2.3.2020 | 12:21
Á ofstækið að ráða för?
í loftlagsmálum?
Hjörleifur Guttormsson ritar grein í Morgunblaðið í dag. Eins og við er að búast er greinin skrifuð út frá blindri trú á manngert veður og hamfarahlýnun eftir trúarsetningum hinnar daufeygu Grétu Thunberg.
Hjörleifur notar tækifærið til að ráðast að Trump forseta sem hefur talað fyrir skynsemi í þessum málaflokki í stað þeirrar blindu bókstafstrúar sem einkennir trúarsöfnuð Parísarsammkomulagsins.
Sem betur fer eru skynsemisraddir að komast að og byrjað er að kvarnast úr ofstækinu sem Hjörrleifur og hans nótar eru andsetnir af eins og COP-25 í Madrid sýndi.
Sú firra að maðurinn stjórni hlýnun andrúmslofstsin með útblæstri á CO2 ríður húsum hjá þessu ofsatrúarfólki. Það er merkilegt að Hjörleifur sem er þó menntaður í raunvísindum skuli eki vilja viðurkenna að náttúrlegur útblástur jarðar á CO2 er jafnvel miklu meiri en manngerður. Til dæmis blæs Katla sem hefur ekki gosið í 100 ára jafn miklu magni af CO2 og allir Íslendingar losa eða 20.000tonnum á dag. Og hún er bara eitt eldfjall af mörgum.Engar tölur eru tiltækar um útblástur upp um Miðatlantshafssprunguna eða önnur flekaskil jarðar.
Ofstækismennirnir reyna svo að setja sama sem merki milli alls sem miður fer á jörðinni í samhengi við mögulega hlýnun andsrúmslofstins, sem er næsta óveruleg og alls endis óvíst af hvað ástæðu er ef einhver er. Það er eins og Hjörleifur sé ekki meðvitaður um tilvist sólarinnar og eðli hennar eða áhrif á jörðina.
Setning eins og þessi:;
Hörð andstaða Trumps Bandaríkjaforseta sem og forseta Brasilíu og fleiri hægrimanna gegn markmiðum Parísarsáttmálans geta sett alvarlegt strik í viðleitnina gegn loftslagsháskanum. Á það mun reyna síðar á árinu.
Það er talað um loftlagsháska eins og sannaðan hlut. Það er eins og Gréta Thunberg standi á einhverjum vísindalegum grunni sem er langt í frá.
Sem betur fer stendur Trump forseti í vegi fyrir versta ofstækinu eins og fram kemur hjá Hjörleifi.
En grein Hjörleifs fylgir hér með í heild. Menn lesi hana yfir og álykti síðan hvort mark sé takandi á svona ritsmíð og hvort svona fullyrðingar séu nothæfur grunnur til að byggja afstöðu sína til hamfarahlýnunar á?
Aðeins átta mánuðir eru þar til næsti ársfundur loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, COP-26, hefst í Glasgow í Skotlandi þann 9. nóvember.
Eftir vonbrigði með COP-25 í Madrid þar sem ekki tókst að ná saman um lokasamþykkt á nú að gera úrslitatilraun til að fylkja ríkjum heims um ákvæði Parísarsamkomulagsins frá 2015 til að ná tökum á loftslagsógninni sem við blasir að óbreyttu.
Eins og fundarstaðurinn ber með sér eru það bresk stjórnvöld sem bera ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd fundarins. Nú nýlega var Alok Sharma tilnefndur í þetta vandasama verkefni. Hann er 53ja ára, sonur indverskra innflytjenda, þingmaður frá árinu 2010 og fyrrverandi ráðherra á þróunarsviði.
Áður en hann tók við starfinu höfðu þekkt nöfn eins og David Cameron og William Hague beðist undan ósk núverandi forsætisráðherra um að axla þessa ábyrgð. Verkefnið er að fá sem flestar þjóðir heims til að setja sér róttæk markmið um samdrátt í losun gróðurhúslofttegunda á næstu 10 árum til að stöðva hlýnun andrúmsloftsins við 1,5 til 2°C.
Sérstaklega beinast sjónir að ríkjum sem hingað til hafa hafnað þátttöku eins og Bandaríkjunum, Brasilíu, Ástralíu og SádiArabíu. Svo vill til að úrslit í forsetakosningunum vestra 3. nóvember nk. munu liggja fyrir við upphaf ráðstefnunnar í Glasgow.
Fjöldi loftslagstengdra viðburða
Á vegum Sameinuðu þjóðanna eru framundan ráðstefnur og viðburðir um ýmsa þætti loftslagsmálanna. Í maí nk. verður ráðstefna um sjálfbæra flutninga og ferðamáta, en sá þáttur er nú sagður losa mest af gróðurhúsalofti á heimsvísu. Í júní verður ráðstefna um úthöfin og sjávarauðlindir, áhrif loftslagsbreytinga á þau svo og mengun, ekki síst af plasti. Í haust verður síðan haldinn 15. fundur alþjóðasamningsins um líffræðilega fjölbreytni, en hlýnun jarðar er sívaxandi ógn við náttúruleg vistkerfi, plöntu- og dýralíf. Gífurlegur engisprettufaraldur í Pakistan og austanverðri Afríku er m.a. rakinn til loftslagsbreytinga, svo ekki sé talað um ógnina af sívaxandi skógareldum víða um heim. Guterres, aðalritari SÞ, vekur athygli á að þau 70 ríki sem lýst hafa því yfir að þau stefni að CO2-hlutleysi um miðja öldina séu völd að innan við fjórðungi losunar á heimsvísu, á meðan meirihluti ríkja heims byggi enn áætlanir sínar í orkumálum á kolum og olíu, sumpart með niðurgreiðslum. Þess utan er skortur á ferskvatni eitt stærsta umhverfisvandamálið í sunnan- og austanverðri Asíu sem stafar m.a. af hlýnun og bráðnun jökla í Himalajafjöllum.
Uppfæra ber markmið hvers lands
Í samþykktum Parísarfundarins 2015 var hverju ríki gert að setja hið fyrsta fram markmið um niðurskurð CO2-losunar til 2030 og endurskoða þau skuldbindandi til lækkunar fimmta hvert ár. Að þessum tímamörkum var komið 9. febrúar sl., en aðeins 3 ríki stóðu við þau, þ.e. Noregur, Súrínam og Marshalleyjar. Von er hins vegar á viðbrögðum annarra landa á næstunni, þar á meðal Íslands, sem á fyrra stigi gerði ráð fyrir a.m.k. 29% niðurskurði í losun árið 2030 reiknað frá árinu 2005. Útspil Norðmanna þykir tíðindum sæta því að í stað 40% lögfests niðurskurðar setti norska ríkisstjórnin nú mörkin um minni losun árið 2030 við allt að 55% lækkun miðað við árið 1990. Meðal þess sem á að auðvelda að þessu marki verði náð er minni kjötneysla í Noregi. Allt að 55% lækkun eru raunar sömu mörk og Ursula von der Leyen, formaður framkvæmdastjórnar ESB, vill að bandalagið setji sér, en allsendis er óvíst að sú verði niðurstaðan þar á bæ. Líklega hefur það ýtt undir norsku stjórnina að sjá metnaðarfull markmið danskra stjórnvalda sem einsettu sér sl. vor samkvæmt stjórnarsáttmála nýrrar vinstristjórnar að ná fram allt að 70% minni losun árið 2030.
Ræður kapítalisminn við áskorunina?
Hörð andstaða Trumps Bandaríkjaforseta sem og forseta Brasilíu og fleiri hægrimanna gegn markmiðum Parísarsáttmálans geta sett alvarlegt strik í viðleitnina gegn loftslagsháskanum. Á það mun reyna síðar á árinu.
Hins vegar er slík varðstaða um skammsýn gróðasjónarmið á kostnað umhverfis ekki alls staðar að finna til hægri, eins og Noregur undir forystu Ernu Solberg, formanns Hægriflokksins, er skýrt dæmi um. Sama má segja um viðleitni Ursula van der Leyen sem fyrir skemmstu var ráðherra í flokki Merkel kanslara.
Einnig Peter Altmeier, efnahagsmálaráðherra Þýskalands, sem lét nýlega undan kröfu Græningja og fleiri um að endurskoða losunarmörk CO2 þarlendis. Altmeier veðjar nú á blátt vetni til að knýja stáliðjuver og flutningatæki í stað kola, en tæknin er umdeild.
Einnig hér á landi virðist Sjálfstæðisflokkurinn átta sig á hvað í húfi er í loftslagsmálum, á meðan Miðflokkurinn leggst á andstæða sveif. Hins vegar á eftir að koma í ljós á heimsvísu hvert pólitískir straumar stefna, ef sterk markaðsöfl bregðast öndverð við skertum hagnaði og vísitölur kauphallanna taka að falla. Launamenn og millistéttir víða um heim mega einnig búast við efnalegri ágjöf, enda núverandi ósjálfbært neyslumynstur dauðadæmt.
Aðvörunarorð þetta varðandi koma úr mörgum áttum, þó einkum úr röðum græningja, vinstrimanna og frá ungu fólki. Í ávarpi sínu á Evrópuþinginu í Strassburg í apríl í fyrra sagði Greta Thunberg m.a.: Ég bið ykkur um að vakna og opna á nauðsynlegar breytingar. Að gera það besta er hins vegar ekki lengur nógu gott. Við öll verðum að gera það sem virðist ómögulegt.
Það er sorglegt þegar upplýstir menn falla í í þá gryfju að loka á rökhugsun fyrir trúarsetningar eins og Hjörleifur gerir sig sekan um..
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:27 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.