23.4.2020 | 14:27
Berja steininn
með hausnum er háttur einstefnu Evrópusinna. Þeir eru staðfastir í þeirri trú að heimurinn sé Evrópusambandið. Allt annað skiptir minna máli.
Einar Benediktsson er sanntrúaður Evrópusinni. Hann skrifar í Morgunblaðið:
"Eftir aðeins fjóra mánuði af nýja árinu hefur tekið við gerbreytt heimsbyggð. Allt frá stríðslokum 1945 höfðu nær sífelld átök víðsvegar um heiminn þó ekki hleypt af heimsstyrjöld með gereyðingu kjarnavopna.
Það var því varla nema von að þjóðir allar og þeirra ríkisstjórnir þyrftu nokkurn tíma til að meðtaka að eyðilegging til jafns við sprengjuárásir hefði nú birst í COVIDfaraldrinum Í byrjun var það skiljanleg von íslenskra stjórnvalda að víðtækar aðgerðir strax boðaðar til stuðnings við lífvænleg fyrirtæki og atvinnuleysisbætur kæmu fljótt til gagns. Með öðrum víðtækum aðgerðapakka styrkja og fjármálaaðgerða tækist Íslandi vonandi að veðra af sér þennan mikla mótbyr vegna skerðingar framleiðslu, samgangna og viðskipta.
Vísað var til þess að í góðæri undanfarinna ára hefði stefna stjórnvalda skilað sterkri stöðu ríkisbúskapar og varaforða gjaldeyris. En á nokkrum vikum hafa allar forsendur fyrir hagspám hins vegar orðið ótryggari og misvísandi. Faraldurinn nær nú til allra viðskipta- og samskiptalanda okkar með mannfalli í hundruðum þúsunda, lömun atvinnulífs og stórfelldu atvinnuleysi við neikvæða þjóðarframleiðslu.
Hvarvetna leiðir þetta til félagslegra útgjalda hins opinbera af áður óþekktum stærðum. Hvað nú með þá grundvallarforsendu þess mikla hagvaxtar sem verið hefur, að samstaða sé meðal iðnríkja um frjálst flæði fjármagns og frjáls viðskipti með vörur og þjónustu? Velferð okkar Íslendinga ekki síður, ef ekki fremur, en margra annarra hvílir á að svo verði.
Í ársbyrjun hefði heimsbyggðin sýnilega getað hafið undirbúning sameiginlegs, samræmds átaks til að forða okkur öllum frá gríðarlegum mannskaða og efnahagslegri eyðileggingu af COVID-19- faraldri, sem gosið hafði upp í Wuhan í Kína. Öflugt alþjóðasamstarf gat verið fyrir hendi í Alþjóðaheilbrigðisstofnun SÞ WTO stofnuð 1947 og gjörkunn íslenskum heilbrigðisyfirvöldum. Reyndar var skaðvaldurinn, kórónavírusinn, óþekkt fyrirbæri en varla sú uppspretta sýkinga, sem er vegna óþrifa í meðferð matvæla í Kína.
Ekki stóð á útbreiðslu faraldursins, m.a. til NorðurÍtalíu og þaðan hingað til Íslands með skíðafólki. Íslendingar stóðu nú hinsvegar strax ótrúlega vel að vígi. Heilbrigðisyfirvöld okkar hófu þá þegar í janúar að afla útbúnaðar fyrir sjúkrahús, lyfja og annars vegna hættu á farsótt og að æfa viðbragðsáætlun fyrir landið. Þá kom í ljós að geta Íslenskrar erfðagreiningar að greina með skimun útbreiðslu og rekjanleika faraldursins skipti sköpum um að hefta útbreiðsluna og dauðsföll; í apríl eru þau með lægsta móti miðað við önnur Evrópulönd og Ameríku.
Dagleg sjónvarpskynning verður strax á þessu mikla verkefni heilsugæslunnar af þríeyki þeirra Víðis, Þórólfs og Ölmu, auk forsvarsmanna fjölmargra stofnana, að ógleymdum Kára Stefánssyni.
Þetta átak og váleg tíðindi frá Ítalíu, Bretlandi Bandaríkjunum og víðar, hefur skilað sér í óvenjulega sterkri þjóðarsamstöðu. Enn er það þó á huldu hvort Ísland nái svo að bæla faraldurinn niður og til hvað ráðstafana verði gripið á árinu. Verða tilslakanir sem nái til ferðafrelsis, undirstöðu blómlegs ferðaiðnaðar sem hefur vænst hingaðkomu 2-3 milljóna túrista?
Það virðist sjálfgefið að án mjög aukinnar alþjóðasamvinnu verður ekki stefnt stigu við COVID né öðrum slíkum drepsóttum. Þá mætti vera ljóst að æskileg breyting á starfslagi WTO nær því aðeins fram að ganga að Evrópulönd og Bandaríkin standi þétt saman.
Nýfengin reynsla af harðri samkeppni Frakka og Þjóðverja við Bandaríkjamenn í kaupum á torfengnum hjúkrunargögnum, hlýtur að vera til lærdóms um nauðsyn samstarfsvettvangs um öflugar birgðastöðvar og viðbragðsáætlanir. Forseti framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von Leyen, hefur beðið Ítali afsökunar á slælegum viðbrögðum í þeirra þágu í neyð. Slík samvinna, öllum aðilum aðgengileg, ætti að blasa við sem forgangsmál ESB. Slík svæðisbundin samvinna væri eðlilegur þáttur í að styrkja WHO, sem er eina athvarf þróunarlanda, en baráttan við smitfaraldur eins og COVID snertir allan heiminn. Það hlýtur að vera eina verkefni þeirrar þróunaraðstoðar sem Íslendingar kunna að veita.
Er það ekki nú eða aldrei að litið sé til Evrópusamvinnunnar?
Auk stærðar ESB er um að ræða ávöxt áratuga átaks í sameiginlegri stefnu um margþætt markmið en hæst ber þar glæstan árangur af sameiginlegum innri markaði, líftaug Íslands eftir að EES-samningurinn hefur þróast til fríverslunar með sjávarafurðir.
Ekki eru þó allir þegnar ESB-ríkja á eitt sáttir um ágæti þess samstarfs, sem nú ætti að ganga í endurnýjun lífdaga með nýrri evrópskri Marshallaðstoð og hvar á Ísland betur heima en í slíku átaki?
En það eru aðrar ástæður fyrir því að Ísland skilgreinist sem Evrópuríki. Löngum höfum við vísað til Snorra Sturlusonar og þeirrar miklu menningarvarðveislu sem er fólgin í Eddukvæðunum, sögu Noregskonunga eða fornsögum okkar til að sýna heiminum stöðu Íslendinga sem Evrópuþjóðar. Það hefur dofnað yfir þeirri hefðbundnu sögusýn, sem sóttur var í áhugi og stolt á tímum erfiðleika eða nýrra tækifæra.
Þaðan kom krafturinn sem forysta okkar í frelsisbaráttu 19. aldar naut og skáldin bundu í ljóð. Er ekki einmitt nú þörf sömu hvatningar? Við annað virðist það bætast að í baráttunni við Covid-19 standi Ísland öðrum framar."
Öll okkar sjálfstæðisbarátta frá Snorra Sturlusyni var barátta við hina illu Evrópu. Hún seildist hingað stöðugt með einveldiskóngum sem öðrum og gerir enn og vill aðeins hneppa okkur í ófrelsi.Það er kolröng ályktun að Snorri hafi verið Evrópusinni. Heldur þeveröfugt.
Aðeins vinátta Bandaríkja Ameríku hefur veitt okkur nauðsynlegan stjórnmálalegan stuðning til að losa okkur undan banvænni valdafíkn Evrópuríkjanna. Þeirra viðleitni beinist öll að því að hirða frelsi vort. Það er kolröng ályktun Evrópusinna að aðeins EES hafi gert okkur kleyft að selja fisk. Það eina sem gerðist að okkar aðild að EES gerði okkur kleyft að losna við forgjöf Norðmanna á Evrópumarkaði. Við trúum því enn að við verðum að fylgja þeim þangað og má satt vera. Því halda menn gjarnan að við verðum að fylgja þeim í hvívetna, orkupakkamálum sem öðru.
Frelsi Íslands felst aðeins í fullveldi þjóðarinnar. Því miður hefur landsöluöflunum vaxið fiskur um hrygg. Einar Benediktsson hefur ásamt fleirum látið villa sér sýn og skilur ekki hversvegna Snorri Sturluson lét Einar Þveræing ráðleggja mönnum að hafa frekar engan kóng því þeir væru misjafnir að gæðum. Sú hefur orðið raunin á.
Nýr kóngur kemur í ESB án þess að við fáum um það neinu ráðið. Það er sama hversu rækilega kemur í ljós að Evrópusambandið er hugmyndafræðilega gallað og stendur eiginlega í ljósum logum stafnanna á milli. Þeir berja hausnum við steininn og sjá bara Evrópusambandið.
Nýi kóngurinn Ursula vanderLeyen hefur þó móral yfir vondri meðferð á Ítalíu.Grikkland er gleymt að mestu. En svo gerist fátt nema ræðuhöld því Þjóðverjar og Frakkar eru sem fyrr fastheldnir á fé sitt en örlátir á fagurgalann.Evrópsk Marshallaðstoð er brandari í ljósi staðreyndanna sem við blasa.
Á næstu síðu fjargviðrast dr. Baudenbacker yfir því að Norðmenn skemmi EES samninginn með sínu RFM framferði. Okkur hefur alltaf skort RFM heldur gleypt allt hrátt sem frá ESB kemur. Á sama tíma þurfum við að þola það að íslenskur maður, Róbert Spanó, með náin persónutengsli við íslenskan hæstaréttarlögmann með blandað rygti, sé ekki aðeins látinn dæma með hagsmunum þessa vinar síns á báðum dómsstigum í gegn íslensku fullveldi heldur sé skipaður forseti dómstóls evrópska konungsins. Hvers mun hann mega hefna þar sem hallaðist á í héraði?
Það er greinilega kominn tími til að Íslendingar losi sig meira frá þessu EES, regluverki ESB og frá þessum Evrópudómstóli og hans boðskap og hafi hann að engu sem Jón Loftsson. Við eigum alveg að geta séð um eigin dómsmál að því tilskyldu að við vöndum betur val á dómurum eins og Jón Steinar Gunnlaugsson hefur bent á.
Til þessa hefur ekkert komið frá Evrópudómstólnum sem hefur orðið Íslandi til nema tjóns.
Sama hversu oft við berjum hausnum við steininn.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:33 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.3.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
fiski
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
jvj
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Athugasemdir
Sama hversu oft þú berð hausinn við steininn þá hefur ESB/EES ekkert með Mannréttindadómstól Evrópu að gera. Hann heyrir undir Evrópuráðið sem er allt annað og eldra fyrirbæri. Verður þá Ísland ekki að segja sig úr Evrópuráðinu?
Jón
Jón (IP-tala skráð) 23.4.2020 kl. 15:21
Sæll Halldór.
Ég vil benda þér á að Róbert Spanó var kosinn forseti mannréttindadómstóls Evrópu, sem hefur ekkert lagaildi hér á landi, enda dómarara þar ekki valdir samkvæmt neinum hæfniskröfum.
Öðru máli gildir um EFTA dómstólinn sem á að kveða endanlega úr um ágreining um túlkun EFTA/EES samnings viðrkomandi ríkja. ÞAr má benda áa niðurstöðu dómsins varðandi Icesave málið um ábyrgð íslenska ríkisins á ábyrgðum bankanna forðum.
Helgi Bjarnason (IP-tala skráð) 24.4.2020 kl. 01:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.