19.7.2020 | 20:37
Icelandair í ókyrrð
fjallar Björn Bjarnason um í athyglisverðri færslu dagsins.
Hún er athyglisverð þar sem hún fjallar um þá einstæðu ákvörðun Boga Nils Bogasonar að skora hina gömlu verkalýðshreyfingu á hólm á alþjóðlegum vettvangi.
Það fellur ekki aldeilis í kramið hjá afturhaldinu sem gefur að skilja.
Línurnar eru því dregnar með óvenju skýrum hætti og menn hljóta að hugleiða hvort stjórnarskrárákvæði lýðveldisins Íslands um félagafrelsi hafi eitthvað gildi eða ekki. Meðan svo er ekki þá er tilganglaust að halda úti umræðum um það hvort stjórnarskráin eða lýðræðið breyti einhverju í þjóðlífinu eða ekki.
Kúgararnir í verkalýðsforystunni eins og formaðurinn minn í V.R. rísa upp allir sem einn og hóta hverskyns ofbeldi.
Björn dregur saman sjónarmiðin og flokkar svo:
" Það er spurning hvert verkalýðshreyfingin er komin þegar forráðamenn ASÍ hafa ráð Láru V. Júlíusdóttur um vinnuréttarmál og Hrafns Magnússonar um lífeyrismál að engu.
Veður skipuðust skjótt í lofti í kjaradeilu Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands á 36 klukkustundum frá kl.14.00 föstudag 17. júlí til kl. 02.00 aðfaranótt sunnudags 19. júlí.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, tilkynnti föstudaginn 17. júlí uppsögn allra félagsmanna flugfreyjufélagsins þar sem ekki yrði unnt að bjarga Icelandair í óvissu um kjarasamning sem flugfreyjufélagið hafði fellt. Síðdegis laugardaginn 18. júlí bárust fréttir um að Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari hefði boðað aðila deilunnar á sinn fund. Um klukkan tvö aðfaranót sunnudags var ritað undir nýjan kjarasamning. Hann verður nú borinn undir atkvæði.
Bogi Nils Bogason (mynd mbl.is Arnþór Birkisson).
Ríkisstjórnin hélt sér til hlés á opinberum vettvangi vegna þessara sviptinga. Stjórnarandstaðan lét þeim mun meira til sín heyra eins og hér verður rakið með hennar eigin orðum. Þá fóru öfgamenn innan verkalýðshreyfingarinnar einnig hamförum.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, reið á vaðið með stóryrðum á mbl.is föstudaginn 17. júlí:
Mér finnst þetta bara alger lágkúra. Nú verða stjórnvöld að senda skýr skilaboð um að svona gerir maður ekki. Maður sér bara fyrir sér afleiðingarnar ef stjórnvöld bregðast ekki við með neinum hætti. Hvað verður þá um kjaraviðræður til framtíðar, þegar svona stórt félag hefur svona lítinn móralskan sans. [...]
Við hljótum öll að bíða eftir að það komi útspil frá ríkisstjórninni vegna þessa. Allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa meira og minna miðað að þessu félagi og það er eðlilegt að gerð sé krafa um að það hegði sér ekki svona. [...]
Það er brúkað í sumum ríkjum að semja við erlendar starfsmannaleigur sem leigja út svona flugfreyjur og -þjóna, en viljum við að þetta sé þannig með okkar stóra flugfélag, sem hefur verið að fá ofboðslegan stuðning á síðustu mánuðum? Það getur ekki bara tekið ákvörðun um að knésetja heilt stéttarfélag.
Helgu Völu finnst ekkert annað koma til greina en ríkisvaldið beiti fjárhagslegum þvingunum gegn Icelandair til að knýja stjórnendur félagsins til að fara að kröfum flugfreyja.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði:
Við Íslendingar höfum verið gæfusöm að hér hafa öflug stéttarfélög, með mikilli almennri þátttöku, skipt miklu máli í því að skapa heilbrigðara vinnuumhverfi og jafnari lífskjör en víðast þekkist. Þó vissulega verði að gera mun betur er það okkur öllum í hag að standa vörð um þessi félög og leyfa ekki einstökum stórfyrirtækjum að brjóta þetta kerfi niður. Ég mótmæli því harðlega nýjasta útspili Icelandair og lýsi yfir fullum stuðningi við flugfreyjur og verkalýðshreyfinguna það ættum við öll að gera.
Í þessum orðum felst einnig að beita eigi ríkisvaldinu til að knýja stjórnendur Icelandair til að verða við kröfum flugfreyja.
Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrum forsætisráðherra, formaður Samfylkingarinnar og flugfreyja sagði á Facebook:
Grimmileg aðför Icelandair að Flugfreyjufélagi Íslands er óskiljanlegur afleikur og mistök. Halda forsvarsmenn félagsins virkilega að það sé leiðin út úr vandanum að knésetja flugfreyjur/flugþjóna og stinga þau í bakið? Trúa þeir því í raun og veru að þetta sé leiðin að liðsinni lífeyrissjóðanna og stjórnvalda? Hvílík heimska. Með því að sniðganga Flugfreyjufélag Íslands er verið að færa verkalýðsbaráttuna meira en öld aftur í tímann þar sem launafólk, ekki síst konur, var beitt kúgun, ofbeldi og hótunum af atvinnurekendum. Hvaða fordæmi er verið að skapa með svona ógnarstjórnun? Að atvinnurekendur geti bara leitað á önnur mið ef launþegar lúta ekki vilja þeirra? Þá sé leiðin bara að lama verkalýðshreyfinguna og stuðla að annars konar stéttabaráttu þar sem leikreglur atvinnurekenda ráða för? Við þessar aðstæður getur ríkisstjórnin ekki setið hjá aðgerðalaus. Hún hefur þá skyldu að forða gífurlegum átökum á vinnumarkaði sem enginn sér fyrir endann á.
Þessi reiðilestur er einnig reistur á því meginsjónarmiði að beita eigi skattfé almennings og eignum hans í lífeyrissjóðunum til að brjóta á bak aftur ákvarðanir sem stjórnendur Icelandair tóku.
Lára V. Júlíusdóttir, lögfræðingur, sérfróð um vinnurétt, sagði að ákvarðanir Icelandair vegna uppsagnanna hefðu verið í samræmi við lög. Þá sagði sósíalistinn Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar-stéttarfélags á Facebook:
Einn truflaðasti meðlimur reykvískrar borgarastéttar [Lára V. Júlíusdóttir] talar úr hliðarveruleika hinna auðugu. Ömurlegt þvaður í ruglaðri manneskju.
Þá sér hún ekki fyrir sér að hugsanleg samúðarverkföll yrðu almennt liðin í því ástandi sem nú sé uppi.
Í þessum orðum felst ótti Sólveigar Önnu við að henni kunni ekki að takast að boða til samúðarverkfalls með flugfreyjum á þeirri forsendu að lög hafi verið brotin á þeim.
Gunnar Smári Egilsson, hugmyndafræðingur og leiðtogi sósíalista, ræðir um auðvaldið og illvirki þess á Facebook og segir:
Þetta vita allir, nema kannski þau sem fjalla um stjórnmál og efnahagsmál á Íslandi. Þar er látið sem fólk sem vill að lífeyrissjóðir beri virðingu fyrir launafólki sé öfgafullt jaðarfólk. Hið rétta er að Sjálfstæðisflokks- og nýfrjálshyggjubullurnar í stjórn Icelandair, fjármálaeftirlitinu, fjármálaráðuneytinu og í fjölmiðlum er öfgafullt jaðarfólk, alt-right sértrúarsöfnuður sem tilbúinn er að fórna náttúru, samfélagi og mannfélagi ef það leiðir til þess að einhver skíthællinn nær að græða á því.
Píratinn Þórhildur Sunna Ævarsdóttir alþingismaður sagði:
Framkoma Icelandair gagnvart starfsfólki sínu er svívirðileg og á ekki að líðast á íslenskum vinnumarkaði. Ég tek heils hugar undir með Drífu Snædal sem segir m.a.:
Icelandair getur ekki búist við því að njóta áfram þeirrar velvildar sem félagið hefur notið í íslensku samfélagi, segir hún.
Ætlar ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að horfa upp á viðlíka djöfulsins níðingsskap aðgerðarlaus?
Píratinn vitnaði til Drífu Snædal, forseta ASÍ, sem sagði við mbl.is föstudaginn 17. júlí:
Þeir eru að sýna starfsfólki sínu fullkomna lítilsvirðingu og þetta verður ekki látið viðgangast. Það er verið að leita allra leiða til að bregðast harkalega við þessu.[...]
Við munum gera kröfu um það að lífeyrissjóðir starfsfólks á Íslandi verði ekki notaðir til þess að fara í hlutafjárútboð og taka þátt í því gegn hagsmunum vinnandi fólks ef Icelandair ætlar að haga sér svona. Við munum að sjálfsögðu líka gera þá kröfu að stjórnvöld séu ekki að greiða út úr okkar sameiginlegu sjóðum til Icelandair til fyrirtækis sem kemur svona fram við starfsfólk.
Þarna kemur fram sama sjónarmið og hjá Samfylkingunni nota skuli skattfé almennings og eignir fólks í lífeyrissjóðum til að beita stjórnendur Icelandair fjárhagslegum þvingunum í þágu flugfreyjufélagsins.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, var á sömu línu þegar hann sagði:
Stjórnendur Icelandair starfa óáreittir í skjóli lífeyrissjóðanna sem fara með almannafé og við það getum við ekki unað lengur.
Að því sögðu skora ég á lífeyrissjóðina að krefjast hluthafafundar, tafarlaust, og gera nauðsynlegar breytingar á stjórn félagsins svo einhver raunverulegur möguleiki sé á að bjarga félaginu svo sátt ríki þar um.
Ég vil að lokum nota tækifærið og þakka forstjóra Icelandair fyrir að sameina verkalýðshreyfinguna í eina kraftmikla heild sem sækir nú fram sameinuð og aldrei sterkari.
Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari lýsti á Facebook stuðningi við ákvarðanir stjórnenda Icelandair. Ragnar Þór Ingólfsson ritaði Guðmundi Þ. opið bréf vegna þessa þar sem sagði meðal annars:
Þessi staða er miklu stærri og alvarlegri en Icelandair þó hún raungerist þar og hún er dauðans alvara. Félagsleg undirboð kosta mannslíf.
Við stöndum á tímamótum Guðmundur, tímamótum þar sem verkalýðshreyfingin verður að standa í lappirnar. Við getum ekki og munum ekki standa á hliðarlínunni eða sem áhorfendur eins gert var í síðasta hruni.
Við gerum kröfu um að endurreisnin fari fram með nýrri stjórn og þjálfarateymi, sem hlýtur að vera eðlileg krafa.
Þarna er talað um baráttu upp á líf og dauða í orðsins fyllstu merkingu, hvorki meira né minna. Hingað til hefur Ragnar Þór látið sér nægja að setja verkalýðsbaráttu sína í pólitískt samhengi og meðal annars boðað að hann ætli að stofna nýjan flokk fyrir næstu alþingiskosningar. Nú stígur hann skrefi lengra.
Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsfrömuður á Akranesi, sagði:
Minni á að lífeyrissjóðir launafólks eiga yfir 50% í Icelandair og ég trúi ekki að meirihlutaeigandi fyrirtækisins sem eru lífeyrissjóðirnir láti þessa aðför að samningsfrelsi launafólks átölulaust!
Halla Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, sagði á Facebook um svipað leyti og Aðalsteinn Leifsson boðaði stjórnendur Icelandair og forystumenn flugfreyja til sáttafundar:
Það sem er hræðilegast við aðgerðir Icelandair er að þær voru þaulskipulagðar. Markmiðið var alltaf að reyna að brjóta stéttarfélag flugfreyja á bak aftur og ganga þannig í augun á fjárfestum, einkum erlendum. Icelandair vildi aldrei semja. En þar gleymist hverjir eru helstu bakhjarlar Icelandair, það er þjóðin í gegnum lífeyrissjóðina og svo veittan og mögulegan ríkisstuðning. Miðað við upplýsingar frá Icelandair er launakostnaður flugfreyja um 7% af rekstrarkostnaði fyrirtækisins. Það er því pólitísk, ekki peningaleg, ákvörðun að ráðast gegn þeim af slíku offorsi. Niðurbrotstilraunum verður svarað af fullri hörku. Því réttindi launafólks eru grunnurinn að almennri velferð á Íslandi.
Þessi orð framkvæmdastjóra ASÍ sýna að þar á bæ vildu menn ýta undir illindi í stað þess að bera klæði á vopnin. Það átti að láta sverfa til stáls af því að við skrifborðið telur þetta fólk að annars konar átök en við samningaborðið skili bestu árangri.
Stefán Ólafsson prófessor er ráðgjafi Eflingar-stéttarfélags. Hann skrifaði grein á vefsíðuna Kjarnann laugardaginn 18. júlí og sagði stjórnendur Icelandair hafa leikið af sér að undirlagi Samtaka atvinnulífsins (SA), sem lætur sig dreyma um að veikja samtök launafólks varanlega með slíkum aðgerðum, að hætti nýfrjálshyggjumanna.
Afleikurinn hafi meðal annars þetta í för með sér:
Icelandair þrengir verulega með þessu möguleika sína á að endurfjármagna félagið, því fulltrúar launafólks í stjórnum lífeyrissjóðanna munu vissulega eiga mun erfiðara en ella með að styðja nýjar fjárfestingar í Icelandair ef það stendur samtímis fyrir herferð til að veikja samtök launafólks og samningsréttinn á vinnumarkaðinum. Lífeyrissjóðirnir eiga nú hátt í helming hluta í félaginu.
Það verður einnig erfiðara fyrir ríkisvaldið að styðja félagið, umfram það sem þegar hefur verið gert, ef þetta útspil stendur.
Stef Stefáns er sama og annarra vinstrisinna sem hér eru nefndir til sögunnar: beita á lífeyrissjóðum og skattfé almennings til að þvinga stjórnendur Icelandair til að reka félagið á annan hátt en þeir telja skynsamlegt.
Hrafn Magnússon starfaði áratugum saman að lífeyrismálum hjá Landssamtökum lífeyrissjóða. Hann sagði á Facebook-síðu minni 17. júlí:
Sá í fréttum í kvöld að formaður VR vill beita lífeyrissjóðunum í verkalýðsbaráttunni. Ég tel þessa yfirlýsingu fráleita og ekki í takt við raunveruleikann.
Það er spurning hvert verkalýðshreyfingin er komin þegar forráðamenn ASÍ hafa ráð Láru V. Júlíusdóttur um vinnuréttarmál og Hrafns Magnússonar um lífeyrismál að engu og kjósa illindi í stað lausnar við samningaborðið, lausnar sem fylgt er fram af þunga eftir að samningur hefur tekist.
Hitt er síðan umhugsunarefni miðað við það sem segir í tilvitnuðum orðum hér að ofan hvar íslenska þjóðarskútan væri stödd sæti það fólk við stjórnvölinn sem þolir jafnilla hvell og samfylkingarfólkið og píratar. Við aðstæður sem hér er lýst skiptir fumlaus stjórn án stóryrða sköpum.
Nú ættu stóryrðasmiðirnir að læra að hafa hægt um sig. Þá ber einnig að halda þeim sem lengst frá ríkisfjárhirslunni og lífeyrissjóðunum því að þeir skirrast ekki við að nota fé annarra til að þjóna pólitískri lund sinni."
Skrif Sólveigar Önnu, Gunnars Smára og Þórhildar Sunnu skera sig úr hvað ofsa áhrærir. Hvar endar það þjóðfélag sem fer að lúta leiðsögn slíks fólks?
Ekki hef ég vit til að sjá slíkt fyrir. En mannkynssagan geymir margar hliðstæður frá liðnum öldum. Snilld mannsandans sem ól af sér Einstein og smíðaði Hubble sjónaukann á sporbraut bliknar og virðist til lítils í samanburði við sigur heimskunnar.
Pírataþingmenn setja upp F..Y.. húfur á Alþingi Íslendinga og stilla sér upp við ræðustólinn meðan annar þingmaður talar. Annar þessara þingmanna labbar á sokkaleistunum um þingsalinn flakandi í hálsmálið leggjandi fram tilgangslausar fyrirspurnir sem kosta skattgreiðendur milljónatugi að svara. Þetta lið gerir Alþingi að skrípasamkundu sem forseti þess virðist ekki ráða við að stýra þó hann hafi aðeins reynt að andæfa fíflaskapnum.
Það er skelfilegt að vita til þess að tíund þjóðarinnar skuli greiða svona skríl atkvæði sitt.
það er ekki bara Icelandair sem fer í gegn um ókyrrð. Allt hlutafé lífeyrissjóðanna er núna tapað og besta að afskrifa það allt á einu bretti. Þessi öfl mega ekki koma að þessu félagi aftur.
Það er allt þjóðfélagið sem hristist og skekst þegar opinberar persónur draga alla virðingu í gegn um svaðið eins og Pírataþingflokkurinn gerir í heild sinni og verkalýðsforingjarnir taka undir með hótunum um ofbeldi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:43 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Athugasemdir
Takk fyrir þessa góðu færslu, Halldór.
Það sorglega í þessu öllu er að mér virðist að sumir aðilar hafi verið að nota flugfreyjur sem peð og tilbúnir að fórna þeim ef út í það færi.
Það eru margar tilvitnanir í þessum pistli þínum en það er ein sem mér finnst vera á einstaklega lágu plani, yfirfull af ómerkilegu lýðskrumi og ætti að standa um eilífð sem dæmi um skammsýni. óbilgirni og skort á vilja til að setja sig í fótspor annarra. Með öðrum orðum pólitík, eins ómerkileg og hún getur orðið. Hvað tilvitnun er ég að tala um? Jú auðvitað, ég er að tala um orð "heilagrar" Jóhönnu."
Hörður Þórðarson, 19.7.2020 kl. 21:59
Takk fyrir þetta Hörður.
Stundum verður mér hugsað til Jóhönnu af Örk þegar ég verð vitni að vanstillingu og grunnhyggni þessarar persónu sem JBH gaf háðsnafnið heilög Jóhanna.
Það eru mörg form á geðsýki sem við verðum að lifa með. En afleiðingarnar eru margar og koma yfirleitt mest niður á þeim sem síst skyldi-því miður.
Halldór Jónsson, 19.7.2020 kl. 23:18
Það verður að kalla LOFTLEIÐAR - ICELANDIC andann inn að nýju. Þar unnu allir fyrir félagið, FÖÐURLANDIÐ og flugfreyjurnar. Þarna voru KAPPSMENN og HYGGJUVIT hjá stofnendum.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 20.7.2020 kl. 12:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.