11.6.2020 | 15:26
Bravó Bjarni
hvernig þú tekur á máli afturhaldspostulans og staðreyndafalsarans Þorvaldar Gylfasonar. Manni sem er gersamlega fyrirmunað að fara rétt með nokkurn hlut í stjórnmálum vegna pólitísks ofstækis og samviskuleysis gagnvart réttum málum:
Pistill Bjarna í heild sinni:
Það er sennilega til vitnis um það að allt er að komast í sitt fyrra horf, þegar atvinnumál hagfræðings og fyrrverandi stjórnmálaforingja verða að stórfrétt. Ætli maður eigi ekki bara að vera þakklátur fyrir það.
Á Norðurlöndunum er gefið út rit um efnahagsmál sem kallast Nordic Economic Policy Review. Fjármálaráðuneyti norrænu ríkjanna fjármagna ritið, sem er gefið út undir hatti norrænu ráðherranefndarinnar. Þetta er ekki óháð fræðirit, heldur er því ætlað að styðja við stefnumótun norrænu ríkjanna í efnahagsmálum.
Nú eru sagðar fréttir af því að Þorvaldur Gylfason hafi ekki fengið að vera ritstjóri þessa blaðs. Ástæðan sé sú að starfsmaður íslenska fjármálaráðuneytisins hafi vakið athygli á þátttöku hans í pólitísku starfi og ráðuneytið hafi komið í veg fyrir að hann fengi vinnuna. Þetta eru megindrættirnir í fréttaflutningnum, sem hefur verið hlaðinn rangfærslum og starfsmaðurinn nafngreindur og settur í forgrunn á mjög ósmekklegan hátt vegna ákvörðunar sem var ekki á nokkurn hátt hans. Af þessu tilefni minni ég á að starfsmenn ráðuneyta starfa í umboði og á ábyrgð ráðherra. Þótt ekki séu öll samskipti borin undir mig ber ég á þeim ábyrgð og í þessu tilviki endurspeglast vilji minn um að tilnefna hvorki né samþykkja Þorvald Gylfason til þessara starfa. Reyndar hafði mér aldrei dottið í hug sá möguleiki og enginn nefnt hann við mig.
En þá að kjarna málsins, tilnefningu og ráðningu ritstjóra. Um hana er fjallað í starfshópi sérfræðinga í fjármálaráðuneytum Norðurlandanna. Starfið er ekki auglýst, heldur fer fram umræða í hópnum um þá einstaklinga sem hvert ráðuneyti leggur til. Engar sérstakar hæfniskröfur eru gerðar aðrar en þær að viðkomandi njóti trausts allra sem að valinu koma. Fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins lagði fyrir mína hönd til konu sem hefur mikla reynslu af störfum, rannsóknum og skrifum á þessu fræðasviði. Til vara voru tvö önnur. Hvorugt þeirra var Þorvaldur Gylfason.
Að þessu sögðu vil ég leggja áherslu á að ákvörðun um ráðningu er tekin samhljóða, krafist er samsinnis allra fyrir ráðningu. Ekkert slíkt samþykki lá fyrir þann 1. nóvember sl., þegar Þorvaldi á að hafa verið boðin vinnan, sem var áður en nafn hans hafði nokkurn tímann verið nefnt við fulltrúa fjármálaráðuneytisins. Reyndar er það svo að þegar ég heyrði af þeirri uppástungu var ég afar skýr um að hann kæmi ekki til greina, enda tel ég að sýn og áherslur Þorvaldar Gylfasonar í efnahagsmálum geti engan veginn stutt við stefnumótun ráðuneytis sem ég stýri.
Það er meira en sjálfsagt að mæta fyrir þingnefnd og rekja þessi sjónarmið nánar. Þá gefst mögulega tækifæri til að fara nánar ofan í saumana á því hvers vegna ég tel Þorvald Gylfason tæplega eiga samleið með mínu ráðuneyti í þessu verkefni eða yfirhöfuð um önnur stefnumarkandi mál. Það verður þá í fyrsta sinn sem ég ræði um mögulegt samstarf við Þorvald Gylfason en ekki þarf að leggjast í mikla rannsóknarvinnu til að finna út hvaða hug Þorvaldur hefur borið til þeirra ríkisstjórna sem ég hef setið í undanfarin ár. Ef þörf krefur skal farið betur yfir það fyrir þingnefnd.
Ég mun þá einnig kalla eftir því hvernig fulltrúi Samfylkingarinnar telur það óeðlileg afskipti af ráðningu ritstjóra Nordic Economic Policy Review að fjármálaráðuneytið samþykki ekki umyrðalaust hugmyndina um Þorvald Gylfason. Ekki að ég efist um að hæfnisnefnd Samfylkingarinnar hafi borið Þorvald saman við aðra tilnefnda, en dugar það eitt og sér? Og hvers eiga aðrir þeir sem óformleg tillaga var gerð um að gjalda?
Þegar til kastanna kom var Ísland ekki eina ríkið sem ekki féllst á tillögu um ráðningu Þorvaldar Gylfasonar, eins og starfsmenn norrænu ráðherranefndarinnar hafa upplýst Þorvald um. En telji hann sig eiga eitthvað inni vegna óuppfylltra væntinga þarf hann að reka þau mál við þann sem sendi honum þetta meinta atvinnutilboð, í fullkomnu heimildar- og umboðsleysi. Mögulega mun hann njóta fulltingis einhverra þingmanna Samfylkingar, jafnvel Pírata, á þeirri leið. Spurning er bara hvort það væru ekki óeðlileg afskipti af þeirra hálfu af ráðningu í starf sem aldrei hefur verið auglýst.
Þetta var snöfurlega að verki staðið. Bjarni er ekki eins og Dagur B. Eggertssona sem alltaf flýr í skjól nafnlausra undirmanna til að firra sig ábyrgð.
Pereat Þorvaldur!
Bravó fyrir Bjarna!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:29 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Athugasemdir
Mér er nú nokkuð sama um Þorvald Gylfason, finnst hann leiðinlegur. En er ritsjóri þessa tímarits aðeins sitjandi út þetta kjörtímabil ? Hvað ef það tekur við vinstri stjórn eftir næstu kosningar þarf þá ekki ritsjóri sem er hægra megin í pólitíkinni að víkja og annar í stíl við Þorvald að taka við?
Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 11.6.2020 kl. 16:31
Dagur fær glósurnar hvern einasta dag og eru oft ekkert annað en smekkur fólks um hús og tré; Til hvers eru undirmenn ef ekki að svara asnalegum spurningum.
Helga Kristjánsdóttir, 11.6.2020 kl. 23:58
Það er GOTT hjá BJARNA að taka ÁKVARÐANIR. Sammála.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 12.6.2020 kl. 10:14
Sæll Halldór.
Fátt hefur glatt mig heitar og
innilegar þessa síðusta daga
en að Þorvaldur Gylfason skyldi
ekki ráðinn ritstjóri að tilteknum
snepli.
Allt er það eigingirni mín og sjálfselska
en Þorvaldur er sá allra síðasti sem ég vil
missa úr þjóðmálaumræðunni því fám mönnum
sem ég hef fylgst með í gegnum tíðina veit
ég búa yfir jafn gneistandi atorku og baráttuvilja, -
nema ef vera skyldi helstu andstæðinga hans í stjórnmálum, -
þar sem málin snéru á haus!
Húsari. (IP-tala skráð) 12.6.2020 kl. 14:47
Vonandi verður "kona" ekki ráðin í stað Þorvaldar?. Þá getur Þorvaldur Gylfason farið í Evrópumál og rukkað miljónir fyrir að vera "maður"?.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 12.6.2020 kl. 23:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.