Leita í fréttum mbl.is

Sórkostleg íslenzk uppfinning

Í skúr við Nýsköpunarmiðstöð Íslands er rekið minnsta álver á Íslandi. Á undanförnum fjórum árum hefur fyrirtækið Actus Metlas undir stjórn vísindamannsins og frumkvöðulsins Jóns Hjaltalín Magnússonar unnið að þróun nýrra rafskauta fyrir áliðnaðinn í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöðina.

Rafskautin eru ekki framleidd úr kolum eins og hefðbundin rafskaut heldur sérblönduðum málmi sem endist miklu lengur og þurfa mun minni orku. Þá sparast enn meiri orka við framleiðslu rafskautanna sjálfra sem að auki eru mörg framleidd með kolaorku.

Jón Hjaltalín Magnússon frumkvöðull og Guðmundur Gunnarsson fagstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands segja álið með nýju rafskautunum hreinna og umhverfisvænna en ál framleitt með núverandi aðferðum.STÖÐ 2/EGILL

Jón Hjaltalín segir íslensku álverin famleiða um 800 þúsund tonn af áli á ári sem valdi um þriðjungi af öllum koltvísýringsútblæstri landsins.

„Það er um ein koma sex milljónir tonna af koldíoxíði sem er losað upp í andrúmsloftið. Ef öll þessi álver væru með þessa tækni myndum við minnka losun koltvísýrings á Íslandi um 30 prósent, einn þriðja,“ segir Jón Hjaltalín.

Þar með er ekki allt upp talið. Því í stað þess að framleiða koltvísýring með notkun núverandi kolarafskautum framleiða nýju rafskautin beinlínis súrefni.

„Þannig að hundrað þúsund tonna álver með þessari tækni mun framleiða súrefni eins og 270 ferkílómetra skógur,“ segir Jón Hjaltalín.

Mikilvægt að fá stuðning nýsköpunar- og rannsóknarsjóða

Jón Hjaltalín segir samstarfið við Nýsköpunarmiðstöðina undanfarin ár hafi skipt sköpum í þróunarferlinu. En þróunarvinnunni sé ekki lokið. Næsti áfangi muni kosta um 100 milljónir króna. Þá bregði hins vegar svo við að íslenskir rannsóknarsjóðir sýni verkefninu engan áhuga.

„Því miður þá sóttum við um í Loftlagssjóð sem stefnir að því að bæta loftslagið en okkur var hafnað. Veistu af hverju? Þeir treystu því ekki að svona lítið íslenskt fyrirtæki komi með góða hugmynd og komi henni á markað,“ segir Jón Hjaltalín. Þá telji sumir sjóðir ekki um nýsköpun að ræða þótt verið sé að bylta rúmlega hundrað ára mengandi tækni sem muni hjálpa Íslendingum að ná markmiðum sínum og skuldbindingum í Parísarsáttmálanum.

Guðmundur Gunnarsson bræddi þennan álklump og setti í mót merkt Actus þegar fréttmenn bar að garði í dag.STÖÐ 2/EGILL

Áhuginn hjá erlendum stórfyrirtækjum sé hins vegar mikill á þessari tækni og því gæti framleiðsla skautanna hæglega endað í öðru landi en Íslandi. Framleiðsla fyrir öll álver heimsins gæti skapað mikinn fjölda starfa og stuðlað að verulegum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu.

Jón Hjaltalín segir þróun fyrirtækis hans og Nýsköpunarmiðstöðvarinnar hafa skilað raunverulegri lausn sem virki. Til marks um trú álfyrirtækjanna sjálfra hafi einn stærsti álframleiðandi Evrópu, þýska álfyrirtækið Trimet, skrifað undir samning við Actus Metlas í janúar um samstarf við að skala tæknina upp í fulla stærð.

„Og í framhaldi af því stefna þeir að því að breyta sínum álverum í umhverfisvæn álver. En þeir eiga fjögur mjög gömul álver, þrjátíu til fimmtíu ára gömul eins og Ísal,“ segir Jón Hjaltalín Magnússon.

 

Það er hreint ótrúlegt að íslenzk yfirvöld sem segjast eins og Katrín Jakobsdóttir setja loftslagsmálin í forgang skuli ekki stökkva á þessa stórkostlegur íslenzku hugmynd og veita henni brautargengi.

Minn

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Til marks um trú álfyrirtækjanna sjálfra hafi einn stærsti álframleiðandi Evrópu, þýska álfyrirtækið Trimet, skrifað undir samning við Actus Metlas í janúar um samstarf við að skala tæknina upp í fulla stærð.

„Og í framhaldi af því stefna þeir að því að breyta sínum álverum í umhverfisvæn álver. En þeir eiga fjögur mjög gömul álver, þrjátíu til fimmtíu ára gömul eins og Ísal,“ segir Jón Hjaltalín Magnússon.

 

Ef þetta er ekki það mest spennandi sem ég hef heyrt í seinni tið? Mikið rosalega finnst mér þetta stórkostlegt hvernig sem á er litið 

270 ferkílómetra skógur fyrir hundrað þúsund tonn af áli! 

Er þetta virkilega ekki to good to be true Hjaltalín?

Halldór Jónsson, 13.6.2020 kl. 15:47

2 identicon

Þessir þroskuðu FRUMKVÖÐLAR og VÍSINDAMENN frá ACTUS METAL Jón Hjaltalín Magnússon og Guðmundur Gunnarsson fagstjóri fá einlagt faðmlag frá  ÍSLENSKU þjóðinni fyrir uppfinningu sína á NÝJUM RAFSKAUTUM, sem þegar eru eftirsótt erlendis.

Enn og aftur til Hamingju OFURMENNI með þessi VÍSINDI.  

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 13.6.2020 kl. 20:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 3420664

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband