10.8.2020 | 13:18
Þörf áminning Björns
Bjarnasonar til Morgunblaðsins. Forsíða þess var raunalega að forfa á fyrir okkur Sjálfstæðismenn.Að hampa þessum flokkssvikara Þorgerði Katrínu með þessum hætti en setja Bjarna Benediktsson á 2. síðu jafnast á við að birta skrif Leista-Björns Leví á miðopnu með reglubundnum hætti í niðurlægingu.
Björn Bjarnason segir:
"Morgunblaðið hampar Viðreisn
Vilji Morgunblaðið stjórnmálavæða COVID-19-umræðuna ætti blaðið að velja sér annan bandamann til þess en formann Viðreisnar.
Fimm dálka forsíðufyrirsögnin: Komið að stjórnmálamönnum í Morgunblaðinu í dag (10. ágúst) er sérkennileg í ljósi þess að frá því í febrúar hefur verkefnið sem um er rætt í fréttinni verið eitt helsta viðfangsefni stjórnmálamanna hér á landi og raunar um heim allan.
Hér á landi hafa ráðherrar og ríkisstjórn farið að ráðum sóttvarnafræðinga og jafnan tekist að finna meðalveg til að halda friðinn í þeim hópi og meðal þjóðarinnar.
Þá hefur stjórnvöldum tekist að halda þannig á málum að kaupmáttur er nú meiri hér en nokkru sinni áður eins og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra, segir í sama tölublaði Morgunblaðsins. Hefði sú frétt frekar átt heima sem fimm dálka á forsíðunni heldur en að gefið skuli til kynna að stjórnmálamenn hafi ekkert komið að COVID-19-gagnaðgerðum.
Með skrýtnu fyrirsögninni er Morgunblaðið að hampa orðum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, sem greip á lofti þá skoðun Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis að nú væri það í höndum kjörinna fulltrúa að ákveða hvernig ætti að takast á við veiruna til lengdar. Þessi orð eru markverð vegna þess að Þórólfur virðist nú telja unnt að grípa til aðgerða sem dugi til langs tíma, nú gilda aðgerðir til fimmtudagsins 13. ágúst. Þetta er í raun fréttapunkturinn en ekki hitt að komið sé að stjórnmálamönnum!
Í blaðinu er haft eftir Þorgerði Katrínu:
Ríkisstjórnin getur ekki lengur skýlt sér á bak við almannavarnateymið og sóttvarnaforsendur einar og sér. Ég get ekki ímyndað mér annað en að þau hafi verið að vinna að þessu í sumar og séu tilbúin núna í þessari viku sem er að byrja að sýna á þessi pólitísku spil hvað það er sem er í kortunum. Ríkisstjórnin er að auka óvissuna en ekki eyða henni.
Á vefsíðunni vardberg.is birtist sunnudaginn 9. ágúst forvitnileg úttekt sérfræðinga í Bretlandi á áhrifamætti framgöngu og ræðumennsku þjóðarleiðtoga. Úttektina má sjá hér.
Í lok hennar er vikið að tveimur sem mættu bæta sig, Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, og Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Um Trump segir:
Sagt er að Trump hafi jafnan fylgt þeirri stefnu að hugsa upphátt þegar hann taki til máls opinberlega. Þetta hafi ekki breyst eftir að hann varð forseti í janúar 2017. Hann bregðist við spurningum án þess að gefa sér tíma til að hugsa og það bögglist síðan fyrir honum að veita ígrundað, viðeigandi svar.
Þessi lýsing á nú vel við þegar Þorgerður Katrín gengur fram á völlinn til að koma höggi á pólitíska andstæðinga sína. Það sem hún segir í tilvitnuðum orðum um störf ríkisstjórnarinnar vegna COVID-19-faraldursins styðst ekki við nein rök.
Vilji Morgunblaðið stjórnmálavæða COVID-19-umræðuna ætti blaðið að velja sér annan bandamann til þess en formann Viðreisnar."
Undir þetta er tekið og þetta er þörf áminning til Davíðs.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 3419716
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Sýnir að Davíð er ekki eins langrækinn og sögur um hann segja?
Ekkert launungamál að Davíð hafði mikið álit á ÞKG þegar hún var í Sjálfsræðisflokknum svo önnur skýring gæti verið að hann eygji möguleika á að hún komi heim einsog týndi sonurinn í Biblíunni?
Annars er Fréttablaðið svo hliðholt ESB draumnum að manni svelgist stundum á morgunkaffinu en hafði þó sunnudaga og mánudaga ESB dagblaðsfría en ekki lengur að því virðist.
Grímur Kjartansson, 10.8.2020 kl. 14:27
MORGUNBLAÐIÐ VAR SANNUR VITNISBURÐUR UM FULLVELDIÐ OG SJÁLFSTÆÐI ÍSLENDINGA. Það hljómar ILLA að ganga undir stjórnmálaflokkum og einstaklingum, sem vegsama getu og gagnleysi Evrópusambandsins, sem engin mál leysa og síst fyrir okkar ÍSLENDINGA. Það vantar ÞJÓÐARLEIÐTOGA inná ALÞINGI, sem vinna fyrir ÍSLAND, en EKKI með ALÞJÓÐAembættismönnum, demokrötum og hugmyndum Svíþjóðar Gretu.
Ég er sammála Grími Kjartanssyni.
ÍSLANDI vantar "OFURFLOKK" fyrir ÍSLAND við næstu kosningar.
TRUMP er minn maður í AMERIKU og öllum Vesturheimi. Lágkúra og illmælgi ÍSLENDINGA í háum embættum er til skammar fyrir ÍSLAND. Þessir sömu menn eru ekki með tærnar þar sem hann hefur hælana. Hann er ÞJÓÐARLEIÐTOGI, sem menn taka mark á
GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 11.8.2020 kl. 00:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.