Leita í fréttum mbl.is

Sjálftaka bandíttanna

á Alþingi lítur svona út:

Björn Valur Gíslason, fyrrverandi alþingismaður, setti þetta á vefinn:

Þingmenn ræddu fátækt og lág laun á Alþingi í dag í kjölfar sjónvarpsþáttar um sama efni í gær. Það er gott.
Hér má sjá launaþróun á fastakaupi þingmanna frá ársbyrjun 2010 til 2020.

 

Hvað er þetta Alþingislið annað en ótíndir bandíttar? Hvernig er hægt annað en að fá samúð með Sólveigu Önnu og hennar ramakveinum þegar þetta viðgengst? Og Píratapakkið á táfýlunni og malbikunarjakkanum og Húsaleigusvindlinu er samsekt og ekki hótinu betra.Og Inga Sæland sleikir út um með þeim og blaðrar um fátæktina hjá hinum, sjálf er hún búin að sjá fyrir sér.

Hvernig í veröldinni heldur þetta lið að það geti náð sátt í þjóðfélaginu með svona svívirðilegri hegðun?

Kjör leikskólakvenna munu ekki batna fyrr en þær einkavæða leikskólana, svipað og heilsugæslustöðvarnar. Ef Sólveig Anna og félagar vilja taka leikskólann á leigu af lækninum af forréttindatorginu þar sem hann býr og leggja meira á sig þá er von um raunverulegar kjarabætur. Allar venjulegar taxtahækkanir munu verða étnar upp fyrst af verkfallskostnaði, svo af af atvinnuleysi og verðbólgu, því miður er reynslan sú.

Svo kemur þetta Alþingispakk og biður okkur um að kjósa sig fyrir næstu kosningar svo það geti haldið áfram í sjálftöku bandíttanna og öllu fríðindasvindlinu sem þarna þrífst frá fríum gleraugum og uppúr.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Vel mælt Halldór

Jónatan Karlsson, 6.3.2020 kl. 14:14

2 identicon

Mikið rosalega er ég þér sammála og ég er næsta viss um að svo sé um miklu, miklu fleiri.

Algjör þrumupistill, heyr heyr Halldór!

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 6.3.2020 kl. 14:46

3 identicon

LÆKKIÐ LAUN ÞEIRRA, "SEM GÁFU SÉR" OFURLAUN OG EMBÆTTISMÖNNUM RÍKISINS. HÆKKIÐ LAUN ÞEIRRA VERST SETTU FYRIR SÓLVEIGU OG EFLINGAR, EN EKKI GUNNAR SMÁRA OG FÉLAGA, SEM VILJA STOFNA SOCIALISTA OG KOMMUNISTAFLOKK Á ÍSLANDI, SEM HLJÓMAR EINS OG NÍÐ FYRIR LANDIÐ OKKAR, ÍSLAND.

SJÁLFUM FINNST MÉR EÐLILEGT, AÐ SVOKALLAÐIR HÆLISLEITENDUR, BÍÐI SÍNS TÍMA EFTIR NÝJUM HÆKKUNUM EFLINGAR. ÞAÐ ER EKKI VÍST AÐ ÞEIR GETI UNNIÐ AF MÖRGUM ÁSTÆÐUM?.

SETJUM SÍÐAN LANDSLÖG OG BANN VIÐ ÖLLUM LAUNAHÆKKUNUM HJÁ STARFSMÖNNUM RÍKISINS, SEM ORÐIN ER ALLT OF FJÖLMENN.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 7.3.2020 kl. 17:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 3420887

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband