21.12.2019 | 12:04
Merk grein Björns
Bjarnasonar sem varðar grunnstjórnskipun lýðveldisins okkar.
Á Alþingi Götunnar að stjórna hér eða löglega kjörin yfirvöld?
Björn skrifar í Morgunblaðið í dag:
"Dómnefnd hefur gert tillögu til dómsmálaráðherra um þrjá jafnhæfa einstaklinga til að fá skipun sem hæstaréttardómari. Þetta markar tímamót miðað við vinnubrögð dómnefnda eða umsagnaraðila undanfarin ár þegar stefnan hefur verið sú að stilla ráðherranum upp við vegg.
Þessi aðferð gekk lengst þegar lögð var fyrir ráðherra tillaga um 15 dómaraefni í landsrétt, tillaga sem var reist á því að dómnefndin setti umdeilanlega afstöðu sína til einstakra umsækjenda í excel-skjal og lét það ráðast af tölum sem það skilaði hverja hún taldi hæfa. Skipa skyldi 15 dómara og bar ráðherra að leggja tillögu um það fyrir alþingi.
Þegar ráðherrann gerði forkönnun á afstöðu þingmanna kom í ljós að þeir gátu ekki fellt sig við þessa 15 sem excel-skjalið skilaði dómnefndinni. Ráðherrann tók þá það ráð að jafna kynjahlutfall í tillögunni sem lögð var fyrir þingið og hlaut þar samþykki.
Við þessu brugðust þeir illa sem settir voru til hliðar af þeim 15 sem fengu náð fyrir augum dómnefndarinnar á grundvelli excel-skjalsins. Fór mál af þeirra hálfu alla leið í hæstarétt þar sem niðurstaðan var að ráðherrann hefði ekki rannsakað af nægilegri kostgæfni hæfni og hæfi einstaklinganna sem hún gerði að tillögu sinni.
Skipulögð var pólitísk aðför að ráðherranum með aðstoð fréttastofu ríkisútvarpsins og málsvörum þeirrar aðferðar að binda skuli hendur ráðherra af dómnefndum.
Málið gekk síðan til mannréttindadómstólsins í Strassborg (MDE), meirihluti undirdeildar hans tók undir með excel-liðinu og fann að skipuninni í landsrétt. Dómarar sem ráðherrann valdi tóku sér hlé frá störfum, dómsmálaráðherrann steig til hliðar og upphrópanir um spillingu náðu nýjum hæðum.
Íslenska ríkið vísaði málinu til yfirdeildar MDE þar sem það er til meðferðar þegar kúvending verður hjá dómnefndinni sem gefur ráðherra svigrúmið sem hann á auðvitað að hafa við ákvarðanir sem eru á hans ábyrgð.
Dómur hæstaréttar um að ráðherrann hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni og niðurstaða undirdeildar MDE með þátttöku íslensks MDE-dómara er í anda þess ofríkis sem ríkt hefur gagnvart þeim sem hafa skipunarvald og bera ábyrgð á skipan dómara í embætti hér á landi. Þessi ofríkis-árátta ætti frekar að vera rannsóknarefni svo að gera megi ráðstafanir til að tryggja að dómnefndir gangi fram á þann veg sem er sanngjarn og réttmætur.
Nú er spurning hvort þeir sem flytja málið gegn íslenska ríkinu fyrir MDE grípi til þess örþrifaráðs að hvetja yfirdeild MDE til að skikka íslenska ríkið til að setja í lög að dómnefndir um hæfi dómaraefna skuli binda hendur ráðherra. Það væri eftir öðru.
Jón Steinar Gunnlaugsson, hrl. og fyrrverandi hæstaréttardómari, hefur árum saman varað við áhrifum ofríkis sem hann telur ráða innan íslenska dómskerfisins. Tilraunirnar til að binda hendur ráðherrans með dómnefndarálitum er aðeins ein birtingarmynd þess miðað við lýsingar lögmannsins."
Uppivöðslulýður kommatitta og píratapjakka er fyrir löngu búið að hrifsa til sín óeðlileg áhrif umfram löglega kjörin yfirvöld. Hverskyns snápar vaða uppi og krefjast þess að fá að ráða umfram aðra.
Ráðherra á að ráða sínum málaflokki. Það er hans eins að meta hvaða samráð hann kærir sig um að hafa. Hæfisnefndir ættu hugsanlega ekki að starfa opinberlega heldur í trúnaði ráðherra og eftir skipun hans.
Það finnst mér eiginlega felast í merkri grein Björns Bjarnasonar í dag.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:07 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ekkert af því Halldór, nema að ráherra setur bara lög þar um, en ekki lög um eitthvað annað sem hann kýs svo að sniðganga í anda kommanna sem stjóruðu með öðrum í samsteypustjórninni í Tékkóslóvakíu 1945-1947. Þegar menn gagnrýndu kommana hér á árum áður, þá töluðu þeir út frá þeim siðferðislegum yfirburðum, að þeir, það er borgarlegir íhaldsmenn voru betri, voru ekki skríll sem beitti handafli til að ná markmiðum sínum.
En þetta var ekki erindið og blessaður Halldór, erindið var að mér fannst formáli þinn fyndinn, að vísa í Björn Bjarna um grunnstjórnskipan lýðveldis okkar.
Svona í ljósi stuðnings Björns við hjáleigusambandið við ESB.
Hjáleiga er aldrei sjálfstæð, og þar með ræður þú ekki grunnstjórnskipan hennar.
Þannig að ...
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 21.12.2019 kl. 13:41
Það er ekki rétt já þér Ómar að Björn hafi nokkru sinni viljað ganga í ESB. Þvert á móti er hans niðurstaða í bókinni "Hvað er Íslandi fyrir bestu" að Ísland skuli standa fyrir utan ESB. En hann dýrkar EES og sér þar fátt athugavert sem er annar handleggur.
Halldór Jónsson, 21.12.2019 kl. 14:43
Halldór, hjáleigusambandið við ESB, kennt við EES, er þannig séð aðild gegnum innleiðingu regluverks sambandsins, án áhrifa.
Ekki það að áhrifin séu mikil, en hugsanlega einhver prómil
Að sjá þetta ekki Halldór, kallast afneitun.
Og Björn Bjarna er ekki í afneitun, hvað svo sem þessi skynsemismaður er að öðru leiti.
En hjáleiga talar ekki um sjálfstæði, hvað þá lýðveldi, og þú veist það.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 21.12.2019 kl. 15:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.