Leita í fréttum mbl.is

Trump er hraustmenni

og bregður sér hvorki við sár nmé bana eins og fornkóngar. Hann slær ekki af í störfum sínum en andskotast um heiminn allan þó hann sé í áhættuflokki.

 

Ferðabann Bandaríkjaforsetans Donald Trump vegna COVID-19 hefur vakið mikla athygli á Íslandi í dag, og raunar um allan heim. Gabriel Stargardter, blaðamaður Reuters, bendir á að forsetinn gæti sjálfur hafa smitast af veirunni alræmdu.

Gabriel bendir á þetta á Twitter síðu sinni en þar deilir hann mynd af Trump ásamt varaforsetanum Mike Pence og brasilískum embættismanni að nafni Fabio Wajngarten. Grunur lá á að Fabio væri smitaður af veirunni en nú er búið að greina frá því í erlendum fjölmiðlum að Fabio er með COVID-19.

Myndin sem um ræðir er, að sögn Gabriel, tekin fyrir fimm dögum síðan og því gæti þessi Fabio hafa smitað Donald Trump af veirunni.

Undir tísti Gabriels benda margir á að Trump er í áhættuhópi vegna veirunnar sökum aldurs en hann er 73 ára gamall. Þá eru viðbrögðin við tísti Trump misjöfn en sumir vona að Bandaríkjaforsetinn hafi fengið veiruna. „Þetta eru frábærar fréttir ef satt reynist,“ segir notandi nokkur.

Gabriel Stargardter
 
✔@gabstargardter
 
 

The guy standing to Trump’s left just tested positive for coronavirus, according to Brazilian media. Fabio Wajngarten posted this photo, taken during meetings at Mar-a-Lago, five days ago.

View image on Twitter
 
 
Takið eftir innræti DemókRATANS !
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Maðurinn er fáráðlingur. Heldur þú virkilega, nafni minn góður, að aðferðir og útfærslur á viðreisn efnahagslífsins í BNA hafi komið úr heilanum á honum? Ó nei. 

 Þetta ´´hraustmenni´´ verður fallið fyrir haustið, en ekki í kosningum.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 12.3.2020 kl. 23:31

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gerir yankee þetta ekki i þeim eina tilgangi að láta óvininn hafa nóg að gera við að pæla í gerðum sínum,hann þarf smá tíma. 

Helga Kristjánsdóttir, 13.3.2020 kl. 04:20

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Maðurinn er ekki fáráðlingur að mínu áliti nafni.

Halldór Jónsson, 13.3.2020 kl. 13:20

4 identicon

MARGIR MAGNAST VIÐ DAUÐANN?. LEIÐTOGINN ER HRAUSTMENNI, OFUR MAÐUR og HUGRAKKUR. "PAKKIÐ" ÓTTAST HANN. SKEPNUSKAPUR HVÍTA HÚSSINS ER Á UNDANHALDI.

TRUMP er til "FRAMTÍÐAR" fyrir dugandi AMERIKUMENN. Á drottningin IVANKA TRUMP næsta leik?. Nóg er hún vel gefin og glæsileg og maður hennar Kustner eldklár. Dóttir hennar ein er 10 ára gömul og talar kínversku. Breytum skoðunum okkar á TRUMP, sem hefur gott hjartalag og ber blessun fyrir heiminn.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 13.3.2020 kl. 13:37

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Sammála flestu hjá þér Gísli  með Trump

Halldór Jónsson, 13.3.2020 kl. 14:17

6 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Er ekki alveg jafn líklet að Trump eða Pence hafi smitað þann braselíska ?

Guðmundur Jónsson, 14.3.2020 kl. 11:18

7 identicon

Það er oft með "HARÐA" skrifara, að þeir eru HJARTAHLÝIR og SANNIR og hafa GÓÐA sýn á Landi OKKAR og sameiginlegum AUÐ. VIÐ eru flottastir og berum af í veröldinni miðað við fólksfjölda. Spyrjum Kára?.

Ég var skorinn upp við hægri mjöðm 25.febrúar. Ég þakka Guði mínum fyrir LÆKNINN og ALLRI DEILDINNI á 5.hæðinni HJÁ LANDSPÍTALANUM í Fossvogi. ÞEIR FÁ HÆRSTU EINKUN.

Í KÆTI minni vildi ég setja upp LOFTBRÚ TIL LÆKNA og SÉRFRÆÐINGA um ÓMENGAÐ LANDIÐ OKKAR og ALLA EIGIN FRAMLEIÐSLU ÍSLENDINGA frá Láði og Legi. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 14.3.2020 kl. 15:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband