Leita í fréttum mbl.is

Vantar okkur fólk?

Flóttafólk-2-750x430Vantar Ísland fólk?

 

Það er að skilja á Andrési Inga þingmanni sem hafa hér allt galopið fyrir fólk sem velur sér að koma hingað af því að það hefur ekki tollað heima hjá sér af einhverjum ástæðum.

 

 

aij-áas-768x384Andrés Ingi hjólar í Áslaugu Örnu af því tilefni að hún vill afgreiða umsóknir um vernda hérlendis hratt og örugglega. Sem fyrrirennari hennar Sigríður Andersen vildi líka gera. En dæmi er að hér sitji strandað fólk árum saman í limbói og svo verður allt vitlaust af því að börn þessa fólk eru farinn að geta talað íslenzku.

 

Já það spurning hvort okkur vanti flóttafólk sem víst er talsvert framboð af?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stutta svarið er já, okkur vantar fólk.

Þjóðin eldist og ellilífeyrisþegum fjölgar hlutfallslega hraðar en Íslendingum á vinnumarkaði. En fólk á vinnumarkaði, skattgreiðendur, eru þeir sem borga ellilífeyrinn, heilbrigðiskerfið, menntakerfið, löggæslu o.s.frv.

Viljum við ekki skera niður þjónustu, lækka ellilífeyri og hækka starfsaldur til 75 ára þá eru fáar lausnir aðrar en að flytja inn fólk til að framleiða verðmæti og borga skatta. Lífsgæði þín öskra á að fleira fólk sé flutt inn.

Fæðingar eru einnig í sögulegu lágmarki og nægja ekki til viðhalds fólksfjöldanum, 1,7 börn á hverja konu. Og þó breyting yrði til batnaðar í þeim efnum strax á morgun þá eru um og yfir 20 ár þar til þeir þegnar fara að skila nokkru í ríkiskassann. En sú breyting er langt frá því að vera væntanleg.

Vagn (IP-tala skráð) 12.5.2020 kl. 20:26

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ekki batnar Vagninum.

Fólk er ekki sama og fólk.

Dópistar og ræflar eru ekki að standa undir neinum lúxuslífskjörum lífeyrisþega sem mörgum þættu ónóg né leggja neitt til samfélagsins. Hælisleitendur sem ekki vinna leggja heldur ekkert til.

Ég borgaði í lífeyrissjóð af launum mínum. Það em ég fæ núna er afleiðing af því og Vagninn borgar ekkert af því.Annað sé ég um sjálfur.

Halldór Jónsson, 12.5.2020 kl. 20:51

3 identicon

Dópistarnir og ræflarnir eru flestir fæddir og uppaldir hér, frændur þínir sem eiga sínar ættir að rekja til landnámsmanna, sem voru að vísu flóttamenn.

Og meðan verið er að afgreiða umsóknir hælisleitenda er þeim óheimilt að vinna. Flóttamenn flytjum við inn sjálf og veitum aðstoð meðan þeir læra málið og koma sér fyrir. Bæði flóttamönnum og hælisleitendum hefur gengið vel að finna vinnu og verða til gagns þegar þeim hefur verið heimilt að gera það, þó vissulega megi finna einstaka undantekningu eins og meðal annarra sem þetta land byggja.

Og ef þú heldur að lífeyrissjóðurinn þinn dygði fram yfir helgi ef ekki væru vinnandi hendur til að halda fyrirtækjunum gangandi, verðmæti krónunnar uppi og greiða vexti af lánum þá er þér ekki við bjargandi. Tekjurnar sem lífeyrissjóðurinn þinn notar til að greiða þér koma að mestu frá fyrirtækjunum, arði þeirra eða söluhagnaði hlutabréfa og vaxtagreiðslum af lánum sem vinnandi fólk tekur. Það eru þeir sem voru hælisleitendur og flóttamenn sem borga saltið í grautinn þinn, rjómann á skyrið og gyllinæðarkremið. Og Pólverjar vænan skerf af öllu hinu.

Vagn (IP-tala skráð) 12.5.2020 kl. 22:15

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú ert nú bara skemmtilegur í dag Herra Kerra. 

Vinnandi Pólverjar eru sem betur fer mun fleiri en hælisleitendur en gætu auðveldlega toppað þá ef þú galopnar allt. 

Ég vil yfirleitt reyna að fara mér hægar en hitt. Mér finnst íslenzkur ríkisborgararéttur vera auðlind sem þurfi einhverskonar kvótasetningu ekki síður en sjórinn. Ég vil velja fólk til innflutrnings með tilliti til þess að það sé líklegt að falla vel að mínum siðum. Já já, þú mátt alveg kalla mig rasista,fasista  nasista, og Trumpista.

En þetta með lífeyrisjóðina, þá vildi ég vita hvað þér finnst um að þeira kaupi meira í Icelandair? Er ekki betra að félagið fari fyrst á hausinn og afskrifi alla vildarpunkta,fríðindasmninga og þar fram eftir götunum. Byrji með hreint borð? Ég þykist svo sem vita hvernig þú munir svara en það er ekkert verra að fá það á blað ef þú ert í svona góðu stuði. 

Halldór Jónsson, 13.5.2020 kl. 11:36

5 identicon

ÍSRAELSKUM dreng var vísað frá ÍSLANDI 1921 vegna augnsjúkdóms sem talinn var hættulegur.

Gömlu útgerðarfélögin gáfu fisk, lýsi og matvæli frá ÍSLANDI fyrir tugum ára til þjóða erlendis. Þessi aðferð var RÉTT og SKINSAMLEG. 

Vandamál Evrópu og Norðurlanda er sýnileg öllum. ESB hefur brugðist. STJÓRNLEYSI og EVRU vandi fer með háloftum vegna illa rekinna þjóða Austurevrópu og í Afríku, sem hafa yfirtekið Kristna Evrópu.

ALÞJÓÐA grínið er ekki til góðs og ekki heldur viðskipta.

VIRÐUM Landið OKKAR og SÖGUNA.

BÆNADAGUR er næsta skref fyrir ÍSLAND?.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 13.5.2020 kl. 13:41

6 identicon

Gallinn við að byrja með hreint borð er að þá er ekkert á borðinu. Það er ekki svo að skuldir og skuldbyndingar falli niður. Þrotabúið mun innihalda eignir, bótarétt frá Boeing, lendingarleifi og vallarpláss, leigusamninga o.s.frv. Skiptastjórar eru svo í vinnu hjá kröfuhöfum og gæta þeirra hagsmuna en ekki ríkisins eða hluthafa. Þeir sem borga best fá svo það sem þeir vilja úr búinu.

Yfirtaka, eins og gert var með bankana, er ekki hreint borð. Þá yfirtekur ríkið eignir og skuldir. Ekkert fellur niður og ríkið verður rekstraraðilinn og þarf að gera upp við kröfuhafa.

Hvað best er að gera er spurning sem ekki er til neitt einfalt svar við. Það sem kæmi okkur best næstu misserin er ekki endilega það sem væri best til lengri framtíðar litið. Og snúi flugfélög sér að sínum megin markaði eftir þessa krísu þá er ekki víst að mikið framboð verði af áfangastöðum frá Íslandi og verðin ekkert til að fagna.

Stóriðjan, Össur, Marel, gagnaverin, mörg hugbúnaðarfyrirtæki, Hitaveita Suðurnesja, Arion banki, o.s.frv. eru í eigu útlendinga að stórum hluta og sum öllum. Margir útgerðarmenn taldir vera leppir fyrir erlenda eigendur. Erlend fjárfestingafélög gera tilboð í fasteignafélögin. Breti hægt og rólega að kaupa laxveiðiár og jarðir Austurlands. Og Íslendingar vilja vinna við skrifborð og, frekar en að taka við fólki sem vill gera sér hér heimili fyrir sig og sína, láta farandverkamenn byggja húsin, kaupa sem minnst og senda peninginn úr landi. Viljum við svo einnig afsala okkur stjórn á flugsamgöngum við landið? Sækir Delta Íslendinga sem festast erlendis og neyðargögn til Kína næst þegar svona kemur upp?

Vagn (IP-tala skráð) 13.5.2020 kl. 21:51

7 identicon

Færum ekki getu og dugleysi Evrópu yfir til ÍSLANDS. Andrés Ingi, einstæðingur frá VG á Alþingi, vill fylgja konunum?.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 15.5.2020 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband