Leita í fréttum mbl.is

Boeing er í djúpum ...

núna þegar Maxinn er búinn að vera.Forever.

Icelandair á ekki um neitt að velja held ég. Þeir varða að losna við þetta dót. Það er erfitt að ímynda sér að fólk fáist til að fara um borð í þetta rusl. Og það er erfitt að fá nokkurn til að trúa á skýringar og lygar Boeing.Ég held að Boeing sé komið í djúpan skít flæktir í eigin lygum og undanbrögðum.

Þeir verða að koma með mod á 757 sem gerir hana sparneytnari.737Maxinn er búinn að vera, ég færi aldrei upp í hana eftir að hafa horft á myndbandið af Lion 610 farast með manni og mús. Agalegt að horfa á allt fólkið ganga um borð vitandi það að allir eru dauðadæmdir, eiga eftir nokkrar mínútur ólifaðar. Vegna vísvitandi lyga stjórnenda Boeing.

Af hverju eru menn komnir svona langt frá uppruna  flugsins að það skuli ekki vera takki sem slær öllum lygaþvælukerfunum út og gerir mönnum kleyft að handfljúga ágætri flugvélinni sem td. Ómar færi létt með að gera fyrirvaralaust og margir aðrir venjulegir flugmenn.

Þetta virðulega félag,listflugmannsins William P. Boeing sem flaug með Rickenbacker og Chennault síðan 1917, Boeing, er í dýpri skít en mann hefði getað órað fyrir vegna óhæfra stjórnenda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég var að lesa grein á CNN í morgun, þar sem fram kemur að margir sérfræðingar telji ólíklegt að þessar vélar komist aftur í notkun fyrr en eftir 2-3 ár. Ekki viss um að Icelandair sé á réttri braut að halda sig við þennan framleiðanda.

Þorsteinn Siglaugsson, 18.12.2019 kl. 18:13

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Alveg er ég sammála þessari niðurstöðu þinni Halldór og ánægjulegt að Þorsteinn hoppi á vagn skýrra einfaldra raka.

Jónatan Karlsson, 19.12.2019 kl. 06:38

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég sé að þið eruð ekki fjarri þvíað hugsa á svipuðum nótum og ég varðandi framtíð Icelandair. Ég var að lesa það samt að 65 % flugfarþega velta ekki fyrir sér hvað flugvélategund þeir séu að fara um boprð í. 15 % geri það að fráfararatriði samt. Má vera að ég sé hysterískur.

En það sækir á mig hvervegna Boeing, sem ég hef alla tíð borið tröllatryggð til, sem hafa hannað allar þessar válr B17,B29,B52, B747,B757, geta ekki komið fram með endurbætta vél á grunni B757 til dæmis?

Halldór Jónsson, 19.12.2019 kl. 15:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband