta gengur út á það að halda því fram að þjóðin hafi verið svikin um stjórnarskrá sem hún hafi samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er orðim svo útslitin lygi að það tekur því ekki að ræða þetta.

Sem betur fer var þarna einn vitiborinn maður í hópnum, Stefán Einar, sem minnti á að við höfum ágæta stjórnarskrá, sem mætti hugsanlega eitthvað bæta. En það væri fráleitt að halda því fram að stjórnarskráin hefði haft eitthvað með hrunið að gera eins og gert væri. Hún hefði dugað þjóðinni ágætlega til þessa.

Það var auðvitað ekki talað um það að stjórnarskráruppkastið sem kom frá þessu uppákomuráði var gersamlega óhæft plagg þar sem sitthvað rak sig á annars horn, yfir hundrað blaðsíðna langhundur í stað fárra blaðsíðna sem skilmerkilegri stjórnarskrá er auðvitað nauðsynleg. 

En það er makalaust hvað kommatittirnir geta haldið lífi í ömurlegri umræðu um ólöglegar stjórnarskrárkosningar og þvælu um að þjóðin hafi samþykkt bullið þegar ómarktækur minnihluti tók afstöðu meðan meirihlutinn kærði sig kollóttann. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

að eina sem ég man eftir úr þessum tillögum um "nýju" stjórnarskrána var að allir ættu að vera jafnir EN taka þurfi sérstakt tillit til alskyns sérhagsmunahópa

Grímur (IP-tala skráð) 27.10.2019 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 3419866

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband