Leita í fréttum mbl.is

Stefna Gunnars Smára nýkommúnista

þar áður auðvaldsþýs Jóns Ásgeirs og Baugs og þá búsettur í Arnarnesi, í skattamálum: Hann skrifar svo:

"Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsmálaráðherra hefur boðað niðurskurð opinberrar þjónustu og félagslegrar aðstoðar til að fjármagna svimandi styrki til fjármagns- og fyrirtækjaeigendur vegna kórónafaraldurinn.

Krafan almennings á að vera um hækkun fjármagnstekjuskatts á miklar fjármagnstekjur, upptöku eignaskatta á miklar eignir, hækkun erfðafjárskatts á arf umfram 50 milljónir króna, útsvar á fjármagnstekjur og aðstöðugjald á fyrirtæki til að fjármagna þjónustu sveitarfélaga o.s.frv.

Nógir peningar í Borgarlínu, Borgaralaun,félagsmál.

Ekkert atvinnulíf er helstefna nýkommúnistans Gunnars Smára Egilssonar fyrir íslenska þjóðfélagið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Þessi sami Gunnar Smári gagnrýndi Björn Inga fyrir að vera mjög líklega gerður út af einhverjum auðmanni enda gæti "Viljinn" ekki gengið án utanaðkomandi aðstoðar!! Þeir sletta skyrinu sem eiga það!!!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 5.8.2020 kl. 15:51

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er viss kjarkur fólginn í því að söðla um eins og Gunnar Smári og Grjóni bróðir gera með því að snúa frá borgaralegum sjónarmiðum  yfir í kommúnisma með Sólveigu Önnu og finnast ekkert athugavert við fortíðina.

Halldór Jónsson, 5.8.2020 kl. 16:15

3 identicon

Ef ég man rétt, þá var Gunnar Smári í félagi Múslima um nokkurt skeið, en gekk úr því af einhverjum ástæðum.

Hvort hann á Fatwa yfir höfði sér fyrir að hafa svikist undan merkjum, veit ég ekkifoot-in-mouth.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 5.8.2020 kl. 17:28

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Stefnufesta virðist honum ei mjög í  blóð borin miðað við marga íhaldssauðina sem sumir eru jafnvel giftir sömu kellingunni í áratugi án þess að býtta eins og móðins er nú víst víða.

Halldór Jónsson, 5.8.2020 kl. 19:44

5 identicon

KOMMUNISTAR, rígbundinn stjórnmálaflokki ná EKKI árangri á ÍSLANDI frekar en í USA. Slæm samsetning á OFSTÆKI og ÓRÓA með greiðan aðgang að ríkiskassanum, sem þeir "telja sig eiga".

Við viljum FÆRRI á ALÞINGI og MINNI ríkisafskipti. Gerum þá sem RÁÐA ábyrga fyrir störfum sínum.

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 6.8.2020 kl. 20:54

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Menn muna árás Helga Hallgrímssonar  þegar hann réðist morðóður á Bíl Geirs Haarde í horninu.Aðeins glerið bjargaði lífi Geirs.

Nú er þetta rifjað upp svo:

Það kemur kannski ekki á óvart að Gunnar Smári Egilsson blandar sér í umræðurnar en hann heldur því fram, eins og Sighvatur, að Morgunblaðið sé sérstaklega áróðurskennt á fimmtudögum þegar það er í frídreifingu. Hefst þar hatrömm rimma milli Gunnars Smára og Stefáns Einars:

„Það er ætíð einhver svona áróður í blaðinu þegar það er fríblað. Auðvitað líka hina dagana, en í miklu minna magni. Ritstjórnin hefur aðlagað sig að þörf hinna ríku í áróðursstríðinu, að segja svona fréttir helst á fimmtudögum. Hálfgerð skrípa-ritstjórn orðin, enda dansa limirnir eftir höfðinu. Mogginn er málgagn auðvalds sem er í stríði við þjóðina.“

Stefán Einar svarar að bragði:

„Enginn þekkir það betur en þú hvernig það er að laga sig á hagsmunum hinna ríku. Alltaf verið til leigu og ert það enn. Hvar sem þefa má uppi peninga, hvort sem þeir eru í eigu alþýðunnar eða Jóns Ásgeirs. Hversu aumkunarvert er það?“

Gunnar Smári svarar:

„Í hvert sinn sem þú opnar munninn minnir þú mig á það sem Zorba sagði; ef maðurinn lyktaði af innræti sínu væri ekki líft hér fyrir fýlu.“

Stefán svarar fyrir sig að bragði og látum við það duga úr þessum umræðum þó að rimman sé töluvert lengri:

„Það er sama tilfinning og fólkið fær sem þú hefur sviðið með því að svíkja það um laun og alla þá sem brennt hafa sig á viðskiptum við þig. Sá listi er langur og gæti fyllt margar síður í Morgunblaðinu ef tekinn yrði saman.“

Að þessi Gunnar Smári kunni ekki að skammast sín fyrir skriðdýrshátt sinn?

 

 


Share on FacebookTweet about this on TwitterShare on LinkedIn

 

Halldór Jónsson, 7.8.2020 kl. 20:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband